Rauða borðið

Gunnar Smári Egilsson

Fréttir

Róttæk samfélagsumræða. Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.

Rauða borðið 22. apríl - Heimskreppa, innsæi, Bieber og kórsöngur

Rauða borðið 22. apríl - Heimskreppa, innsæi, Bieber og kórsöngur

22
apríl

Miðvikudagur 22. apríl Heimskreppa, innsæi, Bieber og kórsöngur Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, ræðir ýmis utanríkismál, pattstöðu í Íransstríðinu, líkur á alvarlegri heimskreppu, skuldir Bandaríkjanna og fleira í samtali við Björn Þorláks. Ásdís Olsen ræðir við Hrund Gunnsteinsdóttur um innsæi. Helga Þórey Jónsdóttir og Arnar Eggert Thoroddsen ræða um Bieber á coachella við Maríu Lilju. Ásta Magnúsdóttir og Lára Ruth Clausen ræðir við Björn Þorláks um kórastarf og listina að syngja sig í gegnum lífið, ekki síst meðal ungs fólks.

Rauða borðið 21. apríl - Nauðgunarmenning, móðir, sveitastjórnarkosningar, hugvíkkandi, tónleikar

Rauða borðið 21. apríl - Nauðgunarmenning, móðir, sveitastjórnarkosningar, hugvíkkandi, tónleikar

21
apríl

Þriðjudagur 21. apríl Nauðgunarmenning, móðir, sveitastjórnarkosningar, hugvíkkandi, tónleikar Fregnir bárust um liðna helgi af vefsíðu þar sem karlar skiptust á ráðum og myndefni af nauðgunum sofandi kvenna, í flestum tilfellum eiginkvenna eða kærasta.Drífa Snædal og Guðný S Bjarnadóttir ræða við Maríu Lilju um þetta samfélagsmein. Alma Hrönn Hrannardóttir er reið. En hvers vegna? Jú, vegna þess hvernig hluti samfélagsins okkar virkar - eða virkar ekki. Of mörg orð eru sögð en aðgerðir eru engar. Þau Arna Magnea Danks, Guðmundur Ingi Þóroddsson, Sigurður Rúnarsson og Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns eru í hringiðu sveitastjórnarkosninga. Þau ræða um fólk, regnbogafána ofl. við Maríu Lilju. Ný forsetatilskipun Donalds Trump um hugvíkkandi efni er mikla stefnubreytingu í heilbrigðismálum Bandaríkjanna segir Frímann Kerúlf, formaður félagsins Hugvíkkandi í viðtali við Ásdísi Olsen. Afmælistónleikar Björgvins Þ. Valdirmarssonar eru framundan. Hann fer yfir ferilinn og ræðir tímamótin í spjalli við Björn Þorláks.

Rauða borðið 20. apríl - Kynferðisofbeldi, mannréttindi, útgerðarspilling, RÚV og píanóleikur

Rauða borðið 20. apríl - Kynferðisofbeldi, mannréttindi, útgerðarspilling, RÚV og píanóleikur

20
apríl

Mánudagur 20. apríl Kynferðisofbeldi, mannréttindi, útgerðarspilling, Ríkisútvarpið og píanóleikur Steinun Ólína Þorsteinasdóttir leikkona hefur gefið út Ólínuskjölin þar sem hún segir frá hlutum sem legið hafa í þagnargildi, kynferðisofbeldi gegn henni sjálfri. Hún ræðir við Björn Þorláks um mein íslenska samfélags. Viðar Eggertsson leikstjóri og Sigríður Nanna Heimisdóttir, aðstoðarskólastjóri Hagaskóla, bregðast við umræðu Snorra Mássonar Miðflokksmanns um regnbogamenningu í skólum. Björn Þorláks ræðir við þau Þingmaðurinn Sigurjón Þórðarson og varaþingmaðurinn Grétar Mar Jónsson, Flokki fólksins, ræða spillingu í sjávarútvegi. Björn Þorláks ræðir við þá. Tekjur Samstöðvarinnar voru innan við eitt prósent af þeim tekjum sem Ríkisútvarpið naut á árinu 2025. Stefán Jón Hafstein, formaður stjórnar Rúv, ræðir við Björn Þorláks um gæði dagskrár, traust og fleira. Pálmi Sigurhjartarson píanisti gefur út fyrstu píanóplötu sína eftir nokkra daga. Covid varð honum uppspretta hugmyndar að útgáfunni. Björn Þorláks ræðir við hann.

Synir Egils 19. apríl - Sveitarstjórnir, skólamál og ESB

Synir Egils 19. apríl - Sveitarstjórnir, skólamál og ESB

19
apríl

Sunnudagurinn 19. apríl Synir Egils: Sveitarstjórnir, skólamál og ESB Það verður gestkvæmt í Sonum Egils þennan sunnudaginn. Í fyrri hluta þáttarins, það er Vettvang dagsins, koma fjórar konur: Kolbrún Þorsteinsdóttir kennari, Eyrún Magnúsdóttir ritstjóri, Eva H. Önnudóttir prófessor og Sóley Tómasdóttir kynja- og fjölbreytileikaráðgjafi. Í síðari hluta koma þingmennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson og Pawel Bartoszek. Þeir skiptast á skoðunum um Evrópusambandið og hvort við eigum erindi þangað eða ekki. Í fyrri hlutanum verður örugglega eitthvað rætt um komandi kosningar, til sveitarstjórna og hvort við eigum að halda áfram viðræðum við ESB eða ekki. Menntamál og Inga Sæland munu örugglega verða til umræðu. Sem og ýmislegt annað.

Rauða borðið - Helgi-spjall: Þórarinn Hjartar

Rauða borðið - Helgi-spjall: Þórarinn Hjartar

18
apríl

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 16

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 16

17
apríl

Föstudagur 17. apríl Vikuskammtur: Vika 16 Gestir Björns Þorlákssonar í Vikuskammti í beinni útsendingu á Samstöðinni klukkan 16 í dag verða Brynjar Níelsson, frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins, Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi, Jóhannes Óli Sveinsson, formaður ungs jafnaðarmannafólks og Björg Eva Erlendsdóttir, Landvernd. Til umræðu verða ný fylgiskönnun í borginni, umdeildur málflutningur Miðflokksins gagnvart minnihlutahópum, vorið, efnahagurinn, kosningastrategíur og ESB svo nokkuð sé nefnt.

Rauða borðið 16. apríl - Flóttabörn, flóðahætta, reynsluboltar, öldrun og tónlistarnemar

Rauða borðið 16. apríl - Flóttabörn, flóðahætta, reynsluboltar, öldrun og tónlistarnemar

16
apríl

Fimmtudagur 16. apríl Flóttabörn, flóðahætta, reynsluboltar, öldrun og tónlistarnemar Tótla I. Sæmundsdóttir hjá Barnaheillum ræðir við Maríu Lilju um mál barnanna sem liggja utan kerfis, án þjónustu, eftir að málefni umsækjenda um alþjóðlega vernd voru færð frá sveitafélögunum yfir til ráðuneyta og undirstofnanna. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur varar við stórkostlegri byggð á Noðurnesinu á Álftanesi. Það liggur lágt yfir sjó og varnargarðar sem þar eru rofna iðulega undan ágangi sjávar. Einari líst ekki vel á og rifjar upp skaða sem hafa orðið á síðustu öld vegna mikilla flóða sem hafa orðið þarna. Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur, Páll Valur Björnsson skólamaður og Gísli Tryggvason lögmaður renna yfir fréttir líðandi stundar með Birni Þorláks. Berglind Indriðadóttir iðjuþjálfi ræðir farsæla öldrun í samtali við Björn Þorláks. Draumur um að syngja eða spila í Hörpu í fyrsta skipti rætist hjá ungu fólki þessa dagana en útskriftartónleikar efnilegra tónlistarmanna í Menntaskóla í tónlist fara nú fram. Birna Hallgrímsdóttir píanókennari, Theódóra Sæmundsdóttir söngkona, Freyja Sigríðardóttir básúnuleikari og Ásgeir Helgi Ásgeirsson gítarleikari ræða við Björn Þorláks um áfangann, sigrana og framtíðina.

Rauða borðið 15. apríl - Líknardauði, krónan, sveitarstjórnarspenna, Íran, píratar og Kúba

Rauða borðið 15. apríl - Líknardauði, krónan, sveitarstjórnarspenna, Íran, píratar og Kúba

15
apríl

Miðvikudagur 15. apríl Líknardauði, krónan, sveitarstjórnarspenna, Íran, píratar og Kúba Vala Höskuldsdóttir listakona segir Ásdísi Olsen frá einstakri reynslu sinni af líknardauða móður sinnar í Reykjavík, sem leiddi til handtöku og vistunar í fangaklefa. Þröstur Ólafsson þjóðhagfræðingur segir í samtali við Björn Þorláks að íslenska krónan sé mikið mein og standi framförum fyrir þrifum.. Kjartan Orri Thorsson, miðausturlandafræðingur og sérfræðingur í málefnum Íran, ræðir stöðu mála við Maríu Lilju. Ólafur Þ. Harðarson ræðir fall Orban, spennandi baráttu milli vinstris og hægris hér á landi, Flokks fólksins og fleira sem tengist stjórnmálum í spjalli við Björn Þorláks. Alexandra Briem, Unnar Þór Sæmundsson, Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns ræða stefnu pírata í borginni við Maríu Lilju. Eyjólfur B. Eyvindsson og Niuvis Sago Suceta ræða stöðu Kúbu við Maríu Lilju en Eyjólfur er nýkominn frá landinu eftir að hafa tekið þátt í að rjúfa herkvína ásamt hundruðum annarra aðgerðasinna.

Þriðjudagur 14. apríl: Stjórnmáladoði, áfengisáhrif, ögranir og tónlist

Þriðjudagur 14. apríl: Stjórnmáladoði, áfengisáhrif, ögranir og tónlist

14
apríl

Þriðjudagur 14. apríl Stjórnmáladoði, áfengisáhrif, ögranir og tónlist Lítill áhugi virðist meðal almennings á sveitarstjórnarkosningunum fram undan ef marka má óformlega athugun Samstöðvarinnar. Fæstir segjast þora að tjá sig um viðkvæm pólitísk deilumál. Árni Guðmundsson forvarnafulltrúi ræðir réttarhöld og tímamótadóm í sakamáli gegn Smáríkinu. Ólögleg sala einnar hvítvínsbelju gæti orðið þúfa sem veltir þungu hlassi. Björn Þorláks ræðir við Árna. Brynhildur Ólafsdóttir er óhrædd við ögrandi og sársaukafull ævintýri í óbyggðum. Hún hefur stundum verið nær dauða en lífi eins og kemur fram í samtali hennar við Ásdísi Olsen. Tónlistarskólarnir í Reykjavík verða með opið hús í Ráðhúsinu um helgina. Björn Þorláks ræðir við Önnu Rún Atladóttur um uppskeruhátíðina fram undan.

Mánudagur 13. apríl: Íransstríðið, vinstrið, fíkn, húsbyggingar og sjálfsvinna

Mánudagur 13. apríl: Íransstríðið, vinstrið, fíkn, húsbyggingar og sjálfsvinna

13
apríl

Mánudagur 13. apríl Íransstríðið, vinstrið, fíkn, húsbyggingar og sjálfsvinna Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, ræðir fall Orban í Ungverjalandi og fíaskóið sem Íransstríðið virðist vera fyrir Trump. Björn Þorláks ræðir við hann. Svenný Kristins, Davíð Arnar Stefánsson og Esther Bíbí Ásgeirsdóttir ræða við Maríu Lilju sem fulltrúar nýs framboðslista vinstrisins í Hafnarfirði. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við Áslaugu Einarsdóttur, móður sem hefur glímt við fíknisjúkdóm og misst bæði forsjá og umgengni við barn sitt. Ingvar Jónsson byggingameistari ræðir við Björn Þorláks í tengslum við breytt landslag húsbygginga hér á landi og ber aumingjaskap landsmanna á góma. Ásdís Olsen ræðir við Helgu Snjólfsdóttur verkfræðing sem opinberaðist sjálfri sér eftir að hafa keyrt á vegg.

Þér gæti líka líkað...