Fantasíusvítan

Podcaststöðin

Íþróttir

Lilja Gísla & Jóna María fylgja þér í gegnum nýjustu Bachelor seríuna með vikulegri samantekt ásamt því að fara yfir það helsta sem gengur á í Bachelor heiminum.

LI Vika 2: Áskorun, ástir og átakanlega mikið drama

LI Vika 2: Áskorun, ástir og átakanlega mikið drama

18jún

Já það má með sanni segja að þessi Love Island sería fari af stað með trompi - við viljum vita hverjir eru nýjir pródúserar og hækka launin þeirra til muna! Áfram gakk og engar bremsur í dramanu og það er ótrúlegt hversu stórt gap er að myndast á milli stelpnanna og strákanna í þessari seríu!  Lilja fékk til sín góðan gest í þennan þátt en Fjóla Heiðdal mætti og tók þáttinn með Lilju að þessu sinni.

LI vika 1: Velkomin, vandræði og vendingar

LI vika 1: Velkomin, vandræði og vendingar

10jún

Það er aldeilis að þessi fyrsta vika byrjar með vendingum og óvæntum atriðum! Svítu vinkonurnar eru spenntar fyrir komandi seríu og þessi vika kveikti sannarlega neistann og það verður ekki aftur snúið.

Vika 0: Velkomin aftur í villuna!

Vika 0: Velkomin aftur í villuna!

31maí

Vinkonurnar fara yfir þátttakendur í nýrri Love Island seríu í þessum nýja þætti!  Framundan eru margar vikur af fólki á sundfötunum að þræta, tafsa og tauta í hvoru öðru um hver er skotin í hverjum og hver er ,,not there for the right reasons" og við erum here for it!

Vika 0.5: Met, Makeup og misgáfulegar umræður

Vika 0.5: Met, Makeup og misgáfulegar umræður

6maí

Svítu systurnar mæta hressar og kátar í sófann í dag með lítinn gest við hlið sér - Eddi mætti hress og kátur. Umræðuefnið er margvíslegt en að þessu sinni var það TikTok, metgala, raunveruleikasjónvarpið og snyrtivörur eins og systrunum er lagið.

Vika 0.3: Seinar en sætar

Vika 0.3: Seinar en sætar

4maí

Vegna tæknilegra örðugleika er þessi þáttur að koma í loftið LÖNGU eftir tökur. En hér er hann ferskur og flottur.

Vika 0.2: SuperNova, slúður og smávægilegt frekjukast

Vika 0.2: SuperNova, slúður og smávægilegt frekjukast

7apr

Þátturinn hefur fengið smá yfirhalningu. Í þættinum förum við yfir það helsta sem er að frétta í heimi raunveruleikasjónvarps, Jóna segir frá siðferðislega tæpum raunveruleika þáttum og systurnar taka frekjuköst, ekkert nýtt undir sólinni í rauninni!

Vika 0.1: Hvað, hver og hvernig?

Vika 0.1: Hvað, hver og hvernig?

24mar

Já það er Taylor Frankie no more í Bachelorette svo við vinkonurnar þurfum að leita annað til þess að finna fantasíusvítu umræðuefni. Í þessum þætti fórum við örsnöggt yfir það sem gerst hefur í Taylor málinu frá því að seríunni var cancelað og ræddum allt milli himins og jarðar.

Vika 0: Mættar, móðar og másandi!

Vika 0: Mættar, móðar og másandi!

18mar

Systurnar eru mættar aftur í Svítuna. Í þetta skipti til þess að ræða nýjustu seríuna af Bachelorette og allt sem henni fylgir the good, bad and ugly. Í þessum þætti förum við aðeins yfir það sem á daga okkar hefur drifið síðan við hittumst síðast fyrir næstum því 2 árum síðan!! Sama hvernig serían verður hlakkar okkur til að röfla, flissa og taka nokkur vel valin lög fyrir ykkur!

LI 24: vika 4 - kjánar, korter í netkt og Kristjana!

LI 24: vika 4 - kjánar, korter í netkt og Kristjana!

23júl2024

Já jú einmitt, seint og illa það breytist ekki! En Love Island vika 4 er mætt! Er Joey Essex mesta rassandlitið á eyjunni? Spurning sem er auðvelt að svara .. og er svarað óþarflega oft í þessum þætti. Lilja fær til sín snillingin Kristjönu í Love Island lestur og þær fara sannarlega ítarlega í saumana á þessari annars ágætu fjórðu viku!

LI 24: vika 3 - Drama, Dýrleif og delulu

LI 24: vika 3 - Drama, Dýrleif og delulu

8júl2024

Lilja er mætt með gest í sett en Dýrleif stór meistari, förðunarfræðingur, podcast stjarna og snillingur með meiru kemur í heimsókn að ræa viku 3 af Love Island!

Þér gæti líka líkað...