Raunheimakastið (áður Kvíðakynslóðin)

Anna Laufey Stefánsdóttir og Kristín Sævarsdóttir

HeilsaAndleg málefniBörnin

ATH! Kvíðakynslóðin hlaðvarp var að breyta um nafn og heitir núna Raunheimakastið! Raunheimakastið mun beina sjónum sínum að tveimur meginþemum: áhrifum skjánotkunar á börn og unglinga, og mikilvægi hinna “þriðju staða” í samfélaginu. Þáttastjórnendur eru Anna Laufey tölvunarfræðingur og Kristín mannfræðingur og kynjafræðingur. Þær eru báðar mæður sem hafa fundið mikið fyrir áhrifum skjánotkunar og vöntun á sjálfstæði barna.

#24 Hvað segir unga fólkið? - Trausti Magnússon

#24 Hvað segir unga fólkið? - Trausti Magnússon

15jún

Í þessum þætti ræðum við við Trausta Magnússon, 17 ára nemanda við Verslunarskóla Íslands. Hann varpar ljósi á það hvernig er að vera nemandi í "ipadda-væddum" grunnskóla og hefur frá ýmsu að segja.

#23 Hvernig byggjum við skothelt samband? Theódór Francis

#23 Hvernig byggjum við skothelt samband? Theódór Francis

2jún

Theódór Francis frá Lausninni kemur til okkar og ræðir lífið, ástina, stjúptengsl og hvernig við byggjum upp skothelt samband.

#22 Við þurfum að byggja upp sterka stráka - Bjarni Fritzson

#22 Við þurfum að byggja upp sterka stráka - Bjarni Fritzson

15maí

Bjarni Fritzson er rithöfundur, þjálfari og námskeiðahaldari sem brennur fyrir velferð barna og ungmenna. Hann er höfundur fjölda bóka eins og Orra Óstöðvandi, Öflugir strákar og Tölvuheimurinn. Hann er núna í framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn í borgarstjórnarkosningum í Reykjavík. Í þessum þætti ræðum við um hvernig við getum byggt upp sterka stráka, skaðleg áhrif samfélagsmiðla, símafrí í skólum og hvers vegna Bjarni ákvað að fara í pólitík. Þátturinn er í boði: Balance Phone: https://balancephone.is/ Stafræn velferð: https://www.stafraenvelferd.is/ Joybox.is: https://joybox.is/

#21 iPadar í skólum - Bergþóra Þórhallsdóttir

#21 iPadar í skólum - Bergþóra Þórhallsdóttir

4maí

Í þessum þætti ræðum við við Bergþóru Þórhallsdóttur, verkefnastjóra hjá menntasviði Kópavogsbæjar. Við förum í gegnum innleiðingu spjaldtölva í grunnskólum, hvernig stafræn borgarvitund er kennd, gervigreind í námi og samvinnu heimilis og skóla. Þátturinn er í boði: Balance Phone - https://balancephone.is/ Stafræn velferð - https://www.stafraenvelferd.is/ JoyBox.is - https://joybox.is/

#20 Símabönn bara virka - Kristján Ketill Stefánsson

#20 Símabönn bara virka - Kristján Ketill Stefánsson

18apr

Nýtt nafn! Nýtt logo! Frábær gestur! Í þessum þætti fengum við til okkar Kristján Ketil - Dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hvað segja gögnin okkur um tengsl snjalltækja við líðan og námsárangur barna og ungmenna? Við tölum um spjaldtölvur í skólum, símabönn, gagnreyndar námsaðferðir og menntatækni. Þátturinn er í boði: Balance Phone Stafræn velferð JoyBox.is

#19 - Skemmtilegra að heimsækja skóla sem eru símalausir - Þorgrímur Þráinsson

#19 - Skemmtilegra að heimsækja skóla sem eru símalausir - Þorgrímur Þráinsson

4mar

Þorgrímur Þráinsson rithöfundur og fyrirlesari kom í þáttinn til að ræða unglinga, lestur og snjalltæki. Hann ferðast um landið og heldur fyrirlestra fyrir 10. bekkinga um það hvernig maður getur orðið ástfanginn af lífinu.

#18 Þurfa börn snjallsíma?!

#18 Þurfa börn snjallsíma?!

25feb

Í þættinum fáum við til okkar engan annan en Gunnar Helgason rithöfund og ræðum það hvort börn og ungmenni þurfi í alvörunni snjallsíma?

#17 Endurkoman: Nýjustu fréttir í samfélaginu og í heiminum

#17 Endurkoman: Nýjustu fréttir í samfélaginu og í heiminum

8feb

Í þessum þætti fjöllum við um hvað hefur gerst í samfélaginu og í heiminum í þessum efnum síðan við byrjuðum með hlaðvarpið.

#16 - Tilfinningasnuðið. Ragga Nagli.

#16 - Tilfinningasnuðið. Ragga Nagli.

9mar2025

Í þessum þætti fáum við til okkar enga aðra en Röggu Nagla. Við spjöllum um vítahringinn sem rústar svefninum okkar, einmanaleikann, gervidópamínið og þau vellíðunarhormón sem við gætum verið að fara á mis við.

#15 Hvað geta foreldrar gert? - Kristín Ólöf Grétarsdóttir

#15 Hvað geta foreldrar gert? - Kristín Ólöf Grétarsdóttir

1mar2025

Hvaða áhrif geta foreldrar haft á skólaumhverfi barna? Hvernig getum við gert alla skóla landsins snjallsímalausa? Kristín Ólöf Grétarsdóttir er foreldri tveggja drengja á grunnskólaaldri. Hún var formaður Foreldrafélags Áslandsskóla í sjö ár, situr í foreldraráði Hafnarfjarðar, er í stjórn Heimilis og skóla, og er menntaður kennari. Hún brennur fyrir að beina athygli að skjánotkun barna, því hún vill að skólar séu símalausir og hætti vanhugsaðri skjánotkun á skólatíma. Einnig situr hún í starfshóp á vegum menntamálaráðuneytisins um mótun leiðbeininga um viðeigandi og örugga farsímanotkun í grunnskólum

Þér gæti líka líkað...