Flekaskil

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir og Dagur B. Eggertsson

Pólitík

Varnarsamningurinn milli Íslands og Bandaríkjanna er 75 ára um þessar mundir. Ekki gera allir sér grein fyrir að hann er nátengdur NATO og veru okkar þar. Sum ákvæði viðauka hans voru leyniskjöl frá því að hann var gerður 1951 og þar til bandaríski herinn hætti að vera með varanlegt herlið 2006. Þar á meðal ákvæði um að Bandaríkin geti stöðvað flug og tekið yfir loftl-helgi Íslands. Þau eru að umtalsverðu leyti enn í gildi. Flekaskil er hlaðvarp sem fjallar um Ísland og alþjóðamál. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir alþingismaður og fyrrverandi utanríkisráðherra og Dagur B. Eggertsson alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri eru af sinn hvorum væng stjórnmálanna. Þau ræða flekaskilin sem eru að verða í alþjóðamálum, breytta heimsmynd, árásir á alþjóðalög, bresti í bandalögum og nýjar átakalínur en síðast ekki síst hvernig þessar breytingar hafa áhrif á stöðu Íslands, — í öryggis- og varnarmálum, í samskiptum við helstu bandalagsríki okkar, í tengslum við Bandaríkin, NATO, Trömp og Evrópu.

Flekaskil - 11. þáttur

Flekaskil - 11. þáttur

22jún

Í ellefta þætti flekaskila veitir Þórdís Kolbrún innsýn í borðæfingu sem hún tók þátt í, ECFR Double Crisis Wargame, í París ásamt 45 reynslumiklum og háttsettum evróskum leiðtogum úr pólitík, stjórnsýslu og hernaðartengdum málum þar sem spjótin stóðu á Dönum og Grænlandi, - og Íslandi. Það að setja á svið atburðarrás vekur fjölda spurning um hvað dugir í alþjóðasamskiptum og bandalögum þegar til kastanna kemur. Flekaskil eru aðgengileg á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Flekaskil - 10. þáttur

Flekaskil - 10. þáttur

15jún

Afleiðingarnar af opnu bréfi Zelenzkys. Trump vildi Iran-samning og slagsmál í afmælisgjöf. Norrænir fjölmiðlar afhjúpa gríðarlega uppbyggingu Rússa við landamæri Noregs, Finnlands og Eystrasaltsríkjanna. Og glænýr íslensk skýrsla um hættuna af drónum. Höfum við verið sofandi? Hljóð, mynd og eftirvinnsla: Þórarinn Hjartarson Tónlist: Halldór Eldjárn

Flekaskil - 9. þáttur

Flekaskil - 9. þáttur

8jún

Opið bréf Zelenskís til Pútin. Þórdís Kolbrún ræðir framgöngu Trump Bandaríkjaforseta. Við tölum um stórmerkilegt páfabréf um gervigreind, ofurvald gervigreindarfyrirtækja og fasisma, svo fátt eitt sé nefnt. Flekaskil eru aðgengileg á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Flekaskil - 8. þáttur

Flekaskil - 8. þáttur

1jún

Tuttugu heilræði gegn harðstjórn, Evrópa, smávaxinn kona sem stendur gegn ásælni stórveldis, að vera niðri fyrir um stöðu heimsmála og fleira og fleira í áttunda þætti Flekaskila. Hljóð, mynd og eftirvinnsla: Þórarinn Hjartarson Tónlist: Halldór Eldjárn

Flekaskil - 7. þáttur

Flekaskil - 7. þáttur

25maí

Það hitnaði í kolunum í Flekaskilum! Fjallað er um heimsókn Trump til Kína, ójöfnuð og ofurvald tækirisa. Ummæli Ólafs Ragnars um Evrópu og Bandaríkin. Þá spurningu hvort meiri hagsæld sé í Bandaríkjunum en Evrópu og fleira og fleira.

Flekaskil - 6. þáttur

Flekaskil - 6. þáttur

18maí

Dagur B. Eggertsson og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ræða um stöðu Úkraínu.

Flekaskil - 5. þáttur

Flekaskil - 5. þáttur

11maí

Varnarsamningur Ísland og Bandaríkjanna átti 75 ára afmæli í vikunni. Höfum við tekið vörnum okkar, friði og skipulagi alþjóðakerfisins sem gefnu? Hvers vegna olli varnarsamningurinn svo miklum deilum og klofningi í samfélaginu og hvernig stendur hann í dag, nú þegar allir flokkar á Alþingi styðja hann og aðildina að NATO? Með samningnum hófst nýr kafli í sögu Íslands þar sem alþjóðamál, stórveldapólitík og íslensk fullveldisumræða fléttuðust saman á áður óþekktan hátt. Áhrif varnarsamningsins hafa verið pólitísk, efnahagsleg og samfélagsleg. Hann hefur kallað fram sterkar skoðanir um sjálfstæði Íslands, hervæðingu og stöðu landsins í alþjóðakerfinu. Hvaða áhrif hafa breytt Bandaríki á stöðu hans og okkar?

Flekaskil - 4. þáttur

Flekaskil - 4. þáttur

4maí

Leiðir Íran-stríðið til heimskreppu? Innrás Bandaríkjanna og Ísrael á Íran hefur alls ekki farið eins og Bandaríkjaforseti hafði væntingar til. Trump hefur brugðist hart við gagnrýni evrópskra bandamanna á stríðið og hefur lýst því yfir að 5.000 hermenn verði fluttir frá Þýskalandi. Gengið hefur á vopnabúr og hátækni loftvarnir bæði Bandaríkjamanna og samstarfsríkja þeirra við botn Miðjarðarhafs. Fjallað er um stöðuna í stríðinu og afleiðingar þess frá mörgum hliðum í þessum fjórða þætti Flekaskila. Flekaskil er hlaðvarp sem fjallar um Ísland og alþjóðamál. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir alþingismaður og fyrrverandi utanríkisráðherra og Dagur B. Eggertsson alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri eru af sinn hvorum væng stjórnmálanna. Þau ræða flekaskilin sem eru að verða í alþjóðamálum, breytta heimsmynd, árásir á alþjóðalög, bresti í bandalögum og nýjar átakalínur en síðast ekki síst hvernig þessar breytingar hafa áhrif á stöðu Íslands, — í öryggis- og varnarmálum, í samskiptum við helstu bandalagsríki okkar, í tengslum við Bandaríkin, NATO, Trump og Evrópu.

Flekaskil - 3. þáttur

Flekaskil - 3. þáttur

27apr

Flekaskil innan NATO. Spenna milli Bandaríkjanna og Evrópu og staða Íslands. Flekaskil er hlaðvarp sem fjallar um Ísland og alþjóðamál. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir alþingismaður og fyrrverandi utanríkisráðherra og Dagur B. Eggertsson alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri eru af sinn hvorum væng stjórnmálanna. Þau ræða flekaskilin sem eru að verða í alþjóðamálum, breytta heimsmynd, árásir á alþjóðalög, bresti í bandalögum og nýjar átakalínur en síðast ekki síst hvernig þessar breytingar hafa áhrif á stöðu Íslands, — í öryggis- og varnarmálum, í samskiptum við helstu bandalagsríki okkar, í tengslum við Bandaríkin, NATO, Trömp og Evrópu.

Flekaskil - 2. þáttur

Flekaskil - 2. þáttur

20apr

Úkraínu-stríðið og nýafstaðnar kosningar í Ungverjalandi. Flekaskil er hlaðvarp sem fjallar um Ísland og alþjóðamál. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir alþingismaður og fyrrverandi utanríkisráðherra og Dagur B. Eggertsson alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri eru af sinn hvorum væng stjórnmálanna. Þau ræða flekaskilin sem eru að verða í alþjóðamálum, breytta heimsmynd, árásir á alþjóðalög, bresti í bandalögum og nýjar átakalínur en síðast ekki síst hvernig þessar breytingar hafa áhrif á stöðu Íslands, — í öryggis- og varnarmálum, í samskiptum við helstu bandalagsríki okkar, í tengslum við Bandaríkin, NATO, Trömp og Evrópu. Mynd, hljóð og eftirvinnsla: Þórarinn Hjartarson Tónlist: Halldór Eldjárn

Þér gæti líka líkað...