Hlaðvarpsþættir um íþróttir.
Góð Íþrótt-Gulli Betri: Pétur Guðmunds í LA Lakers
Um þessar mundir eru 40 ár síðan Pétur Guðmundsson körfuboltamaður gekk til liðs við NBA-liðið Los Angeles Lakers. Árið er 1986 og þarna var Lakers er á hátindinum með Magic Johnson og Kareem Abdul Jabbar innanborðs. Vegurinn sem Pétur gekk í áttina til Lakers var grýttur og hann þurfti svo sannarlega að hafa fyrir því að komast þangað. Í þessum þætti segjum við alla sögu hans. Umsjón: Gunnlaugur Jónsson
Góð Íþrótt-Gulli Betri: Eygló Fanndal
Eygló Fanndal er einn mest spennandi íþróttamaður sem við eigum. Hún varð evrópumeistari í ólympískum lyftingum í fyrra en nokkrum mánuðum síðar lenti hún í erfiðum bakmeiðslum sem hún er enn að glíma við. Við rifjum upp ótrúlega sögu hennar, hvernig hún byrjaði að æfa lyftingar og hvað verður til þess að hún verður afrekskona á heimsmælikvarða í sinni íþróttagrein. Við fáum einnig innsýn í Afreksmiðstöð Íslands sem er ný af nálinni og hvers vegna stofnun hennar er bylting fyrir afreksíþróttafólk hér á landi. Umsjón: Gunnlaugur Jónsson
Góð íþrótt Gulli betri: Fjórar Vetrarólympíuleika sögur
Vetrarólympíuleikarnir á Ítalíu eru í fullum gangi og af því tilefni rifjum við upp fjórar ótrúlegar sögur úr litríkri sögu leikanna. Við tökum fyrir íshokkíleik Bandaríkjanna og Sovétríkjanna árið 1980 í miðju kalda stríðinu. Tvær skondnar sögur koma frá leikunum í Calgary í Kanada 1988 en þar stökk Bretinn Eddie the Eagle í skíðastökki og bobsleðalið Jamaíku sigraði hjarta alls heimsins með framgöngu sinni. Að lokum segjum við ótrúlega sögu skíðakappans Hermans Maier frá Austurríki sem hrasaði illa í sinni fyrstu grein á leikunum 1998 en var mættur í næstu grein aðeins þrem dögum síðar. Ingólfur Hannesson og Einar Örn Jónsson rifja upp þessar sögur og draga ekkert undan. Umsjón: Gunnlaugur Jónsson
Góð íþrótt-Gulli Betri: Super Bowl 2026
Super Bowl eða Ofurskálin, stærsti íþróttaviðburður Bandaríkjanna, er í kvöld í Santa Clara í Kaliforníu. New England Patriots og Seattle Seahawks spila til úrslita um NFL-titilinn í amerískum fótbolta. Fanney Birna Jónsdóttir og Andri Ólafsson fræða okkur um þennan viðburð, hvað einkennir liðin sem mætast og hvernig leik má eiga von á. Hálfleikssýningin er fastur liður í þessum stóra leik og að þessu sinni treður upp hinn vinsæli Bad Bunny frá Puerto Rico. Hver er hann og af hverju fer hann í taugarnar á Donald Trump forseta Bandaríkjanna? Ingunn Lára Kristjándsdóttir segir okkur allt um Bad Bunny og hálfleikssýninguna. Umsjón: Gunnlaugur Jónsson
Góð íþrótt-Gulli betri: Dagur Sig - Ferillinn (þáttur 3)
Í þessum þriðja og síðasta þætti um feril Dags Sigurðssonar gerum við upp dvöl hans í Japan, þar sem hann var landsliðsþjálfari, og þegar hann óvænt tók við Króatíska landsliðinu í byrjun árs 2024 þegar liðið var í krísu. Í lok þáttarins er Dagur spurður um framtíð sína, hvað hann ætlar sér að þjálfa lengi og hvort það sé markmið að þjálfa íslenska landsliðið.
Góð íþrótt-Gulli betri: Dagur Sig - Ferillinn (þáttur 2)
Í þessum þætti byrjar þjálfaraferill Dags. Eftir að hafa gert frábæra hluti í Austurríki og hjá Fucshe Berlin er hann ráðinn landsliðsþjálfari Þýskalands árið 2014 og gerir liðið að Evrópumeisturum tveimur árum síðar. Sama ár segir hann upp hjá þýska landsliðinu og flytur heim. En hvers vegna? - þið komist að því í þessum öðrum þætti um Feril Dags Sigurðssonar.
Góð íþrótt-Gulli betri: Dagur Sig - Ferillinn (þáttur 1)
Dagur Sigurðsson handboltaþjálfari hefur aldrei gefið ferilsviðtal við íslenskan fjölmiðil. Gunnlaugur Jónsson fékk Dag í ítarlegt viðtal í byrjun desember 2025 og þetta verða alls þrír þættir þar sem við rekjum allan feril hans og meira til. Dagur er mikill tónlistaráhugamaður og í hverjum þætti spjalla þeir um tónlist og önnur áhugamál hans. Umsjón: Gunnlaugur Jónsson
Aron Pálmarsson mætir á Biðstofuna
Óvæntur leynigestur mætir á svæðið, Aron Pálmarsson, einn besti leikmaður Íslands fyrr og síðar. Farið verður um víðan völl, íslenska liðið í dag, hvar hann sér okkar möguleika, sögur og augnablik úr ferlinum.
Biðstofan: Íslenska liðið — stöðu fyrir stöðu
Óli, Kári og Logi fara yfir veikleika og styrkleika allra leikmanna liðsins, stöðu fyrir stöðu. Ræða mögulegt byrjunarlið. Hverjir þurfa að stíga upp og hvaða leikmenn verða í mikilvægum hlutverkum.
Biðstofan: Krafa á undanúrslit?
Helga, Óli, Logi og Kári fara yfir árangur íslenska landsliðsins á síðasta móti, ræða stöðu þjálfarans Snorra Steins komandi inn í þetta mót. Hverjar eru kröfurnar á liðið og hvað er ásættanlegur árangur á mótinu?


