Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. netfang: mannlegi@ruv.is Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
32. Valdimar fer yfir efni vetrarins
Valdimar Þór Svavarsson kom í Mannlega þáttinn í dag í þetta sinn á miðvikudegi, því mannlegu samskiptin eru svo áhugaverð að tala um við hann að það kom ekki til greina að missa hann út þessa vikuna þó að það sé ekki þáttur á morgun, Sumardaginn fyrsta. Ekki nóg með það heldur er þetta næst síðasta skipti sem hann kemur til okkar í bili, því stiklaði hann á stóru í dag og rifjaði upp það sem hann hefur verið að fræða okkur um mannleg samskipti í vetur.
Ónæmisgallar, upprifjun í mannlegum samskiptum og býflugur í vísindaspjallinu
Þessa vikuna er vitunarvakning hjá Lind, félagi fólks með ónæmisgalla. En markmið félagsins er að stuðla að öflugum forvörnum, greiningu og meðferð meðfæddra ónæmisgalla. Hrefna Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur á ónæmisdeild Landspítalans kom í hljóðver og Guðrún Jóna Hreggviðsdóttir var á línunni frá Ítalíu, en sonur hennar fæddist með ónæmisgalla. Hún deildi með okkur þeirra sögu og Hrefna fræddi okkur um ónæmisgalla, vitundarvakningavikuna og félagið Lind. Svo kom Valdimar Þór Svavarsson til okkar, í þetta sinn á miðvikudegi, því mannlegu samskiptin eru svo áhugaverð að tala um við hann að það kom ekki til greina að missa hann út þessa vikuna þó að það sé ekki þáttur á morgun, Sumardaginn fyrsta. Ekki nóg með það heldur er þetta næst síðasta skipti sem hann kemur til okkar í bili, því stiklaði hann á stóru í dag og rifjaði upp það sem hann hefur verið að fræða okkur um mannleg samskipti í vetur. Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur. Í dag sagði hún okkur frá ákveðnu afbrigði af býflugum sem eru þrautseigari gegn sníkjudýrum og sýklum og gætu því verið með lausnina til að bjarga býflugnastofninum sem hefur verið í hnignun. Tónlist í þættinum í dag: Sveitin mín / Haukur Morthens (Jóhann Helgason) Here Comes the Sun / The Beatles (George Harrison) Okkar ástarvor / Björgvin Halldórsson og Sigurjón Brink (erlent lag, texti Friðrik Erlingsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Græn samskipti, Græna gangan og Auður Bjarnadóttir á heilsuvaktinni
Græn, gul og rauð samskipti og samspil við taugakerfið er nokkuð sem við skoðuðum í þættinum í dag. Hvernig streita hefur áhrif á öll samskipti og hvernig við skynjum okkur sjálf og aðra ólíkt eftir því hvort við erum í jafnvægi eða í streitu. Gyða Dröfn Tryggvadóttir kom í þáttinn, en hún er með meistaragráðu í stjórnun heilbrigðisþjónustu og lýðheilsu frá Háskólanum í Reykjavík og hefur einnig lokið námi í uppeldis- og áfallafræðumn Piu Mellody. Talandi um græn samskipti, þá töluðum við um Grænu gönguna sem fer fram á fimmtudaginn á Sumardaginn fyrsta. Og ekki nóg með það, heldur verður hátíðarsamkoma í lok göngunna í Hljómskálagarðinum, svo er það svokallaður Grænn pallur, þar sem frambjóðendur í sveitastjórnarkosningunum framundan munu ræða grænu málin og svo er það hápunkturinn, tónlistarveislan Hálendishátíð í Iðnó þar sem þekkt tónlistarfólk leggur náttúrunni lið með sinni tónlist. Björg Eva Erlendsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar og Snæbjörn Guðmundsson jarðfræðingur og formaður Náttúrugriða komu í þáttinn og sögðu okkur betur frá þessu. Að lokum var það Heilsuvaktin. Að þessu sinni talaði Helga Arnardóttir við Auði Bjarnadóttur dansara, leikstjóra og jógakennara sem hefur kennt jóga í tæp 30 ár og verið ein af frumkvöðlum á sviði meðgöngujóga sem hefur verið afar vinsælt. Auður hefur líka kennt hundruðum kvenna að verða jógakennarar undanfarna tvo áratugi. Hún segir þær ekkert endilega allar verða kennarar en námið nýtist þeim í að ná tökum á streitu, jafnvel kulnun og hreinlega jafnvægi í lífinu. Tónlist í þættinum í dag: Í grænum mó / Ellý Vilhjálms og Hljómsveit Svavars Gests (Sigfús Halldórsson, texti Gestur Guðfinnsson) Bíldudals grænar baunir / Jolli & Kóla (Valgeir Guðjónsson) Græna byltingin / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Karlakór Reykjavíkur 100 ára, af heimsókn konungs 1907 og Henning Emil lesandi vikunnar
Það er mikil tónlistarveisla framundan hjá Karlakór Reykjavíkur sem fagnar 100 ára afmæli í ár. Frá árinu 1926 hefur kraftur og fallegur samhljómur einkennt kórinn og í tilefni afmælisins verður heil tónleikaröð í Langholtskirkju þar sem kynslóðabilið verður brúað með aðstoð vinakóra úr íslenska og færeyska karlakórssamfélaginu og stórvirki gömlu meistarana verða flutt auk léttari sönglaga. Stjórnandi kórsins Friðrik S Kristinsson og formaður kórsins Bóas Valdórsson komu í þáttinn í dag og sögðu okkur betur frá tónleikunum og kórstarfinu. Við fórum svo í heimsókn á Þjóðskjalasafnið, en þar tók Helga Jóna Eiríksdóttir skjalavörður og sagnfræðingur á móti okkur. En hún deildi með okkur skjölum sem varðveitt hafa verið frá því að Friðrik 8. Danakonungur kom í heimsókn til Íslands árið 1907. Fyrir litla og fámenna þjóð þurfti að lyfta grettistaki, jafnvel mörgum, til þess að geta tekið á móti konungi og fylgdaliði svo sómi væri að. Helga Jóna fór með okkur yfir þessa heimsókn og sýndi okkur heilmargt merkilegt sem varðveist hefur frá henni. Svo var það lesandi vikunnar sem var í þetta sinn Henning Emil Magnússon prestur í Mosfellsbæ. Hann sagði okkur frá því hvað hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Henning talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Bread of Angels e. Patti Smith Leðurblakan og perutréð e. Yosa Buson Missing Person e. Patrick Modiano Glerþræðirnir e. Magnús Sigurðsson Dísa Ljósár Íslandsklukkan Gísla saga Súrssonar Gyrðir Elíasson Tónlist í þættinum á mánudaginn 20.apríl Sólin er komin / Mugison (Mugison e. Örn Elías Guðmundsson) Hraustir menn / Karlakór Reykjavíkur (Sigmund Romberg, texti Jakob Jóhannesson) Allt ljómar / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Vigdís Hafliðadóttir föstudagsgestur og matarspjall um salat og sólskin
Vigdís Hafliðadóttir söngkona, leikkona, grínisti, handritshöfundur og ýmislegt fleira var föstudagsgesturinn okkar. Hún nam heimspeki við Háskóla Íslands og hefur t.d. leikið í kvikmyndinni Ljósvíkingar, áramótaskaupum og nú síðast í þáttunum Tuttugu og eitthvað, en hún er einnig einn höfunda, en fyrsti þátturinn verður sýndur á RÚV í kvöld. Hún hefur einnig notið mikilla vinsælda sem kynnir skemmtiþáttarins Kappsmáls á RÚV og Vigdís er meðlimur í hljómsveitinni FLOTT sem stofnuð var árið 2020 og hefur svo sannarlega slegið í gegn. Það var um nóg að tala við Vigdísi í dag, en við fórum auðvitað líka með henni aftur í tímann á æskuslóðirnar eins og við gerum yfirleitt með föstudagsgestinum. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag talaði hún um salat og sólskin. Sumardagurinn fyrsti er næsta fimmtudag og sólin hækkar á lofti sem kallaði á salatspjallið í dag, þar sem komu fyrir hrásalöt, majonessalöt og fersk salöt eins og grískt salat. Tónlist í þættinum í dag: Dagar / Eyjólfur Kristjánsson (Eyjólfur Kristjánsson, texti Aðalsteinn Ásberg) Hvergiland / Leikhópurinn Ekki hugmynd (Vigdís Hafliðadóttir og Egill Andrason) Visa från Utanmyra / Jan Johanson (Jan Johanson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON