Fram og til baka

RÚV

Menning & listir

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.

Egill Andrason og árin sem mótuðu hann

Egill Andrason og árin sem mótuðu hann

20jún

Sviðslistamaðurinn og tónlistarmaðurinn Egill Andrason hefur vakið mikla athygli fyrir ljúfa framkomu og dugnað á undanförnum árum og þeir sem fylgjast með leikhúsi upplifa að hann sé eiginlega í öllum verkum! Egill fann sér samt tíma til að koma í fimmu og tala um fimm ártöl sem mótuðu hann. Samtalið fór víða og árunum fylgdi tónlist. Í síðari hluta þáttarins hringdi Felix í dúx ME, Ínu Berglindi Guðmundsdóttur, en hún er líka tónlistarkona og hefur nýlega sent frá sér sitt fyrsta frumsamda lag. Svo kíktum við á það sem gerðist á deginum.

Sigurður Flosason og kennararnir

Sigurður Flosason og kennararnir

13jún

Kennarar eru Sigurði Flosasyni tónlistarmanni hugleiknir en hann hefur mörgum kennt í gegnum árin. Fimman hans fjallaði um kennara sem hafa haft djúp áhrif á líf hans og leikurinn berst frá lúðrasveitum og Tónmenntaskólanum í Reykjavík til Bandaríkjanna, Indiana og New York. Svo heiðrum við afmælisbörn dagsins og skoðum hvað gerðist á deginum

Hreimur Örn smurði samlokur til að sjá stjörnurnar

Hreimur Örn smurði samlokur til að sjá stjörnurnar

6jún

Hreimur Örn Heimisson er einn vinsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar og gleður enn með nýrri tónlist og spilamennsku um allt land. Hreimur gaf sér tíma til að kíkja í morgunkaffi í Fram og til baka og tala um fimm tónleika sem höfðu djúp áhrif á líf hans. Sagan berst úr Landeyjunum þar sem Sálin var í heimsókn um víðan völl og endar á tónleikum með Paramore í London. Í síðari hluta þáttarins kemur Jakob E Jakobsson vert á Jómfrúnni í heimsókn en Sumardjazzinn dásamlegi er að fara í gang í dag og RÚV ætlar að fylgjast vel með í sumar.

Lára Sóley listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík

Lára Sóley listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík

30maí

Húsvíkingurinn Lára Sóley Jóhannsdóttir er komin með mikla reynslu af stjórnun menningarviðburða þrátt fyrir ungan aldur og starfar nú sem listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík. Hennar fyrsta hátíð er einmitt að byrja í dag og Lára Sóley kom í fimmu í tilefni dagsins. Þar ræddi hún fimm listviðburði sem hafa haft áhrif á líf hennar og það fór frá Tónlistarveislu á Húsavík yfir í Víking Heiðar á Proms Svo hringdum við í Samúel Jón Samúelsson en hann á stórt tónverk með 500 krakka lúðrasveit á opnunarhátíð Listahátíðar í dag

Finnbogi Pétursson myndlistarmaður

Finnbogi Pétursson myndlistarmaður

23maí

Finnbogi Pétursson var valinn myndlistarmaður ársins á dögunum og þótti sýning hans í Hveragerði, Skjálfti, skara fram úr. Í umsögn dómefndar sagði: "Finnbogi vann hugmyndina að verkinu með tengdaföður sínum, jarðskjálftafræðingnum Ragnari Stefánssyni, sem jafnan var kallaður skjálfti. Þeir hugðust vinna með jarðfræðilega virkni Hveragerðis, meðal annars með tæki sem Ragnar hafði þróað. Áður en hugmyndin að sýningunni var fullunnin lést Ragnar en til að heiðra minningu hans kom Finnbogi eldrauðu duftkeri fyrir í rýminu og vísar þannig í nærveru ástvinar." Finnbogi kemur í fimmu og talar um fimm vörður í lífinu sem breyttu öllu.

Jakob van Oosterhout, stjarnan í Ormstungu

Jakob van Oosterhout, stjarnan í Ormstungu

16maí

leikarinn Jakob van Oosterhout hefur aldeilis slegið í gegn í Ormstungu í Þjóðleikhúsinu en hann kemur líka við sögu í 20 og eitthvað á RÚV og mun leika aðalhlutverk í söngleiknum Með allt á hreinu í sumar. Jakob kom í skemmtilega fimmu en hún fjallaði um fimm hljóðfæri lífs hans og sögurnar voru margar og skemmtilegar.

Jenný Kristín Valberg og áhrifavaldarnir

Jenný Kristín Valberg og áhrifavaldarnir

9maí

Jenný Kristín Valberg er kona sem barðist út úr ofbeldi í nánu sambandi og nýtir nú reynslu sína til að hjálpa öðrum í gegnum starf sitt hjá Bjarkarhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis. Jenný kom í Fimmu og sagði okkur af fimm áhrifavöldum í lífi hennar og það hófst með afa hennar, Ingvari Jónssyni, sem var skipa og húsasmiður. Í síðari hlutanum skoðum við það sem gerðist á deginum og spilum tónlist sem tengist.

Una Torfadóttir og áhugamálin

Una Torfadóttir og áhugamálin

2maí

Gestur dagsins í Fimmunni var Una Torfadóttir tónlistarmaður sem talaði um fimm áhugamál sem hafa haft áhrif á líf hennar. Talið leiddi okkur víiða, t.d um heilaæxlið sem hún fékk um tvítugsaldurinn og nauðsyn þess að nýta söng til heilunar. Svo kíktum við á það sem gerðist á deginum

Fyrsti maí - hátíðarútgáfa

Fyrsti maí - hátíðarútgáfa

1maí

Felix Bergsson fer Fram og til baka með hlustendum í sérstakri hátíðarútgáfu á fyrsta maí, baráttudegi verkalýðsins. Gestir hans eru Pálmi Sigurhjartarson tónlistarmaður, Jakob Tryggvason formaður Rafiðnaðarsambandsins og Elísabet Indra Ragnarsdóttir verkefnastjóri eigin dagskrárgerðar hjá Hörpu.

Jón Karl Ólafsson er fyrrverandi fullt

Jón Karl Ólafsson er fyrrverandi fullt

25apr

gestur dagsins var Jón Karl Ólafsson fyrrverandi forstjóri Icelandair sem hefur komið víða við á löngum ferli og grínast með það að hann sé "fyrrverandi fullt!" Jón Karl talaði í fimmu sinni um fimm lífsviðburði sem breyttu öllu og þar kenndi margra grasa allt frá krabbameinsgreiningu til píanónáms með viðkomu í tannlækningum sem urðu að viðskiptafræði. í síðari hlutanum skoðaði Felix hvað gerðist á deginum

Þér gæti líka líkað...