Helgaspjallið er podcast útgáfa af lið á Trendnet.is

216 - Hvað er Enneagram og afhverju er það svona MAAAGNAÐ?
Þátturinn er í boði: Miðbæ Selfoss Oche Reykjavik - https://oche.com/is/reykjavik Hugur Studio - www.hugur.studio Við byrjum á Birgittu Haukdal, við förum í rútínu, og loks - Enneagram - Afhverju breytti það lífi mínu? Hvað er þetta? Hvað getum við lært? Hvernig getum við nýtt okkur þetta til þess að verða háþróaðasta og mennskasta útgáfan af okkur, kannski bara frelsað okkur. Nei ég segi svona, erum ekki alveg þarna. Þetta er samt magnað. Must hlust.

215 - Brúðkaups-special, karlmennska og .. fótbolti?
Þátturinn er í boði: Miðbæ Selfoss Oche Reykjavik - https://oche.com/is/reykjavik Hugur Studio - www.hugur.studio Helgi er orðinn giftur maður og Heiðdís er hæst ánægð með þann ráðahag og fögnuð. Við förum aðeins yfir málin, hvernig fór þetta allt saman fram og hvað gerðist. Heiðdís fór að tala um fótbolta sem vakti furðulega lukku og skoðuðum örlítið karlmennskuna. Morðmál Sharon Tate kom líka fyrir í sögu eins og svo margt annað eins og nú er orðið hlustendum kunnugt þegar opnað er fyrir munninn. Njótið vel!

214 - Fullt blátt tungl og fullt af gleði
Þátturinn er í boði: Miðbæ Selfoss Oche Reykjavik - https://oche.com/is/reykjavik Hugur Studio - www.hugur.studio Við Heiðdís splæstum í aukaþátt í miðri viku því það var nýlega fullt blátt tungl í Bogamanni sem við fórum yfir ásamt rosalega mörgu öðru.

213 - Sóley Eiríksdóttir - Grafin í snjóflóði í 9 tíma á Flateyri og andlega vinnan sem tók við seinna á lífsleiðinni
Við Heiðdís settumst niður með Sóleyju Eiríksdóttir en aðeins ellefu ára gömul, þegar hún lá í rúminu sínu og svaf þegar snjóflóð skall á heimilið hennar og var hún grafin í flóðinu í níu klukkustundir. Hún var heppin að lifa af en systir hennar sem var líka í húsinu gerði það því miður ekki. Ég hef fengið þá ánægju að kynnast Sóleyju og frásögnin hennar er í raun ótrúleg að hlusta á. Hvað tekur við eftir svona reynslu? Hvernig vinnur maður úr svona áfalli og hvað á sér stað í kerfinu eftir öll þessu ár? Við spjölluðum um þetta allt saman í þessum þætti. Takk fyrir viðtökurnar! Lovjú

NÆSTI KAFLI: Fyrsti þáttur -
Hefjum nýtt ævintýri. Helgaspjallið snýr aftur og markmiðið er meiri gleði og meiri lærdómur. Það er brakandi ferskur nýr meðlimur í Helgaspjallinu, Heiðdís Erla. Hlakka til að halda áfram þessu ævintýri með ykkur, feiminn að koma tilbaka en spenntur. Ykkar Helgi - og nú Heiðdís líka!

Þáttur 211 - Helgi & Pétur um ársbyrjun 2025 og blessuðu sjálfsábyrgðina
Þátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Nings - www.nings.is - afsláttarkóði: helgaspjallid Iceherbs - iceherbs.is Endum og byrjum árið með okkar góða manni, Pétri Björgvin. Við höfum eytt miklum tíma að skoða okkur og spjallað saman um árið sem leið og árið sem við erum nýgengin inní og förum yfir þá punkta. Svo endar þetta einhvernvegin alltaf á einu og sama atriðinu: Sjálfsábyrgðin - Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

Þáttur 210 - Uppgjör á árinu með mér og Pétri Björgvin
Þátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Nings - www.nings.is - afsláttarkóði: helgaspjallid Iceherbs - iceherbs.is Við Pétur settumst niður á gamlársdag og áttum bæði einlægt spjall okkar á milli en á sama tíma fórum við yfir þau augnablik í okkar lífi, sem höfðu áhrif á okkur bæði sem par en einnig í sitthvoru lagi. Við berskjöldum okkur báðir um hvernig atvik eða tímar höfðu áhrif, hvað okkur langar að gera meira af, hvað við lærðum af og hvernig við sjáum fyrir okkur árið framundan. Ég er svo montinn að eiga maka sem ég get átt svona spjöll við, og sérstaklega að fá að deila með ykkur hlustendum. Ég vona að árið hafi verið ykkur ánægjulegt, og næsta verði fullt af nærandi upplifunum og þið finnið styrk til að stækka, þróast og fyrst og fremst, verða eins mikill vinur ykkar og tök er á hverju sinni. Gleðilegt nýtt ár elsku hlustendur, ég get ekki lýst því hvað ég kann að meta ykkur. Ást og kram Ykkar Helgi

Þáttur 209 - Svana frá Svartáhvítu loksins í Helgaspjallinu! Um nýjan veruleika & adhd gleðina
Þátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Nings - www.nings.is - afsláttarkóði: helgaspjallid Iceherbs - iceherbs.is Eftir mikla eftirspurn og ansi mikið suð (upp að heilbrigðum að mörkum vil ég meina!!) þá veiddi ég gull-laxinn minn í Helgaspjallið, hana Svönu Lovísu, betur þekkt sem Svana á Svartáhvítu á Trendnet, vöruhönnuður, bloggari per excellance og ein af mínum allra nánustu vinkonum. Við Svana er afskaplega lík og deilum þeim ofurkröftum að vera adhd dúllur og tvíburar og skemmtilega kaotísk. Við mættum saman einn morgun korter í jól, bæði þreytt af ólíkum ástæðum og tókum upp þátt handa ykkur. Líf Svönu hefur nýlega tekið harðar beygjur en hún hefur á stuttum tíma upplifað kulnun og í kjölfarið var fótum kippt undan henni og fjölskyldu hennar þegar dóttir hennar varð skyndilega langveik. Svana segir einlægt frá og var það mín mesta ánægja að sitja með henni og heyra og spjalla. Svana opnaði nýverið verslun sína www.studioflamingo.is þar sem hún selur blóm og gaf blogginu sínu vinsæla nýtt heimili. Hægt er að fylgjast með henni einnig á Instagram: @svana.svartahvitu Njótið vel kæru vinir og gleðileg jól! Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

Þáttur 208 - Jara Giantara stjörnuspekingur um umbyltingartíma framundan
Þátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Nings - www.nings.is - afsláttarkóði: helgaspjallid Iceherbs - iceherbs.is Helgaspjalls-fan favorít og stjörnuspekingurinn Jara Giantara snýr aftur og við förum yfir magnaða tíma sem við búum við og umbyltingartíma framundan. Vatnsberi fór nýverið yfir í Plútó, og hvað þýðir það? Hafði stórar og sturlaðar fréttir útí heimi eitthvað með það að gera? Öld vatnsberans er komin til að vera en hvernig lítur næsta ár út? Hægt er að bóka tíma og kaupa gjafakort á www.jaragiantara.com Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

Þáttur 207 - Svandís Svavarsdóttir formaður VG um réttlætið, feminisma og feðraveldið innan þingsins
Þátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Nings - www.nings.is - afsláttarkóði: helgaspjallid Iceherbs - iceherbs.is Svandís Svavarsdóttir hefur verið þekkt fyrir að vera grjóthörð gegn feðraveldinu sem lifir inná þingi og fékk nýverið gælunafnið "Big Dick Energy Sva Sva" frá Komið Gott tvíeykinu sem á vel við. Svandís er kona réttlætis og mennsku í lífi og starfi og var það hin mesta ánægja að fá hana í Helgaspjallið. Fátt betra en að sitja á móti kröftugri konu sem talar frá hjartanu. Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i í Podcaststöðinni



