Vörumerki

Margrét Björk Jónsdóttir

SamfélagiðFréttir

Hlaðvarp fyrir fólk með góðar hugmyndir og stóra drauma! Langar þig að stofna eigið fyrirtæki, styrkja þitt persónulega vörumerki eða gera eitthvað alveg nýtt?  Í Vörumerki leiða Margrét Björk og Arna Þorsteins hlustendur inn í heim vörumerkja, sköpunar og frumkvöðlastarfs. Þær ræða við fólk sem hefur byggt upp eða starfað fyrir sterk vörumerki, þá sem hafa tekið stórar ákvarðanir, gert mistök og lært af þeim. Inn á milli deila þær eigin reynslu og raunveruleikanum á bak við það að taka sénsinn þrátt fyrir að vera ekki með allt á hreinu. Byrja, og gera það svo vel!

S2E3 | Sara í Júník - Andlit vörumerkis í 15 ár

S2E3 | Sara í Júník - Andlit vörumerkis í 15 ár

18jún

Sara Lind Pálsdóttir var aðeins 21 árs þegar hún opnaði tískuvöruverslunina Júník. Þrátt fyrir enga reynslu úr viðskiptalífinu, en með brennandi áhuga á tísku og fatnaði, sá hún gat á markaðnum og ákvað að stökkva í djúpu laugina. 15 árum síðar er Júník ein þekktasta fataverslun landsins og Sara sjálf löngu orðin órjúfanlegur hluti af vörumerkinu. Í þættinum fer Sara yfir ótrúlega sögu Júník: fyrstu árin, LA-ferðirnar, djammkjólana, útvarpsauglýsinguna sem allir þekkja, samfélagsmiðlana, áhrifavalda, sumartískuna og margt fleira. Við ræðum líka hvernig það hefur verið að vera andlit vörumerkis í 15 ár, vinnuna á bak við tjöldin, mörkin á milli vinnu og einkalífs, kjaftasögurnar, nafnlausar Facebook-færslur og hvernig hún ákvað að taka á þeim, auk alvarlegra veikinda sem settu lífið, vinnuna og forgangsröðunina í nýtt samhengi. Einlægt, skemmtilegt og djúsí spjall við ofurkonuna Söru í Júník. -- 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche. 💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. 🎶Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson 📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

S2E2 | Davíð Örn Símonarson - Hinn fullkomni prófíll

S2E2 | Davíð Örn Símonarson - Hinn fullkomni prófíll

11jún

Davíð Örn Símonarson, framkvæmdastjóri og annar stofnandi Smitten, er fyrsti viðmælandi okkar í seríu 2 af Vörumerki. Í þættinum ræðum við söguna á bak við skemmtilegasta dating-app í heimi, hvernig app verður að vörumerki, fjármögnun fyrir frumkvöðlaverkefni og bókina sem kveikti frumkvöðlaeldinn hjá Davíð. Davíð segir frá verkefnunum, tilraununum og lærdómunum á undan Smitten og af hverju það hefur aldrei komið til greina að gefast upp. Svo förum við auðvitað í stóru spurninguna: Hvernig er hinn fullkomni Smitten-prófíll? Hvaða myndir virka? Hverjar alls ekki? Hver eru rauðu flöggin? Og hvernig byrjar maður samtal án þess að segja bara „hæ“? Mögulega fórnar Margrét sér fyrir málsstaðinn... og skráir sig á Smitten í þættinum. Davíð hjálpar henni að velja réttu myndirnar og hikar ekki við að benda á þær sem eru ekki málið.  Þetta er þáttur fyrir alla sem vilja heyra skemmtilegt samtal um frumkvöðlastarf, vörumerki, lærdóm og fjármögnun, nú eða bara þá sem vilja fullkomna Smitten-prófílinn sinn. --- 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche. 💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. 🔊 Sérstakar þakkir fyrir hljóð- og eftirvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson 📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

S2E1 |  Arna & Margrét – „Hver er ég þá?“

S2E1 | Arna & Margrét – „Hver er ég þá?“

11jún

Í fyrsta þætti s02 ræðum við miklar breytingar í persónulega lífinu hjá Margréti frá síðustu seríu og sjálfsmyndarkrísu sem Arna hefur staðið frammi fyrir eftir að hún sagði skilið við auglýsingastofuna Sahara.  Á ólíkan hátt fundum við okkur báðar á þeim stað þar sem við þurftum að spyrja okkur: ….Hver er ég þá? Þá segir Arna frá hugmyndinni á bakvið H9 Studio og Margrét fer yfir stöðuna á vörumerkinu sínu. Þetta er þáttur fyrir alla sem standa á tímamótum eða þurfa smá hvatningu til að taka næsta skref. 💥 Bara byrja - og gera það svo vel!  --- 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche. 💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. 📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

09 |  Baldvina Snælaugsdóttir – Sagan hennar mömmu

09 | Baldvina Snælaugsdóttir – Sagan hennar mömmu

18des2025

Í þessum þætti sest ég niður með mömmu minni, Baldvinu Snælaugsdóttur (Baddý). Upphaflega átti þátturinn að snúast um rúmlega 25 ára feril hennar í markaðsmálum, eftirminnilegar herferðir og lífið í bransanum. En úr varð djúpt og persónulegt samtal um það þegar lífið fór á hvolf á einni nóttu, eftir að hún veiktist alvarlega í kjölfar heilaskurðaðgerðar fyrir nokkrum vikum. Við ræðum örvæntinguna á spítalanum, bataferlið og hvernig hugsanir og baráttustraumar fólksins hennar skiluðu sér á ögurstundu þegar mest á reyndi. Hún segir einnig frá því hvernig hún hafði fundið þetta á sér og gert ráðstafanir í vinnunni, meðal annars með því að stíga til hliðar og ráða eftirmann sinn sem markaðsstjóra Kringlunnar aðeins nokkrum dögum áður en hún fór í aðgerðina. ❤️ Mamma hefur alltaf verið mín fyrirmynd, en aldrei meira en einmitt núna. Þetta er sagan hennar, og sagan okkar beggja. Þátturinn markar lok fyrstu seríu Vörumerkisins. Í næstu seríu hefst nýr kafli þar sem þið fáið að fylgjast enn meira með mínu ferli við að byggja upp eigið vörumerki, Avelin Rae.  ---- ✨ Þessi þáttur er í boði 👟 Skór.is  & Alfreð: Kynntu þér Hæfnileitina! ♡  Þátturinn er tekinn upp í Tekk stúdíói. 📱 Fylgdu Vörumerki á bakvið tjöldin á Instagram @vorumerki

08 | Heiðbjört Ósk - Þegar erfiðar aðstæður kveikja nýjan neista

08 | Heiðbjört Ósk - Þegar erfiðar aðstæður kveikja nýjan neista

11des2025

Viðmælandi þáttarins að þessu sinni er ekki forstjóri stórfyrirtækis eða virtur aðili í markaðsbransanum. Heiðbjört Ósk er kona sem við getum margar tengt við, móðir, snyrtifræðingur, sem eftir 15 ár í sama starfi var farin að finna fyrir leiða og þörf fyrir breytingu. Þegar sonur hennar veiktist alvarlega og var frá skóla í tæp tvö ár fór Heiðbjört að kenna honum heima. Það kveikti neista hjá henni sem hún ákvað að fylgja og hún skráði sig í kennaranám. Nú þremur árum síðar hefur lífið tekið algjöra U-beygju. Auk þess að hafa skipt um starfsvettvang gaf Heiðbjört á dögunum út sína fyrstu bók; Mamma, sagan þín, og stofnaði útgáfufélag. Í þættinum ræðum við ferlið við bókaútgáfuna og hversu mikið gæfuspor það reyndist henni að viðurkenna að hún þyrfti ekki að gera allt ein. Hún segir frá því hvernig það að fá fleiri með sér í lið gerði ferlið skemmtilegra og mun árangursríkara. Mikilvægi þess að láta ekki starfstitla skilgreina sig. Af hverju stefnubreytingar eru aldrei mistök heldur merki um vöxt. Hvernig móðurhlutverkið varð til þess að hún fór að sjá sína eigin móður í nýju ljósi og hvernig bókin hennar er hönnuð sem brú milli kynslóða til að varðveita sögu móðurinnar. Hvernig bókaævintýrið hefur opnað á fleiri tækifæri og aukið sjálfstraust. Tölvupóstar til þjóðþekktra kvenna og hvers vegna svar frá einni þeirra grættu Heiðbjörtu. Fyrstu skrefin fyrir þá sem langar að breyta um stefnu eða prófa nýjan starfsvettvang. Þetta er þáttur sem minnir okkur á að stærstu tækifærin leynast oft í óvæntum áskorunum og það er aldrei of seint að fylgja hjartanu og prófa eitthvað nýtt 🤍 📖 Söguspor og bókin „Mamma, sagan þín" ✨ Þessi þáttur er í boði 👟 Skór.is  & Alfreð: Kynntu þér Hæfnileitina! ♡  Þátturinn er tekinn upp í Tekk stúdíói. 📱 Fylgdu Vörumerki á bakvið tjöldin á Instagram @vorumerki

07 | Aníta Hirlekar - Tískubransinn og valdamiklir viðskiptavinir

07 | Aníta Hirlekar - Tískubransinn og valdamiklir viðskiptavinir

27nóv2025

Aníta Hirlekar, margverðlaunaður íslenskur fatahönnuður, ræðir sinn einstaka feril sem hefur leitt hana að því að hanna fyrir risastór erlend merki og klæða áhrifamesta fólk landsins. Við fáum að heyra um það þegar forsetinn okkar, Halla Tómasdóttir, hafði samband við Anítu á 📲Messenger þegar hana langaði í kjól og hvernig það þróaðist í samstarf þeirra á milli.  Við ræðum tískubransann sem er harður heimur, hönnunarstuld, jafnvægið á milli þess að skapa og reka verslun. Við ræðum einnig um sköpunarferlið, sjálfstraust og ferlið við að finna eigin stíl, auk þess sem Aníta gefur ungum hönnuðum góð ráð.  💡 Þáttur sérstaklega fyrir þá sem hafa ekki fundið sig í hefðbundnu námi, eða eru að stíga sín fyrstu skref í hönnun, list eða frumkvöðlastarfi. Fyrir alla sem elska tísku og fallega hönnun og vilja fá fágæta innsýn inn í heim íslenskrar fatahönnunar. Aníta Hirlekar  ✨ Þessi þáttur er í boði 👟 Skór.is  & Alfreð. Kynntu þér Hæfnileitina!  ♡  Þátturinn er tekinn upp í Tekk stúdíói. 📱 Fylgdu Vörumerki á bakvið tjöldin á Instagram @vorumerki

06 | Guðrún Sørtveit - „Fyrirtæki vilja bara góðar hugmyndir“

06 | Guðrún Sørtveit - „Fyrirtæki vilja bara góðar hugmyndir“

20nóv2025

Guðrún Helga Sørtveit segir frá því hvernig vörumerkið hennar, Fyrsta árið, varð að veruleika eftir nokkurra ára umhugsun. 📖 Við ræðum allt ferlið, frá hugmynd, hönnun og framleiðslu yfir í markaðssetningu og sölustaði. 💬 Hún ræðir áskoranir sem fylgja því að vera áhrifavaldur með tugþúsundir fylgjenda, athugasemdir á djamminu, dónaleg skilaboð og þá tilfinningu að allir hafi skoðun á henni. 💡 Guðrún deilir góðum ráðum um árangursríkt samstarf fyrir áhrifavalda og hlaðvarpsstjórnendur og útskýrir af hverju góðar hugmyndir eru sterkasti sölupunkturinn.  Þáttur fyrir alla sem eru eða langar að byggja upp eigið vörumerki, hafa áhuga á samfélagsmiðlamarkaðssetningu eða vilja bara þá sem vilja fá innsýn inn í áhrifavaldaheiminn. ---- ☁️ Fyrsta árið 💡Þessi þáttur er í boði Alfreð. Kynntu þér Hæfnileitina!  ♡ Þátturinn er tekinn upp í Tekk stúdíói. 📱 Fylgdu Vörumerki á bakvið tjöldin á Instagram @vorumerki

05 | Guðmundur Heiðar - Er ferskleiki ofmetinn?

05 | Guðmundur Heiðar - Er ferskleiki ofmetinn?

13nóv2025

Guðmundur Heiðar Helgason er hugmynda- og textasmiður og ráðgjafi í almannatengslum hjá vörumerkjastofunni Tvist. 🚌 Hann starfaði sem upplýsingafulltrúi hjá Strætó í nokkur ár og segir frá nokkrum af þeim flóknu málum sem hann þurfti að takast á við. Þar af ber eitt mál hæst, sem hann segir það erfiðasta sem hann hafi tekist á við á sínum ferli. Þetta er spjall af betri gerðinni sem inniheldur bæði persónulegar frásagnir og pælingar um okkar uppáhalds umræðuefni, vörumerki. Gummi er óhræddur við að segja hlutina beint út og hikar ekki við að benda á mál sem honum þykir hafa mátt tækla betur út frá PR-sjónarmiðum.  Hann segir frá því hvaða íslensku vörumerki honum finnst bera af, og veltir því fyrir sér hvort ferskleiki sé ofmetinn og kunnugleiki vanmetinn? 🤔 Þáttur sem enginn áhugasamur um markaðsmál, almannatengsl og sterk vörumerki má láta framhjá sér fara. ---- 💡Þessi þáttur er í boði Alfreð. Kynntu þér Hæfnileitina!  ♡ Þátturinn er tekinn upp í Tekk stúdíói. 📱 Fylgdu Vörumerki á bakvið tjöldin á Instagram @vorumerki

04 | Sirrý Arnardóttir - Fjölmiðlar og framkoma

04 | Sirrý Arnardóttir - Fjölmiðlar og framkoma

13nóv2025

Sirrý Arnardóttir er ein reyndasta fjölmiðlakona landsins með yfir þrjátíu ára reynslu í faginu. Við ræðum hvernig áfangi hjá henni fyrir nokkrum árum landaði mér draumastarfinu, sem jafnframt markaði upphafið að mínum fjölmiðlaferli. Við förum yfir fjölmiðlastarfið, kosti og galla, breytingar á fjölmiðlaumhverfinu síðustu ár og ráð fyrir þá sem langar að starfa í faginu. Þá bregður Sirrý sér í kennarahlutverkið og gefur mér gagnleg ráð varðandi þetta hlaðvarp. (Note to self: muna að anda) Sirrý hefur undanfarin ár starfað sem stjórnendaþjálfari, kennari og rithöfundur og hefur kennt fjölda fólks í öllum stéttum að koma fram með öryggi, fagmennsku og einlægni að leiðarljósi. Í þættinum deilir hún meðal annars sínu allra besta ráði þegar kemur að samskiptum og framkomu. Hint: 🏓 Skylduhlustun!  📱 Fylgdu Vörumerki á bakvið tjöldin á Instagram @vorumerki ♡ Þátturinn er tekinn upp í Tekk stúdíói.

03 | Eva Laufey - Að leyfa sér að þróast

03 | Eva Laufey - Að leyfa sér að þróast

30okt2025

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir þekkir markaðsmál frá sjónarhorni bæði áhrifavalds og markaðsstjóra. Hún hefur skapað sín eigin tækifæri í gegnum árin og staðið af sér fjölmiðlastorma. Við ræðum „stóra kökudeigsmálið,“ hvort Tax Free dagar Hagkaups séu barns síns tíma, hugsanlega hagsmunaárekstra og hvort nokkur munur sé á manneskjunni og vörumerkinu Evu Laufey. 🎙️ Þáttur um að takast á við nýjar áskoranir, vera óhræddur við að gera mistök og treysta því að hlutirnir fari eins og þeir eiga að fara. 📱 Fylgdu Vörumerki á bakvið tjöldin á Instagram @vorumerki ♡ Þátturinn er tekinn upp í Tekk stúdíói.

Þér gæti líka líkað...