Úti

Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr Lyngdal

ÍþróttirSkemmtunHeilsa

ÚTI er hlaðvarp um útivist, ævintýri og fólkið sem er alltaf að finna sér eitthvað til að brasa úti. Í þáttunum er farið yfir fjallamennsku, hjólreiðar, ferðalög, hálendið, náttúruna og alls konar sögur úr íslenskri útivist. Umsjónarmenn eru Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr Lyngdal. Þættirnir eru gefnir út á tveggja vikna fresti. Email: kristin.lyngdal@gmail.com eða buibjarmar@gmail.com Instagram: @utihladvarp Hjólavarpið er unnið í samstarfi við Peloton

90% meira næs með súkkulaði, Guðrún Sóley Gestsdóttir

90% meira næs með súkkulaði, Guðrún Sóley Gestsdóttir

10jún

Í þætti dagsins er þemað að komast af stað, það eru fá betur til þess fallin en hún Guðrún Sóley enda fá sem nenna jafn miklu og eru jafn peppuð gagnvart því að peppa aðra. Guðrún fer yfir brothvarf úr hlaupum, endurstillingu gagnvart hreyfingu og talar mikið og fallega um kajak ástundun. Peloton er ævintýraverslun með allskonar gotterí fyrir útivistarfólk, endilega að gera sér ferð þangað eða skoða vöruúrvalið á netinu. Tónlist í þáttunum er eftir DJ flugvél og geimskip

Hvað er planið? - Fyrsti þáttur af Úti ævintýra hlaðvarpi

Hvað er planið? - Fyrsti þáttur af Úti ævintýra hlaðvarpi

27maí

ÚTI er nýtt hlaðvarp um útivist í öllum sínum myndum — fjallamennska, ferðalög, hjólreiðar, ævintýri og allt sem fær okkur af stað og í útið. Umsjónarmenn eru Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr Lyngdal sem kafa ofan í sögur, fólk og upplifanir úr íslenskri útivistarmenningu. Úti er í boði Peloton þar sem hægt er að versla frábæran ævintýraútbúnað.

69. Síðasti þátturinn - Hjólavarpið þakkar fyrir sig

69. Síðasti þátturinn - Hjólavarpið þakkar fyrir sig

7maí

Jæja, þá er komið að þessu síðasti þátturinn. Þakka öllum ofboðslega vel fyrir þessa vegferð, þeim sem hlustuðu og þeim sem komu í þáttinn. Ég er búinn að eignast góða vini á þessari vegferð og verð hjólasamfélaginu ævinlega þakklátur. Eins er ég þákklátur öllum styrktaraðilinum sem hafa komið að þessu verkefni, Pelaton er þar efst á blaði sem hefur staðið baki þáttunum núna í að verða ár, en þar má versla ýmiskonar ævintýraútbúnað. Það er annað ævintýri fram undan, endilega fylgist með.

68. Hamfaraástand og eElja, nýtt rafmagnsfjallahjól frá Lauf

68. Hamfaraástand og eElja, nýtt rafmagnsfjallahjól frá Lauf

1apr

Í þættinum kemur Benedikt Skúlason stofnandi og framkvæmdastjóri Lauf og lýsir vendingum sem hafa átt sér stað síðustu vikur og segir frá nýju rafmagnsfjallahjóli sem var sett á markað núna á dögunum. Hjólavarpið er í boði PELOTON reiðhjóla- og útivistarverslunar. PELOTON er í Klettagörðum 23 og vefverslunin er alltaf er opin á https://www.peloton.is/

67. Holdafar er ekki heilsa með Töru Margréti Vilhjálmsdóttur

67. Holdafar er ekki heilsa með Töru Margréti Vilhjálmsdóttur

18mar

Í þessum þætti ræðum við tengsl milli holdafars og heilsu eða öllu heldur skortin á tengslum milli holdafars og heilsu. Á dögunum voru sett fram drög að aðgerðaráætlun um málefni offitu. Í umsögnum eru mörg sem fagna þessum drögum en önnur sem benda á vankanta þess, þar á meðal er Tara Margrét Vilhjálmsdóttir sem er viðmælandi í þætti dagsins. Í þættinum ræðum við þessi drög ásamt örðu þeim tengdum; fitufordóma og þyngdarhlutlausa nálgun. Hjólavarpið er í boði Peloton hjólreiða og útivistarverslun sem staðsett er í Klettagörðum 23. Þar má finna frábæran fatnað til að takast á við ævintýri við íslenskar aðstæður.

66. Mæja Sæm og gullhjálmurinn

66. Mæja Sæm og gullhjálmurinn

18feb

Mæja María Sæm Bjarkardóttir er handhafi Gullhjálmsins í ár sem er viðkenning veit þeim sem hafa lagt mikið til hjólasamfélagsins á Íslandi. Hún var í fyrstu tilnefnd og síðar kosinn í kostningu á vegum Hjólavarpsins og Hjólreiðasambands Íslands. Í þættinum tökum við aðeins stöðuna á Mæju, en hún hefur áður komið til mín eða í þætti 46. Hjólavarpið er í boði PELOTON reiðhjóla- og útivistarverslunar. PELOTON er í Klettagörðum 23 og vefverslunin er alltaf er opin á peloton.is @pelotoniceland

65. Rafmagnshjól

65. Rafmagnshjól

4feb

Ég og Hafsteinn Ægir rennum yfir helstu málaflokka sem snúa að rafmagnshjólum og hvað maður ætti að pæla í þegar maður ætlar að kaupa eitt slíkt. Endilega deilið með vinum og félögum sem spyrja um rafmagnshjól. Hjólavarpið er í boði Peloton þar sem má finna frábær hjól og geggjað ævintýradót. Þá má finna í Klettagörðum ef þú vilt kíkja í heimsókn.

64. Uppgjörið 2025

64. Uppgjörið 2025

14jan

Í þessum þætti förum við yfir allt sem gerðist á hjólaárinu 25, gleymdum samt helling en gerðum okkar besta. Þau Auðunn, Ása, Bríet og Magne kíktu til mín í Podcaststöðina og við rendum yfir árið bæði það súra og það sæta. Eins tilkynnum við um þann aðila sem hlýtur Gullhjálminn árið 2025. Hjólavarpið er í boði PELOTON reiðhjóla- og útivistarverslunar. PELOTON er í Klettagörðum 23 og vefverslunin er alltaf er opin á peloton.is

63. „Gaman að vera með erfiða samkeppnisaðila“ - Einar Bárða og nýja keppnin Cuckoo

63. „Gaman að vera með erfiða samkeppnisaðila“ - Einar Bárða og nýja keppnin Cuckoo

17des2025

Yfirferð yfir nýja gravel keppni sem bætist við flóruna næsta sumar. Við rennum yfir aðdragandann og síðan helstu einkenni þessarar nýju keppni. Í lokinn rennum við aðeins yfir sveitastjórnarmálin í ljósi kostninga sem verða næsta vor. Hjólavarpið er í boði Pelaton reiðhjóla- og útivistarverslunar. Pelaton er í Klettagörðum 23 og vefverslunin er alltaf er opin.

62. Hafsteinn Ægir og vetrarhjólerí

62. Hafsteinn Ægir og vetrarhjólerí

10des2025

Í þessum þætti veltum við upp áskorunum vetrarhjólreiða. Við ræðum hvernig best sé að laga sig að breyttum aðstæðum þegar myrkrið lengist og göturnar verða hálar. Gestur þáttarins er Hafsteinn Ægir Geirsson deilir reynslu sinni af búnaði, vetrardekkjum, lýsingu og viðhaldi sem gera hjólið traustara yfir köldustu mánuðina. Einnig förum við yfir hvernig hægt er að halda hvatningunni gangandi, skipuleggja æfingar yfir veturinn og nýta hjólreiðar allt árið um kring. Reynum líka aðeins yfir nýjustu vendingar í malarhjólreiðunum en í næsta þætti ætlum við að heyra meira af því. Hjólavarpið er í boði PELOTON reiðhjóla- og útivistarverslunar. PELOTON er í Klettagörðum 23 og vefverslunin er alltaf er opin á peloton.is.

Þér gæti líka líkað...