Landspítali hlaðvarp

Stefán Hrafn Hagalín

Heilsa

Viðtöl um ýmis málefni sem tengjast heilbrigðismálum, starfsemi og mannauði Landspítala

Legvarpið // Trans fólk og barneignir með Alexander

Legvarpið // Trans fólk og barneignir með Alexander

9feb

Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins að þessu sinni er Alexander Björn Gunnarsson, félagsráðgjafi í Transteymi fullorðinna á Landspítala. Alex ræðir við okkur um málefni og upplifun trans- og kynsegin fólks af barneignarferlinu og samskiptum við heilbrigðisstarfsfólk. Þessi hópur mætir ýmsum áskorunum innan heilbrigðiskerfisins, sérstaklega þegar kemur að kynheilsu og frjósemi og heyrum við því góð ráð til að tryggja jafna topp þjónustu fyrir öll. Alex er sjálfur trans og fjölskyldufaðir og heyrum við frá hans upplifun af því að koma út sem trans og stofna síðar fjölskyldu. Komiði með!

LEGVARPIÐ // Anna Eðvaldsdóttir

LEGVARPIÐ // Anna Eðvaldsdóttir

6maí2025

“Ljósmæður líta um öxl” er syrpa sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem rætt er við reynslubolta eftir starfslok. Gestur þáttarins er Anna Eðvaldsdóttir ljósmóðir með meiru. Hún segir frá fjölbreyttum starfsferli sem endurspeglar brennandi áhuga á faginu en Anna hefur alltaf tekið nýjungum í starfi fagnandi, enda heyrum við sögur af bókaútgáfu og ráðgjafa-símalínu (sem stundum var misskilin um helgar) Það má með sanni segja að Anna, sem er iðulega kölluð Anna Ljósa, sé ljósmóðir fram í fingurgóma og þykir ekkert sjálfsagðara en að hafa aðstöðu til mæðraverndar á eigin heimili eða að stökkva yfir til nágrannakonu til þess að taka á móti barni í sparikjól milli rétta  Anna hefur staðið vaktina á Landspítala frá 1994 ásamt því að sinna fjölskyldum á þeirra heimili (oftar en ekki í Hafnarfirði) og geta samstarfskonur sem og skjólstæðingar staðfest að það er aldrei lognmolla þegar Anna Ljósa er á vakt.

LEGVARPIÐ // Tvíburar og sitjandi fæðing með Evu Sigrúnu

LEGVARPIÐ // Tvíburar og sitjandi fæðing með Evu Sigrúnu

2apr2025

Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins er Eva Sigrún Guðjónsdóttir hlaðvarpsstjarna og kvenskörungur með meiru og er hún fyrsti gestur Legvarpsins sem mætir að hljóðnemanum í annað inn. Í fyrri þætti frá 2019 ræddi Eva um "mömmupressuna" en í þetta sinn beinist umræðan að því að ganga með og fæða tvíbura og komast í gegnum fyrstu mánuðina sem tvíburamamma og þriggja barna móðir. Eva segir frá því sem var frábrugðið varðandi líðan og eftirlit á meðgöngunni og fer vel yfir fæðingarsöguna þar sem tvíburi A var í sitjandi stöðu. Við heyrum skemmtilegar sögur að hætti Evu af hennar reynslu og bjargráðum til þess að komast í gegnum daginn með litla tvíbura. Rifinn árshátíðarkjóll, áhrifamikið trúnó í Vesturbæjarlaug, samningaviðræður við iðnaðarmenn í miðri gangsetningu, handsterk afreksíþróttakona og bananakippur á rúmgaflinum. Komiði með!

Dagáll læknanemans // Lungnaháþrýstingur

Dagáll læknanemans // Lungnaháþrýstingur

1nóv2024

Í þessum þætti fræða lungnalæknarnir Sif Hansdóttir og Gunnar Guðmundsson hlustendur um lungnaháþrýsting. Þau Sif og Gunnar leiða okkur í sannleikann um mismunandi orsakir lungnaháþrýstings og lífeðlisfræðina þar að baki. Hvernig er best að greina sjúkdóminn og hvaða meðferð er í boði? Allt þetta og margt fleira í þætti dagsins. Dagáll læknanemans er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson.

Dagáll læknanemans // Lungnakrabbamein

Dagáll læknanemans // Lungnakrabbamein

11okt2024

Í þessum þætti munu Hrönn Harðardóttir lungnalæknir og Örvar Gunnarsson krabbameinslæknir fræða okkur um lungnakrabbamein. Lungnakrabbamein er með algengustu krabbameinum á Íslandi og það krabbamein sem veldur flestum dauðsföllum. Hrönn og Örvar fara yfir mismunandi gerðir lungnakrabbameins, helstu áhættuþætti, greiningaraðferðir, meðferðarmöguleika og þær hröðu framfarir sem hafa orðið á síðustu árum.   Leggið við hlustir! Dagáll læknanemans er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson.

Dagáll læknanemans // Klínísk rökleiðsla - Ungur maður með fyrirferð á hálsi, svitaköst og þyngdartap.

Dagáll læknanemans // Klínísk rökleiðsla - Ungur maður með fyrirferð á hálsi, svitaköst og þyngdartap.

4okt2024

Það er komið að öðrum þætti af klínískri rökleiðslu (e. clinical reasoning).  Í þessum þætti mun Bára Dís Benediktsdóttir, þá sérnámslæknir, en nú sérfræðingur, kynna tilfelli sem við reynum að leysa í rauntíma. Leggið við hlustir! Dagáll læknanemans er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson.

Dagáll læknanemans // Ofvirkur skjaldkirtiill með Örnu Guðmundsdóttur og Báru Dís Benediktsdóttur

Dagáll læknanemans // Ofvirkur skjaldkirtiill með Örnu Guðmundsdóttur og Báru Dís Benediktsdóttur

28ágú2024

Í þessum þætti er ofvirkum skjaldkirtli (e. hyperhyrosis) gerð einkar góð skil. Hvenær á að gruna sjúkdóminn? Hvað er að finna við skoðun og hvernig er uppvinnslu háttað? Þá er farið bæði yfir fyrstu meðferð sem og langtímameðferð sjúkdómsins. Arna Guðmundsdóttir innkirtlalæknir og Bára Dís Benediktsdóttir, þá sérnámslæknir en nú sérfræðingur í almennum lyflækningum, leiða hlustendur leikandi í gegnum þetta viðfangsefni. Þetta er þáttur sem þú ættir ekki að láta framhjá þér fara!  Dagáll læknanemans er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson.

Dagáll læknanemans // Lungnatrefjun (e. Pulmonary fibrosis)

Dagáll læknanemans // Lungnatrefjun (e. Pulmonary fibrosis)

16ágú2024

Hvað er lungnatrefjun og af hverju verður hún? Í þessum þætti svarar Gunnar Guðmundsson sérfræðilæknir í lungnalækningum þessum spurningum leikandi ásamt fjölmörgum öðrum. Ef millivefslungnasjúkdómar hafa vafist fyrir þér hingað til ættir þú klárlega að leggja við hlustir.  Umsjón þáttar: Teitur Ari Theodórsson og Sólveig Bjarnadóttir.

LEGVARPIÐ // Áslaug Hauksdóttir

LEGVARPIÐ // Áslaug Hauksdóttir

18apr2024

Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni “Ljósmæður líta um öxl” sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem rætt er við reynslubolta við starfslok. Gestur dagsins er Áslaug Hauksdóttir, ljósmóðir, baráttukona og kvenskörungur með meiru. Áslaug segir frá fjölbreyttum starfsferli sem endurspeglar forvitni og þörf til að taka þátt í framþróun og breytingum í þágu kvenna. Áslaug hefur sinnt ljósmæðrastörfum erlendis og í flestum landshornum hérlendis, þar með talið á Landspítala þar sem Áslaug tók til dæmis þátt í uppbyggingu og starfsemi glasafrjóvgunardeildar. Segja má að Áslaug sé mikill brautryðjandi á sviði ljósmóðurfræða á Íslandi og tók hún stóran þátt í að innleiða og festa í sessi vatnsfæðingar sem og heimafæðingar hér á landi. Komið með inn í skemmtilegar sögur allt frá símhringingu í útvarpsþátt yfir í fundi við Landlækna, þar sem réttlætiskennd og baráttuandi fyrir kvennamálum skín í gegn.

LEGVARPIÐ // Ljósmæður líta um öxl - Guðrún Bö og Magga Bjarna ljósmæður

LEGVARPIÐ // Ljósmæður líta um öxl - Guðrún Bö og Magga Bjarna ljósmæður

25mar2024

Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legavarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni “Ljósmæður líta um öxl” sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem rætt er við reynslubolta við starfslok. Gestir dagsins eru hið órjúfanlega tvíeyki Margrét Ásdís Bjarnadóttir og Guðrún Böðvarsdóttir, betur þekktar sem Magga og Gunna.  Ljósmæðraáhugi þeirra beggja kviknaði í sauðburði, enda báðar sveitastúlkur að vestan. Þær segja frá námsárum þar sem þær rétt náðu í skottið á heimavistinni með tilheyrandi sjarma, útivistarreglum og stífuðum köppum. Magga og Gunna hafa í gegnum tíðina upplifað allskyns strauma og stefnur í fræðum og starfsháttum og lýsa á skemmtilegan hátt þeim tækniframförum og breytingum sem orðið hafa á starfsumhverfi fæðingarþjónustunnar.  Komið með inní fjölmargar skemmtilegar sögur af ævintýrum þessara einstöku vinkvenna innan vinnu sem utan, en þeir heimar hafa aldeilis skarast þegar þær tóku á mótu börnum hvor annarrar og aðstoðuðu við fæðingu barnabarnanna.

Þér gæti líka líkað...