Hlaðvarp Krabbameinsfélagsins

Slökun - Þakklæti
Að þakka fyrir það sem maður hefur getur verið gagnlegt en það er ekki síður mikilvægt að fara inn á við og gefa líkamanum þakklæti, kærleik og skilning. Meginverkefni líkamans er að koma jafnvægi á öll kerfi líkamans. Leyfðu þér að fara inn á við og fylgja flæðinu og tala persónulega við sjálfan þig með mildi og kærleik. Auður E. Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu leiðir slökunina. Krabbameinsfélagið býður upp á ráðgjöf og stuðning við þá sem hafa greinst með krabbamein, aðstandendur og þá sem misst hafa ástvin úr krabbameini, þeim að kostnaðarlausu. Hafðu samband í síma 800 4040 eða á radgjof@krabb.is.

Yoga Nidra djúpslökun
Velkomin í Yoga Nidra, leidda djúpslökun. Tilgangur hugleiðslunar er að vinna með slökun líkamans og fara inn í djúpa kyrrð og ró. Ólafur Yoga Nidra kennari hjá Míró/Svefn Jóga leiðir þessa hugleiðslu sem virkjar heilunnarmátt líkamans, losar um venjur og viðbrögð líkama og huga. Þú sleppir tökum á hugsunum og hverfur til bakgrunnsins þar sem þú hvílir í eigin vitund. Þú opnar á orkuflæði líkamans, finnur aukið jafnvægi og hugarró tengt viðbrögðum og venjum daglegs lífs. Hugleiðslan hentar til að draga úr streitu, hægja á hugsunum og bæta svefn. Taktu þennan tíma frá fyrir þig og komdu þér vel fyrir á rólegum stað þar sem þú verður ekki fyrir truflun, helst í liggjandi stöðu (eða sitjandi í stól) með lokuð augu, púða undir höfði og hnésbótum. Hafðu yfir þér teppi eða sæng þar sem líkami þinn kólnar í Yoga Nidra. Í Yoga Nidra djúpslökun reynir þú að sofna ekki, líkaminn sefur en undirmeðvitundin vakir. Ef þú sofnar, mundu að þú getur alltaf komið rólega til baka að rödd minni. Þér á fyrst og fremst að líða vel, þessi stund er aðeins fyrir þig. Ólafur Sigvaldason er Yoga Nidra kennari og eigandi Míró/Svefn yoga í Lífsgæðasetri St. Jó. í Hafnarfirði. Hann hefur m.a. lokið framhaldsnámi í Yoga Nidra fræðum hjá Kamini Desai, I am Yoga Nidra og heldur hann reglulega námskeið í Lífsgæðasetrinu. Heimasíða Svefn yoga er svefnyoga.is.

Slökun - Núvitund og sjálfsmildi
Í þessari hugleiðslu ætlum við að vinna með núvitund og mildi í eigin garð. Að læra að sýna sér mildi með aðferðum núvitundar snýst meðal annars um að geta brugðist við á styðjandi hátt gagnvart sér sjálfum líkt og þú myndir gera þegar vinur eða vinkona á í hlut. Aðferðir núvitundar og sjálfsmildi hjálpa þér líka að læra að sitja með erfiðum tilfinningum eða hugsunum og veita þeim einskonar hlýja nærveru í stað þess að leggja á flótta frá þeim og að læra þannig að þekkja þær betur. Lóa Björk Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu leiðir slökunina. Krabbameinsfélagið býður upp á ráðgjöf og stuðning við þá sem hafa greinst með krabbamein, aðstandendur og þá sem misst hafa ástvin úr krabbameini, þeim að kostnaðarlausu. Hafðu samband í síma 800 4040 eða á radgjof@krabb.is.

Slökun - Öruggi griðarstaðurinn
Að skapa sér stað í huganum sem gefur tilfinningu um öryggi og ró getur verið gott bjargráð til að nota í ýmsum aðstæðum. Til dæmis þegar þú upplifir kvíða, óvissu eða vilt auka vellíðan. Það er gott að gera þessa hugleiðslu eins oft og þarf til að móta staðinn þinn vel svo að það sé auðvelt að hverfa á hann hvenær sem þú þarft á að halda. Lóa Björk Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu leiðir slökunina. Krabbameinsfélagið býður upp á ráðgjöf og stuðning við þá sem hafa greinst með krabbamein, aðstandendur og þá sem misst hafa ástvin úr krabbameini, þeim að kostnaðarlausu. Hafðu samband í síma 800 4040 eða á radgjof@krabb.is.

Slökun - Tenging við náttúru II
Að tengja sig við móðir jörð og biðja um vernd er falleg byrjun á deginum. Að staldra við og leiða hugann inn á við og byrja hægt og rólega að treysta flæði lífsins hvernig sem lífið leikur við mann. Að biðja kærleiksljósið að umvefja þig með þakklæti og vernd. Megi þú ganga með ljósinu til allra góðra verka kæra fallega sál. Auður E. Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu leiðir slökunina. Krabbameinsfélagið býður upp á ráðgjöf og stuðning við þá sem hafa greinst með krabbamein, aðstandendur og þá sem misst hafa ástvin úr krabbameini, þeim að kostnaðarlausu. Hafðu samband í síma 800 4040 eða á radgjof@krabb.is.

Slökun - Tenging við náttúru I
Komdu þér vel fyrir þannig að líkaminn nái að vera slakur. Gefðu þér leyfi til að taka nokkrar mínútur frá, eingöngu fyrir þig og tengjast móðir jörð. Slökun þarf gjarnan að ástunda reglulega til að ná árangri og dýpt. Gangi þér vel. Auður E. Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu leiðir slökunina. Krabbameinsfélagið býður upp á ráðgjöf og stuðning við þá sem hafa greinst með krabbamein, aðstandendur og þá sem misst hafa ástvin úr krabbameini, þeim að kostnaðarlausu. Hafðu samband í síma 800 4040 eða á radgjof@krabb.is.

Jóga Nidra
Hér getur þú hlustað á leidda djúpslökun með aðferðum Jóga Nidra. Komdu þér vel fyrir í liggjandi stöðu þar sem þú verður fyrir sem minnstri truflun. Láttu fara eins þægilega um þig og mögulegt er og notaðu ábreiðu ef þú þarft. Það er gott að stilla hljóðið þannig að það sé mátulegt. Slökun er gott tæki til að draga úr streitu, bæta svefngæði og auka almenna vellíðan. Slökun þarf gjarnan að ástunda reglulega til að ná árangri og dýpt. Æfingin skapar meistarann! Njóttu vel. Lóa Björk Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu leiðir slökunina. Krabbameinsfélagið býður upp á ráðgjöf og stuðning við þá sem hafa greinst með krabbamein, aðstandendur og þá sem misst hafa ástvin úr krabbameini, þeim að kostnaðarlausu. Hafðu samband í síma 800 4040 eða á radgjof@krabb.is.

Slökun - Sofðu rótt II
Búðu þig undir að slaka á og svífa inn í svefninn. Slökun er gott tæki til að draga úr streitu, bæta svefngæði og auka almenna vellíðan. Slökun þarf gjarnan að ástunda reglulega til að ná árangri og dýpt. Æfingin skapar meistarann! Passaðu að vel fari um líkamann og að hljóðið sé mátulega stillt. Sofðu vel. Lóa Björk Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu leiðir slökunina. Krabbameinsfélagið býður upp á ráðgjöf og stuðning við þá sem hafa greinst með krabbamein, aðstandendur og þá sem misst hafa ástvin úr krabbameini, þeim að kostnaðarlausu. Hafðu samband í síma 800 4040 eða á radgjof@krabb.is.

Slökun - Sofðu rótt I
Búðu þig undir að slaka á og svífa inn í svefninn. Slökun er gott tæki til að draga úr streitu, bæta svefngæði og auka almenna vellíðan. Slökun þarf gjarnan að ástunda reglulega til að ná árangri og dýpt. Æfingin skapar meistarann! Passaðu að vel fari um líkamann og að hljóðið sé mátulega stillt. Sofðu vel. Lóa Björk Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu leiðir slökunina. Krabbameinsfélagið býður upp á ráðgjöf og stuðning við þá sem hafa greinst með krabbamein, aðstandendur og þá sem misst hafa ástvin úr krabbameini, þeim að kostnaðarlausu. Hafðu samband í síma 800 4040 eða á radgjof@krabb.is.

Ástin, sorgin, samtöl og hugrekki - Að ræða við börn um alvarleg veikindi
Þær Katrín Ösp Jónsdóttir og Regína Ólafsdóttir störfuðu saman að ýmsum verkefnum hjá Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis og Ráðgjafaþjónustu Krabbameinsfélagsins. Hér ræða þær á einlægan hátt um samstarfið og þau fjölbreyttu verkefni sem þær tókust á við sem ráðgjafar hjá félaginu. Þær ræða einnig um fræðslu sem þær þróuðu fyrir börn sem eru aðstandendur krabbameinsgreindra og hvernig þær studdu við foreldra sem stóðu frammi fyrir því að sjúkdómurinn væri ólæknanlegur.Mynd: KAONTónlist: Sin Fang: What's Wrong With Your Eyes. Notað með leyfi.


