Fotbolti.net

Fotbolti.net

Íþróttir

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Niðurtalningin - Nýliðar sem ætla að spila sambabolta

Niðurtalningin - Nýliðar sem ætla að spila sambabolta

25
desember 2032

Við höldum áfram að telja niður fyrir Bestu deild kvenna. Núna er komið að liðinu sem er spáð níunda sæti, Grindavík/Njarðvík. Natasha Anasi, leikmaður liðsins, og Gylfi Tryggvason, þjálfari liðsins, komu í hljóðver og fóru yfir allt það helsta hjá þessu áhugaverða liði.

Innkastið - Mega skammast sín og gera það

Innkastið - Mega skammast sín og gera það

23
apríl

Innkastið eftir 3. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn. Víkingur vann stórleikinn, Valsmenn sannfærandi, baráttusigur Þórs, KR rúllaði yfir ÍBV, ÍA og KA er enn án sigurs og bitlausir Blikar gerðu markalaust jafntefli gegn Keflavík.

Niðurtalningin - Langar að upplifa það aftur í Víkinni

Niðurtalningin - Langar að upplifa það aftur í Víkinni

23
apríl

Það er komið að liðinu sem spáð er þriðja sæti í Bestu deild kvenna sumar, Víkingur Reykjavík. Einar Guðnason, þjálfari Víkinga, og Emma Steinsen, leikmaður liðsins, komu við á skrifstofu Fótbolta.net og ræddu um sumarið sem er framundan.

Fótbolta nördinn: Undanúrslit - Draumaliðið vs 433

Fótbolta nördinn: Undanúrslit - Draumaliðið vs 433

22
apríl

Fyrri undanúrslitaþáttur Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Jóhann Skúli Jónsson fyrir Draumaliðið og Helgi Fannar Sigurðsson fyrir 433. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni

Hugarburðarbolti GW 33 Er eitt ríkasta félagslið í heimi að falla?

Hugarburðarbolti GW 33 Er eitt ríkasta félagslið í heimi að falla?

21
apríl

Fórum yfir 33 umferð deildarinnar þrátt fyrir 3 óspilaða leiki. Stórleikur umferðarinnar Man City gegn Arsenal stóðst allar væntingar og meira til.

Niðurtalningin - Mun Stjarnan skína bjart í sumar?

Niðurtalningin - Mun Stjarnan skína bjart í sumar?

21
apríl

Við höldum áfram að telja niður fyrir Bestu deild kvenna. Veislan fer af stað á föstudag. Núna er komið að liðinu sem er spáð fjórða sæti. Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, og Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir, lykilkona liðsins, mættu í hljóðver og fóru yfir stöðuna.

Niðurtalningin - Þróttur horfir í Meistaradeildina

Niðurtalningin - Þróttur horfir í Meistaradeildina

20
apríl

Við höldum áfram að telja niður fyrir Bestu deild kvenna sem fer af stað á föstudaginn. Þrótturum er spáð fimmta sæti deildarinnar en markmiðin eru sett hærra en það í Laugardalnum. Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, fyrirliði Þróttar, mætti ásamt Jóhann Kristinni Gunnarssyni, nýjum þjálfara liðsins, í hljóðver og fór yfir stöðu mála.

Enski boltinn - Guð blessi Norður-London

Enski boltinn - Guð blessi Norður-London

20
apríl

Enski boltinn á mánudegi eftir stærsta leik tímabilsins til þessa. Manchester City hafði betur gegn Arsenal í svakalegum fótboltaleik í gær. Ef bæði þessi lið vinna rest þá ræðst deildin á markatölu. Hvaða lið verður eiginlega meistari? Manchester United fór langt með að tryggja sér Meistaradeildarsæti, Chelsea er í dimmum dal en ekki dimmari dal en Tottenham. Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur og Kári Snorrason fóru yfir allt það helsta.

Útvarpsþátturinn - Kallaðir þú mig fokking tussu?

Útvarpsþátturinn - Kallaðir þú mig fokking tussu?

18
apríl

Innkastið í beinni á X977. Önnur umferð Bestu deildarinnar er gerð upp. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars í fiskabúrinu á Suðurlandsbraut. Mönnum var heitt í hamsi og dómararnir í sviðsljósinu. KR og Stjarnan eru með fullt hús en Keflavík og KA hafa ekki náð að koma sér á blað. Farið er yfir alla leikina og hitað upp fyrir næstu umferð sem verður spiluð á miðvikudag og fimmtudag.

Niðurtalningin - Hver er pælingin hjá Val?

Niðurtalningin - Hver er pælingin hjá Val?

17
apríl

Við höldum áfram að telja niður fyrir Bestu deild kvenna, Valskonum er spáð sjötta sætinu. Það eru breyttir tímar á Hlíðarenda og verið að móta nýja stefnu. Við ræddum við Matthías Guðmundsson, þjálfara liðsins, og Málfríði Önnu Eiríksdóttur, leikmann liðsins, um stefnuna og komandi tímabil.

Þér gæti líka líkað...