Podcast með Sölva er þáttur sem lætur sér ekkert óviðkomandi. Fylgstu með áhugaverðu fólki úr öllum áttum setjast í stólinn hjá Sölva Tryggva.

Gamalt og gott: Jóhannes Haukur með Sölva Tryggva
https://solvitryggva.is/ Jóhannes Haukur Jóhannesson er einn þekktasti leikari Íslands á erlendri grundu. Eftir að hafa getið sér gott orð í leikhúsi og bíómyndum hér heima lá leiðin út fyrir landsteinana, þar sem hann hefur að mestu alið manninn undanfarin misseri. Í þættinum ræða Sölvi og Jóhannes Haukur íslandsmetið í Covid-prófum, leiklistina og almennt um lífið og tilveruna. Þátturinn er í boði; Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Mamma veit best - https://mammaveitbest.is/ Mama Reykjavík - https://mama.is/ Smáríkið - https://smarikid.is/ Ingling - https://ingling.is/

Guðni Gunnars snýr aftur
https://solvitryggva.is/ Guðni Gunnarsson er lífsstílsráðgjafi og einn af helstu frumkvöðlum Íslands á sviði heilsuræktar. Guðni hefur í áratugi unnið með fólki um allan heim þegar kemur að heilsu. Hann snýr aftur í þáttinn, þar sem farið er yfir sjálfsábyrgð, leiðir til að elska sjálfan sig, mátt orða og andlega og líkamlega velferð. Þátturinn er í boði; Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Mamma veit best - https://mammaveitbest.is/ Mama Reykjavík - https://mama.is/ Smáríkið - https://smarikid.is/ Ingling - https://ingling.is/
#434 Mikael Torfason með Sölva Tryggva (Áskriftarþáttur)
Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Mikael Torfason er einn reyndasti fjölmiðlamaður Íslands, sem hefur í gegnum tíðina ritstýrt 3 af stærstu dagblöðum landsins. Hann breytti landslagi rithöfunda sem ungur maður þegar hann skrifaði bókina ,,Falskan Fugl", þar sem fjallað var um hluti sem aldrei höfðu áður birst í bókum á Íslandi. Mikael hefur alla tíð elskað ritmálið og nú býr hann Bandaríkjunum, þar sem hann vinnur við að skrifa handrit fyrir leikhús, bíómyndir og sjónvarpsþætti. Hér ræða hann og Sölvi um samfélagsmál, trú, Bandaríkin, fjölmiðla og margt fleira. Þátturinn er í boði; Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Mamma veit best - https://mammaveitbest.is/ Mama Reykjavík - https://mama.is/ Smáríkið - https://smarikid.is/ Ingling - https://ingling.is/

Gamalt og gott: Heiðar Logi með Sölva Tryggva
https://solvitryggva.is/ Heiðar Logi Elíasson er fyrsti atvinnubrimbrettamaður Íslands. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Heiðar Logi upplifað margt og lifað fjölbreyttu lífi. Í þættinum ræða Sölvi og Heiðar um ,,Sörfið", lífsháska, erfiða æsku, sérstaka skólagöngu og margt fleira. Þátturinn er í boði; Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Mamma veit best - https://mammaveitbest.is/ Mama Reykjavík - https://mama.is/ Smáríkið - https://smarikid.is/ Ingling - https://ingling.is/
#433 Páll Magnússon með Sölva Tryggva (Áskriftarþáttur)
Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Páll Magnússon er fyrrverandi fréttastjóri, útvarpsstjóri og þingmaður. Í þættinum ræða Sölvi og Páll um það sem er helst á baugi í samfélagsmálum bæði hér heima og erlendis. Þátturinn er í boði; Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Mamma veit best - https://mammaveitbest.is/ Mama Reykjavík - https://mama.is/ Smáríkið - https://smarikid.is/ Ingling - https://ingling.is/

Haraldur Erlendsson með Sölva Tryggva
https://solvitryggva.is/ Haraldur Erlendsson er þrautreyndur geðlæknir sem starfaði um árabil í Bretlandi og síðar sem forstjóri Heilsustofnunar í Hveragerði. Í þættinum ræða Sölvi og Haraldur um stöðuna í samfélaginu, hugvíkkandi efni, fjórða valdið, hrun kerfa og margt margt fleira. Þátturinn er í boði; Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Mamma veit best - https://mammaveitbest.is/ Mama Reykjavík - https://mama.is/ Smáríkið - https://smarikid.is/ Ingling - https://ingling.is/
#432 Díana Ósk með Sölva Tryggva (Áskriftarþáttur)
Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Díana Ósk Óskarsdóttir er kona sem á magnaða sögu. 11 ára gömul var hún komin á götuna og 13 ára hafði kerfið gefist algjörlega upp á henni og síðan þá hefur hún séð um sig sjálf. Í dag er hún með 6 háskólagráður og rekur handleiðslusetrið. Í þættinum fara Sölvi og Díana yfir magnaða sögu hennar og margt fleira. Þátturinn er í boði; Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Mamma veit best - https://mammaveitbest.is/ Mama Reykjavík - https://mama.is/ Smáríkið - https://smarikid.is/ Ingling - https://ingling.is/

Gamalt og gott: Briet með Sölva Tryggva
https://solvitryggva.is/ Bríet Ísis Elfar er vinsælasti tónlistarmaður Íslands í dag. Síðan platan hennar kom út hafa lög hennar átt topplistana vikum saman. Bríet kom mjög ung fram á sjónarsviðið og vakti strax verðskuldaða athygli fyrir framgöngu sína. Þátturinn er í boði; Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Mamma veit best - https://mammaveitbest.is/ Mama Reykjavík - https://mama.is/ Smáríkið - https://smarikid.is/ Ingling - https://ingling.is/

Brynjar Níels með Sölva Tryggva
https://solvitryggva.is/ Brynjar Níelsson hefur lengi verið þekktur fyrir að þora að viðra skoðanir sem fæstir þora að tjá og hefur oft bakað sér óvinsældir fyrir vikið. Hann er nú á leið aftur í stjórnmálin eftir að hafa tekið sér hlé um tíma. Í þættinum ræða Sölvi og Brynjar um umsvif hins opinbera, mikilvægi þess að kjósendur viti hvar þeir hafi þá sem þeir kjósa til valda og margt margt fleira.Þátturinn er í boði; Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Mamma veit best - https://mammaveitbest.is/ Mama Reykjavík - https://mama.is/ Smáríkið - https://smarikid.is/ Ingling - https://ingling.is/

Gamalt og gott: Sara Piana með Sölva Tryggva
https://solvitryggva.is/ Sara Piana hefur í gegnum árin verið umtöluð á Íslandi, einkum og sér í lagi eftir að hún giftist vaxtarræktarkappanum Rich Piana og af þeim birtust reglulega fréttir. Sara hefur hingað til ekki farið í viðtöl í íslenskum fjölmiðlum, en fannst tími til kominn að segja sögu sína, einkum og sér í lagi þar sem hún er nú alfarið flutt til landsins og ætlar að hefja hér næsta kafla í sínu lífi. Í þættinum segir Sara frá því hvers vegna hún þurfti sem ung kona að flýja land eftir stöðuga ógn. Hvernig hún fór langt inn í Fitness-heiminn eftir að hún flutti til Bandaríkjanna og síðan frá skrautlegu líferni sínu með Rich Piana, sem oft var öðruvísi en það virkaði út á við. Sara lærir nú hjúkrunarfræði og hlakkar til næsta kafla í sínu lífi, eftir að hafa fengið margfaldan æviskammt af dramatík, eins og hún segir sjálf. Þátturinn er í boði; Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Mamma veit best - https://mammaveitbest.is/ Mama Reykjavík - https://mama.is/ Smáríkið - https://smarikid.is/ Ingling - https://ingling.is/

