Í Skuggavaldinu ræða prófessorarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir saman um hvaðeina er viðkemur samsæriskenningum. Samfara örum samfélagsbreytingum hefur samsæriskenningum hratt vaxið fiskur um hrygg, svo sem í kjölfar Brexit, stjórnartíðar Donalds Trump og COVID-faraldursins. Samsæriskenningar eru þó ekki nýjar af nálinni, heldur hafa þær fylgt manninum frá öndverðu og nærast á þörf til að greina hulið skipulag í óreiðu. Framleitt af Tal.

#39 - Loftárás, listaverkarán og sprengjugerð á tímum átakanna á Norður-Írlandi: Ótrúleg saga hefðarmærinnar Rose Dugdale, seinni hluti
Hvernig knúði kúgun Breta á Norður-Írlandi enska yfirstéttarkonu til þess að leggja frá sér tebollann og stökkva ofan í skotgrafir ÍRA? Í þessum síðari þætti af tveimur um Rose Dugdale ræða Eiríkur og Hulda um aðgerðirnar sem fleyttu Rose í fremstu víglínu átakanna. Við fylgjumst með henni ræna þyrlu til að gera loftárás á lögreglustöð, skipuleggja stærsta listaverkarán Írlandssögunnar til að knýja fram pólitískar kröfur og hanna mannskæð vopn á borð við hina furðulegu en banvænu „Kex-vörpu“. Um leið er varpað ljósi á The Troubles, hin blóðugu og mannskæðu átök sem skóku Norður-Írland og Bretlandseyjar á síðustu öld. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghúsog veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á skuggavaldid@gmail.com

#38 - Frá höllum drottningar til skotgrafa ÍRA: Ótrúleg saga hefðarmærinnar Rose Dugdale, fyrri hluti
Hvað fær enska hefðarmey til að snúa baki við uppruna sínum og gerast skæruliði ÍRA? Rose Dugdale ólst upp í bresku yfirstéttinni, en andúð á stéttakerfinu og arðráni nýlendustefnunnar dró hana inn í blóðug átök á Norður-Írlandi. Eftir hrylling Blóðuga sunnudagsins árið 1972 rauf hún öll tengsl við fjölskyldu sína og valdi vopnaða byltingu. Í þessum fyrri þætti rekja Eiríkur og Hulda ótrúlega sögu yfirstéttarstúlkunnar sem gerðist hryðjuverkamaður, og varpa um leið ljósi á hin mannskæðu átök á Norður-Írlandi á síðustu öld sem þekkt eru sem The Troubles. Skuggavaldið er í samstarfi við, bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á skuggavaldid@gmail.com

#37 - Sölumaður óttans: Alex Jones
Hvernig fór Alex Jones að því að græða milljarða á samsæriskenningum? Í þessum þætti Skuggavaldsins rekja Hulda og Eiríkur þróun upplýsingahernaðar í samtímanum og rýna í feril sölumanns óttans“ sem vopnavæddi upplýsingaóreiðu og ruddi brautina fyrir nýja tegund popúlismans. Við skoðum „viðskiptamódel óttans“ þar sem bætiefni og neyðarbúnaður eru seld sem vörn gegn samsærum ríkisins, og ræðum Sandy Hook-harmleikinn þar sem siðlaust leikhús mætti raunverulegum sársauka og sögulegum skaðabótakröfum. Fjallað er um hlutverk Jones sem „ísbrjóts“ fyrir jaðarhugmyndir sem rata inn í almannarýmið og hvort kakkalakki upplýsingahernaðarins sé í raun fallinn eða einfaldlega mættur á nýjan vettvang. Skuggavaldið er í samstarfi við , bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veitingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á skuggavaldid@gmail.com

#36 - Rothschild-goðsögnin – stóra skrímslið í huga samsæriskenningasmiða
Ætlar Rothschild-ættin að sölsa allan heiminn undir sig? Í þessum síðari þætti af tveimur um hina frægu Rothschild-fjölskyldu skoða Eiríkur og Hulda hvernig ættin varð að holdgervingi hins illa og talin stjórna bandaríska seðlabankanum, sitja á toppi Illuminati-píramídans og stýra hinni Nýju heimsskipan. Undanfarin ár hafa sögurnar orðið enn fáránlegri og ættin hefur verið sökuð um að eiga einkaleyfi á Covid-19 og stjórna skógareldum með geimleiserum. Þá er blákaldur veruleikinn sá að þessi gamla evrópska bankaætt á ekki roð í risa á borð við BlackRock og Elon Musk. Skuggavaldið er í samstarfi við Öskju, Borg brugghús og veiðibúðina Vesturröst. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á skuggavaldid@gmail.com

#35 - Rothschild-fjölskyldan — raunveruleikinn á bak við goðsögnina
Stýrir Rothschild-fjölskyldan seðlabönkum og styrjöldum? Eiríkur og Hulda ræða eitt stærsta nafnið í heimi samsæriskenninga: Rothschild-ættina. Sögur segja að fjölskyldan eigi helming auðæfa jarðar og fjármagni báðar hliðar í styrjöldum. En hver er raunveruleikinn? Í þessum þætti ferðumst við aftur til ársins 1760, skoðum hvernig ættin breiddi úr sér í fjármálalífi Evrópu og kryfjum hina lífseigu mýtu um orrustuna við Waterloo. Í þessum fyrri þætti af tveimur er kafað ofan í hina raunverulegu sögu fjölskyldunnar, en goðsagnirnar og samsæriskenningarnar verða teknar fyrir í þeim næsta. Skuggavaldið er í samstarfi við Borg brugghús og veiðibúðina Vesturröst. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á skuggavaldid@gmail.com

#34 - Leyndardómar flugvallarins í Denver
Er heil hulduborg undir Denver-flugvelli, einskonar dómsdagsbyrgi, sem hýsa mun heimselítuna á efsta degi? Eiríkur og Hulda fjalla um hlaðborð samsæriskenninga tengdar flugvallarbyggingunni og hvernig stjórnendur hans sneru vörn í sókn og nýttu brjálæðislegar sögusagnirnar sér til framdráttar í stað þess að þagga niður í þeim. Sagt er frá því hvernig byggingaskilti um „felustað eðlufólksins“ og talandi ufsagrýlur urðu svar við þrálátum orðrómi um dómsdagsbyrgi og leynigöng. Einnig er kafað ofan í jarðveginn sem þessar sögur spruttu úr: Allt frá stjarnfræðilegri framúrkeyrslu og biluðu farangurskerfi til bláa hestsins „Blucifer“ og apokalyptískra veggmynda sem sumir þykja boða nýja heimsskipan.

#33 - Havana-heilkennið, seinni þáttur
Var háleynilegu hljóðvopni beitt gegn útsendurum Bandaríkjastjórnar á Kúbu? Í síðari þætti Skuggavaldsins um Havana-heilkennið rekjum við hvernig dularfull veikindi fóru að greinast um allan heim. Hulda og Eiríkur rýna í kenningar um örbylgjuárásir og rússnesk leynivopn sem standast illa skoðun, en skoðum líka hljóðvopn sem reyndust stundum vera tístandi krybbur. Gæti skýringin verið geðræn hópsýkingu þar sem streita og óvissa framkalla raunverulegan sársauka? Rýnt er í frásögn fórnarlamba sem hafa misst heilsu og starf sitt og nýjar skýrslur sem draga árásar-kenninguna í efa og hvernig klaufaleg viðbrögð stjórnkerfisins urðu að frjósömum jarðvegi fyrir samsæriskenningar. Skuggavaldið er í samstarfi við veiðibúðina Vesturröst. Ábendingar sendist á skuggavaldid@gmail.com

#32 - Havana heilkennið – fyrri þáttur
Beittu stjórnvöld á Kúbu, eða jafnvel í Rússlandi, leynilegu hátæknivopni til að slá bandaríska sendimenn í Havana út af laginu? Óútskýrð veikindi bandarískra diplómata seint á árinu 2016 urðu upphaf að einni undarlegustu og umdeildustu pólitísku ráðgátu samtímans. Eiríkur og Hulda rekja hér sögu hins svokallaða Havana-heilkennis í sögulegu, pólitísku og sálfræðilegu samhengi allt frá byltingu Castros og áratugalangri tortryggni, í gegnum varfærna þíðuna í tíð Obama, og til hins snögglega afturhvarfs þegar Trump tók við völdum.

#31 - Er jólasveinninn til?
Er sagan um jólasveininn eitt útbreiddasta samsæri mannkynssögunnar? Eða er samsæriskenningin kannski sú að afneita tilvist hans? Í þessum sérstaka jólaþætti Skuggavaldsins rekja Eiríkur og Hulda sögu jólasveinsins frá leyndardómsfullu ráni á beinum heilags Nikulásar til mótunar hinnar bandarísku Santa Claus-ímyndar. Sérstök athygli er veitt íslensku jólasveinunum, sem gætu allt eins verið álitnir skipulagður glæpahringur þar sem hver sveinn gegnir sérhæfðu hlutverki í markvissum matarránsferðum undir stjórn Grýlu. Við veltum fyrir okkur sálfræðinni á bak við „stóru lygina“ – ef hún er þá lygi – og spyrjum hvort við höfum vanmetið getu fullorðinna til að sammælast um blekkingu, en þátturinn tekur óvænta stefnu þegar sjálfur Gáttaþefur ryðst inn í stúdíóið til að verja heiður sinn. Skuggavaldið er í samstarfi við Vesturröst og Plöntuna kaffihús og bístró Sendið okkur ábendingar á skuggavaldid@gmail.com

#30 - Hver felldi tvíburaturnana? — árásirnar 11. september 2001, síðari hluti
Vissi Bandaríkjastjórn af árásunum 11. september og lét þær gerast – eða átti jafnvel sjálf hlut að máli? Í seinni þætti Skuggavaldsins um hryðjuverkin rýna Hulda og Eiríkur í lífseigar kenningar um aðkomu innlendra aðila, pólitíska eftirmála og mistök bandaríska kerfisins, auk hins umdeilda Sádi-Arabíu-vinkils. Þau fara yfir ný gögn, málaferli aðstandenda og hvernig óvissa og vantraust urðu frjósamur jarðvegur fyrir langlífar samsæriskenningar. Skuggavaldið er í samtarfi við veiðibúðina Vesturröst og Plöntuna kaffihús og bístró. Ábendingar sendist í skuggavaldid@gmail.com
