LANGA - hlaðvarp

Snorri Björns

ÍþróttirHeilsa

Hlaðvarp um langanir og langar vegalengdir.

90. Latsi & Geir Ómars - Kominn til Kona!

90. Latsi & Geir Ómars - Kominn til Kona!

16jún

Latsi er kominn til Kona, Björgvin Karl er kominn í þríþraut og Andrea Kolbeins er komin í hjólreiðarnar. Geir Ómarsson og Einar Sigurjónsson eru komnir frá Filippseyjum með hálfan og heilan járnkarl undir beltinu til þess að gefa okkur ferðasöguna og fara yfir helstu vendingar í heimi úthaldsíþrótta.

89. Þorbergur Ingi eftir EM

89. Þorbergur Ingi eftir EM

8jún

Crazy carb numbers, einkapepparinn Þorsteinn Roy, hærri ITRA stig á Íslandi en í útlöndum, Tobbi vs. Tove (í beinni frá Dyrfjallahlaupinu) og yfirferð á frammistöðu íslenska landsliðsins á Evrópumeistaramótinu í utanvegahlaupum.

88. Enhanced Games, peptides, sál til sölu og hvað fara margir undir 4 í Laugaveginum? - Synir LANGA

88. Enhanced Games, peptides, sál til sölu og hvað fara margir undir 4 í Laugaveginum? - Synir LANGA

31maí

Engir gíslar teknir: Foreldrafélag LANGA hlaðvarps fordæmir Enhanced Games, hvað munu margir hlauparar fara undir 4 tíma í Laugaveginum? Gera þeir það í síðbuxum? Sage Canaday tilkynnir Cameron Hanes (58 ára… 2:39 maraþon… ???) til lyfjaeftirlitsins útaf peptíðum, Francesco Puppi efast um að 400km hlaup flokkist sem utanvegahlaup og Íslendingar munu valda skaða á Evrópumeistaramótinu næstu helgi.

DOPING, gráa svæðið, HGH, EPO og löglegar leiðir að heimsmetum - Ingimar Jónsson, Msc. molecular medicine

DOPING, gráa svæðið, HGH, EPO og löglegar leiðir að heimsmetum - Ingimar Jónsson, Msc. molecular medicine

22maí

Á ég rétt á því að vera skeptískur þegar ég horfi á besta árangur mannkynssögunnar nást, þvert á íþróttagreinar? Ingimar Jónsson, Msc. í molecular medicine (Sameindalífvísindi. Takk.), er í beinni frá Afrekslandinu til þess að ræða um árangur íþróttafólks með tilliti til frammistöðuaukandi efna: Testesterón, HGH, EPO, örvandi efni (hvað ertu búin með marga kaffibolla í dag?) og insúlín - hefur þetta einhver áhrif? Eru allir á sterum? Eru lyfjaprófin að virka sem skildi? Munu Enhanced Games sýna að allir eru að dópa? Af hverju fá sumir undanþágur fyrir frammistöðuaukandi efnum? Ingimar er bjartsýnn, yfir meðalgreind og trúir á það góða í manneskjunni - rétt eins og hlustendur LANGA hlaðvarps. Eigið góða helgi!

86. Hlynur Andrésson - tilraun við Íslandsmet, maraþonæfingar, sub 1:59, kolvetni og koltrefjar

86. Hlynur Andrésson - tilraun við Íslandsmet, maraþonæfingar, sub 1:59, kolvetni og koltrefjar

10maí

Hlyni Andréssyni rænt í viðtal beint eftir Kaupmannahafnarmaraþonið þar sem hann hljóp á öðrum hraðasta tíma Íslandssögunnar, 2:15:30, en tókst ekki að slá eigið Íslandsmet. Hlynur veltir hér öllum steinum er viðkoma maraþonundirbúningi og þeirri staðreynd um hversu erfitt það er að framkvæma gott maraþon: Kolvetnainntaka, magaóþægindi, carbon skór, maraþon undir 1:59 á árinu, vafasöm hematókrítgildi, að fá ekki mynd af sér með Jakobi Ingebrigtsen (?), Íslandsmetið í hálfu maraþoni og allt hitt sem langhlauparar landsins hugsa um þegar þeir leggjast á koddann eftir erfiðan æfingadag.

85. KRISTIAN BLUMMENFELT

85. KRISTIAN BLUMMENFELT

7maí

Coming off an epic win streak in early 2026, live from Bergen, the one and only: Kristian Blummenfelt. What could he run for the marathon with a year of marathon-specific preparation? How does he knock off multiple half Ironmans and Ironmans in the span of a couple of weeks? What happened to only running 2 marathons a year? When did the high-carb revolution hit the Norwegians? Can recent endurance performances be attributed to the super shoes and carbohydrates alone? Did Kristian hit the coach jackpot when he entered triathlon? We discuss the high-milage approach, cleaning up his diet while eating 7.000 calories, not being good at any sport as a kid but still wanting to be an Olympic champion, Norseman, Klæbo’s isolation tactics, training with the Ingebrigtsen brothers, almost not being accepted for class, knocking out a 1:08 half marathon in his off season, the possibility that he absorbs more calories from food than the average person, the 100+ VO2max test, deviating from the Norwegian measure-everything approach, and not signing with the Norwegian national team.

84. Baldvin Þór Magnússon

84. Baldvin Þór Magnússon

30apr

Viðbrögð við sub2 maraþoni, kolvetni og carbon skór, uppgjör á fyrstu götumílunni, hvernig hleypur einhver 25 ára gaur maraþon á 2:05 (fjórði hraðasti tími Bandaríkjamanns), meiðslin, Nike samningurinn og vegferðin í átt að Birmingham 2026.

BREAKING2, skórnir, lyfjaprófin, kolvetnin og bicarb?

BREAKING2, skórnir, lyfjaprófin, kolvetnin og bicarb?

27apr

Latsi var sem betur fer á bakvakt þegar Sebastian Sawe og Yomif Kejelcha brutu tveggja tíma múrinn í London maraþoninu. Vænleg yfirferð á Breaking 2 verkefni Nike sem byrjaði þetta allt saman, hvernig Adidas stal þrumunni og setti báða sub2 hlauparana í Adidas skó, lyfjaprófin 25 sem Sawe bað um aukalega til að sanna sakleysi sitt, ný tegund ofurskóa ryður sér rúms, eru fleiri sem geta hlaupið undir tveimur en eru með samning við vitlausan skóframleiðanda? Virkaði bicarb á keppnisdegi og hvað tóku þeir inn mörg grömm af kolvetnum?

82. PENINGAR, frægð, athygli og samstörf - Snorri Barón

82. PENINGAR, frægð, athygli og samstörf - Snorri Barón

23apr

Eru íþróttamenn bara fáklæddir áhrifavaldar með hátt VO2max?? Snorri Barón, hlaupari, hefur áratuga reynslu úr auglýsingabransanum sem hann heimfærði á umboðsmennsku og listina við að leiða saman íþróttamenn og fyrirtæki. Snorri veitir hér sína skoðun á því hvort leikurinn snúist um að verða sá besti eða sá vinsælasti: hver ber ábyrgð á vinsældum íþróttamanns, fjölmiðlar eða íþróttamaðurinn sjálfur? Er það vinsælasti eða besti íþróttamaðurinn sem á peninginn skilið? Eru einstaklingar að þykjast vera sponsaðir? Eiga íþróttamenn peninga skilið yfir höfuð? Hverjir fá samninginn við Nike og Adidas? Hvað vilja fyrirtæki fá út úr samstarfi? Þarf að sýna frá öllu lífi sínu ef maður ætlar að hafa eitthvað upp úr íþróttinni? Eru fyrirtæki of varkár? Snorri rekur einnig samstarf sitt við Björgvin Karl (lirfan sem varð að fiðrildi), að hjálpa íþróttafólki sem fellur á lyfjaprófi og eigin raunir af því að fá annan séns í lífinu.

Hæsta VO2max Íslendings, KRISTIAN BLU óstöðvandi, leiðir til að bæta sig/meiðast og lygilegar mælingar

Hæsta VO2max Íslendings, KRISTIAN BLU óstöðvandi, leiðir til að bæta sig/meiðast og lygilegar mælingar

17apr

Hans fræðsla, þinn árangur. Latsi heldur uppi ábyrgri umræðu um hæstu VO2max mælingar Íslandssgöunnar (official), ástæðu (eintala) þess að Arnar hægði á sér undir lok 100km hlaupsins, konur sem hlaupa Boston maraþonið 🤨, tilraun Hlyns við hraðasta maraþon Íslendings, YFIRBURÐIR Kristians Blummenfelt og hrottalegar (leynilegar) hlaupaæfingar, lygilegar mjólkursýrumælingar og nokkrar leiðir til að hlaupa hraðar og meiðast.

Þér gæti líka líkað...