Lífæðar landsins

Samorka

LandiðTækni

Lífæðar landsins er hlaðvarp Samorku um orku- og veitumál.

Stækkun orkuvers í skugga jarðhræringa

Stækkun orkuvers í skugga jarðhræringa

19
desember 2025

Þann 1. desember var sjöundi áfangi Svartsengis, orkuvers HS Orku, tekinn í notkun og jókst þar með framleiðslugeta þess um þriðjung. Það er í sjálfu sér fréttnæmt að við bætist uppsett afl hér á landi, en í þessu tilfelli er það ekki síður vegna þess að orkuverið var stækkað á tímum jarðhræringa, eldgosa og mikillar óvissu. Stóðst framkvæmdin þó allar verk- og tímaáætlanir. Rafn Magnús Jónsson yfirverkefnisstjóri HS Orku og Yngvi Guðmundsson yfirverkfræðingur HS Orku ræða við Lovísu Árnadóttur um þetta ótrúlega verkefni í þessum þætti Lífæða landsins.

Vestfirðir eru heitur reitur

Vestfirðir eru heitur reitur

10
nóvember 2025

Á Vestfjörðum hefur verið notast við rafkyntar hitaveitur í stað hefðbundinna jarðhitaveitna, því lítið hefur fundist í gegnum tíðina af nægilega heitu vatni sem gæti nýst til húshitunar. En með tækniframförum og myndarlegu átakistjórnvalda í jarðhitaleit á svæðinu hefur vonin aldeilis kviknað um að þetta geti breyst, íbúm á svæðinu til mikilla hagsbóta. Elena Dís Víðisdóttir, verkfræðingur á orkusviði hjá OrkubúiVestfjarða, ræðir uppganginn og stemninguna á Vestfjörðum við Lovísu Árnadóttur og hvernig Vestfirðir eru að verða heitur reitur, líka hvað varðar jarðhita.

Þétt alþjóðlegt tengslanet margborgar sig

Þétt alþjóðlegt tengslanet margborgar sig

10
október 2025

Öflugur hópur frá Íslandi, fulltrúar orkufyrirtækja, háskóla, verkfræðistofa og fleiri, sóttu Evrópsku jarðhitaráðstefnuna í Zurich frá 6. til 9. október sem EGEC – European Geothermal Energy Council skipulagði. Þessi góða þátttaka er til marks um forystuhlutverk Íslands í nýtingu jarðhita og margvíslega alþjóðlega samvinnu um rannsóknir, nýjungar og annað sem eflir þessa grænu orkulind. Sveinn Helgason sat ráðstefnuna fyrir hönd Samorku og talaði við nokkra úr íslenska hópnum fyrir Lífæðar landsins. Viðmælendur Sveins lögðu áherslu á gagnsemi þess að sækja alþjóðlega ráðstefnu af þessu tagi, til að kynna hvað þau og þeirra fyrirtæki og stofnanir eru að gera. Þau undirstrikuðu líka mikilvægi þess að byggja upp sterkt tengslanet þvert á landmæri sem skilar sér margfalt til baka.

Hreint vatn er ekki heppni

Hreint vatn er ekki heppni

2
október 2025

Mikilvægt er að standa vörð um neysluvatnið okkar því það er okkar mikilvægasta auðlind. Í nútímasamfélagi verður það sífellt flóknara verkefni. Hrefna Hallgrímsdóttir, forstöðumanneskja vatnsmiðla hjá Veitum, ræðir við Lovísu Árnadóttur um vatnsveituna á höfuðborgarsvæðinu og minnir okkur rækilega á að hreint vatn er ekki heppni. Þátturinn kemur út 2. október, en þann dag árið 1909 var vatnsleiðsla frá Gvendarbrunnum fyrst tekin í notkun og telst dagurinn upphafsdagur vatnsveitu í Reykjavík.

Mikilvægast að styrkja bakbeinið í flutningskerfi raforku

Mikilvægast að styrkja bakbeinið í flutningskerfi raforku

6
ágúst 2025

Orkuskipti og aukin eftirspurn eftir raforku kallar á mikla samvinnu í uppbyggingu raforkuinnviða. Kerfisáætlun Landnets hefur það hlutverk að áætla hvar og hvenær nýjar línur verða byggðar upp eða styrktar og þannig tryggja öruggan flutning raforku á milli landshluta. En uppbyggingin er umfangsmikil og mikilvægt að forgangsraða þeim verkefnum sem skila mestum ávinningi. Í þættinum fara þær Arngunnur Einarsdóttir sérfræðingur í viðskiptaþróun hjá Landsneti og Guðrún Margrét Jónsdóttir sérfræðingur í kerfisþróun hjá Landsneti yfir hvernig sú forgangsröðun verður til og mikilvægi samráðsvettvangsins sem kerfisáætlun er.

Djúpborun: Tæknilegt ævintýri sem getur skipt sköpum

Djúpborun: Tæknilegt ævintýri sem getur skipt sköpum

16
júlí 2025

Að bora djúpt ofan í jarðlögin til að ná í orku er eitthvð sem unnið hefur verið að árum saman hér á landi. Með þessu væri hægt að ná í meiri orku á sömu jarðhitasvæðum og þannig nýta jarðhitaauðlindina enn betur. En það fylgja því tæknilegar áskoranir að ætla sér að bora svona djúpt ofan í jörðina. Í þættinum ræðir Sigurður H. Markússon, leiðtogi djúpnýtingar hjá Orkuveitunni, um djúpborunarverkefnin hér á landi og hvernig árangur í þeim efnum getur skipt sköpum, ekki aðeins fyrir Íslendinga heldur á alþjóðavísu.

Vaðölduver verður til

Vaðölduver verður til

4
júlí 2025

Hingað til hafa jarðvarmi og vatnsafl verið meginuppsprettur raforkuframleiðslu á Íslandi. Nú er breyting fram undan, því Vaðölduver Landsvirkjunar – fyrsta vindorkuver landsins – er komið á framkvæmda- eða rekstrarstig. Að mörgu er að huga þegar hafist er handa við að byggja eitthvað alveg nýtt og í þættinum fáum við að heyra meira um ferlið, undirbúning og upphaf framkvæmda, auk þess sem hægt er að sjá hvernig Vaðölduver kemur til með að líta út. Gestur þáttarins er Sigurgeir Björn Geirsson, yfirverkefnisstjóri Vaðölduvers hjá Landsvirkjun. Umsjón þáttarins er í höndum Lovísu Árnadóttur, upplýsingafulltrúa Samorku.

Viðnámsþróttur vatns og ríkidæmi Íslands

Viðnámsþróttur vatns og ríkidæmi Íslands

23
júní 2025

Birna Guttormsdóttir, sérfræðingur hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, segir að ný stefna ESB um viðnámsþrótt vatns (European Water Resilient Strategy)  sé yfirgripsmikil enda við margvíslegar áskoranir að glíma.  „Stærsta markmiðið með stefnunni er að laga þessa brotnu hringrás vatnsins,“ segir í Birna í viðtali við Svein Helgason í Brussel, í hlaðvarpi Samorku. Birna Guttormsdóttir, sérfræðingur hjá framkvæmdastjórn ESB. Birna segir að Íslendingar standi svolítið með pálmann í höndunum á þessu sviði því landið sé ríkt af vatni. Hinsvegar sé mikilvægt að þekkja vel auðlindina og gera sér grein fyrir hvert skuli stefna í framtíðinni. Sveinn Helgason ræðir við Birnu í þættinum. Birna starfar á umhverfissviði framkvæmdastjórnarinnar í teymi sem vinnur að ferskvatnsstjórnun og hefur átt töluverðan þátt í að móta stefnuna um viðnámsþrótt vatns sem kynnt var 4. júní s.l. Stefnan hefur m.a. tengingar við svokallaða vatnatilskipun og fráveitutilskipun ESB.

Snjöll samvinna er sterkasta vopnið

Snjöll samvinna er sterkasta vopnið

28
maí 2025

Netárásum á mikilvæga inniviði hefur fjölgað mikið sem kallar á öflugar varnir um tæknibúnað. Kristrún Lilja Júlíusdóttir, forstöðukona hjá Orkuveitunni, ræddi við Svein Helgason á Samorkuþingi 2025 um öryggismál og hvernig samtal, traust og samvinna getur skipt sköpum í að verja innviði á Íslandi. Sveinn og Kristrún Lilja ræða saman á Samorkuþingi 2025.

Öryggi og áfallaþol innviða

Öryggi og áfallaþol innviða

26
maí 2025

Karl Steinar Valsson yfirlögreglustjónn hjá ríkislögreglustjóra var annar frummælenda í lokamálstofu Samorkuþings 2025 þar sem fjallað var um áfallaþol mikilvægra innviða hér á landi og orkuöryggi í ljósi þróunar í Evrópu. Í viðtali við Svein Helgason, verkefnastjóra erlends samtarfs hjá Samorku, leggur Karl Steinar m.a. áherslu á virkt samtal og samvinnu milli lögreglu og orku- og veitugeirans til að efla enn frekar vernd innviða og öryggi. Karl Steinar segir það hafa verið mjög gagnlegt að heyra sjónarmið háttsettra stjórnenda í geiranum í málstofunni og sömuleiðis hvað Kristian Ruby, framkvæmdastjóri Eurelectric, hafði að segja í sinni framsöguræðu. Viðtalið var tekið síðdegis þann 23. maí. Karl Steinar flytur erindi sitt á Samorkuþingi 2025

Þér gæti líka líkað...