Mín skoðun með Valtý Birni

1080.þáttur.Mín skoðun. 22042026
Heil og sæl. Í dag heyri ég í Benedikt Guðmundssyni körfuboltagúrú og við förum yfir gang mála í úrslitakeppninni í körfubolta. Einar Jónsson handboltagúrú er svo á línunni um úrslitakeppnina í handbolta og að lokum heyri ég í Haraldi Hróðmarssyni fótboltagúrú þar sem við förum yfir gang mála í enska boltanum og Bestu deild karla ásamt fleiru. Njótið og takk fyrir að hlusta.

1079.þáttur.Mín skoðun. 16042026
Heil og sæl. Í þætti dagsins heyri ég í Einar Jónssyni handboltagúrú og við förum yfir gang mála í handboltanum hér heima sem og í Þýskalandi og Meistaradeildinni ásamt fleiru. Kristinn Kærnested fótboltagúrú er svo á línunni og við tölum um evrópumótin þrjú í fótbolta, ásamt því að fara í yfir gang mála í Bestu deildinni sem og ensku úrvalsdeildinni. Þetta og sitthvað fleira í þætti dagsins. Njótið og takk fyrir að hlusta.

1078.þáttur.Mín skoðun. 10042026
Heil og sæl. Í dag er spáð í spilin fyrir Bestu deild karla sem hefst í kvöld. Kristinn Kærnested, Þórhallur Dan og Haraldur Hróðmarsson koma með sína spá fyrir sumarið. Benedikt Guðmundsson körfuboltagúrú spáir í spilin í úrslitakeppninni í körfubolta og Einar Jónsson handboltagúrú spáir í spilin í undanúrslitum í Olísdeild karla ásamt að ræða um kvennalandsliðið. Þetta og sitthvað fleira í þætti dagsins. Njótið og takk fyrir að hlusta.

1077.þáttur.Mín skoðun. 01042026
Heil og sæl. Í þætti dagsins heyri ég í Einari Jónssyni og við tölum um úrslitakeppnina í handbolta, karla og kvenna, og einnig um þýska handboltann ásamt fleiru. Kristinn Kærnested er svo á línunni um landsliðið okkar í fótbolta, umspil HM, Mjólkurbikarinn og margt fleira. Þá heyri ég í Svanhvíti Valtýs og við förum yfir gang mála í úrslitakeppninni í körfubolta ásamt fleiru. Takk fyrir að hlusta og gleðilega páska.

1076.þáttur.Mín skoðun. 27032026
Heil og sæl. Í þætti dagsins heyri ég í Þóroddi Hjaltalín yfirmanni dómaramála hjá KSÍ um breytingar á reglum í boltanum í sumar. Haraldur Hróðmarsson er í spjalli um evrópu fótboltann og einnig þann íslenska. Benedikt Guðmundsson er viðtali um Bónusdeildirnar í körfubolta og einnig um úrslitakeppnina í 1.deild og þá er Einar Jónsson í spjalli um úrslitakeppnirnar í handbolta ásamt því að við tölum aðeins um þýska handboltann. Þetta og sitthvað fleira í þætti dagsins. Njótið og takk fyrir að hlusta.

1075.þáttur.Mín skoðun. 24032026
Heil og sæl. Í þætti dagsins heyri ég í Kristni Kærnested, Einari Jónssyni og Svanhvíti Valtýs. Við tölum um enska boltann, íslenska fótboltann, umspilið fyrir HM, úrslitakeppni karla og kvenna í handboltanum og landsliðið okkar í handbolta og einnig um lokaumferðina í Bónusdeildinni í körfubolta. Þá eru fréttir og slúður á sínum stað að vanda. Njótið og takk fyrir að hlusta.

1074.þáttur.Mín skoðun. 20032026
Heil og sæl. Í dag eru þrír viðmælendur. Svanhvít Valtýs, Einar Jónsson og Haraldur Hróðmarsson. Við tölum Bónusdeildina, enska boltann, Arsenal-Man.City, evrópufótboltann, íslenska fótboltann, íslenska karlalandsliðið í handbolta, Olísdeild kvenna, spænska og ítalska boltann og fréttir og slúður ásamt fleiru. Njótið og takk fyrir að hlusta.

1073.þáttur.Mín skoðun. 17032026
Heil og sæl. Í þætti dagsins heyri ég í Haraldi Hróðmarssyni og við tölum um enska boltann og komum inná vandræði Liverpool ásamt fleiru þar og við tölum einnig um meistaradeildina og íslenska boltann. Kristján Einar Kristjánsson Formúlu 1 gúrú er svo á línunni en það er allt að gerast í upphafi keppnistímabilsins í Formúlunni. Svanhvít Valtýs er svo á línunni um Bónusdeildina í körfubolta og við förum einnig í dóm yfir Chelsea. Afhverju eru ekki stig tekin af Chelsea eins og öðrum liðum? Þetta og sitthvað fleira í þætti dagsins. Njótið og takk fyrir að hlusta.

1072.þáttur.Mín skoðun. 13032026
Heil og sæl. Í dag heyri ég í Haraldi Hróðmarssyni fótboltasérfræðingi og við förum yfir gang mála í meistaraddeildinni, enska boltanum og þeim íslenska. Einar Jónsson handboltagúrú er í spjalli um lokaumferðina í deildarkeppninni í Olísdeildinni. Við förum einnig yfir gang mála í Olísdeild kvenna og þýska handboltanum. Svanhvít Valtýs er svo í spjalli um Bónsudeildina í körfubolta þar sem spennan er mikil og við tölum einnig um Formúluna og enska boltann. Þetta og sitthvað fleira er í þætti dagsins. Njótið og takk fyrir að hlusta.

1071.þáttur.Mín skoðun. 10032026
Heil og sæl. Í dag heyri ég í Þórhalli Dan og við förum um víðan völl í fótboltanum, meðal annars meistaradeildina. Einar Jónsson handboltagúrú er á línunni og við förum yfir gang mála í Olísdeildinni, kvennalandsliðinu og þýska handboltanum ásamt að fara í karlalandsliðið. Svanhvít Valtýs er svo í spjalli um Bónusdeildina, enska boltann og meistaradeildina ásamt fleiru. Njótið og takk fyrir að hlusta.


