Anna Gyða Sigurgísladóttir ræðir við fólk um einstakar hugmyndir sem mótað hafa skilning okkar á heiminum. Trú, heimspeki og vísindi eru efst á baugi, og kann fortíð og samtíð að vera skeytt saman með hjálp hnýsilegs arkífs ríkisútvarpsins.

Mölturiddarar

Mölturiddarar

18maí

„Þetta er elsta riddararegla í heimi,“ segir Hreinn Líndal, einn íslensku Mölturiddaranna en þeir eru átta talsins, sjö karlmenn og ein kona. Þau tilheyra hinni kaþólsku Möltureglu, sem er frábrugðin flestum öðrum kaþólskum trúarreglum að því leyti að hún er alþjóðlegur lögaðili, gefur út sín eigin vegabréf, frímerki, númeraplötur og mynt. Möltureglan er með sendiráð í 115 ríkjum, sendiherra hjá Evrópusambandinu og áheyrnarfulltrúa í Sameinuðu þjóðunum. Það er gjarnan talað um hana sem hálffullvalda þjóðréttaraðila enda ríki án íbúa og eiginlegs landsvæðis. Í þættinum er fræðst um Mölturiddarana, sem og athyglisverðan feril Hreins. Hann er óperusöngvari, rak um sinn tískuhúsið H. Líndal og sá um að klæða Vigdísi Finnbogadóttur fyrstu árin hennar í forsetaembætti í samstarfi við ítalska tískurisa eins og Valentino. Við sögu kemur Ronald Reagan, dýrlingurinn Padre Pio, mannúðaraðstoð, kraftaverkin í Lourdes, systur Trumps, Mary Higgins Clark og ýmislegt fleira.

Íslenskar nunnur III.

Íslenskar nunnur III.

11maí

Áfram er fjallað um þær íslensku konur sem gerðust kaþólskar nunnur á síðustu öld. Þáttastjórnanda bárust forvitnilegar ábendingar um systur Stanislaus (f. Guðrún Una Gísladóttir, 1912-1956). Líf hennar er því til skoðunar í þætti dagsins. „Sumir segja að hún hafi verið dálítið þung á bárunni, erfið í viðkynningu, jafnvel skapstór,“ segir í sögu Jósefssystra eftir Ólaf H. Torfason. Rætt er við þrjár konur sem þekktu systur Stanislaus. Allrahanda minningar skjóta upp kollinum sem og svör við stórum spurningum, eins og: Hvers vegna gekk hún í klaustur? Við sögu kemur húsbruni, sígarettukarton, látinn unnusti, Gauksstaðir, Jósefína á Nauthóli, köld egg, líkkistur sem liggja þétt í Landakotskirkjugarði og ýmislegt fleira. Viðmælendur: Guðrún Jóna Sigurjónsdóttir, Unnur Þorsteinsdóttir og Hjördís Sveina Sigurgeirsdóttir.

Íslenskar nunnur II.

Íslenskar nunnur II.

27apr

Seinni þáttur um íslenskar nunnur eftir siðaskipti. Clementia yngri (Svanlaug Guðmundsdóttir) var kennari við Landakotsskóla í 35 ár, vann náið með séra Georg og Margréti Müller og Riftún, sumarbúðir kaþólsku kirkjunnar, voru sérstakt hugðarefni hennar. „Þegar þú ert í kristinfræði þá er verið að tala um þetta góða og þetta fallega. Mér fannst hún akkúrat vera þetta fallega, af því ég var auðvitað í skólanum og það var misjafnt hvernig það var,“ segir Ása Ásgrímsdóttir um Clementiu. Ása er fyrrum nemandi hennar og ein þeirra sem á erfiða reynslu að baki. Klæðaburður nunna, vistaverur Jósefssystra, samspil miðilsgáfu og kristinnar trúar, gamlar hljóðupptökur, og Landakotsskóla-málið er meðal þess sem kemur við sögu í þættinum. Rætt er við skyldmenni systur Clementiu, þær Zítu Benediktsdóttur og Sigríði (Sirrý) Sigurðardóttur, og Ásu Ásgrímsdóttur, sem var nemandi í Landakotsskóla.

Íslenskar nunnur I.

Íslenskar nunnur I.

20apr

Frá siðaskiptum hafa fjórar íslenskar konur gerst kaþólskar nunnur. „Fleiri íslenskar stúlkur íhuguðu klausturlífið en höfðu ekki þá trúarlegu hugsjón eða köllun sem klausturvistin krefst,“ segir í endurminningum Sigurveigar Guðmundsdóttur sem hugsaði um að gerast nunna en hætti við vegna heilsubrests. Í þættinum er sagt frá Steinunni Björnsdóttur (Systur Mary Hildu), Halldóru Marteinsdóttur (Systur Jóhönnu af Krossi), Guðrúnu Unu Sigurveigu Gísladóttur (Systur Stanislaus) og Svanlaugu Guðmundsdóttur (Systur Clementiu yngri). Ættfræðigrúsk, Guðrún Ósvífursdóttir, Hildur nunna á Hólum í Hjaltadal á 12. öld, ískyggilegar minningargreinar, eftirminnilegt Volkswagen rúgbrauð, rúlluskautar, grallarahegðun og ýmislegt fleira kemur við sögu í fyrri þættinum af tveimur um líf þeirra íslensku kvenna sem hafa gengið í klaustur frá því að kaþólskt trúboð hófst á ný hérlendis. Rætt er við skyldmenni systur Clementiu yngri. Sigríður (Sirrý) Sigurðardóttir og Zíta Benediktsdóttir eru bræðradætur hennar, rætt er við þær í þætti dagsins ásamt Hilmari Hjartarsyni eiginmanni Sirrýjar. Guðfinna Ragnarsdóttir ættfræðingur segir einnig frá.

Þér gæti líka líkað...