Silfrið

RÚV Hlaðvörp

Fréttir

Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.<hr><p style='color:grey; font-size:0.75em;'> Hosted on Acast. See <a style='color:grey;' target='_blank' rel='noopener noreferrer' href='https://acast.com/privacy'>acast.com/privacy</a> for more information.</p>

30. þáttur: Dökk mynd dregin upp af sjávarútvegi

30. þáttur: Dökk mynd dregin upp af sjávarútvegi

21
apríl

Gestir Silfursins eru Eyrún Magnúsdóttir, ritstjóri Gímaldsins, Gréta María Grétarsdóttir, verkfræðingur og fyrrverandi framkvæmdastjóri Prís, Halldór Halldórsson, forstjóri Íslenska kalkþörungafélagsins og Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi formaður Vg. Umfjöllun Berlinske um íslenskan sjávarútveg vakti mikla athygli um helgina. Þar dregin upp dökk mynd af greininni og pólitískum ítökum útgerðarinnar. Það styttist í sveitastjórnarkosningar, en ekki er örgrant um að þær hafi fallið í skuggann af áformum um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB í sumarlok. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

29. þáttur: Forsætisráðherra ræðir efnahagsmálin

29. þáttur: Forsætisráðherra ræðir efnahagsmálin

14
apríl

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er í viðtali í fyrri hluta þáttarins um stöðu efnahagsmála. Í seinni hlutanum höldum við áfram að ræða við oddvita framboða í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík. Gestir: Silja Sóley Birgisdóttir, Sósíalistaflokkur Íslands Ingimar Þór Friðriksson, Góðan daginn framboðið Sigfús Aðalsteinsson, Borgin okkar. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

28. þáttur: Bjarni Benediktsson kallar eftir þjóðarsátt

28. þáttur: Bjarni Benediktsson kallar eftir þjóðarsátt

1
apríl

Bjarni Benediktsson, fyrrverandi forsætis- og fjármálaráðherra, er nýráðinn framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann fer yfir stöðuna í efnahagsmálum, forsendur kjarasamninga, og hvað þurfi að gerast að hans mati til að kveða niður verðbólgu og stýrivexti. Efnahagsmálin eru áfram til umræðu í vettvangi dagsins. Gestir eru Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar, Bjarnheiður Hallsdóttir, framkvæmdastjóri ferðaþjónustunnar Katla DMI, og Guðmundur Steingrímsson, auðlinda og umhverfisfræðingur. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

27. þáttur: Vextir hækka á ný og oddvitar ræða borgarmálin

27. þáttur: Vextir hækka á ný og oddvitar ræða borgarmálin

24
mars

Seðlabankinn hefur hækkað vexti í fyrsta sinn í tvö og hálft ár. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri kemur til að ræða ákvörðunina og hvert stefnir í efnahagsmálunum. Síðari hluti þáttarins er helgaður borgarpólitíkinni með oddvitunum Ara Edwald frá Miðflokki, Einari Þorsteinsson frá Framsóknarflokki, Kristni Jóni Ólafssyni Pírata og Sönnu Magdalenu Mörtudóttur frá Vinstrinu. Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir, útsendingu stjórnar Helgi Jóhannesson. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

26. þáttur: Oddvitar í borgarstjórnarkosningum og uppgangur atNorth á Íslandi

26. þáttur: Oddvitar í borgarstjórnarkosningum og uppgangur atNorth á Íslandi

19
mars

Í dag eru tveir mánuðir í sveitarstjórnarkosningar og í þætti kvöldsins er rætt við oddvita þriggja framboða í Reykjavík. Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins Pétur H. Marteinsson oddviti Samfylkingarinnar Í seinni hluta þáttarins er rætt við Eyjólf Magnús Kristinsson forstjóra atNorth. Fyrirtækið rekur gagnaver hér á landi og á Norðurlöndunum og var nýlega selt fyrir 485 milljarða króna. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

25. þáttur: Stefnt að kosningu um ESB í sumar

25. þáttur: Stefnt að kosningu um ESB í sumar

10
mars

Ríkisstjórnin stefnir á að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB í sumarlok. Reikna má með að Evrópumál verði fyrirferðarmikil þangað til en hart var tekist um þau á Alþingi í dag. Fulltrúar allra flokka á þingi koma í Silfrið að þessu sinni: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Guðrún Hafsteinsdóttir, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Guðmundur Ari Sigurjónsson og Lilja Dögg Alfreðsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

24.þáttur: Stríð í Miðausturlöndum

24.þáttur: Stríð í Miðausturlöndum

3
mars

Stríð er hafið í Miðausturlöndum eftir árás Bandaríkjanna og Ísraels á Íran. Hverjar eru ástæðurnar, og hverjar gætu afleiðingarnar orðið? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

23. þáttur: Gervigreind þróast á áður óþekktum hraða

23. þáttur: Gervigreind þróast á áður óþekktum hraða

25
febrúar

Þróun gervigreindar verður sífellt hraðari og áhrif hennar á samfélagið og vinnumarkaðinn að verða greinilegri. Vitum við hvert stefnir og erum við tilbúin? Gestir: Andri Snær Magnason rithöfundur Anna Sigríður Islind, prófessor í tölvunarfræði við HR Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms. Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

22. þáttur: Tvöfaldi lásinn og staðan í efnahagsmálum

22. þáttur: Tvöfaldi lásinn og staðan í efnahagsmálum

17
febrúar

Silfrið er helgað efnahagsmálum í kvöld. Gestir okkar eru Gestir þáttarins eru Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra, Ásta Fjeldsted, forstjóri Festi, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur BSRB, og Katrín Ólafsdóttir, dósent í hagfræði við HR. Tekist er á um tengingu almannatrygginga við launavísitölu á þingi, Það ætlar að reynast erfitt að koma verðbólgunni niður og stýrivextir eru háir og. Almenningur situr uppi með hærri lán og vöruverð, en bankarnir og risar á matvörumarkaði mala gull. Festi sem á Krónuna hagnaðist til að mynda um 6,2 milljarða í fyrra, mun meira en spáð hafði verið. Við förum yfir þessi mál og fleiri. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

21. þáttur: Epstein-skjölin og framtíð Framsóknarflokksins

21. þáttur: Epstein-skjölin og framtíð Framsóknarflokksins

10
febrúar

Epstein-skjölin hafa afhjúpað tengsl auðjöfra, stjórnmálamanna og frægðarfólks víða um heim við bandaríska kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein, og margir valdsmenn riða til falls, einkum í Bretlandi og Noregi. Hversu víðfeðm voru tengslin, og ná þau alla leið til Íslands? Hulda Þórisdóttir stjórnmálafræðiprófessor, Herdís Sigurgrímsdóttir stjórnmálafræðingur og Jón Trausti Reynisson blaðamaður ræða um Epstein-skjölin í Silfrinu í kvöld. Í síðari hluta þáttarins er rætt við Ingibjörgu Isaksen og Lilju Alfreðsdóttur, sem báðar sækjast eftir því að verða formaður Framsóknarflokksins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Þér gæti líka líkað...