Týndu Strákarnir: Hlaðvarp um kerfið, veggina og afleiðingarnar
Framleitt af Samson.is fyrir samtökin Strax í dag
SamfélagiðAndleg málefniTýndu Strákarnir er hlaðvarp um kerfið, veggina og afleiðingarnar, framleitt af samson.is og í umsjón Steindórs Þórarinssonar og Nonna Lobo. Við ræðum við fólk sem hefur lent í kerfinu, aðstandendur, fagfólk og þegar færi gefst fólk í ábyrgðarstöðum. Við leitum ekki að hávaða heldur skýrum dæmum, samhengi og ábyrgð og greinum á milli þess sem gestir segja, þess sem er staðfest með heimildum og þess sem er óljóst. Milli þátta er Nonni á gólfinu og Steindór að fara yfir gögn, skrifa pistla og halda umræðunni á lofti í minningu barna sem fóru of snemma frá okkur. Tekið upp í stúdíóinu Raddir.

Þáttur #6 | Brynjar Karl Sigurðsson: Stelpur, kerfi og rými sem stendur tómt
Brynjar Karl Sigurðsson, stofnandi Aþenu körfuboltafélagsins, er gestur í þætti #6 af Týndu Strákunum.Í þættinum ræðum við Aþenu, baráttu Brynjars og það sem gerist þegar fólk reynir að byggja upp starf fyrir börn og ungmenni en mætir kerfi sem virðist of oft verja sjálft sig betur en þau sem það á að þjóna.Við ræðum gaslýsingu, stjórnsýslu, þöggun og það hvernig mikilvægt starf getur lent í veggjum sem erfitt er að útskýra með almennri skynsemi.Við þáttastjórnendur fórum á æfingu hjá Aþenu og ræddum þar við móður einnar stúlku. Hún lýsti starfinu sem einstöku og sagði það í raun hafa bjargað dóttur sinni. Það samtal situr eftir og setur umræðuna í skýrt samhengi. Hér er ekki verið að tala um hugmynd á blaði. Hér er verið að tala um börn, traust, öryggi og starf sem skiptir raunverulegu máli.Brynjar segir meðal annars frá sláandi atviki þar sem matur sem félagið ætlaði að gefa stelpum hafi verið skemmdur. Hann lýsir líka hvernig rými sem gæti nýst til að skapa samfélag, styrk og skjól fyrir ungar stelpur standi tómt í stað þess að vera nýtt.Við ræðum einnig okkar eigin samskipti við stjórnvöld og stofnanir. Það vekur spurningar þegar mál sem varða börn, úrræði, ábyrgð og kerfisbresti mæta þögn eða undanbrögðum. Hvorki heilbrigðisráðherra né mennta og barnamálaráðherra hafa svarað boði okkar um að koma í þáttinn.Barna og fjölskyldustofa hafnaði einnig þátttöku og vísaði til þess að stofnunin geti ekki tjáð sig um einstök mál eða málefni skjólstæðinga. Við skiljum að stofnunin sé bundin trúnaði í einstökum málum. En þegar alvarlegar frásagnir, gögn og endurtekin mynstur birtast aftur og aftur, þá er ekki nóg að vísa allri umræðu frá sér. Kerfið þarf að geta rætt ábyrgð, verklag og almennar brotalamir án þess að fela sig á bak við þagnarskyldu.Þessi þáttur er um íþróttir, börn, vald, kerfi og fólk sem syndir á móti straumnum þegar straumurinn liggur í ranga átt.Þátturinn er jafnframt fyrsti þáttur Týndu Strákanna sem kemur út í mynd og á YouTube og Spotify.Týndu Strákarnir eru framleiddir af Samson.is í samstarfi við Raddir hlaðvarpsupptökuver.

Þáttur #5 | Kristján Halldór Jensson | Frá kerfinu í fangelsið og til baka
Í þætti #5 af Týndu Strákunum ræðum við við Kristján Halldór Jensson sem flakkaði ungur á milli kerfa, fór snemma í neyslu og endaði síðar í fangelsiskerfinu. Við ræðum leiðina þangað, botninn, viðsnúninginn og hvernig hann fann loks leið til að róa taugakerfið og horfast í augu við sjálfan sig. Einnig förum við inn í það hvernig Nonni tók á móti honum þegar hann var hvað lengst niðri. Í dag helgar Kristján líf sitt því að hjálpa öðrum mönnum að snúa við blaðinu og vinnur meðal annars með Tolla að því að ná til þeirra sem eru enn fastir í sama vítahring. Týndu Strákarnir er hlaðvarp um kerfið, veggina og afleiðingarnar. Bak við þættina fer líka fram vinna utan stúdíós. Við hittum aðstandendur, fagfólk og ráðafólk og reynum að knýja fram raunverulegar breytingar. Hægt er að styðja við gerð þáttana hér: Kennitala: 430818 2360 / Reikningur: 0133 26 014369

Þáttur #4 Eitt af týndu börnunum um Stuðla, lyfin og kerfi sem brást
Þáttur #4 af Týndu Strákunum fjallar um það sem gerist þegar barn biður um hjálp en fær í staðinn þögn, fordóma, lyf og kerfi sem virðist hvorki hlusta né grípa. Við ræðum við ungan mann sem hefur verið eitt af týndu börnunum, er nú kominn yfir 18 ára aldur og fastur á milli kerfa sem eiga að taka við, en skilja fólk of oft eftir á jaðrinum. Í þættinum lýsir hann reynslu sinni af því að vera í umhverfi þar sem ekki var raunverulega talað við börnin, þar sem hjálparbeiðnir fengu ekki alltaf það samtal, traust og stuðning sem þyrfti að fylgja. Í stað þess að mæta vanda af alvöru segir hann frá kerfi sem of oft svarar með lyfjum, viðbrögðum og fjarlægð, en nær ekki utan um manneskjuna sjálfa. Hann ræðir einnig gaslýsingu, fordóma og það hvernig börn og ungmenni geta upplifað að enginn sé í raun að hlusta, þótt allir tali eins og þeir séu að hjálpa. Eitt af því sláandi sem kemur fram í frásögn hans er að auðvelt hafi verið að nálgast eiturlyf inni á Stuðlum, á sama tíma og raunverulegur stuðningur og meðferð virtist skorta. Þetta er þungur og hreinskilinn þáttur um það hvernig kerfið getur brugðist þeim sem mest þurfa á því að halda. Um börn sem kalla eftir hjálp, en mæta veggjum. Um ungmenni sem þurfa stuðning, en fá of oft stimpla, fjarlægð og úrræði sem duga ekki. Og um það hvað gerist þegar enginn virðist hlusta fyrr en allt er komið of langt. Þetta er þáttur um afleiðingarnar þegar kerfið sem á að verja börn bregst þeim. Bak við þættina fer líka fram vinna utan stúdíós. Við hittum aðstandendur, fagfólk og ráðafólk og reynum að knýja fram raunverulegar breytingar. Hægt er að styðja við gerð þáttana hér: Kennitala: 430818 2360 / Reikningur: 0133 26 014369

Þáttur #3 Þáttur Rósa Ólöf Ólafíudótir - Systir Lalla Johns um kerfið, skýrslurnar og skaðann
Í þriðja þætti Týndu Strákanna ræðum við við Rósu Ólöfu Ólafíudóttur, systur Lalla Johns, um bókina sem hún hefur skrifað um bróður sinn, tengsl þeirra systkina og sögu sem varpar hörðu ljósi á kerfi sem brást ekki aðeins honum heldur líka aðstandendum hans. Í þættinum förum við yfir sláandi gögn og skýrslur um Lalla John, þar sem orðalag, mat og framsetning bera með sér fordóma, gaslýsingu og valdbeitingu sem skildu eftir djúp sár. Rósa lýsir því hvernig það var að fá þessi gögn í hendurnar og hvað þau segja í raun um kerfi sem afgreiddi fólk í stað þess að styðja það. Við ræðum líka viðbrögðin þegar umræðan um Breiðavík fór af stað, reynslu Rósu úr skólakerfinu og þá erfiðu niðurstöðu að mynstur fortíðarinnar séu enn sýnileg í dag. Þátturinn snýst um meira en eina fjölskyldu. Hann snýst um hvernig kerfið bregst börnum, ungmennum og aðstandendum þeirra og hvað gerist þegar fordómar fá að stýra í stað mannúðar og ábyrgðar. Þetta er þáttur um Lalla John, bókina, sárin sem lifa áfram og kerfi sem virðist enn ekki hafa lært. Bak við þættina fer líka fram vinna utan stúdíós. Við hittum aðstandendur, fagfólk og ráðafólk og reynum að knýja fram raunverulegar breytingar. Hægt er að styðja við gerð þáttana hér: Kennitala: 430818 2360 / Reikningur: 0133 26 014369

Þáttur #2 Sævar Hlynur Jónsson - Skólakerfið, fíkn og heimilisleysi
Í þessum þætti segir Sævar Hlynur Jónsson frá því hvernig hann var dæmdur snemma af skólakerfinu sem vandræðaunglingur og hvernig sú stimplun ýtti honum síðar inn í neyslu, heimilisleysi og líf á ystu brún. Þetta er ekki bara saga um einn mann heldur líka um fjölskyldu sem brotnar með honum, foreldra sem standa úrvinda eftir og móður sem á einum stað í örvæntingu veltir því fyrir sér hvort best sé að leyfa syni sínum að fara. Sævar ræðir líka þá sláandi staðreynd að það var æskuvinkona sem á endanum bjargaði lífi hans. Þetta er ekki bara saga um einn mann. Þetta er saga um fjölskyldu sem brotnar með honum. Bak við þættina fer líka fram vinna utan stúdíós. Við hittum aðstandendur, fagfólk og ráðafólk og reynum að knýja fram raunverulegar breytingar. Hægt er að styðja við gerð þáttana hér: Kennitala: 430818 2360 / Reikningur: 0133 26 014369

AUKAÞÁTTUR: Bruninn á Stuðlum og stjórnkerfið
Í þessum aukaþætti fara Steindór Þórarinsson og Jón K. Jacobsen beint í skýrslu HMS um brunann á Stuðlum 19. október 2024, sem birt var 18. mars 2026. Farið er í það sem stendur í skýrslunni, það sem hún varpar ljósi á, það sem enn vantar svör við og upplifun Jóns af kvöldinu sem breytti öllu. Þetta er ekki snyrt útgáfa. Ekki mýkt. Ekki þynnt. Í þættinum ræðum við ábyrgð, afleiðingar, spurningarnar sem enn standa eftir og spillingu í stjórnkerfinu. Samhliða þættinum birtist einnig pistill á Samson.is þar sem málið er rýnt út frá skýrslunni og því sem enn er óupplýst. Bak við þættina fer líka fram vinna utan stúdíós. Við hittum aðstandendur, fagfólk og ráðafólk og reynum að knýja fram raunverulegar breytingar. Hægt er að styðja við gerð þáttana hér: Kennitala: 430818 2360 / Reikningur: 0133 26 014369

Þáttur 1: Hvað við erum að gera
Týndu Strákarnir er hlaðvarp í tengslum við Strax í dag, framleitt af Samson.is. Í fyrsta þætti ræða Steindór Þórarinsson aka ADHD pabbi og Jón K. Jacobsson, Nonni Lobo, um hvað þetta verkefni er, hvað er verið að gera í hlaðvarpinu, á gólfinu og á bakvið tjöldin, og af hverju við leggjum svona mikla áherslu á skýr dæmi, samhengi og ábyrgð. Upptökur og tæknileg framleiðsla eru unnar með Ásgeiri Páli, útvarpsmanni á K100, tekið upp í studioinu Raddir. Við greinum á milli þess sem gestir segja, þess sem er staðfest með heimildum og þess sem er enn óljóst. Ítarleg kynning og siðareglur eru á vefsvæði þáttarins: www.samson.is/tyndustrakarnir Þátturinn er á Spotify og YouTube. Fyrsti þáttur er hljóðþáttur, en frá og með þætti tvö verður þátturinn einnig í mynd. Bak við þættina fer líka fram vinna utan stúdíós. Við hittum aðstandendur, fagfólk og ráðafólk og reynum að knýja fram raunverulegar breytingar. Hægt er að styðja við gerð þáttana hér: Kennitala: 430818 2360 / Reikningur: 0133 26 014369



