Hlaupalíf Hlaðvarp

Vilhjálmur Þór og Elín Edda

Heilsa

Verið hjartanlega velkomin í hlaðvarpsþáttinn “Hlaupalíf”. Við erum Elín Edda og Vilhjálmur Þór og við höfum ástríðu fyrir hlaupum. Hér verður fjallað um allt á milli himins og jarðar um hvað eina sem tengist hlaupum; æfingar, markmið, næring, keppnishlaup og almenningshlaup og auðvitað undirbúningur fyrir hlaup . Einnig verður fjallað almennt um líkamsrækt, æfingamagnið, þjálfun með púlsmæli, hlaupastíllinn(mikilvægt!), mataræði, meiðsli og fyrirbyggjandi aðgerðir og MARGT FLEIRA! Tune in!

#70 Sumardagurinn fyrsti nálgast ☀️🙏

#70 Sumardagurinn fyrsti nálgast ☀️🙏

28
febrúar

Við gáfum okkur loksins tíma í almennilegt Hlaupalíf deit sem er hægara sagt en gert þessa dagana! Elín Edda er hægt og rólega að komast á steypirinn og orkan ekki jafn mikil, en styttist í sumardaginn fyrsta = settur dagur. Við ræddum komandi verkefni, en Vilhjálmur keppir á Hyroxmóti í CPH um miðjan mars og svo verður það Berlínarmaraþonið 2026 = fertugsáskorun Vilhjálms! Fórum yfir íslensku tækninýjungina Tymewear og verður gaman að fylgjast með því hvort þetta verði næsta byltingin fyrir þolíþróttafólk. Svo var það nýr liður: Uppskriftahorn HH.  Þátturinn er í boði: Hreysti, Sportvörur og Optical Studio Minnum á afsláttarkóðann “Hlaupalif10” á bætiefnum og æfingateygjum hjá Hreysti.

#69 Hlaupalíf stefnumót í upphafi árs 🤝🙏

#69 Hlaupalíf stefnumót í upphafi árs 🤝🙏

9
janúar

2026: nýtt hlaupalífár og kósýmánuður ársins mættur! :) Við ungbarna-hlaupa-foreldrarnir drógum fram hljóðnemana og fórum yfir hlaupatópíkin þessi misserin. Gamlárshlaupið, Nýárshlaup Ultraform, komand vetrarhlaup og vor-hlaupin auðvitað. Þá dustuðum við rykið af sturluðum hlaupastaðreyndum og að lokum slógum við á þráðinn til Elísu Kristinsdóttur sem átti ótrúlegt hlaupaár, en hún er stödd í miðri æfingaferð á Tenerife, og gerði upp hlaupaárið sitt og komandi markmið. Við verðum að viðurkenna að við værum ekkert á móti því að vera á Tene núna, enda sitjum við í Hlaupalíf með tebolla og ullarsokka að reyna halda okkur hita í þessum norðan garra! Þátturinn er í boði Hreysti, Sportvörur og Optical Studio.

#68 Aðventuþáttur 🎄🧑‍🎄

#68 Aðventuþáttur 🎄🧑‍🎄

7
desember 2025

Aðventan og nýr þáttur hjá Hlaupalíf. Enda var kominn tími á að við skutuhjúin settumst niður og ræddum hitt og þetta í hlaupalífinu og bara lífinu almennt. Umræðupunktar: * Jólaspenningur. Eflaust meiri hjá foreldrum en börnunum. * Hlaupalífið og hreyfi-rútínan þessi misserin með tvö börn (og þriðja á leiðinni!) * Maraþon-deit-pælingar fyrir haustið 2026. * Valencia maraþonið. * Ástandsskoðun @Sjúkrasport. …..og margt margt fleira. Þátturinn er í boði Hreysti, Sportvörur og Optical Studio.

#67 Hafsteinn Óskarsson segir öldungum að hlaupa hraðar! 🏃🏼‍♀️‍➡️

#67 Hafsteinn Óskarsson segir öldungum að hlaupa hraðar! 🏃🏼‍♀️‍➡️

11
nóvember 2025

Hafsteinn Óskarsson er hlaupari á heimsmælikvarða sem nældi sér í evrópumeistaratitil í 800m á EM masters utanhúss á dögunum og silfur verðlaun í 800m á heimsmeistaramóti innanhús fyrr á þessu ári! Hann lætur aldurinn alls ekki stöðva sig heldur þvert á móti þá heldur hann áfram að æfa og keppa líkt og hann gerði þegar hann var að stíga sín fyrstu skref í hlaupunum fyrir um 50 árum síðan. Ef það er eitthvað sem við hlauparar gætum tekið til okkar frá þessari flottu fyrirmynd þá er það að vera óhrædd við að mæta á brautina, halda áfram að hlaupa hratt fram eftir öllum aldri, eyða aðeins minni tíma í junk miles og meiri tíma í styrk, drillur og allt þar fram eftir götunum. Kæru vinir, þið eruð up for a treat! Þátturinn er í boði Sportvörur, Hreysti og Optical Studio

#66 DNF á HM í utanvegahlaupum 🫣

#66 DNF á HM í utanvegahlaupum 🫣

22
október 2025

Hvernig er að standa frammi fyrir stórum verkefnum eins og að fjölga mannkyninu og vera með stór markmið í hlaupunum….á sama tíma? Við ræddum þessa stóru lífsins áskorun og hvernig við tókum meðvitaða ákvörðun hvernig við myndum tækla hana með okkar reynslu. Við áttum einnig létt spall um ýmislegt sem hefur verið á döfinni í hlaupaheiminum s.s: ​Chicago maraþonið og önnur stór maraþon á döfinni ​Slógum á þráðinn til Ósk Gunnarsd sem fékk bónorð í maraþoni! ​Hjólastígar á Íslandi ​Magavandamál Andreu Kolbeinsd. ​Hyrox og hlaup ​Arnar P vs. Þorsteinn R og ýmislegt fleira. Þátturinn er í boði Hreysti, Sportvörur og Optical Studio. Þess ber að geta að hlustendur fá 10% afslátt af fæðubótarefnum og æfingarteygjum í Hreysti með kóðanum “Hlaupalif10”.

#65 Hildur hlaupahvíslari

#65 Hildur hlaupahvíslari

6
október 2025

Í þætti vikunnar tökum við fyrir umræðu sem er nauðsynleg og mikilvæg, en nennum ekki alltaf að hugsa of mikið um: hlaupaeymsli, hlaupameiðsli, fyrirbyggjandi aðferðir, hlaupamýtur og allt þar á milli. Til að hjálpa okkur að greina þetta umfjöllunarefni fengum við í settið einn öflugasta sjúkraþjálfara hér á landi, Hildi Kristínu Sveinsdóttur sjúkraþjálfara og framkvæmdastjóra Sjúkrasport, betur þekkt sem Hildur Hlaupahvíslari. Hún hefur áralanga reynslu af meðferð við eymslum og meiðslum hlaupara á öllum getustigum og mun hjálpa okkur að ræða þetta þarfa umfjöllunarefni á meðal okkar hlaupara og koma svo hugsanlega og vonandi með einhver hagnýt ráð sem þið getið nýtt ykkur til að viðhalda heilbrigðum og meiðslalausum lífsstíl - því ekki má gleyma mottói mottóanna í hlaupasenunni; consistency is key og þá er auðvitað best að glíma við sem minnst af meiðslum. Þátturinn er í boði Optical Studio og Sportvörur.

#64 Anna Berglind að loknu HM í utanvegahlaupum 🏃‍♀️

#64 Anna Berglind að loknu HM í utanvegahlaupum 🏃‍♀️

27
september 2025

Ofurhlauparinn Anna Berglind settist niður með Elínu Eddu á svölunum á Candanchu hótelinu með útsýni yfir Pýranafjöllin - þar sem Anna Berglind var einmitt að keppa með íslenska landsliðinu. Þar kom Anna fyrst ísl kvenna í mark á frábærum tíma við krefjandi aðstæður. Við fáum smá innsýn inn í hlaupalífið hjá þessari flottu hlaupakonu sem hefur náð ótrúlegum framförum á undanförnum árum og er í bætingafasa 46 ára gömul! Geri aðrir betur!

#63 Hlaupalíf umræður í lok sumars 🤝🙏☀️

#63 Hlaupalíf umræður í lok sumars 🤝🙏☀️

25
ágúst 2025

Umræður um hitt og þetta: ​Kynnum til leiks nýjan dagskrárlið: ,,Heitt og kalt”. ​Eika hornið og umræður um vegginn fræga í MÞ. ​RM pælingar og umfjöllun eftir keppni. ​Hversu flottir voru(og eru) HHHC í RM vikunni. ​Afmælisvikan hjá Hlaupalíf family ​Og margt margt fleira Þátturinn er í boði: Heilsa, Sportvörur og Optical Studio 🙏

#62 Stebbi Páls: ævintýrahlaupari með stór markmið 🤝

#62 Stebbi Páls: ævintýrahlaupari með stór markmið 🤝

5
ágúst 2025

Við fengum ævintatýrahlauparann Stefán Páls í settið. Hann kemur úr fimleikum, en byrjaði að hlaupa fyrir einungis nokkrum árum eftir langa baráttu við brjósklos. Stefán hefur tekið ævintýralega miklum framförum á stuttum tíma m.a með nýlegum Íslandsmeistaratitli í 10 km og stórum bætingum í öðrum keppnisgreinum á breiðum grunnni - allt frá 800m upp í ultra hlaup eins og Laugavegshlaupið. Stefán Páls er hlaupari sem leyfir sér að dreyma um stór markmið - rétt eins og við öll ættum að gera. Hver veit hversu langt Stefán mun ná, en árangurinn hingað til talar fyrir sínu og geta allir hlauparar lært eitthvað af þessum eftirtektaverða hlaupara. Þátturinn er í boði: Sportvörur, Heilsu og Optical Studio.

#61 Arnar Péturs og Rauðavatn Ultra

#61 Arnar Péturs og Rauðavatn Ultra

26
júlí 2025

Arnar Péturs mætti í settið til HH og ræddi við okkur um næsta markmið: Íslandsmeistaramótið í 100km @Rauðavatn Ultra. Þar fer sömuleiðis fram keppni í 3/6/12 og 24 klst hlaupum. Hversu spennandi? Mjög. Arnar fór yfir undirbúninginn fyrir keppnina, gæðaæfingarnar, framkvæmd hlaupsins, hvata, markmið og margt margt fleira. Ræddum einnig stöðuna í Ármannshlaupinu, Laugaveginn, hlaupalífið og Valencia 25. Þá fórum stuttlega yfir: -PRB (post race blues) -Útkúplun í sumarfríinu -HYROX keppni -Harðsperrur eftir LV Þátturinn er í boði: Sportvörur, Optical Studio og Heilsa

Þér gæti líka líkað...