Bogi Ágústsson ræðir um erlend málefni
Grænland, Trump og Leó páfi og minningarhátíð gyðinga
Nýjar stjórnir hafa tekið við í Færeyjum og á Grænlandi. Múte B. Egede tók við af Vivian Motzfeldt sem utanríkisráðherra og tekst á við ásælni Trumps Bandaríkjaforseta í yfirráð á Grænlandi. Bandaríkjamenn virðast hafa áhuga á að koma upp herstöð í Narsarsuaq syðst á Grænlandi. Í Færeyjum hafa tveir borgaraflokkar myndað stjórn með Jafnaðarmönnum. Lögmaður er Beinir Johannesen sem tekur við af föðurbróður sínum Aksel V. Johannesen. Daglega berast fréttir af því að Donald Trump skammi Leó páfa XIV og saki hann um vinstrimennsku, standi á sama þó að Íranir komi sér upp kjarnorkuvopnum og glæpamenn vaði uppi óáreittir. Í lok Heimsgluggans sagði Bogi Ágústsson frá minningarstund gyðinga vegna helfararinnar og kvaðst hafa fellt tár.
Afdrifaríkar kosningar í Ungverjalandi
Viktor Orbán hefur stjórnað Ungverjalandi í 16 ár en nú benda kannanir til þess að Fidesz-flokkur hans tapi þingkosningum á sunnudag. Gunnsteinn Ólafsson, hljómsveitarstjóri sem nam tónsmíðar við Franz Liszt-akademíuna í Búdapest, var gestur Heimsgluggans og þeir Bogi Ágústsson ræddu um Ungverjaland og horfurnar í stjórnmálum.
Flókin staða eftir kosningar í Danmörku
Hallgrímur Indriðason fréttamaður fylgdist með þingkosningunum í Danmörku á þriðjudag og Bogi Ágústsson ræddi við hann í Heimsglugganum um stöðuna í dönskum stjórnmálum. Fyrst ræddi Bogi þó kosningarnar í Færeyjum sem fram fara í dag og nýja skýrslu, ,,State of the Nordic Region“, sem inniheldur mikinn fróðleik um Norðurlönd. State of the Nordic Region hefur verið gefin út annað hvert ár frá 1981. Skýrslan sýnir þróun og stefnur á Norðurlöndum á sviðum eins og lýðfræði, vinnumarkaði og efnahagsmálum. Skýrslan er unnin af Nordregio sem er rannsóknastofnun Norrænu ráðherranefndarinnar.
Lýðræði í Bandaríkjunum hefur „sokkið eins og steinn“
Lýðræði í heiminum er á undanhaldi og í Bandaríkjunum hefur það „sokkið eins og steinn,“ segir í skýrslu V-dem-stofnunarinnar við háskólann í Gautaborg. Tveir þungavigtarmenn í Siumut-flokknum á Grænlandi, Vivian Motzfeldt utanríkisráðherra og Kim Kielsen þingforseti, hafa sagt sig úr flokknum. Í Bandaríkjunum eiga ráðamenn í mestu vandræðum með að skýra ástæður árásanna á Íran og skýringar eru mótsagnakenndar. Þetta var til umræðu í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1.
Óljós stríðsmarkmið Bandaríkjamanna
Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson ræddu ýmsar hliðar og afleiðingar árása Bandaríkjamanna og Ísraelsmanna á Íran. Hráolía hefur hækkað mikið í verði og óttast er að það leiði til umtalsverðra almennra verðhækkana um allan heim. Í Bretlandi beit Keir Starmer forsætisráðherra hressilega frá sér í fyrirspurnatíma forsætisráðherra. Hann á annars undir högg að sækja þó að engar sláandi upplýsingar kæmu fram í skjölum sem birt voru í gær um aðdraganda ráðningar Peters Mandelsons sem sendiherra í Bandaríkjunum. Skipan Mandelsons var umdeild og hann var rekinn úr starfi vegna tengsla við kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein.
Útlit fyrir stjórnarskipti í Færeyjum og ósamræmi í málflutningi bandarískra ráðamanna um árásirnar á Íran
Hjálmar Waag Árnason var gestur Heimsgluggans og ræddi stjórnmál í Færeyjum en frændur okkar og frænkur ganga til kosninga síðar í mars. Hjálmar á ættir að rekja til Færeyja og er þar öllum hnútum kunnugur. Hann telur líklegt að hægri stjórn taki við eftir kosningar en Jafnaðarmenn hafa verið í stjórnarforystu síðustu ár. Þá var rætt um mismunandi yfirlýsingar bandarískra ráðamanna um ástæður árása á Íran þar sem ýmsar skýringar hafa verið á lofti.
„...aldrei hefur forseti logið jafn mikið…“
Danska blaðið Politiken sagði í leiðara að aldrei hefði forseti logið jafn mikið og gert jafn mikið til að sundra landi sínu. Þarna var Politiken að fjalla um State of the Union-ræðu Donalds Trumps Bandaríkjaforseta. Þetta var til umfjöllunar í Heimsglugga vikunnar á Morgunvaktinni á Rás 1. Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu einnig við Boga Ágústsson um orð Finnlandsforseta um stríðið í Úkraínu sem sagði Pútín Rússlandsforseta ekki geta unnið stríðið en vildi heldur ekki semja um frið. Þá var rætt um mikilvægar aukakosningar til breska þingsins í dag þar sem þrír flokkar geta unnið. Raving Monster Loony Party er ekki í þeim hópi en hlustendur fengu að heyra í frambjóðanda flokksins sem kallar sig Sir Oink A lot eða Sir Rýta mikið.
Millibilsástand í fjármálum heimsins
Ásgeir Brynjar Torfason var gestur Heimsgluggans og þeir Bogi Ágústsson ræddu um rof í alþjóðakerfinu og efnahagslegar afleiðingar, verðsveiflur á gulli, silfri og bitcoin. Ásgeir Brynjar segir millibilsástand „interregnum“ vera í fjármálakerfinu, dollarinn sé ekki lengur viðmiðunarmynt heimsins og óvíst sé hvað taki við.
Erna Solberg hættir eftir 22 ár sem formaður Høyre
Heimsglugginn var að mestu norrænn að þessu sinni. Erna Solberg lætur af formennsku í Høyre, norska íhaldsflokknum. Eftirmaður hennar er Ine Eriksen Søreide, sem hefur verið bæði varnarmála- og utanríkisráðherra. Þá var rætt um grein þar sem Bertel Haarder eggjar norræna stjórnmálamenn lögeggjan til að bregðast við breyttri heimsmynd með stóraukinni samvinnu í varnarmálum. Í lokin var rætt stuttlega um kosningar í Danmörku og Svíþjóð sem verða síðar á árinu.
Margt áhrifafólks í vandræðum vegna Epstein-skjalanna.
Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu við Boga Ágústsson um Epstein-skjölin og afleiðingar birtingar upplýsinga sem fram koma í þeim. Peter Mandelson hrakist úr starfi sendiherra Breta í Bandaríkjunum og Keir Starmer, forsætisráðherra Breta, gæti misst stöðu sína vegna þess að hann skipaði Mandelson í sendiherraembættið. Í Noregi vill tæplega helmingur þjóðarinnar ekki að krónprinsessan Mette-Marit verði drottning vegna náinna tengsla hennar við Jeffrey Epstein eftir að hann var dæmdur fyrir barnaníð.
