Spursmál er nýr og beinskeyttur umræðuþáttur á mbl.is Þar eru stóru mál samfélagsins krufin með afdráttarlausum hætti undir stjórn Stefáns Einars Stefánssonar sem fær til sín valinkunna gesti í settið alla föstudaga kl. 14. Fylgstu með lifandi, fjölbreyttri og kraftmikilli umræðu í Spursmálum á mbl.is.

#. - 120 Fallinn varaformaður og vaxtaokur í boði hins opinbera
Varaformaður Flokks fólksins er flúinn af hólmi og Seðlabanki og ríkisstjórn virðast leggja sitt af mörkum til þess að viðhalda háum vöxtum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í Spursmálum dagsins. Í fyrsta hluta þáttarins ræðir Stefán Einar við Andrés Magnússon um gögn sem nú hafa verið dregin fram í dagsljósið og varpa ljósi á það hvaða augum Evrópusambandið lítur áframhald viðræðna við Ísland um mögulega aðild þess að sambandinu.Í öðrum hluta þáttarins er rætt við þá Hlyn Bæringsson, oddvita Framsóknarflokksins í Garðabæ og Tómas Þór Þórðarson, varaþingmann Sjálfstæðisflokksins um fréttir vikunnar. þar ber margt forvitnilegt á góma, meðal annars hækkandi verðbólgu, yfirvofandi stýrivaxtahækkanir, brotthvarf Guðmundar Inga Kristinssonar úr Flokki fólksins og stöðuna í efstu deild í körfunni og fótboltanum.Í síðasta hluta þáttarins er rætt við Kjartan Örn Sigurðsson, eiganda Ormsson, en hann hefur stórar skoðanir á þeim aðgerðum sem Seðlabankinn hefur gripið til á síðustu árum í formi hækkandi vaxta, viðbrögðum ríkisstjórnarinnar við versnandi efnahagsástandi og þrengingum á húsnæðismarkaði og síðast en ekki síst fyrirhuguðum breytingum á Suðurlandsbraut.

Bókakvöld: Grænland í brennidepli
Samtal við Heiðar Guðjónsson, Eld Ólafsson og Ragnar Axelsson um stöðu Grænlands.

#119. - Í fyrsta lagi: Á Ísland erindi inn í ESB?
Á Ísland, sem eitt ríkasta land í heimi, erindi inn í Evrópusambandið þar sem mörg ríki glíma við fátækt og efnahagserfiðleika? Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra hefur skoðun á því. Hann er væntanlegur í Spursmál í dag til þess að ræða þetta áleitna mál en hann verður einnig til svars um það hvernig alþjóðamálin í víðara samhengi blasa við honum. Hann var um nokkurra ára skeið sendiherra Íslands gagnvart Bandaríkjunum í Washington D.C. og er því öllum hnútum kunnugur þegar kemur að stöðu og stefnu Bandaríkjanna, jafnt heima fyrir og um veröld víða. Í fréttum vikunnar verður rætt við þá Sævar Helga Bragason, jarðfræðingur og umsjónarmaður Stjörnuvefsins með meiru, og Herbert Guðmundsson tónlistarmann. Rætt verður við þá um geimskot, fráfall Björgvins Halldórssonar og margt fleira. Í þáttinn mætir einnig Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra Morgunblaðsins en hann mun í dag sitja fyrir hönd blaðsins blaðamannafund ríkisstjórnarinnar sem bæði kynnir nýja atvinnustefnu fyrir Ísland og tímabundnar aðgerðir til að mæta efnahagslegum þrengingum sem gert hafa vart við sig á síðustu mánuðum. Hann mun fara yfir helstu atriði í tillögum ríkisstjórnarinnar.

#118. - Eldfim umræða um Hamas-liða á Íslandi
Allt ætlaði um koll að keyra í kjölfar þess að Morgunblaðið upplýsti að menn með tengsl við Hamas-samtökin hefðu staðið að voðaverki í bílakjallara í Reykjavík. Lögreglan hefur orðið tvísaga um málið en nú virðist óhætt að upplýsa um þjóðerni mannanna sem nú sæta rannsókn vegna afar hættulegrar líkamsárásar sem átti sér stað á Höfðatorgi í Reykjavík. Þetta og fleira er til umræðu á vettvangi Spursmála. Alþingismennirnir Bergþór Ólason frá Miðflokki og Grímur Grímsson frá Viðreisn ræða málið á vettvangi Spursmála. Almenningur spyr sig út í hvort öryggi fólks sé ógnað vegna uppgangs erlendra glæpagengja hér á landi. Grímur er fyrrverandi yfirlögregluþjónn og þekkir vel til málaflokksins. Þeir ræða einnig stöðuna í efnahagslífi landsins en ný verðbólgumæling sýnir að ekki hefur tekist að ná böndum á verðhækkanir hér á landi. Mælist hún 5,4% samkvæmt Hagstofunni og fátt bendir til þess að kjarasamningar muni halda þegar þeir koma til endurskoðunar þann 1. september næstkomandi. Í síðari hluta þáttarins mæta alþingismennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson frá Sjálfstæðisflokki og Ingvar Þóroddsson frá Viðreisn. Þeir ræða um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Einnig munu þeir takast á um nýbirta fjármálaáætlun ríkisins sem gildir fyrir árin 2027 til 2031. Báðir sitja þeir í fjárlaganefnd sem nú tekur áætlunin fyrir.

#117. - Flest teikn í hagkerfinu vísa í verri átt
Mjög gefur á bátinn í íslensku hagkerfi um þessar mundir og fátt sem gefur sérstaka ástæðu til bjartsýni. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttir sýnir ekki á nein spil um hvernig bregðast skuli við.Þau Bjarnheiður Hallsdóttir, fyrrverandi formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, og Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, fara yfir nýja ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands þar sem stýrivextir voru hækkaðir um 0,25 prósentur. Minnihluti nefndarinnar vildi raunar hækka þá um 0,5 próse Einnig fara þeir Magnús Sigurbjörnsson og Pétur Krogh Ólafsson og fara yfir fréttir vikunnar. Þeir stýra hlaðvarpinu Korter í kosningar og af þeirri ástæðu augljóslega mun umræðan að miklu leyti hverfast um kosningarnar sem framundan eru 16. maí næstkomandi.Í lok þáttar er rætt við Brynjólf Gauta Guðrúnar Jónsson, doktorsnema í stærðfræði við Háskóla Íslands. Hann hefur smíðað tvær afar áhugaverðar heimasíður sem notast við mállíkön til þess að greina íslenskt samfélag úr tveimur áttum.Þar er annars vegar um að ræða síðuna Þingfréttir (thingfrettir.is) þar sem starfsemi Alþingis er greind með áhugaverðum hætti og nýstárlegum og hins vegar ESB vaktin (esbvaktin.is) þar sem umræðan um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst er greind og vegin og metin. Er hér um að ræða einskonar staðreyndavakt sem mun nýtast almenningi til að greina kjarna frá hysmi og sannleika frá lygi.

#116. - Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB
Mikið uppbrot á fjölmiðlamarkaði er í farvatninu eftir að tilkynnt var um kaup Símans á Vísi og útvarpsstöðum Sýnar. Þá berast fylkingar á banaspjótum út af spurningunni um aðildarviðræður við ESB. Þessi mál verða tekin fyrir í fréttum vikunnar í Spursmálum þar sem Heiða Kristín Helgadóttir, nýráðinn ráðgjafi utanríkisráðherra, og Kristín Gunnarsdóttir, forstöðumaður upplýsingamiðlunar Landsbankans og stjórnandi hlaðvarpsins Komið gott, leiða saman hesta sína. Þá mætir Gauti Geirsson á svæðið en hann er framkvæmdastjóri laxeldisfyrirtækisins Háafells við Ísafjarðardjúp. Fyrirtæki hans beinir tæknibúnaði sem helst hefur orðið vart við í Star Wars í baráttunni við hina skæðu laxalús sem bæði herjar á eldislax og villtan. Í síðasta hluta þáttarins er rætt við Gísla Ragnar Guðmundsson sem leiðir samnorræna stofnun um gervigreind. Hann er flestum ef ekki öllum hnútum kunnugur þegar kemur að gervigreindinni en ekki er vanþörf á að skýra fyrirbærið fyrir fólki sem oft virðist ráðvillt þegar kemur að umræðu um kosti og galla þessarar mögnuðu tæknibyltingar.

#115. - Er Ísland á leið inn í Evrópusambandið?
Að 173 dögum liðnum liggur fyrir hvort Ísland hefji aðildarviðræður að nýju við Evrópusambandið? Hvaða sjónarmið munu liggja til grundvallar þegar þjóðin ákveður hvort leggja skuli út í þá vegferð? Það er stóra spurningin sem varpað var fram í opinberri umræðu síðastliðinn föstudag þegar forystukonur ríkisstjórnarinnar boðuðu þjóðaratkvæðagreiðslu um málið en hún mun fara fram 29. ágúst, verði þingsályktunartillaga þar um samþykkt á Alþingi. Góðir gestir Fyrst mæta þeir á vettvang, Magnús Árni Skjöld Magnússon, formaður Evrópuhreyfingarinnar, og Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður formanns Miðflokksins. Þá leiða saman hesta sína Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar og formaður utanríkismálanefndar þingsins, og Jens Garðar Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og varaformaður hans.

#114. - Er kreppa skollin á? Viðtal við Bjarna Benediktsson
Í byrjun mánaðarins tók Bjarni Benediktsson, fyrrverandi forsætisráðherra, við starfi framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Hann mætir í fyrsta ítarlega viðtalið í kjölfar þess á vettvangi Spursmála. Í upphafi verður hann spurður út í kynni sín af Davíð Oddssyni, fyrrverandi forsætisráðherra og ritstjóra Morgunblaðsins, sem féll frá um liðna helgi. Þeir áttu lengi samfylgd, fyrst í þinginu en síðan á þjóðarsviðinu þar sem Bjarni leiddi flokkinn sem Davíð hafði stýrt á árunum 1991-2005. Viðkvæm staða efnahagsmála Þá verður talinu beint að stöðu efnahagsmála en þar hefur syrt verulega í álinn á síðustu mánuðum og vaxtasleggjan sem Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, hafði lofað að beita þjóðinni til handa hefur alls ekki virkað. Hvernig standa atvinnuvegirnir og eru sóknarfæri fyrir íslensk fyrirtæki í núverandi ástandi? Hvað finnst Bjarna Benediktssyni um atkvæðagreiðsluna um mögulega aðild að ESB? Mun stríðið í Íran leiða áföll yfir Ísland? Í fyrri hluta þáttarins verður hins vegar rætt við þá Þórð Gunnarsson, hagfræðing og Stefán Gunnar Sveinsson, blaðamann á Morgunblaðinu en þeir hafa báðir sérþekkingu á málefnum sem tengjast hinum miklu stríðsátökum sem nú geisa í Íran. Í viðtali við þá verður reynt að varpa upp mynd af atburðum síðastliðinnar viku og hvaða áhrif þeir kunni að hafa vítt og breitt um heimsbyggðina.

113. - Verður VG reist frá dauðum? Lifir Icelandair ETS af?
Rósa Björk Brynjólfsdóttir vill verða formaður VG en flokkurinn er í mikilli kreppu eftir að hafa dottið út af þingi og misst ríkisstyrki. Kosið verður um nýjan formann í flokknum um miðjan næsta mánuð. Icelandair býr við mjög íþyngjandi umhverfisskattheimtu og ljóst að ef hennar nyti ekki við hefði fyrirtækið skilað umtalsverðum hagnaði á síðasta ári. Rósa Björk mætir í Spursmál og ræðir fréttir vikunnar ásamt Eyþóri Arnalds, fyrrum borgarfulltrúa og oddvita Sjálfstæðisflokksins í borginni. Þau ræða stríðið í Úkraínu, ESB-umsókn ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur og margt fleira af vettvangi stjórnmálanna. Flugfélag í kreppu Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair ræðir stöðu flugfélagsins, ekki síst í ljósi hinnar miklu skattheimtu sem að mati margra skekkir samkeppnisstöðu íslensks flugrekstrar mjög gagnvart evrópskum og bandarískum flugfélögum. Rangir hvatar í stærstu bótakerfum landsins Í lok þáttar mætir geðlæknirinn og viðskiptafræðingurinn Oddur Ingimarsson og ræðir tvær afar athyglisverðar greinar sem hann hefur ritað í Morgunblaðið á síðustu tveimur vikum um örorkubætur og lífeyrisgreiðslur og hvernig samspil þeirra geta latt fólk til þess að koma aftur út á vinnumarkaðinn eftir að hafa misst starfsgetu sína um stundarsakir.

#112. - Mun ETS-kerfið setja Icelandair á hausinn?
Jafnt og þétt leggst losunarkerfið ETS með þyngri hætti á íslenskt viðskiptalíf. Innan fárra ára mun kostnaður Icelandair við kerfið margfaldast. Hvaða áhrif mun það hafa? Þetta er meðal þess sem rætt er í Spursmálum dagsins en Frosti Sigurjónsson, höfundur bókarinnar Hitamál og Ragnar S. Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs ræða ETS-kerfið og hugmyndafræðina á bak við það í þættinum. Rýnt í fréttir vikunnar Í fréttum vikunnar er rætt við þau Höllu Gunnarsdóttur, formann VR, stærsta stéttarfélags Landsins, og Frosta Logason, stjórnanda Brotkastsins. Þar ber margt á góma, málefni Andrésar Mountbatten, fyrrum prins og bróður Karls III Bretakonungs, ný ályktun ASÍ um erfiða stöðu í efnahagsmálum þjóðarinnar og framganga dr. Arnars Eggerts Thoroddsen í kennslustund í Háskóla Íslands þar sem hann spurði unga nemendur hvort þeir hygðust ekki ábyggilega „taka af lífi“ nafngreinda menn úr íslenskum fjölmiðlum.
