Draugar fortíðar

Hljóðkirkjan

Menning & listirMenntunSaga

Flosi Þorgeirsson fræðir Baldur Ragnarsson um áhugaverða liðna atburði.

#271 Vargöld og vinskapur: Douglas Bader og Adolf Galland

#271 Vargöld og vinskapur: Douglas Bader og Adolf Galland

4
febrúar

Í þessum þætti skoðum við sögu og samband tveggja orrustuflugmanna úr seinni heimsstyrjöld. Þeir voru ólíkir menn en náðu samt einkar vel saman. Þeir voru fyrst og fremst flugmenn. Er verstu manngerðu hamfarir sögunnar dundu yfir Evrópu svöruðu þeir kallinu. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

#267 Röðull GK

#267 Röðull GK

7
janúar

Þriðjudaginn 15. jan. 1963 lét togarinn Röðull GK úr höfn frá Reykjavík. Planið var að vera á veiðum í uþb 4 vikur á Mýrargrunni. Um hádegi á fimmtudaginn tilkynntu nokkrir skipverjar um ógleði og máttleysi. Þetta var upphafið að einu skelfilegasta mengunarslysi í sögu íslensks sjávarútvegs. Oft hefur þetta verið kallað „slysið sem gleymdist“. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

#264 Maður án heila

#264 Maður án heila

8
október 2025

Árið 2007 leitaði franskur maður til læknis. Ástæðan var þrálátur verkur í fæti. Læknirinn sendi manninn í ýmsar rannsóknir. Þar á meðal sneiðmynd af heila. Læknirinn fékk seinna hringingu frá röntgendeildinni þar sem hann var beðinn um að koma strax. Myndir af heila mannsins væru einkennilegar, svo ekki sé meira sagt. Lækninn rak í rogastans er hann sá sneiðmynd af höfði mannsins. Svo virtist sem maðurinn hefði hreinlega engan heila!? Þessi þáttur er nokkuð sérstakur. Flosi er að glíma við mikið þunglyndi og kulnun um þessar mundir. Harkalegra en hann hefur upplifað lengi. Eins og hans er von og vísa talar hann óhikað um það allt í þættinum. Hann segir einnig frá árangri sínum í áfallavinnu. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

#261 Lygar og morð: Hinn einkennilegi Stéphane Bourgoin

#261 Lygar og morð: Hinn einkennilegi Stéphane Bourgoin

10
september 2025

Finndu þér miða á túrinn okkar um landið hér. Upp úr 1990 fór einn maður að láta að sér kveða í frönsku þjóðlífi og vakti mikla athygli. Hann virtist sérfræðingur um nokkuð sem Frakkar höfðu til þessa gefið lítinn gaum: Raðmorðingjar. Maður þessi var Stéphane Bourgoin. Hann var alveg ómenntaður en virtist hreinlega vita allt um þetta efni. Frakkar voru heillaðir af þessum einkennilega manni sem talaði svo fjálglega en einnig fræðilega um þessi myrku mál. Fjölmiðlamenn elskuðu hann. Meira að segja lögreglan leitaði til hans. Hann talaði jafnvel við, og hughreysti, fólk sem hafði misst ástvini sem höfðu verið myrtir. Það var ekki fyrr en áratugum seinna að áhugafólk um glæpi fór að kanna Bourgoin kyrfilega. Þá kom ýmislegt misjafnt í ljós. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

#LD4 Draugar fortíðar ásækja Græna hattinn

#LD4 Draugar fortíðar ásækja Græna hattinn

3
september 2025

Finndu þér miða á túrinn okkar um landið hér. Draugarnir lögðu í hann í upphafi árs 2025 og fóru vítt og breitt um landið. Þann 23. janúar var komið að Græna hattinum. Í það skiptið var uppákoman ekki eingöngu skráð í hljóði, heldur einnig í mynd. Þið getið hlustað á hann eða horft á hann á YouTube hér. Góða skemmtun! Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

#256 Polybius: Hættulegasti tölvuleikur sögunnar?

#256 Polybius: Hættulegasti tölvuleikur sögunnar?

6
ágúst 2025

Í byrjun níunda áratugar varð vart undarlegrar vænisýki sem breyddist frá úthverfum Bandaríkjanna og var skyndilega á allra vörum. Það var hið svokallaða "Satanic Panic" sem sumir telja undanfara QAnon. Hræðslan beindist öll inn á við. Kenningar flugu um að Dungeons og Dragons hlutverkaspilið væri verkfæri Satans. Tölvuleikir voru að sækja í sig veðrið á þessum tíma og spilasalir spruttu upp. Hræðslan beindist einnig að þeim en þó virtust hörðustu samsæriskenningasmiðir sammála um að þarna væri Satan saklaus. Í gegnum tölvuleiki var það ríkisstjórnin eða leyniþjónustan sem stjórnaði. Allra alræmdasti leikurinn er án nokkurs efa Polybius. Finndu þér miða á túrinn okkar um landið hér. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

#251 Talídómíð: Hryllingur í töfluformi

#251 Talídómíð: Hryllingur í töfluformi

2
júlí 2025

Seint á sjötta áratug kom ný tafla á markað sem kölluð var kraftaverkalyf. Hún hafði róandi áhrif og sló auk þess á ógleði. Sérstaklega voru barnshafandi konur hvattar til að taka töfluna gegn morgunógleði. Í dag líður langur tími frá því er nýtt lyf er þróað og þar til það er sett á markað. Regluverkið er orðið mun harðara en það var er Talídómíð kom á markað. Það er einmitt að stærstum hluta vegna hryllilegrar reynslu fólks af einmitt Talídómíð. Lyfið hafði ekki verið rannsakað nægilega vel. Áhrif þess á ófrískar konur voru einfaldlega hræðilegar. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

#247 Josephine Baker: Fyrsta svarta konan sem sigraði heiminn - Fyrri hluti

#247 Josephine Baker: Fyrsta svarta konan sem sigraði heiminn - Fyrri hluti

4
júní 2025

Josephine Baker er einn áhrifamesti skemmtikraftur sögunnar. Auk þess að bæði hneyksla og hrífa Evrópubúa með sínum söng og dansi tók hún virkan þátt í baráttu gegn alræði og kynþáttaníði. Baker var fædd í Bandaríkjunum en eins og margir svartir íbúar þaðan, vildi hún flýja botnlausan rasismann þar. Hún hafði heyrt um ríki þar sem svartir voru þó álitnar mannverur. Fyrir þetta fólk lágu öll vötn til Parísar. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

#244 Maðurinn í rotþrónni

#244 Maðurinn í rotþrónni

14
maí 2025

Í febrúar árið 1989 var japanska barnaskólakennaranum Yumi Tanaka brátt í brók og þurfti nauðsynlega að komast á klósettið. Á stúdentagörðum þar sem hún bjó voru klósett frekar gamaldags. Í raun aðeins hola í gólfinu sem leiddi út í rotþró fyrir utan húsið. Sér til furðu tekur Tanaka eftir einhverju í salernisholunni. Það er skór af manni. Hún fór út til að athuga hvort hún sæi eitthvað betur. Fyrir utan var lítið op sem leiddi niður í rotþróna. Þar gerði Tanaka hryllilega uppgötvun og hringt var samstundis á lögregluna. Þetta er vægast sagt dularfullt mál og internet löggur samtímans eru sífellt að velta fyrir sér hvað í ósköpunum gæti hafa gerst. Atriði í þættinum geta valdið klígju. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

#238 Hermaðurinn ódrepandi: Saga Adrian Carton de Wiart

#238 Hermaðurinn ódrepandi: Saga Adrian Carton de Wiart

2
apríl 2025

Adrian Carton de Wiart var belgísk-breskur herforingi sem varð algjör goðsögn innan breska hersins. Hann var svo ósérhlífinn að það jaðraði við sturlun. Hann særðist mörgum sinnum og oft alvarlega. Hann tók þátt í fyrri heimsstyrjöldinni, þar sem hann varð fyrir alvarlegum meiðslum, meðal annars misst hann hægri hönd og auga, en hann hélt áfram að berjast þrátt fyrir þessa miklu skerðingar. Þrátt fyrir að vera orðinn sextugur tók hann einnig þátt í síðari heimsstyrjöldinni. Var stríðsfangi Ítala um skeið. Hann starfaði síðar sem fulltrúi breska hersins í Miðausturlöndum og Kína. Winston Churchill hafði mikið álit á honum. Saga hans er áhugaverð. Hann er vissulega barn síns tíma en erfitt er að líta fram hjá því hugrekki og staðfestu sem hann sýndi. Við veltum því fyrir okkur hvort saga hans eigi erindi við nútímafólk? Sama hvað gekk á þá mætti hann öllum áföllum og andstreymi með stóískri kímni og látleysi. Það má væntanlega læra eitthvað af því? Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

Þér gæti líka líkað...