Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Gagnrýnin á eftirlitsleysi með íslenskum fósturheimilum
Umræðan um fósturheimili sem hefur átt sér stað í samfélaginu síðastliðna tvo mánuði hefur leitt til þess að börn sem hafa dvalið á slíkum heimilum hafa gagnrýnt skort á eftirliti hjá barnaverndaryfirvöldum. Þetta á bæði við um þá sem dvöldu á fósturheimilinu Bakkakoti á Suðurlandi, sem fréttaskýringaþátturinn Kveikur sagði frá í byrjun febrúar, og eins um fólk sem dvaldi á öðrum heimilum eins og Gauksstöðum í Garði. Kona sem bjó á fósturheimilinu á Gauksstöðum sem unglingur segir að eitt af því sem henni svíði hvað mest sé að Barnaverndin í Reykjavík hlustaði ekki á kvartanir hennar. Hún segir líka að annað sem henni svíði sé að íbúar í Garðinum hafi ekki brugðist við þrátt fyrir að margir í nærsamfélaginu hafi vitað af því að á heimilinu hafi ríkt ógnarstjórn. Móðir drengs sem bjó á Gauksstöðum segir sömu sögu um barnaverndina á Húsavík sem og barnaverndarstofu. Eftirlit með fósturheimilum á Íslandi er eitt af því sem til stendur að skoða sérstaklega í fyrirhugaðri rannsóknarnefnd um fósturheimili, segir Páll Þórhallsson lögfræðingur í forsætisráðuneytinu. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Deilt um einkunnagjöf í skólakerfinu
Um fátt er meira deilt þessa dagana en námsmat í grunnskólum - og þá sérstaklega einkunnaskalann - sem nú stendur til að breyta úr bókstöfum aftur í tölustafi. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, boðaði breytingar á einkunnakerfi í grunnskólum á þingi Kennarasambands Íslands í síðustu viku. Rætt er við Amalíu Björnsdóttur, prófessor við menntavísindasvið, og Sigurð Sigurðsson, framkvæmdastjóra Heimils og skóla, landssamtaka foreldra, um þessi mál. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Móðir segir sögu sonar síns sem bjó á Gauksstöðum
Í þættinum í dag er rætt við Helenu Ósk Ævarsdóttur, móður drengs sem bjó á fósturheimilinu Gauksstöðum í Garði á Suðurnesjum sem unglingur. Hann hét Daníel Snær Jónasson og bjó á Gauksstöðum þegar hann var 16 til 17 ára gamall á árunum 2013 til 2014. Helena segir um að afleiðingar af búsetunni á Gauksstöðum fyrir son hennar hafi ekki verið góðar. Hún segir að Daníel hafi orðið fyrir andlegu ofbeldi, verið einangraður og að hann hafi þurft að eiga í samskiptum við hana í gegnum milliliði þar sem farsíminn hafi verið tekinn af honum. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Vaxtarmörk í ljósi sveitarstjórnarkosninga
Við höldum áfram að ræða sveitarstjórnarmál - í þetta skiptið vaxtarmörk höfuðborgarsvæðisins - en umræða um mörkin verður fyrirferðameiri í aðdraganda kosninganna 16. maí. Rætt er við Jónas Atla Gunnarsson, hagfræðing, og Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Fólk sem bjó á fósturheimilinu Gauksstöðum stígur fram
Facebook-færsla eiganda fósturheimilisins Gauksstaða í Garðinum í vikunni reitti nokkra af þeim sem bjuggu á fósturheimilinu sem börn og unglingar til reiði. Eigandi fósturheimilisins heitir Jón Steinar Konráðsson. Í Þetta helst í dag segir einn maður og tvær konur sem dvöldu á fósturheimilinu frá upplifun sinni. Einn af þeim var ósáttur við færsluna er Burkni Þór Sveinsson sem bjó á fósturheimilinu þegar hann var 15 til 16 ára gamall á árunum 2011 til 2012. Burkni segir að eini hvatinn sem reki hann áfram sé að barnaverndarkerfið viðurkenni að það hafi skitið upp á bak, eins og hann orðar það, þegar börn voru send í fóstur á Gauksstöðum. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Má stjórnmálaflokkur heita hvað sem er?
Það styttist í sveitarstjórnarkosningarnar sextánda maí og línur eru nú að skýrast hvað framboðin varðar. Og í þætti dagsins beinum við sjónum okkar að nöfnum á stjórnmálaflokkum. Má flokkur heita hvað sem er? og eru ákveðnar stefnur og straumar þegar kemur að slíkum nöfnum? Viðmælendur: Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri landskjörstjórnar, og Guðmundur Heiðar Helgason, almannatengill. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Ríkið þurfi að taka þátt í bæta eftirlit með fósturheimilum
Framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur segir að bæta þurfi eftirlit ríkisins með fósturheimilum hér á landi. Framkvæmdastjórinn, Þyrí Halla Steingrímsdóttir, segir ekki gott að sveitarfélögin eigi að hafa eftirlit með sjálfum sér heldur ætti eftirlit með fósturheimilunum að vera hjá ríkinu. Þyrí Halla Steingrímsdóttir ræðir við Þetta helst um nýtt frumvarp til laga um barnavernd sem nú er í umsagnarferli á Alþingi eftir 1. umræðu á Alþingi í lok mars. Þá lagði Inga Sæland, Mennta- og barnamálaráðherra, frumvarpið, fram á Alþingi. Hún gagnrýnir frumvarpið sérstaklega út frá kaflanum um fósturheimili sem Þyrí segir að sé ekki nægilega vel unninn. Fósturheimili á Íslandi hafa mikið verið á umræðunni eftir að fréttaskýringaþátturinn Kveikur fjallaði um Bakkakotsmálið í byrjun febrúar.
100 milljarða stefnan gegn Samherja í London
Skoska fyrirtækið Restitution Litigation Limited vinnur að því fyrir hönd namibíska ríkisins að reyna að endurheimta peninga í Namibíumálinu frá Samherja. Fyrirtækið hefur höfðað mál gegn Samherja fyrir breskum dómstólum og vill allt 120 milljarða króna í skaðabætur. Forstjóri Restitution, Katherine Mulhern, segir að stefnan byggi á því að Samherji hafi með meintum spilltum og meintum ólögmætum hætti haft fé af namibíska ríkinu og namibísku þjóðinni þegar fyrirtækið stundaði fiskveiðar þar á ár árunum 2012 til 2019. Katherine segir að málatilbúnaðurinn byggi á því að Samherji eigi að skila til baka þeim peningum sem útgerðarfélagið hafði af namibísku þjóðinni. Baldvin Þorsteinsson, forstjóri Samherja, segir að stefnan í málinu sé tilhæfulaus og að útgerðarfélagið hafi tekið til varna fyrir dómi og muni flytja málið þar. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Hugmyndin um samevrópskan her
Hugmyndin um sameiginlegan her Evrópusambandsins er til umfjöllunar í Þetta helst í dag. Rætt er við Erling Erlingsson, hernaðarsagnfræðing. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson.
Bogi hjá Icelandair svarar spurningum um Möltuviðskiptin
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir að ekki standi til að fara að ráða starfsfólk til flugfélagsins í gegnum starfsmannaleigur á Möltu. Mörg flugfélög stundi þetta til að spara sér kostnað. Hann segir enga tiltekna skýringu á því af hverju Icelandair eigi nú í viðræðum um að kaupa bara 49 prósent í félagi Play á Möltu sem er með þarlent flugrekstrarleyfi. Fjölmörgum spurningum er ósvarað um viðskiptin fyrirhuguðu og fyrirætlanir Icelandair um að flytja hluta starfsemi sinnar þangað. Þessi viðskipti geta skipt máli fyrir starfsfólk Icelandair sem telur um 1 prósent af íslensku þjóðinni. Bogi segir að mörg af svörunum liggi ekki fyrir þar sem viðræður um viðskiptin séu enn á frumstigi. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

