Spegillinn

RÚV

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Nýjar ratsjár gegn smygli og skuggaflota, Finnafjörður og innflytjendamál

20
apríl

Hvað eiga smyglarar og skuggaflotinn sameiginlegt? Að vilja ekki sjást, til dæmis á ratsjám, og að vera meðal þess sem nýjum tæknibúnaði Landhelgisgæslunnar verður beint gegn. Í sumar verða teknar í notkun fjórar ratsjár sem verða á völdum stöðum þar sem fylgjast á betur með skipaumferð í kringum landið. Ingólfur Bjarni Sigfússon ræðir við Finnboga Jónasson, yfirmann greiningardeildar ríkislögreglustjóra. Miklar breytingar hafa orðið á verkefni því sem snýr að uppbyggingu stórskipahafnar og iðnaðar við Finnafjörð á Langanesi. Sveitarfélögin Langanesbyggð og Vopnafjarðarhreppur hafa frá árinu 2008 unnið að því að skapa þar tækifæri til atvinnu. Enn er unnið að uppbyggingu við Finnafjörð, eins og Björn S. Lárusson sveitarstjóri Langanesbyggðar rekur í samtali við Ágúst Ólafsson. Öfugt við flest önnur Evrópuríki, sem leggja áherslu á að hindra för ólöglegra innflytjenda inn í landið og koma þeim sem þar eru úr landi, hyggjast Spánverjar veita rúmlega hálfri milljón innflytjenda sem þar eru án tilskilinna leyfa dvalar- og atvinnuleyfi til eins árs. Þetta er allt í senn skynsamlegt, gagnlegt og siðferðislega rétt, segir forsætisráðherrann. Ævar Örn Jósepsson segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Heimskreppa, einkunnir grunnskólanema og vöktun Landhelgisgæslu

16
apríl

Árásarstríð Bandaríkjamanna og Ísraela við Íran hefur skilað helstu olíurisum heimsins sem svarar 90 milljörðum króna aukahagnaði á degi hverjum frá því að það hófst, um 2.700 milljörðum á mánuði. Ástæðan er mikil hækkun á heimsmarkaðsverði olíu vegna lokunar Hormússunds og óvissu í olíuframleiðslu og -flutningum, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn varar við alheimskreppu að óbreyttu, það er, ef ekki tekst að binda enda á stríðið hið snarasta. Ævar Örn Jósepsson segir frá. Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra fór vítt og breitt þegar hún ávarpaði þing Kennarasambands Íslands í gær. Mesta athygli hafa ummæli hennar um einkunnagjöf vakið. Foreldrar hefðu meðal annars bent á að erfitt væri að geta ekki farið yfir próf barna sinna til að átta sig á stöðu þeirra og vildu meira gagnsæi. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir þetta við Þórunni Sif Böðvarsdóttur kennara. Ógnir sem Landhelgisgæsla Íslands þarf að bregðast við eru orðnar fjölbreyttari og flóknari en áður. Þar vega þungt GPS-truflanir, tilraunir skipa til að senda rangar staðsetningarupplýsingar og aukin umferð svokallaðs skuggaflota nærri íslenskri lögsögu. Heimsmyndin er breytt og ógnirnar aðrar, segir Auðunn Kristinsson í viðtali við Ingólf Bjarna Sigfússon, Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Veðurfyrirbærið El Niño og framkvæmdaráðstefna Vegagerðarinnar

14
apríl

Vegagerðin tekst jafnan á við miklar áskoranir í vegakerfinu og fjárskortur mörg undanfarin ár hefur valdið því að viðhaldsskuldin er mikil og þar skortir milljarða. Innlendir og erlendir sérfærðingar ætla að ræða vegaframkvæmdir og viðhald á ráðstefnu sem Vegagerðin stendur fyrir á Grand Hóteli á miðvikudag. Í ár er spáð El Niño, loftslagsfyrirbærinu sem felur í sér hlýnun sjávar og breytingar í lofthjúpnum og tengt hefur verið við alls konar hamfarir undanfarin ár. Um miðja síðustu öld tóku vísindamenn að veita áhrifum þessa veðurfyrirbrigðis athygli á heimsvísu og El Niño hefur verið í fréttum reglulega frá því um síðustu aldamót. Nú fjalla fjölmiðlar vestanhafs um líkurnar á Súper El Niño og að allt stefni í öflugasta El Niño frá 1870.

Efnahgasaðgerðir og 10 ára atvinnustefna ríkisstjórnarinnar og þingkosningar í Ungverjalandi.

10
apríl

Ríkisstjórnin kynnti í dag tímabundnar aðgerðir í efnahagsmálum og einnig atvinnustefnu til næstu tíu ára. Efnahagsaðgerðirnar felast í tímabundinni lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti og þá á að efla verðlagseftirlit ASÍ svo fylgjast megi enn frekar með verðhækkunum á annari neysluvöru. Með atvinnustefnunni er markmiðið að brjótast út úr stöðnun í efnahagslífinu. Styðja á við fyrirtæki með mikla framleiðni, einkum í útflutningi, skoða á starfsskilyrði fyrirtækja, einfalda regluverk, skilvirkni og áfallaþol og styrkja innviði. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra segir að taka þurfi til í hagkerfinu og skapa skilyrði fyrir eðlilega þróun verðbólgu, launaþróun o.s.frv. Þingkosningar verða haldnar í Ungverjalandi á sunnudag. Útlit er fyrir afar spennandi kosningar og lítill munur virðist á fylgi tveggja helstu fylkinga. Kannanir óháðra könnunarfyrirtækja benda allar til sigurs helsta stjórnarandstöðuflokksins, Tisza, undir forystu Péters Magyar. Aðrar, sem sagðar eru hafa misnáin tengsl við stjórnarflokkinn Fidesz, benda sterklega til þess að Viktor Orbán, sem verið hefur við völd í sextán ár samfleytt, verði það áfram enn um sinn. Maríanna Tsjilak Csillaq, afkomandi ungversks flóttafólks sem flutti hingað á sínum tíma, segir ekki ofmælt að kosningabaráttan hafi verið hörð, óvægin og jafnvel ósvífin.

NATO, ungar borgir - aldnar sveitir, orkuskipti í landbúnaði

9
apríl

Bandaríkjaforseti hefur að undanförnu skaðað trúverðugleika Nato meira á nokkrum vikum en Rússlandsforseti hefur náð að gera á margra ára tímabili. Þetta er mat Petr Pavel Tékklandsforseta og fyrrverandi hershöfðingja og formanns herforingjaráðs NATO á stöðunni sem upp er komin innan bandalagsins eftir árás Bandaríkjamanna og Ísraela á Íran. Pavel segir gagnrýni Trumps ósanngjarna. Ævar Örn Jósepsson fjallar um málið. Aldursdreifing Norðurlandabúa er að breytast, frjósemi minnkar og hefur aldrei verið minni, og þeir eldast hratt. Borgirnar seiða til sín yngra fólk og innflytjendur en þeir eldri verða eftir í sveitunum. Fólksfjölgun hefur verið mun meiri í þéttbýlinu. Þóroddur Bjarnason prófessor segir þá greiningu ekki eiga við að öllu leyti hér. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við hann. Orkuskipti í landbúnaði var til umfjöllunar á vefþingi sem haldið var í dag, þar sem íslenskir og erlendir þátttakendur veltu fyrir sér hvaða tækifæri felast í slíkum orkuskiptum fyrir íslenskan landbúnað. Ottó Elíasson er framkvæmdastjóri Eims, sem einblínir á orku-, auðlinda-, og loftslagsmál, Ágúst Ólafsson talar við hann. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Þér gæti líka líkað...