Íþróttanæring með Nutreleat

Lilja & Arnar - Sport Nutritionists, M.Sc.

Íþróttir

Hlaðvarp þar sem farið er yfir hin ýmsu málefni í tengslum við íþróttanæringu, íþróttir og þjálfun.

18. Aukið æfingaálag & breyttar áherslur - er næringin að sitja á hakanum?

18. Aukið æfingaálag & breyttar áherslur - er næringin að sitja á hakanum?

22jún

Sumarið er loksins komið og með því hellist hreyfigleðin yfirmarga sem ætla heldur betur að rífa sig í gang. En þótt margt sé jákvætt við það er líka að ýmsu að huga í þessu samhengi. Í þessum þætti förum yfir algengustu mistökin sem fólk gerirþegar fólk fer úr því að æfa lítið (eða jafnvel kyrrsetu) og yfir í meira æfingaálag: vanmeta eigið form, elta þá bestu, leita skyndilausna í fæðubótarefnum, óttast kolvetni að óþörfu, og mæta í maraþon án þess að hafa nokkurn tíma prófað orkugel. Við ræðum einnig ofþjálfunarheilkenni og REDs, hvernigá að þekkja einkennin og hvað næringin hefur með málið að gera. Hlekkinn á 6 vikna netnámskeiðið okkar má finna hér (og viðminnum á kóðann Nutreleat15 fyrir 15% afslátt af skráningargjaldi): https://www.nutreleat.is/leggdu-grunninn-ad-thinni-ithrottanaeringu Grafið sem við förum yfir þegar fer að líða á seinni hlutaþáttarins má finna hér: https://www.mysportscience.com/post/2015/04/10/higher-carbohydrate-intake-reduces-overtraining-symptoms Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eðagefa einkunn - við viljum endilega heyra hvað þér finnst! Eins máttu gjarnan tagga okkur á Instagram (@nutreleat) ef þú hlustar á þáttinn eða finnst hann fræðandi og áhugaverður. Vonum að þú njótir. - Nutreleat teymið

17. Peptíð: Kraftaverk eða markaðshype?

17. Peptíð: Kraftaverk eða markaðshype?

8jún

Peptíð eru úti um allt þessa dagana, í snyrtivörum, fæðubótarefnum og á samfélagsmiðlum þar sem þau eru sögð gera ýmislegt - allt frá því að byggja upp vöðva og að því að snúa við öldrun. En hvað eru peptíð í raun og veru, og standast loforðin? Í þessum þætti köfum við ofan í hvað peptíð eru, hvernig þau virka í líkamanum og hvort þau séu örugg til inntöku. Við skoðum þau líka sérstaklega í samhengi við íþróttir og íþróttafólk, hvað vísindin segja og hvar mörkin liggja. Nú er heldur betur farið að styttast í útgáfu á appinu sem hefur verið í þróun á bak við tjöldin. Það er sérstaklega hannað fyrir íþróttafólk sem vill tryggja að það sé að nærast í takt við þarfir til að hámarka frammistöðu. Við viljum gefa hlustendum hlaðvarpsins forskot á sæluna og tækifæri til að gerast stofnmeðlimir þegar appið kemur út. Allir stofnmeðlimir geta nælt sér í aðgang á okkar bestu kjörum með því að skrá sig á póstlistann okkar: https://www.nutreleat.is/ntrlt-postlisti Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn – við viljum endilega heyra hvað þér finnst! Eins máttu gjarnan tagga okkur á Instagram (@nutreleat) ef þú hlustar á þáttinn eða finnst hann fræðandi og áhugaverður. Vonum að þú njótir. - Nutreleat teymið

16. Hvað gerðist? Síðustu mánuðir, hlaðvarpslægð & appróun

16. Hvað gerðist? Síðustu mánuðir, hlaðvarpslægð & appróun

25maí

Í þessum þætti förum við yfir af hverju við höfum ekki gefið út hlaðvarpsþátt í að verða ár, hvað við erum búin að vera að gera og hvað er framundan í þessari hlaðvarpsseríu. Einnig förum við aðeins yfir appþróun sem er búin að vera í gangi síðustu árin, erfiðleika sem hafa komið upp í ferlinu og eiginleika sem verða til staðar í appinu. Ef þú vilt skrá þig á póstlistann til að vera fyrst/ur til að vita þegar við gefum appið út geturðu fylgt hlekknum hér að neðan: https://www.nutreleat.is/ntrlt-postlisti Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við viljum endilega fá þitt feedback! Eins má gjarnan tagga okkur á instagram (@nutreleat) ef þú hlustar á þáttinn eða finnst hann fræðandi eða áhugaverður. Vonum að þú njótir. -Nutreleat teymið.

15. Gæði rannsókna & pseudoscience

15. Gæði rannsókna & pseudoscience

30jún2025

Í þessum þætti tökum við fyrir gæði rannsókna og pseudoscience. Eins komum við inná mýtur sem hafa orðið til útfrá rangri túlkun á rannsóknum. Við vonum að hann hjálpi þér að öðlast betra vísinda- og næringarlæsi, ásamt því að átta þig betur hvaða upplýsingar um (íþrótta)næringu eru traustvekjandi og hvers konar upplýsingar ber að varast. Hér eru hlekkir á hlutina sem við ræddum í þættinum: Instagram reikningur dr. Matthew Nagra: https://www.instagram.com/dr.matthewnagra/ Útskýring á The Dunning Kruger effect (þó hægt að finna fleiri myndir sem sýna að þó þú sért orðinn sérfræðingur á tilteknu viðfangsefni þá nærðu aldrei sama 'confidence' leveli og á 'mount stupid'): https://en.wikipedia.org/wiki/File:Dunning%E2%80%93Kruger_Effect_01.svg Bloggfærslan frá Asker Jeukendrup: https://www.mysportscience.com/post/oxygenated-water Hlekkur á rannsóknina: https://www.tandfonline.com/doi/full/10.1080/19390211.2023.2203738?rfr_dat=cr_pub++0pubmed&url_ver=Z39.88-2003&rfr_id=ori%3Arid%3Acrossref.org#d1e342 Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við viljum endilega fá þitt feedback! Eins má gjarnan tagga okkur á instagram (@nutreleat) ef þú hlustar á þáttinn eða finnst hann fræðandi eða áhugaverður. Vonum að þú njótir, -Nutreleat teymið.

14. Doping áhættur í íþróttum & leiðir til að minnka líkur á þeim

14. Doping áhættur í íþróttum & leiðir til að minnka líkur á þeim

12maí2025

Í þessum þætti tökum við fyrir doping áhættur í íþróttum, hvað þær fela í sér og hvaða afleiðingar þær geta haft. Þá ætlum við einnig að fara yfir hvernig hægt sé að minnka líkur á því að fremja slík brot. Við vekjum athygli á því að eftir smá bið erum við loksins búin að opna aftur fyrir skráningar á grunnnámskeiðið okkar ‘Leggðu grunninn að þinni íþróttanæringu’. Næsti hópur fer af stað 11. Júní og verður þetta jafnframt SÍÐASTI hópur þessa árs. Ef ÞÚ ert metnaðarfullur íþróttaeinstaklingur, foreldri ungs íþróttaeinstaklings eða ert að stunda einhverskonar þjálfun t.d. hlaup, crossfit, hyrox, lyftingar eða annað þá er þetta námskeið fyrir þig. Markmiðið með námskeiðinu er að hjálpa þér eða þínu ungmenni að leggja réttan og heilbrigðan grunn að íþróttanæringunni, svo hægt sé að hámarka afköst, flýta fyrir endurheimt, minnka líkur á meiðslum og stuðla að almennri heilsu. Námskeiðið stendur yfir í 6 vikur með eftirfylgni frá íþróttanæringarfræðingi en svo hafa þátttakendur aðgang að efninu í heilt ár – þannig geta þátttakendur farið eins oft í gegnum efnið og þeir vilja og tekið sinn tíma í námskeiðið. Akkúrat núna erum við með forskráningartilboð í gangi sem gefur þér 15% afslátt af námskeiðinu. Beinan hlekk á lendingarsíðuna finnurðu hér: https://www.nutreleat.is/leggdu-grunninn-ad-thinni-ithrottanaeringu Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við viljum endilega fá þitt feedback! Eins má gjarnan tagga okkur á instagram (@nutreleat) ef þú hlustar á þáttinn eða finnst hann fræðandi eða áhugaverður. Vonum að þú njótir, -Nutreleat teymið.

13. Algeng & dýrkeypt næringartengd mistök sem við sjáum íþróttafólk gera

13. Algeng & dýrkeypt næringartengd mistök sem við sjáum íþróttafólk gera

3apr2025

Í þessum þætti tökum við fyrir algeng mistök sem við sjáum íþróttafólk gera og hvaða afleiðingar þau geta haft í för með sér. Við fengum líka álit frá sérfræðingum erlendis varðandi mistök sem þau sjá oft í sinni vinnu. Við erum því miður búin að loka fyrir skráningar í einstaklingsmiðaða íþróttanæringarráðgjöf fram til júní og mögulega fram til næsta hausts. EN fyrir þau sem vilja byrja að gera jákvæðar breytingar á sinni íþróttanæringu SEM FYRST erum við núna að bjóða uppá KAUPAUKA þegar þú skráir þig í áskriftarleiðina okkar í apríl eða maí. En það er aðgangur að Pre- & post-training næringarprógramminu okkar sem leiðir þig í gegnum áherslur í næringu fyrir og eftir æfingar - fyrir aukin afköst og hraðari endurheimt. Fyrir utan það geturðu nælt þér í 15% afslátt af fyrsta mánuðinum með kóðanum NTRLT15. Þú finnur skráningarhlekkinn hér að neðan: https://www.nutreleat.is/askriftarleid-ithrottafolksins Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við viljum endilega fá þitt feedback! Vonum að þú njótir, -Nutreleat teymið.

12. Örþáttur: Beta alanín - hvernig virkar það, hvað sýna rannsóknir & fyrir hverja er það?

12. Örþáttur: Beta alanín - hvernig virkar það, hvað sýna rannsóknir & fyrir hverja er það?

14jan2025

Í þessum örþætti tökum við fyrir efni sem færri kannast e.t.v. við, samanborið við kreatín - en það er afkastaaukandi fæðubótarefnið beta alanin. Í þættinum fer Arnar Sölvi yfir virkni þess í líkamanum, í hvaða aðstæðum það gæti gagnast, hvað rannsóknir sýna þegar kemur að áhrifum og hvort það sér öruggt til inntöku. Ef þú stundar þína íþrótt af kappi og ert tilbúin/n/ð til að taka þína íþróttanæringu uppá næsta level geturðu lesið meira um okkar þjónustu inná www.nutreleat.is Til að fá upplýsingar um ráðlagðan dagskammt, leiðbeiningar varðandi inntöku og yfirlit yfir lotuprófaðar tegundir af beta alaníni viljum við benda þér á áskriftarleiðina okkar - en þar inni finnurðu þáttinn í fullri lengd þar sem þú færð leiðbeiningar varðandi þessi atriði. Einnig færðu aðgang að yfir 100 uppskriftum og máltíðasamsetningum sem henta á mismunandi tímum yfir daginn og sem við höfum flokkað í litakóðann okkar svo þú áttir þig betur á máltíðasametningum eftir mismunandi æfingaálagi hverju sinni. Eins finnurðu þar ítarlega fræðslu um ýmis viðfangsefni íþróttanæringar og aðgang að spurt og svarað þar sem þú getur varpað fram þínum spurningum og pælingum og fengið ítarleg svör við þeim. Nánari upplýsingar finnurðu á https://www.nutreleat.is/askriftarleid-ithrottafolksins Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við viljum endilega fá þitt feedback! Vonum að þú njótir, -Nutreleat teymið.

11. Birna Varðardóttir: Hlutfallslegur orkuskortur í íþróttum & áhrif á frammistöðu og heilsu íþróttafólks

11. Birna Varðardóttir: Hlutfallslegur orkuskortur í íþróttum & áhrif á frammistöðu og heilsu íþróttafólks

23des2024

Í þessum þætti fengum við hana Birnu Varðardóttur, doktor í íþrótta- & heilsufræðum, til okkar til að ræða um hlutfallslegan orkuskort í íþróttum, hvaða áhrif hann getur haft á frammistöðu og heilsu íþróttafólks, rauð flögg sem iðkendur, þjálfarar og fagaðilar sem vinna með íþróttafólki þurfa að vera meðvitaðir um og hvaða skref er hægt að taka til að leiðrétta ástandið. Við viljum vekja athygli á því að í janúar munum við bjóða uppá ókeypis rafrænan fyrirlestur um næringu íþróttafólks sem þú vilt ekki missa af - þú getur tekið frá þitt pláss HÉR. Ef þú stundar þína íþrótt af kappi og ert tilbúin/n/ð til að taka þína íþróttanæringu uppá næsta level geturðu lesið meira um okkar þjónustu inná www.nutreleat.is Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við viljum endilega fá þitt feedback! Vonum að þú njótir, -Nutreleat teymið.

10. Intra nutrition (næring við þjálfun) - hvað þarf að hafa í huga þegar kemur að inntöku, tegund og magni?

10. Intra nutrition (næring við þjálfun) - hvað þarf að hafa í huga þegar kemur að inntöku, tegund og magni?

9des2024

Í þessum þætti tökum við fyrir næringu við þjálfun eða intra nutrition - og skoðum hvernig það getur haft áhrif á frammistöðu, hvað þarf að hafa í huga þegar kemur að inntöku og nokkrar mýtur í tengslum við þetta viðfangsefni. Ef þú stundar þína íþrótt af kappi og ert tilbúin/n/ð til að taka þína íþróttanæringu uppá næsta level geturðu lesið meira um okkar þjónustu inná www.nutreleat.is Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við viljum endilega fá þitt feedback! Vonum að þú njótir, -Nutreleat teymið.

09. Örþáttur: Kreatín - hvernig virkar það, hvað sýna rannsóknir & er það öruggt til inntöku?

09. Örþáttur: Kreatín - hvernig virkar það, hvað sýna rannsóknir & er það öruggt til inntöku?

25nóv2024

Í þessum örþætti tökum við fyrir efni sem mörg eru farin að kannast við - en það er einmitt afkastaaukandi fæðubótarefnið kreatín. Í þættinum fer Arnar Sölvi yfir virkni þess í líkamanum, í hvaða aðstæðum það gæti gagnast, hvað rannsóknir sýna þegar kemur að áhrifum og hvort það sér öruggt til inntöku. En þetta eru einmitt spurningar sem brenna á mörgum og við fáum oft spurningar varðandi. Greinar um kreatín fyrir áhugasama: https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/10694141/ https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/9627907/ https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/11708707/ https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/12701816/ Ef þú stundar þína íþrótt af kappi og ert tilbúin/n/ð til að taka þína íþróttanæringu uppá næsta level geturðu lesið meira um okkar þjónustu inná www.nutreleat.is Eins viljum við benda á að ef þú vilt fá leiðbeiningar varðandi inntöku og yfirlit yfir lotuprófuð kreatín hérlendis  Til að fá upplýsingar um ráðlagðan dagskammt, leiðbeiningar varðandi inntöku og yfirlit yfir lotuprófaðar tegundir af kreatíni viljum við benda þér á áskriftarleiðina okkar - en þar inni færðu leiðbeiningar varðandi þessi atriði, ásamt því að fá aðgang að yfir 100 uppskriftum og máltíðasamsetningum sem henta á mismunandi tímum yfir daginn og sem við höfum jafnframt flokkað í litakóðann okkar svo þú áttir þig betur á máltíðasametningum eftir mismunandi æfingaálagi hverju sinni. Eins finnurðu þar ítarlega fræðslu um ýmis viðfangsefni íþróttanæringar og aðgang að spurt og svarað þar sem þú getur varpað fram þínum spurningum og pælingum og fengið ítarleg svör við þeim. Nánari upplýsingar finnurðu á https://www.nutreleat.is/askriftarleid-ithrottafolksins Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við viljum endilega fá þitt feedback! Vonum að þú njótir, -Nutreleat teymið.

Þér gæti líka líkað...