Góðar, fyndnar, jafnvel sorglegar en umfram allt einlægar sögur af góðu fólki á Reykjanesi. Umsjón er í höndum Dagnýjar Maggýjar og Eyþórs Sæmundssonar. Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Sóknaráætlunar Suðurnesja og unnið af starfsmönnum Heklunnar, atvinnuþróunarfélagi Suðurnesja og Markaðsstofu Reykjaness. Alla þætti má nálgast á reykjanes.is og facebook.com/godarsogur

Elvar Már Friðriksson
Hann var lágvaxinn og seinn til í þroska sem lá þungt á honum á unglingsárum. Það fyllti hann eldmóð til þess að leggja ennþá harðar að sér og sanna sig. Þetta hefur verið rauður þráður í ferli Njarðvíkingsins Elvars Friðrikssonar, landsliðsmanns og atvinnumanns í körfubolta. Hann tekst á við áskoranir með jákvæðni og auðmýkt að leiðarljósi. Elvar hefur átt áhugaverðan feril í atvinnumennsku þar sem hann hefur m.a. verið kjörinn besti leikmaður sænsku og litháísku deildanna. Hann leikur nú Í Grikklandi við góðan orðstír og stefnir á frekari landvinninga í körfuboltanum.

Jón Kalman
Jón Kalman hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín og hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem einn helsti skáldagnahöfundur landsins og hafa bækur hans komið út á fjölmörgum tungumálum. Hann flutti til Keflavíkur 12 ára gamall sem hann taldi verstu örlög í heimi og mótmælti harðlega með bréfi sem fékk litlar undirtektir. Þá einsetti hann sér að aðlagast alls ekki samfélaginu sem tókst framan af en að endingu lét hann undan. Keflavík hefur verið sögusviðið í skáldsögum hans en ekki voru allir Keflvíkingar sáttir við birtingarmyndina. En Jón Kalman lýtur aðeins lögmálum skáldskaparins. Hins vegar þykir honum vænt um keflavík og þar fæddist hann sem skáld

Ingibergur Þór Jónasson
Umhverfið í kringum heimaslóðirnar í Grindavík hefur alltaf verið griðarstaður fyrir Ingiberg Þór Jónasson ljósmyndara. Náttúran veitir honum hugarró og jafnvægi í lífsins ólgusjó. Hann fór fyrst á sjóinn um fermingaraldur og lærði þar heilmargt. Hann háði baráttu við Bakkus og missti móður sína ungur að árum. Í dag er hann ljósmyndari í heimsklassa og hálfgerður talsmaður Grindavíkur þar sem hann er við stjórnartaumana hjá körfuboltaliðum félagsins.

Garðar Örn Arnarson
Örlögin höguðu því þannig að hann skráði sig í kvikmyndaskóla þegar hann var við það að stimpla sig út úr námi. Þrennum Edduverðlaunum síðar er Garðar Örn Arnarson einn afkastamesti kvikmyndagerðamaður Íslands og brautryðjandi þegar kemur að gerð íþróttaefnis á Íslandi. Hann er einn harðasti Keflvíkingur landsins og finnst hvergi betra að vera en í bítlabænum. Sem strákur flutti hann til Hafnafjarðar en hélt þú áfram að æfa körfubolta í Keflavík og mætti á alla leiki sem vatnsberi. Hann er guðfaðir körfuboltakvölds og hefur gert heimildamyndir um Grindavík, Jón Arnór Stefánsson og Örlyg Sturluson, svo nokkrar séu nefndar.

Una Steinsdóttir
Hún hefur ástríðu fyrir lífinu og þykir vænt um fólk. Una Steinsdóttir er einn af helstu stjórnendum Íslandsbanka og að baki fjölda landsleikja í handbolta. Henni finnst best að vera í sókn í lífinu, það þarf í það minnsta að vera gaman. Ef gefur á bátinn horfir hún til himins og veit að allt verður í himnalagi. Góðar sögur eru styrktar af Sóknaráætlun Suðurnesja.

Hólmfríður Árnadóttir
Hún flutti til Suðurnesja fyrir fimm árum síðan og tók þar við stöðu skólastjóra Ssand, hún brennur fyrir velferðarmálum og er alveg einstaklega jákvæð. Við ræddum við Hólmfríði um lífið á Suðurnesjum, sakamálasögur, vegahlaup og að sjálfsögðu um pólitíkina.

Birgir Þórarinsson
Hann þótti villingur og ekki líklegur til að verða guðfræðingur og virðulegur þingmaður. Það má segja að hann sé 19 aldar maður í hjarta. Hann er strandamaður, óðalsbóndi á Knarranesi á Vatnsleysuströnd þar sem eitt sinn varð til ríkisstjórn. Þar hefur hann byggt sé kirkju. Við ræddum við Birgi Þórarinsson um Keflavík, trúna og að sjálfsögðu pólitíkina.

Vilhjálmur Árnason
Hann var flutningsmaður áfengisfrumvarpsins en sjálfur hefur hann aldrei byrjað að drekka. Hann er sveitastrákur sem endaði á Alþingi með viðkomu í lögreglunni. Í búsáhaldabyltingunni varð hann bókstaflega fyrir fyrir sprengju mótmælenda og sá kima þjóðfélagsins sem hann óraði ekki fyrir að sjá nokkur tíma. Vilhjálmur Árnason segir okkur m.a. hvernig lögreglustarfið nýtist honum nánast daglega í stafi sínu á Alþingi.

Oddný Harðardóttir
Hún verður alltaf samofin Garðinum enda býr hún þar enn á æskuheimili sínu. Þar var lífið oft erfitt í æsku Oddnýjar. Foreldrar hennar skildu þegar hún var táningur og heimilislífið var litað af drykkju föður hennar. Hún missti móður sína sem ung kona og þyrfti að hafa talsvert fyrir því að mennta sig. Það er óhætt að segja að Oddný Harðardóttir sé brautryðjandi. Fyrst kvenna varð hún bæjarstjóri í Garðinum, hún er eina konan sem hefur verið skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hún varð svo fyrst kvenna til þess að gegna hlutverki fjármálaráðherra. Það tímabil var Oddnýju einstaklega lærdómsríkt.

Guðbrandur Einarsson
Guðbrandur Einarsson verslaði fermingarfötin timbraður. Snemma náðu áfengi og kannabisefni sterkum tökum á lífi þessa unga manns sem dreymdi um að verða bóndi. Hann setti tappann í og sneri sér að tónlist, verkalýðsmálum og stjórnmálum. Hann er tvöfaldur tvíburapabbi með sterkar skoðanir og ríka réttlætiskennd. Guðbrandur er hér í einlægu viðtali þar sem hann talar um sigurinn gegn Bakkusi, barnalánið og baráttuna sem stundum fylgir stjórnmálum.
