X26 Sveitarstjórnarkosningar

Ritstjórn Morgunblaðsins

PólitíkSamfélagið

Umfjöllun ritstjórnar Morgunblaðsins fyrir Sveitastjórnarkosningar 2026.

X26 - Reykjavík: oddvitar berjast um borgina

X26 - Reykjavík: oddvitar berjast um borgina

15maí

Oddvitar stærstu framboðanna í Reykjavík tókust á um meirihlutamyndun, rekstur borgarinnar, samgöngur, húsnæðismál og skóla í oddvitakappræðum Morgunblaðsins og mbl.is. Mikill hiti var í oddvitakappræðum Morgunblaðsins og mbl.is þegar oddvitar sex stærstu framboðanna í Reykjavík mættust í Hádegismóum á lokametrum kosningabaráttunnar. Þar sátu fyrir svörum Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins, Björg, oddviti Viðreisnar, Ari, oddviti Miðflokksins, Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar, og Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins.

X26 - Reykjavík: Baráttuframboðin takast á

X26 - Reykjavík: Baráttuframboðin takast á

15maí

Oddvitar fimm framboða sem berjast um sæti í borgarstjórn Reykjavíkur tókust á um rekstur borgarinnar, húsnæðismál, samgöngur, leikskóla og Evrópusambandið í fyrri hluta oddvitakappræðna Morgunblaðsins og mbl.is fyrir sveitarstjórnarkosningarnar á laugardag.Þátttakendur voru Ingimar Þór Friðriksson fyrir Góðan daginn framboðið, Guðmundur Ingi Þóroddsson fyrir Flokk fólksins, Sigfús Aðalsteinsson fyrir Okkar borg, Silja Sóley Birgisdóttir fyrir Sósíalistaflokkinn og Kristinn Jón Ólafsson fyrir Pírata.

X26 - Kópavogur: Oddvitaslagur

X26 - Kópavogur: Oddvitaslagur

14maí

Fjármál Kópavogsbæjar, Kópavogsmódelið í leikskólamálum og samgöngusáttmálinn eru á meðal helstu átakapunkta í Kópavogi. Oddvitar fimm stærstu framboðanna í Kópavogi takast á í myndveri Morgunblaðsins í Hádegismóum.  Orri Vignir Hlöðversson, oddviti Framsóknarflokksins, María Ellen Steingrímsdóttir, oddviti Viðreisnar, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins, Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingarinnar, og Einar Jóhannes Guðnason, oddviti Miðflokksins takast á um stóru málin en þeir Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson stýra umræðunum.

X26 - Hafnarfjörður: oddvitaslagur

X26 - Hafnarfjörður: oddvitaslagur

13maí

Oddvitar framboðsflokkanna í Hafnarfirði mætast í myndveri Morgunblaðsins og mbl.is og fara yfir stóru málin þar í bæ. Blaðamennirnir Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson stýra umræðunum og spyrja oddvitaefnin spjörunum úr um þau málefni sem helst brenna á bæjarbúum og þeirra sýn á næsta kjörtímabil komist þeir til valda. Sex framboð bjóða fram í Hafnarfirði. Í kappræðunum mætast þau Valdimar Víðisson, bæjarstjóri og oddviti Framsóknar, Karólína Helga Símonardóttir fyrir Viðreisn, Orri Björnsson fyrir Sjálfstæðisflokk, Einar Geir Þorsteinsson fyrir Miðflokk, Guðmundur Árni Stefánsson fyrir Samfylkingu og Ester Bíbí Ásgeirsdóttir fyrir Vinstrið.

X26 - Reykjanesbær: vaxtaverkir bæjarfélagsins

X26 - Reykjanesbær: vaxtaverkir bæjarfélagsins

12maí

Oddvitar framboða í Reykjanesbæ eru sammála um að bærinn hafi vaxið of hratt á undanförnum árum. Mikill vöxtur, uppbygging innviða, húsnæðismál, atvinnuþróun, málefni hælisleitenda og framtíð Þróunarfélagsins Kadeco voru meðal helstu umræðuefna í oddvitakappræðum Morgunblaðsins og mbl.is. Í kappræðunum mættu Arnar Páll Guðmundsson fyrir Viðreisn, Guðný Birna Guðmundsdóttir fyrir Samfylkinguna, Vilhjálmur Árnason fyrir Sjálfstæðisflokkinn, Rúnar Fossadal Árnason fyrir Miðflokkinn og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir fyrir Framsóknarflokkinn. Í upphafi voru frambjóðendur spurðir hvort Reykjanesbær hefði stækkað of hratt. Allir svöruðu því játandi. Fram kom að íbúum bæjarins hefur fjölgað um 64% frá árinu 2014 og að um 35% íbúa eru af erlendum uppruna.

X26 - Árborg: oddvitar mætast

X26 - Árborg: oddvitar mætast

12maí

Oddvitar fjögurra framboða í Árborg takast á í myndveri Morgunblaðsins. Fjármál sveitarfélagsins, álögur á íbúa og fyrirtæki, uppbygging innviða, leikskólamál, atvinnuþróun og framtíð byggðanna við ströndina eru á dagskrá. Matthías Bjarnason Framsóknarflokki, Heiðrún Kristmundsdóttir frá Viðreisn, Sigurjón Vídalín Samfylkingu og bæjarstjórinn Bragi Bjarnason fyrir Sjálfstæðisflokk mætast en þær Andrea Sigurðardóttir og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir stýra umræðunum.

X26 - Eyjafjarðarsveit: Vilja tempra vöxtinn

X26 - Eyjafjarðarsveit: Vilja tempra vöxtinn

12maí

Í Eyjafjarðarsveit er mikil ásókn í lóðir og húsnæði en oddvitar beggja framboðslista í sveitarfélaginu leggja áherslu á að vöxturinn verði ekki of hraður. Þeir segja mikilvægt að innviðir fylgi íbúafjölguninni og að samfélagskenndin haldist.Sveitarfélagið er sjálfstætt, með um 1.200 íbúa, og varð til 1. janúar 1991 við sameiningu Hrafnagilshrepps, Öngulsstaðahrepps og Saurbæjarhrepps. Það nær yfir sveitirnar inn af Eyjafirði og teygir sig upp á Sprengisand. Eyjafjarðarsveit er um 1.775 ferkílómetrar að stærð og er Hrafnagilshverfið þungamiðja byggðarinnar.Í síðustu kosningum buðu tveir listar fram. F-listinn fékk 338 atkvæði og fjóra fulltrúa en K-listinn 235 atkvæði og þrjá fulltrúa. Hermann Ingi Gunnarsson, oddviti F-listans, og Guðmundur Sigurbjörn Óskarsson, oddviti K-listans, segja samvinnu meiri- og minnihluta hafa einkennt kjörtímabilið.

X26 - Garðabær: ólíkar áherslur oddvita

X26 - Garðabær: ólíkar áherslur oddvita

11maí

Skiptar skoðanir eru meðal oddvita í Garðabæ um Borgarlínu, uppbyggingu, fasteignagjöld og mögulegt samstarf eftir kosningar. Þetta kemur fram í oddvitakappræðum Morgunblaðsins og mbl.is þar sem frambjóðendur sex lista í Garðabæ tókust á um stöðu bæjarins og næstu verkefni.Í kappræðunum mættu Kjartan Atli Kjartansson fyrir Samfylkinguna, Hlynur Bæringsson fyrir Framsókn, Guðlaugur Kristmundsson fyrir Viðreisn, Almarr Guðmundsson fyrir Sjálfstæðisflokkinn, Lárus Guðmundsson fyrir Miðflokkinn og Þorbjörg Þorvaldsdóttir fyrir Garðabæjarlistann.Garðabær hefur verið eitt ört vaxandi sveitarfélag landsins á undanförnum árum og voru frambjóðendur spurðir hvort bærinn hefði vaxið of hratt. Lárus Guðmundsson svaraði því játandi en aðrir frambjóðendur töldu svo ekki vera.

X26 - Skagafjörður: Íbúafjölgun stóru áskorunina

X26 - Skagafjörður: Íbúafjölgun stóru áskorunina

11maí

Frambjóðendur fjögurra lista í Skagafirði eru sammála um að fjölgun íbúa sé eitt stærsta verkefni sveitarfélagsins á komandi kjörtímabili. Þeir greinir hins vegar á um hvernig best sé að ná því markmiði, hvernig halda eigi utan um framkvæmdir og hvort sveitarfélagið hafi farið of geyst í stór verkefni. Í Skagafirði búa tæplega 4.500 manns, flestir á Sauðárkróki, en þéttbýli er einnig á Hofsósi, Hólum í Hjaltadal og í Varmahlíð. Í kosningunum 2022 fengu Framsóknarflokkurinn þrjá fulltrúa, Sjálfstæðisflokkurinn tvo, Byggðalistinn tvo og Vinstri græn tvo. Nú leiða Einar Öðvald Einarsson B-lista Framsóknar, Magnús Bardal D-lista Sjálfstæðisflokks, Eyþór Fannar Sveinsson L-lista Byggðalistans og Högni Elvar Gylfason M-lista Miðflokksins.

X26 - Dalvík: Hitaveitan, lóðir og leikskólar stóru málin

X26 - Dalvík: Hitaveitan, lóðir og leikskólar stóru málin

9maí

Skipulagsmál, leikskólar, hitaveita og uppbygging samfélagsins eru meðal helstu umræðuefna í Dalvíkurbyggð í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna 16. maí. Fjögur framboð bjóða nú fram í sveitarfélaginu, í fyrsta sinn í langan tíma. Síðast buðu þrír listar fram. K-listi Dalvíkurbyggðar fékk þá þrjá fulltrúa, D-listi Sjálfstæðisflokks og óháðra tvo og B-listi Framsóknar og félagshyggjufólks tvo. K-listi og D-listi hafa myndað meirihluta á kjörtímabilinu. Nú bætist A-listi Byggðalistans við, undir forystu Barkar Þórs Ottóssonar. Helgi Einarsson leiðir K-listann, Benedikt Snær Magnússon D-lista Sjálfstæðisflokks og Monika Margrét Stefánsdóttir B-lista Framsóknarflokks.

Þér gæti líka líkað...