Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál. Netfang: samfelagid@ruv.is
Sálfæði snúbúa og þvottahús spítalanna
Í þessum síðasta þætti Samfélagsins veltum við fyrir okkur snúbúum – einstaklingum sem flytja til útlanda og snúa svo aftur. Karítas Hrundar Pálsdóttir, doktor í ritlist, hefur rannsakað snúbúa og svokallaðar snúbúabókmenntir. Hún kafar ofan í sálfræði snúbúa og birtingarmyndir þeirra í bókmenntum og ætlar að setjast hjá okkur í upphafi þáttar til að ræða þennan áhugaverða hóp. Svo ætlum við að rifja upp einn eftirminnilegasta þátt Samfélagsins í nærmynd frá árinu 2010 þegar Leifur Hauksson og Hrafnhildur Halldórsdóttir heimsóttu þvottahús spítalanna á Tunguhálsi. Tónlist úr þættinum: Ásgeir Trausti Einarsson - Stranger.
Reykjavík Grapevine, Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis og May Morris
Rekstur dagblaðsins Reykjavík Grapevine er í járnum. Dagblaðið, sem kemur út á ensku, einu sinni til tvisvar í mánuði og hefur gert frá árinu 2003, hefur neyðst til að segja upp þremur blaðamönnum, en biðlar nú til almennings að halda því á lífi. Jón Trausti Sigurðarson, útgefandi, settist niður með okkur og fór yfir reksturinn, söguna og stöðu íslenskrar fjölmiðlaflóru. Við förum líka í heimsókn í nýtt húsnæði Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis. Þar tók á móti okkur Eva Björg Óskarsdóttir, verkefnastjóri hjá félaginu og sagði frá starfseminni. Í lok þáttar rifjum við upp ársgamalt viðtal við Brynjar Karl Óttarsson, sögukennara við Menntaskólann á Akureyri. Hann var þá búinn að rannsaka gamlar bækur og skjöl bæði í kjallara Amtsbókasafnsin á Akureyri og í hirslum Menntaskólans - og þessa yfirlega skilaði nokkrum forvitnilegum uppgötvunum sem tengjast sögu ensku merkiskonunnar May Morris. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir og Fanney Birna Jónsdóttir.
Barnaverndarkerfið og ferðaþjónusta í Grænlandi
Barnaverndarkerfið hefur verið mikið til umræðu. Tómas Hrafn Sveinsson formaður umdæmisráðs barnaverndar Reykjavíkur ræddi við Fanneyju Birnu Jónsdóttur um stöðu barnaverndar í dag, uppbyggingu og gang kerfisins og feril málanna sem koma inn á borð barnaverndarnefnda. Og síðan ætlum við að fræðast aðeins um ferðaþjónustu í Grænlandi, eins og hún blasti við árið 2021. Við endurflytjum viðtal sem Þórhildur Ólafsdóttir tók hér í Samfélaginu við Hjört Smárason, sem var þá forstjóri Visit Greenland: um ferðaþjónustu og uppbyggingu hennar og lærdóminn sem Grænlendingar ætluðu að draga af íslensku ferðamannasprengingunni.
Gervigreind forritar gervigreind, virk efri ár og vetrarklippingar
Við byrjum þáttinn á gervigreindinni. Eyrún Magnúsdóttir gervigreindarfréttaritari Samfélagsins ætlar að kíkja til okkar og segja okkur frá því sem ber hæst í gervigreindarumræðunni þessa dagana. Í dag segir hún okkur frá meintum tímamótum í þróun gervigreindar, þegar gervigreindin byrjaði að forrita sjálfa sig – og hvaða áhrif það gæti haft á daglegt líf fólks sem tengist gervigreind ekki neitt. Þá fáum við að kynnast verkefninu "Virk efri ár" á Akureyri sem er verkefni sem er ætlað íbúum Akureyrarbæjar sem eru 60 ára og eldri. Gígja Hólmgeirsdóttir ræddi við Héðin Svarfdal, verkefnastjóra lýðheilsumála hjá Akureyrarbæ. Svo ætlum við að rifja upp garðyrkjupistil frá árinu 2011 þar sem rætt var um vetrarklippingar á trjám. Tónlist úr þættinum: PAUL SIMON - 50 Ways To Leave Your Lover. Rae, Corinne Bailey - He Will Follow You With His Eyes (Radio Edit) (bonus track wav). Teitur Magnússon - Kamelgult.
Ávaxtaflugur, grænlenskur atvinnurekstur og kaffinördismi
Í byrjun þáttar fáum við til okkar Valgerði Jakobínu Hjaltalín, nýdoktor við Háskóla Íslands, til að fræða okkur um ávaxtaflugur. Svo heimsækjum við Christian Keldsen, framkvæmdarstjóra Sulisitsisut, félag atvinnurekenda í Grænlandi. Og að lokum rifjum við upp heimsókn okkar á kaffinördakaffihús á Akureyri sem farin var í október 2024. Tónlist úr þættinum: Canadian Brass - The flight of the bumblebee. Baker, Julien - A Dreamer's Holiday BIG THIEF - Mythological Beauty. DUSTY SPRINGFIELD - Spooky.
Bitcoin á niðurleið, listnám háskólastigi á Akureyri og fiskiflugan
Verð á rafmyntinni Bitcoin hefur sveiflast duglega niður á við síðustu mánuði. Í síðustu viku rifjuðum við upp samtal sem við áttum fyrir nokkrum árum við hagfræðinginn Björgvin Inga Ólafsson um rafmyntina, sem þá hafði risið mjög hátt. Nú er þessu öfugt farið og ætlum við að ræða aftur við Björgvin um ástæður þessarar niðursveiflu, traust á rafmyntum og um breytingar á notkun Bitcoin yfirleitt. Á Akureyri hefur lengi verið rætt um möguleika þess að bjóða uppá listnám á háskólastigi í bænum. Lítið hefur gerst í þeim efnum, þar til nú. Nú hafa Listaháskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri hafið samstarf og bráðlega verðuð boðið upp á námskeið í listum í háskólanum fyrir norðan. Gígja Hólmgeirsdóttir leit við á opnum kynningarfundi og forvitnaðist um verkefnið. Að endingu rifjum við upp úr Samfélaginu í nærmynd svokallað meindýrahorn sem var dagskrárliður í þættinum um skeið. Guðmundur Óli Scheving mætti til að ræða um fiskifluguna sem hér á landi má finna í fjórum mismunandi tegundum.
Afleiðingar ofbeldis í æsku, Grænland árið 1976 og Bitcoin sveiflur
Rætt við þær Bryndísi Björk Ásgeirsdóttur, prófessor í sálfræði við Háskólann í Reykjavík og Þóru Sigfríði Einarsdóttur, sérfræðingur í klínískri barnasálfræði með áfallasálfræði sem undirgrein, um áföll og ofbeldi sem börn verða fyrir í æsku sem og þau úrræði sem bæði börn og fullorðnir sem verða fyrir slíku geta leitað í. Þá lítum við um öxl og flytjum brot úr áhugaverðum þáttum frá 1976 sem fjölluðum um Grænland. Og í lok þáttar var rifjað upp viðtal við Björgvin Inga Ólafsson hagfræðing frá árinu 2021 um Bitcoin sem þá var í hæstu hæðum. Staðan hefur breyst umtalsvert núna en rafmyntin hefur fallið verulega í verði síðustu mánuði.
Eyðibyggðir, dagur í lífi stelpu í 9. bekk og Grænland árið 1976
Fræðimenn á ýmsum fræðasviðum Háskóla Íslands vinna nú að umfangsmikilli rannsókn sem ber heitið Eyðibyggðir miðalda á Íslandi. Þar mætast sagnfræðin og fornleifafræðin meðal annars og varpa nýju ljósi á hvernig samfélag og byggð þróuðust á Íslandi á tímabilinu 1100-1400 (ellefu hundruð og fjórtánhunduð). Árni Daníel Júlíusson rannsóknarsérfræðingur við Sagnfræðistofnun háskólans ræðir við Fanneyju Birnu Jónsdóttur og leiðir okkur í allan sannleika um þessa yfirgripsmiklu rannsókn og hvernig ólíkum aðferðafræðingum tekst að vinna saman og komast að niðurstöðum. Við ætlum að heyra um dag í lífi stelpu í 9. bekk. Karólína Orradóttir er Akureyringur sem ætlar að lýsa fyrir okkur hefðbundnum degi hjá sér, en hún er námsmaður, félagsmálatröll, tónlistarnemi og ansi upptekin. Gígja Hólmgeirsdóttir talaði við Karólínu fyrir norðan. Og í lok þáttar ætlum við að líta um öxl og flytja brot úr áhugaverðum þáttum frá 1976 sem fjölluðum um Grænland. Tónlist úr þættinum: Nick Drake - Pink moon. Sume - Upernaaq
Almyrkvi á sólu, gervigreind í Davos og dagskrárbreytingar á Rás 1
Almyrkvi á sólu verður sjáanlegur frá Íslandi þann tólfta ágúst. Það er í fyrsta sinn síðan 1954 sem hægt verður að sjá almyrkva hér á Íslandi. Hann mun sjást á vestasta hluta landsins, og má búast við að fólk flykkist að til að verða vitni af þessum atburði. Við sláum á þráðinn vestur á Snæfellsnes þar sem Ragnhildur Sigurðardóttir þjóðgarðsvörður í Snæfellsjökulsþjóðgarði ætlar að segja okkur af undirbúningi þar. Eyrún Magnúsdóttir, gervigreindarfréttaritari Samfélagsins kemur til okkar um miðbik þáttar. Alþjóðaefnahagsráðstefnan í Davos er nýafstaðin, en þar var mikið rætt um gervigreind. Eyrún segir okkur undan og ofan af því. Nú hyllir í breytingar hér í Samfélaginu, en dagskrárbreytingar verða á Rás1um mánaðamótin. Af því tilefni ætlum við að skyggnast til baka og hlusta á brot úr fyrstu þáttum Samfélagsins. Fanney Birna Jónsdóttir dagskrárstjóri Rásar 1 og Anna Marsibil Clausen ritstjóri hlaðvarpa ætla síðan að segja okkur af því sem framundan er. En fyrst er það almyrkvi á sólu. Umsjón: Elsa María Guðlaugs Drífudóttir Tónlist í þættinum: Bogomil font og fleiri - Gæfunnar par. Teitur Magnússon - Sumargestur.
Vinnumansal, bráðnun jökla og umhverfismál
Þrældómur nútímans er yfirskrift málþings sem ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty International heldur í næstu viku. fjallað verður um hvernig vinnumansal birtist okkur á Íslandi og á heimsvísu. Við fáum Árna Kristjánsson Ungliða- og aðgerðastjóra og Heiðrúnu Völu Hilmarsdóttur ungliða til okkar í upphafi þáttar. Síðasta jökulár 2024 til 25 fór illa með jöklana okkar. Þeir rýrnuðu um fimmtán milljarða tonna og virðist sem nú herði á bráðnun þeirra. Þetta kemur fram í nýrri samantekt sem Andri Gunnarsson verkefnisstjóri hjá Landsvirkjun og Þorsteinn Þorsteinsson, sérfræðingur á sviði jöklarannsókna hjá Veðurstofu Íslands ætla að segja okkur frá um miðbið þáttar. Stefán Gíslason umhverfisstjórnunarfræðingur hefur verið fastagestur í Samfélaginu um árabil, undanfarin ár höfum við spilað lesna pistla aðra hverja viku, en í dag kemur hann í eigin persónu og við ætlum að líta yfir farinn veg. Umsjón: Elsa María Guðlaugs Drífudóttir Tónlist í þættinum: Sugarcubes - Birthday. Laufey - Bewitched. Svavar Pétur Eysteinsson, Prins Póló - Gítarjukk í B dúr.

