Samstöðin

Samstöðin

FréttirMenning & listir

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum. Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.

Sjávarútvegsspjallið 81. þáttur - Spilling í sjávarútvegi

Sjávarútvegsspjallið 81. þáttur - Spilling í sjávarútvegi

23
apríl

Fimmtudagur 22. apríl Sjávarútvegsspjallið 81. þáttur Gestir Grétars að þessu sinni eru þeir Björn Ólafsson og Jón Baldvin Hannibalsson.

Rauða borðið 22. apríl - Heimskreppa, innsæi, Bieber og kórsöngur

Rauða borðið 22. apríl - Heimskreppa, innsæi, Bieber og kórsöngur

22
apríl

Miðvikudagur 22. apríl Heimskreppa, innsæi, Bieber og kórsöngur Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, ræðir ýmis utanríkismál, pattstöðu í Íransstríðinu, líkur á alvarlegri heimskreppu, skuldir Bandaríkjanna og fleira í samtali við Björn Þorláks. Ásdís Olsen ræðir við Hrund Gunnsteinsdóttur um innsæi. Helga Þórey Jónsdóttir og Arnar Eggert Thoroddsen ræða um Bieber á coachella við Maríu Lilju. Ásta Magnúsdóttir og Lára Ruth Clausen ræðir við Björn Þorláks um kórastarf og listina að syngja sig í gegnum lífið, ekki síst meðal ungs fólks.

Græna borðið 11. þáttur - Græna gangan

Græna borðið 11. þáttur - Græna gangan

22
apríl

Miðvikudagur 22. apríl Græna borðið 11. þáttur - Græna gangan Græna borðið er tileinkað grænu göngunni að þessu sinni. Fulltrúar náttúruverndarsamtaka hringinn í kring um landið ræða um hvaðan samtökin eru sprottin og hvaða viðfangsefni eru brýnust í dag. Rakel Hinriksdóttir, formaður Samtaka Um Náttúruvernd á Norðurlandi (SUNN) stýrir þættinum. Gestir eru Guðrún Óskarsdóttir, formaður Náttúruverndarsamtaka Austurlands (NAUST), Davíð Arnar Stefánsson, meðstjórnandi Náttúruverndarsamtaka Suðvesturlands (NSV) og Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar. Þau ræða meðal annars tíðarandann, tilgang með umsögnum og vonbrigði með núverandi umhverfisráðherra.

Rauða borðið 21. apríl - Nauðgunarmenning, móðir, sveitastjórnarkosningar, hugvíkkandi, tónleikar

Rauða borðið 21. apríl - Nauðgunarmenning, móðir, sveitastjórnarkosningar, hugvíkkandi, tónleikar

21
apríl

Þriðjudagur 21. apríl Nauðgunarmenning, móðir, sveitastjórnarkosningar, hugvíkkandi, tónleikar Fregnir bárust um liðna helgi af vefsíðu þar sem karlar skiptust á ráðum og myndefni af nauðgunum sofandi kvenna, í flestum tilfellum eiginkvenna eða kærasta.Drífa Snædal og Guðný S Bjarnadóttir ræða við Maríu Lilju um þetta samfélagsmein. Alma Hrönn Hrannardóttir er reið. En hvers vegna? Jú, vegna þess hvernig hluti samfélagsins okkar virkar - eða virkar ekki. Of mörg orð eru sögð en aðgerðir eru engar. Þau Arna Magnea Danks, Guðmundur Ingi Þóroddsson, Sigurður Rúnarsson og Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns eru í hringiðu sveitastjórnarkosninga. Þau ræða um fólk, regnbogafána ofl. við Maríu Lilju. Ný forsetatilskipun Donalds Trump um hugvíkkandi efni er mikla stefnubreytingu í heilbrigðismálum Bandaríkjanna segir Frímann Kerúlf, formaður félagsins Hugvíkkandi í viðtali við Ásdísi Olsen. Afmælistónleikar Björgvins Þ. Valdirmarssonar eru framundan. Hann fer yfir ferilinn og ræðir tímamótin í spjalli við Björn Þorláks.

Rauða borðið 20. apríl - Kynferðisofbeldi, mannréttindi, útgerðarspilling, RÚV og píanóleikur

Rauða borðið 20. apríl - Kynferðisofbeldi, mannréttindi, útgerðarspilling, RÚV og píanóleikur

20
apríl

Mánudagur 20. apríl Kynferðisofbeldi, mannréttindi, útgerðarspilling, Ríkisútvarpið og píanóleikur Steinun Ólína Þorsteinasdóttir leikkona hefur gefið út Ólínuskjölin þar sem hún segir frá hlutum sem legið hafa í þagnargildi, kynferðisofbeldi gegn henni sjálfri. Hún ræðir við Björn Þorláks um mein íslenska samfélags. Viðar Eggertsson leikstjóri og Sigríður Nanna Heimisdóttir, aðstoðarskólastjóri Hagaskóla, bregðast við umræðu Snorra Mássonar Miðflokksmanns um regnbogamenningu í skólum. Björn Þorláks ræðir við þau Þingmaðurinn Sigurjón Þórðarson og varaþingmaðurinn Grétar Mar Jónsson, Flokki fólksins, ræða spillingu í sjávarútvegi. Björn Þorláks ræðir við þá. Tekjur Samstöðvarinnar voru innan við eitt prósent af þeim tekjum sem Ríkisútvarpið naut á árinu 2025. Stefán Jón Hafstein, formaður stjórnar Rúv, ræðir við Björn Þorláks um gæði dagskrár, traust og fleira. Pálmi Sigurhjartarson píanisti gefur út fyrstu píanóplötu sína eftir nokkra daga. Covid varð honum uppspretta hugmyndar að útgáfunni. Björn Þorláks ræðir við hann.

Bridgeþátturinn 19. apríl: Hvert stefnir?

Bridgeþátturinn 19. apríl: Hvert stefnir?

19
apríl

Bridgeþátturinn 19. apríl: Hvert stefnir? Matthías Imsland framkvæmdastjóri Bridgesambands Íslands og Magnús E. Magnússon landsliðsmaður og starfsmaður BSÍ ræða horfurnar fram undan í keppnisbriddsheimi Íslendinga. Úrvalsdeildina, landsliðsverkefni fram undan og úrslit Íslandsmótsins í sveitakeppni ber á góma. Þátturinn er í umsjá Björns Þorláks.

Synir Egils 19. apríl - Sveitarstjórnir, skólamál og ESB

Synir Egils 19. apríl - Sveitarstjórnir, skólamál og ESB

19
apríl

Sunnudagurinn 19. apríl Sveitarstjórnir, skólamál og ESB Það verður gestkvæmt í Sonum Egils þennan sunnudaginn. Í fyrri hluta þáttarins, það er Vettvang dagsins, koma fjórar konur: Kolbrún Þorsteinsdóttir kennari, Eyrún Magnúsdóttir ritstjóri, Eva H. Önnudóttir prófessor og Sóley Tómasdóttir kynja- og fjölbreytileikaráðgjafi. Í síðari hluta koma þingmennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson og Pawel Bartoszek. Þeir skiptast á skoðunum um Evrópusambandið og hvort við eigum erindi þangað eða ekki. Í fyrri hlutanum verður örugglega eitthvað rætt um komandi kosningar, til sveitarstjórna og hvort við eigum að halda áfram viðræðum við ESB eða ekki. Menntamál og Inga Sæland munu örugglega verða til umræðu. Sem og ýmislegt annað.

Rauða borðið - Helgi-spjall: Þórarinn Hjartar

Rauða borðið - Helgi-spjall: Þórarinn Hjartar

18
apríl

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 16

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 16

17
apríl

Föstudagur 17. apríl Vikuskammtur: Vika 16 Gestir Björns Þorlákssonar í Vikuskammti í beinni útsendingu á Samstöðinni klukkan 16 í dag verða Brynjar Níelsson, frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins, Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi, Jóhannes Óli Sveinsson, formaður ungs jafnaðarmannafólks og Björg Eva Erlendsdóttir, Landvernd. Til umræðu verða ný fylgiskönnun í borginni, umdeildur málflutningur Miðflokksins gagnvart minnihlutahópum, vorið, efnahagurinn, kosningastrategíur og ESB svo nokkuð sé nefnt.

Rauða borðið 16. apríl - Flóttabörn, flóðahætta, reynsluboltar, öldrun og tónlistarnemar

Rauða borðið 16. apríl - Flóttabörn, flóðahætta, reynsluboltar, öldrun og tónlistarnemar

16
apríl

Fimmtudagur 16. apríl Flóttabörn, flóðahætta, reynsluboltar, öldrun og tónlistarnemar Tótla I. Sæmundsdóttir hjá Barnaheillum ræðir við Maríu Lilju um mál barnanna sem liggja utan kerfis, án þjónustu, eftir að málefni umsækjenda um alþjóðlega vernd voru færð frá sveitafélögunum yfir til ráðuneyta og undirstofnanna. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur varar við stórkostlegri byggð á Noðurnesinu á Álftanesi. Það liggur lágt yfir sjó og varnargarðar sem þar eru rofna iðulega undan ágangi sjávar. Einari líst ekki vel á og rifjar upp skaða sem hafa orðið á síðustu öld vegna mikilla flóða sem hafa orðið þarna. Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur, Páll Valur Björnsson skólamaður og Gísli Tryggvason lögmaður renna yfir fréttir líðandi stundar með Birni Þorláks. Berglind Indriðadóttir iðjuþjálfi ræðir farsæla öldrun í samtali við Björn Þorláks. Draumur um að syngja eða spila í Hörpu í fyrsta skipti rætist hjá ungu fólki þessa dagana en útskriftartónleikar efnilegra tónlistarmanna í Menntaskóla í tónlist fara nú fram. Birna Hallgrímsdóttir píanókennari, Theódóra Sæmundsdóttir söngkona, Freyja Sigríðardóttir básúnuleikari og Ásgeir Helgi Ásgeirsson gítarleikari ræða við Björn Þorláks um áfangann, sigrana og framtíðina.

Þér gæti líka líkað...