Spegillinn

RÚV

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Keir Starmer segir af sér - Skuggagervigreind

22jún

Starfsmenn fyrirtækja og stofnana nota gervigreind í síauknum mæli í vinnu sinni en átta sig e.t.v. ekki á því að sum gagnanna sem unnið er með mega ekki fara út úr húsi, innihalda viðkvæmar og eða verðmætar upplýsingar. En um leið og gögn hafa verið sett inn í gervigreindarforrit er voðinn vís. Við ræðum við Ými Vigfússon sem er doktor í tölvunarfræði og tæknistjóri hjá Keystrike í lok þáttar. Áður en sumarið er úti fá Bretar sinn sjöunda forsætisráðherra á tíu árum. Stjórnmálaskýrandi segir að ekkert eitt skýri óstöðugleikann í breskum stjórnmálum undanfarinn áratug en í ljós hafi komið að Keir Starmer, sem sagði af sér í morgun, hafi hvorki verið heillandi né góður stjórnandi.

Allt um innviðafélag og staða samningaviðræðna milli Íraks og Bandaríkjanna

19jún

JD Vance varaforseti Bandaríkjanna frestaði fyrirhugaðri ferð sinni til Sviss, þar sem viðræður um næstu skref í átt að friðarsamkomulagi milli Bandaríkjanna og Íran áttu að fara fram í dag. Ísraelar og Hezbollah-samtökin í Líbanon hafa samið um vopnahlé. Innviðafélaginu er, samkvæmt frumvarpinu, ætlað að halda utan um uppbyggingu stórra þjóðhagslegra mikilvægra samgönguverkefna, ásamt að tryggja fjármögnun og hraða framvindu slíkra verkefna. Allt hlutafé félagsins á að vera í eigu ríkissjóðs. Til að styrkja fjárhag félagsins er einnig til skoðunar að færa því eignarhald á þegar byggðum mannvirkjum á borð við Hvalfjarðargöng, Vaðlaheiðargöng og brú yfir Hornafjarðarfljót. Jafnframt er nefnt að mögulega verði tekin upp veggjöld á leiðum eins og Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi til að dreifa gjaldbyrði og minnka framlög úr ríkissjóði. Stjórnarliðar lögðu áherslu á samþykkt frumvarpsins til að setja aukinn kraft í vegaframkvæmdir en stjórnarandstæðingar sögðu frumvarpið illa unnið og fela í sér gjaldtöku ofan á skatta sem þegar séu lagðir á ökutæki. Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar, og Stefán Vagn Stefánsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, komu til okkar.

Ráðherrafundur NATO í Brussel, baráttan um ferjuna Baldur og lýðræði á tímum upplýsingaóreiðu

18jún

Viðvera Bandaríkjahers í Evrópu verður endurskoðuð á næstu sex mánuðum, sagði Pete Hegseth varnarmálaráðherra Bandaríkjanna á ráðherrafundi NATO í Brussel í morgun. Og hann kom kyrfilega á framfæri óánægju stjórnvalda í Washington með viðbrögð evrópskra aðildarríkja, þegar hernaðurinn gegn Íran hófst í byrjun febrúar. Fulltrúar þriggja sveitarfélaga á Vesturlandi og Vestfjörðum funduðu með innviðaráðherra í dag um siglingar Breiðafjarðarferjunnar Baldurs til Vestmannaeyja. Bæjarstjórinn í Vesturbyggð segir það hafa valdið miklu tjóni að missa Baldur úr siglingum yfir Breiðarfjörð og mögulega hafi Vegagerðin og ráðuneytið vanmetið áhrifin af þeirri ákvörðun. Upplýsingaóreiðan var til umræðu á stórri ráðstefnu í Reykjavík í dag, sem bar yfirskriftina: „Lýðræði á tímum upplýsingaóreiðu.“ Þar kom fram að smæðin hér á landi hjálpar til við að sporna við því að óprúttnir aðilar komi villandi upplýsingum til fólks, en sífellt erfiðara verður þó að greina á milli réttra og rangra upplýsinga. Íslendingar þurfi að læra af reynslu annarra ríkja.

Fiskeldi vex í heiminum öllum, ekki bara hér, Moldova og Úkraína nálgast ESB aðild og Fjallkonan og búningur hennar

16jún

Fiskeldi er ört vaxandi grein í matvælaframleiðslu. Í skýrslu Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna sem birtist í dag kemur fram að vöxturinn er mun meiri en í annarri matvælaframleiðslu. Framleiðslan var rúmlega hundrað milljón tonn í hitteðfyrra og hafði aldrei verið meiri. Á Alþingi og víðar er tekist á um nýtt frumvarp um lagareldi. Mikilvæg skref í aðildarumsókn Úkraínu og Moldóvu að Evrópusambandinu voru tekin í gær í Luxemborg, þegar fyrstu samningskaflarnir voru opnaðir. Bæði ríkin fengu stöðu umsóknarríkis sumarið 2022, en Ungverjar hafa lengi staðið í vegi fyrir aðildarviðræðum við Úkraínu. Ný aðildarríki Evrópusambandsins gætu þurft að sætta sig við takmörkuð réttindi fyrstu árin eftir inngöngu. Fjallkonan sést sjaldan utan 17. júni; áhugi á búningi hennar og íslenskum búning yfirleitt hefur glæðst undanfarin ár, ekki síst hjá körlum.

Mengaður jarðvegur, samfélagsmiðlabann í Bretlandi og dómur yfir Mariusi Höjby

15jún

Bresk stjórnvöld kynntu í morgun áform um bann við notkun samfélagsmiðla. Bannið nær til barna undir 16 ára aldri. Sviðsstjóri Netöryggismiðstöðvar Íslands vill sambærilegt bann hér á landi. Dómur var kveðinn upp í dag yfir Mariusar Borg Høiby, stjúpsyni norska krónprinsins. Hann var dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir tvær nauðganir og ofbeldi í nánu sambandi. Hann ætlar að áfrýja dómnum. En við byrjum á menguðum jarðveg.

Friðlýsing landgrunnsins suður af Íslandi, bílastæðagjöld um allt land og varningssala tónlistarmanna.

12jún

Hafrannsóknastofnun vill friðlýsa tæplega 33.000 ferkílómetra af landgrunninu suður af Íslandi. Þar er að finna hluta af helstu kóralrifum við Ísland sem togveiðar hafa skaðað í gegnum árin. Steinunn Hilma Ólafsdóttir, sjávarlíffræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, segir einstakt landslag þarna á hafsbotninum sem fóstrar fjölbreytt lífríki og fjölbreytt búsvæði, kóralla, svampa og fleira. Friðlýsing þýðir veiðibann og allt lífríki sem þrífst þar á hafsbotni fengi algera friðun. Þeir sem ætla í bíltúr í góða veðrinu, sem spáð er víða um helgina, þurfa að hafa varann á sér ef þeir ætla að stoppa einhvers staðar. Aldrei hefur verið rukkað fyrir bílastæði jafnvíða og í ár. Samkvæmt samantekt Félags íslenskra bifreiðaeigenda frá í maí, rukkaði Parka fyrir notkun á 18 bílastæðum einkaaðila í Reykjavík í fyrra, en nú 24. GreenParking rukkaði fyrir 15 stæði, tveimur árum áður voru þau sjö. Í nóvember var rukkað fyrir bílastæði á 43 ferðamannastöðum víða um land, í maí voru þau orðin 54, það er 25 prósenta aukning. Tónlistarbolir og annar varningur sem merktur er hljómsveitum og listamönnum hefur aldrei verið mikilvægari en nú, til að mæta auknum kostnaði við tónleikahald. Þetta mátti meðal annars sjá fyrir stórtónleika Bubba Morthens um síðustu helgi, þegar opnaður var sérstakur vefur með alls konar varningi merktum honum. Varningsborðin eru líka ómissandi á tónlistarhátíðum og þar flykkjst tónleikagestir að og skoða boli, derhúfur, merki til að sauma á boli og annað slíkt, geisladiska, plötur og fleira.

Þér gæti líka líkað...