Í safnvarpinu Sögur úr raunveruleikanum leita dagskrárgerðarmenn uppi sannar sögur úr íslenskum samtíma. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Álögin á Vatnsenda 2.þáttur
Fyrir síðustu aldamót fóru bæði Kópavogur og Reykjavík að ásælast Vatnsendajörðina. Erfingjar jarðarinnar urðu þá óvænt lykilviðsemjendur stjórnmálamanna sem vildu reisa þar fjölmenna byggð. 90 ára gömul erfðaskrá kom hins vegar í veg fyrir að hægt væri að selja jörðina. Gunnar Birgisson, þáverandi bæjarstjóri í Kópavogi, ákvað að höggva á hnútinn með umdeildum samningi við Vatnsendaerfingjann. Í þessum þætti er fjallað um tímabilið sem fjölmenn byggð reis á Vatnsenda og átökin sem urðu á bæjarskrifstofum Kópavogs, í Hjaltested-ættinni og dómsölum landsins. Við sögu koma meðal annars Guðjón Ármannsson, Víðir Smári Petersen, Guðríður Eldey Arnardóttir, Ármann Kr. Ólafsson, Gunnar Birgisson, Ásgeir Þór Davíðsson, Magnús Hjaltested, Þorsteinn Hjaltested, Magnús Pétur Hjaltested og Kristrún Ólöf Jónsdóttir. Dagskrárgerð: Þóra Tómasdóttir Tónlist: Atli Örvarsson (Úr kvikmyndinni Hrútum) Hljóðblöndun: Markús Hjaltason Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Álögin á Vatnsenda 1.þáttur
Áratugum saman hefur Hjaltested-ættin tekist á um hver eigi og megi búa á hinni flennistóru Vatnsendajörð sem umlykur Elliðaárvatn í Kópavogi. Hatrammar deilur hafa sprottið upp vegna umdeildrar erfðaskrár sem eigandi jarðarinnar gerði 1938. Erfðaskráin færði útvöldum ómæld auðæfi en lagði líka á þá kvaðir sem verður sífellt erfiðara að framfylgja. Enn í dag ræður 90 ára erfðaskrá för á framtíðar byggingarlandi höfuðborgarsvæðisins og þvingar rúmlega tvítugan erfingja til að stunda búskap inni í byggð. Dagskrárgerð: Þóra Tómasdóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Hilmar Veigar um Elon Musk og Demis Hassibis
Þegar Elon Musk skrifaði á samfélagsmiðilinn X að hann ætti í viðræðum við skapara Eve Online um samvinnu að gervigreindartölvuleik, þá óskaði RÚV eftir viðtali við Hilmar Veigar Pétursson, einn stofnenda leiksins. Þegar Hilmar var loks tilbúinn í viðtal kom hann með allt aðra og óvænta sögu. Í þessum þætti segir Hilmar Veigar frá því sem gerðist bak við tjöldin áður en fyrirtækið sem hann stýrir var selt fyrir 15 milljarða króna. Hann segir frá óvenjulegum samskiptum sínum við Elon Musk, en líka við aðra og ekki síður lítríka einstaklinga úr hópi fremstu tæknifrömuða heims. Meðal annars, nóbelsverðlaunahafa í efnafræði, Demis Hassabis. Umsjón: Þóra Tómasdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Kveikur: „Plain“ konur eins og ég
Í dag heyrum við frásögn konu sem tók þá afdrifaríku en sjálfstæðu ákvörðun að selja aðgang að líkama sínum. Um 20 ár eru liðin. Þó tími hennar í vændi hafi aðeins varað um sex mánaða skeið hefur hann markað líf hennar allar götur síðan. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Fjölskyldan á Edition-hótelinu
Þrítug kona og karlmaður á sextugsaldri fundust látin á Edition-hótelinu í Reykjavík í júní 2025. Móðir konunnar og eiginkona mannsins sagði lögreglu að fjölskyldan hafi komið til Íslands gagngert til þess að svipta sig lífi. Þóra Tómasdóttir rekur atburðarásina og sögu fjölskyldunnar. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Fjölskyldan á Edition-hótelinu
Þrítug kona og karlmaður á sextugsaldri fundust látin á Edition-hótelinu í Reykjavík í júní 2025. Móðir konunnar og eiginkona mannsins sagði lögreglu að fjölskyldan hafi komið til Íslands gagngert til þess að svipta sig lífi. Þóra Tómasdóttir rekur atburðarásina og sögu fjölskyldunnar. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Að deyja í einsemd
Þegar fólk deyr í heimahúsi eða bara einhvers staðar annars staðar en á sjúkrahúsi þá er tæknideild lögreglunnar kölluð á vettvang. Tæknideildin kannar hvort andlátið hafi borið að með náttúrulegum hætti. Einstaka sinnum gerist það að tæknideildin mætir á vettvang þar sem lík hefur legið lengi. Slíkt gerist sem betur fer sjaldan en árið 2025 fannst lögreglumönnum eins og það væri einhver breyting þar á. Þeir töldu sig koma að fleiri einstæðingum en áður. Rætt er við lögreglumennina Guðmund Þ. Tómasson og Ragnar Jónsson. Við heimsækjum Ingvar Stefánsson og Helenu Björk Magnúsdóttur hjá Kirkjugörðum Reykjavíkur og Emilíu Jónsdóttur félagsráðgjafa hjá Útfararstofu kirkjugarðanna. Umsjón: Þóra Tómasdóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Krossfest: Föstudagurinn langi
Á föstudaginn langa 2025 ferðaðist Sigyn Blöndal til San Fernando á Filippseyjum. Bærinn er þekktastur fyrir það að á föstudaginn langa ganga hundruðir manna um götur bæjarins í húðstrýkingum en þar hefur einnig Ruben Enaje látið krossfesta sig síðan 1986. Hann er á leiðinni á krossinn í 36. sinn og Sigyn fær tækifæri til að hanga með þeim krossfesta - ekki á krossinum heldur spjölluðu þau saman undir skugga mangótrjáa, innan um Maríulíkneski og krossinn sjálfan. Við ferðumst saman á staðinn, heyrum af upplifun þeirra sem voru á staðnum og reynum að fá svar við spurningunni, af hverju? Viðmælendur: Ruben Enaje Prófessor Xiao Chua Pétur Guðmann Guðmannsson Hugo Goodson Michael Magee Lestur: Ruben Enaje: Björn Þór Sigbjörnsson Xiao Chua: Hafsteinn Vilhelmsson Hugo Goodson: Jóhannes Ólafsson Michael Magee: Atli Már Steinarsson Dagskrárgerð, framleiðsla og hljóðvinnsla: Sigyn Blöndal Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Krossfest: Skírdagur
Það kannast flestir Íslendingar við árlegu fréttina á föstudaginn langa um krossfestingar á Filippseyjum. Við horfum og afgreiðum sem galið, sem klikkað - eitthvað sem við myndum aldrei gera. En hvað býr að baki? Hvað gerist þegar við spyrjum af hverju? Hvernig gerist það að karlmenn á Filippseyjum ganga um götur í húðstrýkingum og láta jafnvel krossfesta sig á föstudaginn langa. Sigyn Blöndal var á Filippseyjum um páskana 2025 og kynnti sér málið sem er hægt að skoða frá mörgum hliðum. Í þessum fyrri þætti ferðumst við um götur Manila á skírdag 2025 og hittum bæjarbúa sem syngja um píslargöngu krists og fylgjumst með krossfestingaræfingu. Viðmælendur: Prófessor Xiao Chua Marj Einarsson Ruben Enaje Lestur: Xiao Chua: Hafsteinn Vilhelmsson Marj Einarsson: Ástrós Signýjardóttir Dagskrárgerð, framleiðsla og hljóðvinnsla: Sigyn Blöndal Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Eftir að allt varð svart
Þrír létust þegar lítil flugvél brotlenti við Sauðahnjúka á Austurlandi sumarið 2023. Um borð í vélinni voru náttúruvísindamennirnir Skarphéðinn Þórisson og Fríða Jóhannesdóttir auk flugmannsins Kristjáns Orra Magnússonar. Í þættinum er athyglinni beint að þeirri einstöku þekkingu á hreindýrum og náttúru sem fórst með flugvélinni. Þóra Tómasdóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir ræddu við samferðafólk vísindamannanna ári eftir flugslysið. Tónlist: Johan Söderqvist og Shingeru Umbayashi Dagskrárgerð: Þóra Tómasdóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


