Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana. Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði – og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.

Garðyrkjuskólinn, Bananahúsið og gróður sem gjafir.

23
apríl

Í þessum áttunda þætti Gulls og grænna skóga er rætt um Garðyrkjuskólann Reykjum, mikilvægi námsins og þær fágætu tegundir sem þar má finna – sérstaklega í Bananahúsinu. Rætt er við núverandi og fyrrverandi nemendur ásamt brautarstjóra garðyrkjubrauta. Vöngum er velt yfir gróðri í formi gjafa með þátttöku Vilmundar Hansens garðyrkju- og þjóðfræðings. Viðmælendur eru Guðríður Helgadóttir, Sverrir Gauti Svavarsson, Steinar Björgvinsson og Vilmundur Hansen.

Gróður frá suðurhveli jarðar, stofugreni og vendingar á Nýja–Sjálandi.

16
apríl

Í þættinum er ferðast um suðurhöf í gegnum íslenskan garðagróður sem á heimkynni sín á suðurhveli jarðar – í Argentínu, Síle, Ástralíu og Nýja–Sjálandi. Sérstaklega er fjallað um apahrelli og sneplur. Þá er einnig rætt um stofuplöntuna stofugreni frá Norfolk-eyju sem er að segja má í tísku. Einnig er kafað ofan í nýlegar ákvarðanir Nýsjálendinga um að veita vissum náttúrufyrirbærum þar í landi réttindi til jafns við einstaklinga. Fjallað er um þau náttúrutengsl sem þær ákvarðanir endurspegla og hvaðan þau koma.

Vorhretið 1963 og nýlegri áföll

Vorhretið 1963 og nýlegri áföll

9
apríl

Í þættinum er leitast við að kafa ofan í afleiðingar páskahretsins mikla 9. apríl 1963 sem markar viss kaflaskil í gróðursögu landsins. Í kjölfarið er rætt um nýlegri áföll, eins og til dæmis saltrokið í maí 2023 og afleiðingar þess. Að lokum er kastljósinu beint að hérlendum skógarbrunum og afleiðingum þeirra. Viðmælendur eru Halldór Sverrisson, Steinar Björgvinsson og Guðríður Helgadóttir.

Fjölæringar

Fjölæringar

2
apríl

Í þættinum er rætt um fjölæringa sem gefið hafa góða raun. Dalaliljan (liljur vallarins) og þistill eru skoðuð sérstaklega út frá táknrænu og kristnu samhengi. Rætt er um fjölæringa út frá ýmsum eiginleikum þeirra, svo sem þekjandi fjölæringa, harðgerða, freka og eitraða – en einnig fjölæringa sem hafa gefið upp öndina í harðindum og er sárt saknað. Viðmælendur eru Guðríður Helgadóttir, Eva Dögg Kristjánsdóttir og Steinar Björgvinsson.

Vorblómgun: Páskaliljur, býflugur, töfratré og kúrileyjakirsi

26
mars

Í þessum þætti er fjallað um nokkrar vorblómstrandi tegundir – til að mynda páskaliljur, töfratré og kúrileyjakirsi (rósakirsi – cherry blossom). Nokkrur vorblóm eru skoðaðar út frá hlutverki sínu gagnvart býflugum en einnig eru þær settar í samhengi við ummyndanir Óvíds. Kastljósinu er beint sérstaklega að tegundum sem henta býflugum en eru eitraðar mönnum.

Þér gæti líka líkað...