Hold

RÚV Hlaðvörp

Heilsa

Einu sinni þótti fallegt að vera feit. Síðastliðna áratugi hefur feitt fólk mætt fordómum, sýnileg líkamsfita þótt útlitsgalli og mælikvarði á skapgerð, sjálfsaga, æskileika og færni. Persónulegt vandamál einstaklinga sem þeir hafi valið með því að velja óheilsusamlegt líferni og ættu að vilja leysa. Milljónaiðnaður hefur haldið fólki í baráttu við líkamann sinn með ýmsum lausnum sem oftar en ekki skilja fólk eftir enn feitara en fyrr. Fjöldi feitra lifir þó heilbrigðu og hamingjusömu lífi, óháð holdafari sínu. Offita er nú skilgreind sem alvarlegur og víðfemur sjúkdómur. Við þeim sjúkdómi hafa nýlega komið fram læknisfræðilegar lausnir svo sem þyngdarstjórnunarlyf og efnaskiptaaðgerðir. Ber þá feitu fólki þá skylda til að fara á lyf eða í aðgerð fyrst það er hægt? Hvaða áhrif hafa þessar lausnir á fitufordóma og átröskunarsjúkdóma? Eru þær líklegar til að draga úr offituvandanum eða auka hann? Og hvaða afleiðingar hafa þessar lausnir til langframa? Er alltaf betra að vera mjó? Brynhildur Björnsdóttir er 56 ára kona sem hefur verið feit alla ævi. Hún veltir þessum spurningum fyrir sér í þremur útvarpsþáttum ásamt ýmsum sérfræðingum og fólki með reynslu af því að grennast með hjálp lyfja og aðgerða. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Hold 3/3

Hold 3/3

6jún

Í þriðja þættinum af Holdi skoðar Brynhildur nokkrar auglýsingar um offitulausnir og ræðir við sérfræðinga með ólík sjónarhorn, þær Erlu Gerði Sveinsdóttur, sérfræðilækni í offitumeðferð, Töru Margréti Vilhjálmsdóttur félagsráðgjafa og líkamsvirðingarsinna og Elínu Vigdísi Guðmundsdóttur, formann SÁTTar, samtaka um átröskun og aðrar tengdar raskanir. Lesari í þættinum er Ævar Örn Jósepsson. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Hold 2/3

Hold 2/3

30maí

Sápan FatOff og megrunarkaramellurnar AYDS eru meðal umfjöllunarefna í öðrum þætti af Holdi. Brynhildur ræðir líka við þær Lindu Guðmundsdóttur og Ósk Gunnlaugsdóttur um reynslu þeirra af þyngdartapslyfjum og - aðgerðum. Ennfremur er fjallað um fitufordóma. ATH að í þættinum er komið inn á ýmislegt sem gæti reynst flókið fyrir þau sem hafa glímt við átröskun. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Hold 1/3

Hold 1/3

26maí

Brynhildur tekur stöðuna á nútíma holdafarsumræðu og segir sögu sína í nokkrum megrunarkúrum. Í framhaldi af því veltir hún fyrir sér hvort hún eigi að nýta sér þær aðferðir sem læknavísindin bjóða upp á í baráttunni við ofþyngd og leitar ráða hjá konu með reynslu. Rætt er við Ragnheiði Bjarman Eiríksdóttur og lesari í þættinum er Helgi Seljan. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Vinur minn Germani

Vinur minn Germani

15maí

Þegar Jón Magni Ólafsson var ungur maður kolféll hann af einhverjum ástæðum, fyrir orgeltónlist og töfrum hennar sem minnti hann á gilin og fossana í sveitinni í Mýrdalnum. Hann hélt sérstaklega upp á plötu sem hann eignaðist 17 ára gamall með Fernando Germani, sem var organisti Péturskirkjunnar í Róm á tímum Píusar páfa (1939-1958). Þegar Germani heimsótti Ísland á áttunda áratugnum, tókst með þeim Magna óvænt, en djúpstæð vinátta sem entist allt þar til Germani lést. Þeir skrifuðust á í 25 ár um lífið, listina, mennina, illskuna, ástina og Guð. Umsjón: Ólafur Páll Gunnarsson Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Land og sonur 3/3: Svo mælir Svarthöfði

Land og sonur 3/3: Svo mælir Svarthöfði

9maí

Indriði G. Þorsteinsson var ekki aðeins rithöfundur. Hann starfaði lengi sem blaðamaður og ritstjóri og tók virkan þátt í þjóðmálaumræðunni, beitti sér í fyrirtækjarekstri og framleiðslu kvikmynda og var einn helsti skipuleggjandi hátíðarhaldanna í tilefni af 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar 1974. Umdeildastur var hann þó sem pistlahöfundurinn Svathöfði. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Land og sonur 2/3: Norðan við stríð

Land og sonur 2/3: Norðan við stríð

2maí

Skáldsögur Indriða G. Þorsteinssonar gerast í samfélagi þar sem hið gamla víkur fyrir nýjum vonum og nýjum siðum. Indriða voru þessar miklu breytingar á íslensku þjóðfélagi um miðja 20. öld hugleiknar og hann speglaði þær iðulega í því samfélagi sem hann hafði sjálfur kynnst á yngri árum, sveitasamfélaginu. En hann benti líka stöðugt á að margt var bogið við það og að þrátt fyrir fegurð og yndisleika voru þjófar á ferð í paradís. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Land og sonur 1/3: Vegir liggja til allra átta

Land og sonur 1/3: Vegir liggja til allra átta

24apr

Indriði G. Þorsteinsson hóf feril sinn sem rithöfundur og blaðamaður rétt upp úr tvítugu. Hann sagði frá sveitalífinu sem hann hafði kynnst í Skagafirði og bæjarbragnum á Akureyri í Reykjavík. Æska hans og unglingsár voru mörkuð af sífelldum flutningum, mögnuðum ættingjum, hersetu og nýju lífi mölinni. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Ljóslæknirinn 1/1: Hinn íslenski Nóbelshafinn

Ljóslæknirinn 1/1: Hinn íslenski Nóbelshafinn

17apr

Árið 1903 hlaut Niels Ryberg Finsen Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir sínar á ljósmeðhöndlun við hörundsberklum og öðrum sjúkdómum. Hann var fyrsti danski handhafi Nóbelsverðlaunanna sem þá voru nýtilkomin og vegna sérsviðs síns var hann gjarnan kallaður ljóslæknirinn. Uppruni Finsens teygir sig þó líka til Færeyja, þar sem hann fæddist, og til Íslands en á hann rætur að rekja til Íslands í föðurætt auk þess sem hann bjó hér um nokkurt skeið og lauk stúdentsprófi frá Lærða skólanum sem þá hét. Í aðalbyggingu Menntaskólans í Reykjavík er enn minnisvarði um námsár Finsens. Þrátt fyrir það er hann mörgum Íslendingum gleymdur og í þessum þætti verður hans minnst, fjallað um tengslin við Ísland, námsárin og afrekin á sviði læknavísinda. Umsjón: Jóhannes Ólafsson Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Mundi: Seinni þáttur

Mundi: Seinni þáttur

10apr

Guðmundur Arnfinnsson var bráðkvaddur bíðandi eftir strætó í Hamraborginni með poka fullan af bókum sem hann hafði keypt í Bónus. Örfáum mínútum áður hafði hann verið í viðtali hjá umsjónarmanni Lestarinnar á Rás 1 sem var að ræða við farþega í strætó. Þessi ótrúlega tilviljun er upphafið að ferðalagi þar sem Kristján Guðjónsson reynir að kynnast Munda, fyrrum sakarskrárritara, sérstæðum og hlédrægum hæfileikamanni sem skilur eftir sig mikinn fjölda kvæða og gríðarlegt bókasafn. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Mundi: Fyrri þáttur

Mundi: Fyrri þáttur

10apr

Umsjónarmenn Lestarinnar vörðu heilum föstudegi í desember 2023 um borð í leið 4, strætó sem keyrir úr Mjódd niður á Hlemm um Breiðholtið. Í þættinum heyrast sögur fólks sem ferðaðist með vagninum þann daginn. Strákur á leið að fá sér drekatattú, venesúelskur söngvari á leið til sálfræðings, danskur kökuskreytingameistari og hagmælti bókasafnarinn Mundi. Á páskadag fór í loftið nýr útvarpsþáttur á Rás 1 um ævi eins viðmælandans Guðmundar Arnfinnssonar og var strætóþátturinn endurfluttur að því tilefni. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Þér gæti líka líkað...