Flugvarpið

Jóhannes Bjarni Guðmundsson

Fréttir

Fjallað er um flugmál á Íslandi, viðburði, málefni og áhugavert fólk tekið tali. Jói Baddi hefur langa reynslu sem atvinnuflugmaður og flugkennari og starfaði einnig um tíma við fjölmiðla. Flugvarpið er þannig góður farvegur til að sameina þetta tvennt - flugið og fjölmiðlun.

#153 – Sérfræðingur í skipulagningu á viðhaldi flugvéla – er ein fárra kvenna í stétt flugvirkja á Íslandi – Guðrún Hrefna Kolbeinsdóttir

#153 – Sérfræðingur í skipulagningu á viðhaldi flugvéla – er ein fárra kvenna í stétt flugvirkja á Íslandi – Guðrún Hrefna Kolbeinsdóttir

21
apríl

Rætt er við Guðrúnu Hrefnu Kolbeinsdóttur flugvirkja hjá Icelandair um hennar starf við skipulagningu á viðhaldi flugvéla sem hún hefur starfað við í á annan áratug. Guðrún Hrefna segir líka frá því hvernig það kom til að hún fór í flugvirkjanámið á sínum tíma til Danmerkur og hvernig hún fann sína fjöl þar þrátt fyrir að hafa aldrei í bernsku haft sérstakan áhuga á að gera við og laga hluti. Guðrún Hrefna er af Suðurnesjunum og er ein þeirra sem bjó í Grindavík þegar rýma þurfti bæinn vegna jarðhræringa og býr nú Keflavík. Áhugavert spjall við öfluga konu þar sem sjónum er beint að fjölbreyttum störfum flugvirkja og ekki síst skipulagi viðhalds á farþegaþotum í dag.

#152 – AVIANS tekur við af ISAVIA ANS. Ísland í leiðtogahlutverki í flugleiðsöguþjónustu á Norður-Atlantshafinu. Framkvæmdastjórinn segir metnað um að auka sveigjanleika og bæta þjónustuna við flugið. -  Kjartan Briem.

17
apríl

Rætt er við Kjartan Briem framkvæmdastjóra AVIANS dótturfyrirtækis ISAVIA, en fyrirtækið annast flugleiðsöguþjónustu á íslenska flugstjórnarsvæðinu, sem er eitt hið stærsta í heimi. Kjartan segir frá breytingum sem orðið hafa í tækni og þjónustu á liðnum árum og ræðir þær áskoranir sem blasa við. Unnið er að því að fjölga í hópi flugumferðarstjóra til að tryggja að ekki verði skortur sem komi niður á þjónustunni eins og stundum hefur gerst á síðustu árum. Hann segir kynslóðaskipti vera að eiga sér stað í hópi flugumferðarstjóra vill sameina krafta krafta starfsfólks um að auka sveigjanleika og tryggja um leið öfluga þjónustu við flugið.

#151 – Icelandair vill kaupa 49% í flugfélaginu Fly Play Europe á Möltu – meiri sveigjanleiki og ný tækifæri segir forstjórinn - Bogi Nils Bogason

#151 – Icelandair vill kaupa 49% í flugfélaginu Fly Play Europe á Möltu – meiri sveigjanleiki og ný tækifæri segir forstjórinn - Bogi Nils Bogason

1
apríl

Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair í tilefni af viljayfirlýsingu sem félagið hefur skrifað undir um að hefja viðræður um möguleg kaup á 49% hlut í félaginu Fly Play Europe, sem er skráð á Möltu og er með flugrekstrarleyfi þar. Félagið var stofnað af íslenska flugfélaginu Play þegar það var í rekstri og er í eigu íslenskra fjárfesta, þar á meðal lífeyrissjóða. Bogi Nils fer yfir hvers vegna þetta er talið álitlegt fyrir Icelandair og um möguleika sem þetta skapar í að víkka út starfsemi félagsins. Einnig er stuttlega komið inn á ástand heimsmála, hækkun eldsneytisverðs og íslenskan vinnumarkað.

#150 - Mikil eftirspurn eftir Grænlandsflugi Norlandair – 7 flugvélar í rekstri og tækifærin mörg – þörf á uppbyggingu víðar en í Keflavík – Arnar Friðriksson

#150 - Mikil eftirspurn eftir Grænlandsflugi Norlandair – 7 flugvélar í rekstri og tækifærin mörg – þörf á uppbyggingu víðar en í Keflavík – Arnar Friðriksson

30
mars

Rætt er við Arnar Friðriksson framkvæmdastjóra flugfélagsins Norlandair um starfsemi félagins sem er með höfuðstöðvar sínar á Akureyri. Félagið er með 7 flugvélar í rekstri og flug félagsins er gríðarlega mikilvægt ekki bara fyrir Akureyringa heldur landsmenn alla. Félagið er með sjúkraflugsvakt allan sólarhringinn allt árið um kring, sinnir áætlunarflugi innanlands og síðast en ekki síst sinnir það fjölbreyttum leiguflugsverkefnum með Twin Otter flugvélum í krefjandi aðstæðum á Grænlandi. Arnar ræðir vítt og breitt um um flugmálin, innanlandsflugið, útboðsmálin og rekstrarumhverfi fyrir lítið flugfélag eins og Norlandair. Einnig er farið yfir þær aðstæður sem sköpuðust 26. febrúar síðastliðinn þegar margar þotur lentu á Reykjavíkurflugvelli og fyrir vikið varð völlurinn ekki nothæfur um tíma fyrir sjúkra- og áætlunarflug. Áhugavert spjall þar sem hlustendur fá örlitla innsýn í rekstur Norlandair. Viðtalið var tekið upp í lok mars inni í F-27 flugvél Landhelgisgæslunnar á Flugsafni Íslands á Akureyri.

#149 – Rétt þjálfun, hæfni og skilningur flugmanna getur skilið á milli feigs og ófeigs segir „guðfaðir” UPRT þjálfunar. Sj´álfvirkni, háþróuð kerfi og minna handflug kalla á nýjan nálgun í þjálfun – Dr. Sunjoo Advani

23
mars

Í þættinum er rætt við Dr. Sunjoo Advani forstjóra og stofnanda IDT (International Development of Technology) sem Boeing hefur kallað guðfaðir UPRT (Upset Prevention and Recovery Training) þjálfunar í heiminum. Tilefni heimsóknar Dr. Sunjoo til Íslands að þessu sinni er samstarf IDT og þjálfunardeildar Icelandair. Hann segir að rétt þjálfun flugmanna sé meginatriðið í að koma í veg fyrir slys eins og þau sem valdið hafa flestum banaslysum í farþegaflugi í heiminum á síðustu árum. Þau eru flest rakin til þess að flugmenn hafa af einhverjum orsökum misst stjórn á flugvélinni og í kjölfarið ekki náð að fljúga vélinni út úr slíkum aðstæðum þar sem flugvélin er komin langt út fyrir það sem kallast getur venjulegt flug. Flugvélin verður það sem skilgreint er sem „UPSET“. Dr. Sunjoo segir samvinnu allra hagsmunaaðila í flugi vera lykil að góðum árangri og hrósar samstarfi þjálfunardeildar Icelandair, Landhelgisgæslunnar og Samgöngustofu í þessum efnum. Fróðlegt spjall við merkan mann sem hefur um áratuga skeið verið í forystu á alþjóðavettvangi fyrir bættu öryggi í atvinnuflugi.

#148 – Ólíklegt að eignir þrotabús flugfélagins Play dugi fyrir forgangskröfum uppá um 1 milljarð – kröfurnar í heild um 20 milljarðar - Arnar Þór Stefánsson

#148 – Ólíklegt að eignir þrotabús flugfélagins Play dugi fyrir forgangskröfum uppá um 1 milljarð – kröfurnar í heild um 20 milljarðar - Arnar Þór Stefánsson

19
mars

Rætt er við Arnar Þór Stefánsson hæstaréttarlögmann og skiptastjóra þrotabús flugfélagsins Play. Farið er yfir stöðuna í þrotabúinu eftir fall félagsins og þá vinnu sem skiptastjórar hafa unnið til þessa. Heildarkröfur í þrotabúið nema um 20 milljörðum króna, eignir eru afar takmarkaðar og þess vegna ólíklegt er að fáist upp í forgangskröfur. Rætt er um skuldabréfaútboð Play skömmu fyrir gjaldþrotið, dótturfélagið á Möltu, stöðu kærumála hjá Samkeppniseftirlitinu og fleira. Í lok þáttar berst talið að fótbolta, nánar tiltekið dómarastörfum í fótbolta, en áhugamál og annað starf Arnars Þórs er að vera dómari í efstu deild og nú styttist óðum í að nýtt tímabil hefjist.

#147 –  Mildi að varaflugvellirnir virkuðu þann 26. febrúar 2026 – samantekt um veðrið, flugreksturinn, flugvellina og fólkið  - Einar Sveinbjörnsson, Ásgeir Gunnar Stefánsson og Sigrún Björk Jakobsdóttir

4
mars

Í þættinum er fjallað um atburðina þann 26. febrúar þegar veðurskilyrði í Keflavík breyttust undraskjótt sem olli því að margar farþegaþotur og fleiri flugvélar urðu frá að hverfa og neyddust til að lenda á sínum varaflugvöllum í Reykjavík og á Akureyri og á Egilsstöðum. Varaflugvellirnir sönnuðu svo sannarlega gildi sitt þennan dag og á allt starfsfólk í fluginu sem að kom mikið hrós skilið fyrir fagleg vinnubrögð á öllum stigum. Í þættinum er rætt við Einar Sveinbjörnsson veðurfræðing um veðrið sem skall á suðvesturhorni landsins þennan dag, um veðurspárnar og hvenrig megi mögulega bæta þær. Ásgeir Gunnar Stefánsson aðstoðar-yfirflugstjóri Icelandair fer yfir viðbrögð félagsins þegar 15 farþegaþotur þess urðu frá að hverfa í Keflavík og loks er rætt við Sigrúnu Björk Jakobsdóttur framkvæmdastjóra innanlandsflugvalla ISAVIA um viðbrögð á varaflugvöllunum og hvað læra megi af þessum viðburði.

#146 – Komu til Afríku áður en þau komu til Akureyrar. Flugsystkynin Anna María og Róbert Magnús spjalla um ferilinn og Air Atlanta sem er að fá 19. breiðþotuna og þjálfa nýja flugmenn. - Anna María Kristmundsdóttir og Róbert Magnús Kristmundsson.

27
febrúar

Gestir þáttarins eru systkynin Anna María og Róbert Magnús Kristmundsbörn sem hafa bæði áratuga reynslu úr flugheimunum, hún sem flugfreyja og hann sem flugstjóri. Bæði fengum þau “flugbakteríuna” í vöggugjöf því faðir þeirra Kristmundur Magnússon var loftskeytamaður og síðar flugstjóri fyrir ýmis flugfélög víðs vegar um heiminn. Anna María hóf sinn feril í fluginu hjá Air Atlanta en starfar í dag sem flugfreyja hjá Icelandair þar sem hún er m.a. að sinna VIP ferðum á vegum Loftleiða. Róbert Magnús er yfirflugstjóri hjá Air Atlanta, sem fagnar 40 ára afmæli á þessu ári. Þar er í nógu að snúast við að bæta við breiðþotum og ráða fólk til starfa í ört stækkandi fyrirtæki. Nítjánda breiðþota félagsins er væntanleg í vor.

#145 - Skipulagsvald borgarinnar yfir Reykjavíkurflugvelli í öngstræti. Borgin vill starfsemina burt 2032 án tillits til þjóðarhagsmuna. Spjallað við Njál Trausta alþingismann um innanlandsflugvellina, samgönguáætlun o.fl. - Njáll Trausti Friðbertsson

Í þættinum er rætt við Njál Trausta Friðbertsson alþingismann og flugumferðarstjóra um ýmis atriði sem tengjast fluginu í nýrri samgönguáætlun og nú er í meðförum Alþingis. Njáll Trausti hefur fylgst vel með flugmálum á síðustu árum og verið ötull talsmaður uppbyggingar á flugvöllum landsins, einkum til að auka flugöryggi. Í nýlegri umsögn Reykjavíkurborgar um samgönguáætlun er varað við allri uppbyggingu á flugvellinum í Vatnsmýri því flugstarfsemi sé ekki á skipulagi þar eftir árið 2032. Njáll Trausti telur að afstaða borgarinnar byggi á afar þröngum hagsmunum og hefur velt upp þeirri hugmynd að skipulagsvaldi yfir vellinum yrði breytt enda um þjóðarhagsmuni að ræða. Í þættinum er einnig spjallað um mögulega staðsetningu björgunarþyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri, varaflugvallagjaldið og framkvæmdir á alþjóðaflugvöllum landsins og um samkeppnishæfni Evrópu í tengslum við ETS viðskiptakerfi Evrópusambandsins.

#144 – Heillaðist af fluginu og stýrir nú flugumferð á Reykjavíkurflugvelli. Vill efla samtalið við flugmenn til að auka skilning milli hópa. Aníta Eik Kjartansdóttir

#144 – Heillaðist af fluginu og stýrir nú flugumferð á Reykjavíkurflugvelli. Vill efla samtalið við flugmenn til að auka skilning milli hópa. Aníta Eik Kjartansdóttir

14
febrúar

gestur þáttarins er Aníta Eik Kjartansdóttir en hún lauk námi í flugumferðarstjórn árið 2024 og starfar í dag í turninum á Reykjavíkurflugvelli. Hún heillaðist snemma af fluginu og segir í þessum þætti frá flugumferðarstjóranáminu og uppbyggingu þess. Þá fer hún yfir ýmislegt sem tengist starfinu í dag og gefur þannig hlustendum smá innsýn í starf flugumferðarstjórans í turninum á Reykjavíkjurflugvelli. Aníta Eik segir líka frá verkefni sem hún og samstarfsfélagi hennar eru að fara af stað með og snýst um að heimsækja flugskólana með það fyrir augum að auka betur skilning milli flugmanna og flugumferðarstjóra.

Þér gæti líka líkað...