EKKI AUMINGI

Eva Matta

HeilsaAndleg málefni

Eva Matta endurrammar umræðuna um endurhæfingu og kulnun. Af hverju er svona erfitt að hægja á, án þess að líða eins og aumingja?

S1E6 - "Þegar taugakerfin tengjast" - Guðbrandur Árni Ísberg sálfræðingur

S1E6 - "Þegar taugakerfin tengjast" - Guðbrandur Árni Ísberg sálfræðingur

9jún

Hvað hefur ástin með endurhæfingu að gera? Meira en maður myndi halda. Í þessum þætti sest ég niður með sálfræðingnum og rithöfundinum Guðbrandi Árna Ísberg, höfundi bókanna Skömmin, Í nándinni og nýju bókarinnar Í augum þínum verð ég til – um ástina. Guðbrandur hefur í áratugi unnið með fólki í leit að betri tengslum, meiri nánd og sterkari sjálfsvirðingu. Við ræðum ástina, sambönd, skömm og það sem gerist þegar lífið tekur óvænta beygju. Hvernig hefur sjálfsvirðið áhrif á samböndin okkar? Af hverju er svona erfitt að taka á móti hjálp þegar við þurfum mest á henni að halda? Og hvað gerist í ástarsambandi þegar annar aðilinn neyðist til að hægja á sér, fara í endurhæfingu eða sleppa tökunum á þeirri útgáfu af sér sem hann þekkti áður? Þessi þáttur er í boði Lyfju, Nordaid sprey vítamínanna, Bati.app og San Pellegrino - TAKK

S1E5 - "Ég er ekki lengur með áfallastreituröskun" - Svava Brooks

S1E5 - "Ég er ekki lengur með áfallastreituröskun" - Svava Brooks

2jún

Svava Brooks er er mögnuð kona, TRE® leiðbeinandi og ein af stofnendum samtakanna Blátt áfram. Hún hefur áratuga reynslu af því að styðja fólk á batavegi eftir áföll og erfiðleika.  Ég er vægast sagt þakklát fyrir að hafa tekið þetta spjall við Svövu og þú verður eiginlega að heyra þetta. Í þættinum ræðum við meðal annars TRE® (Tension & Trauma Releasing Exercises), aðferð sem hjálpar líkamanum að losa um uppsafnaða spennu, streitu og áföll, og Svava deilir sinni innsýn í tengsl áfalla, taugakerfisins og bataferlisins, og hvernig hægt er að finna leiðina aftur til sín með mildi, öryggi og sjálfsást.

S1E4 - Er baðið að sjóða þig lifandi?

S1E4 - Er baðið að sjóða þig lifandi?

26maí

Hvað einkenndi langlífustu konu heims? Skammar þú þig einhverntíman? Ertu að bíða eftir að einhver sjái þig? Hvað er temmilegt hitastig á baði? Þetta og margt fleira í þætti vikunnar.  Þátturinn er í boði Lyfju, Nordaid spreyvítamína, San Pellegrino og Bati.app - TAKK

S1E3 - "Hvað er líkaminn að reyna að segja þér?" - Hólmfríður sjúkraþjálfari

S1E3 - "Hvað er líkaminn að reyna að segja þér?" - Hólmfríður sjúkraþjálfari

19maí

Hólmfríður B. Þorsteinsdóttir eða Hófí eins og við þekkjum hana mörg, er sjúkraþjálfari sem ég fór til í minni endurhæfingu, og það breytti öllu. Hófí starfar hjá Verkjalausnum og er önnur stofnenda Stoðkerfis- og heilsuskóla Hólmfríðar og Þórhöllu, ásamt allskonar öðrum áhugaverðum úrræðum fyrir fólk í leit af lausnum fyrir líkamann. Þetta er fagkona sem þú vilt hlusta á.  Þátturinn er í boði Lyfju, Nordaid spreyvítamína, Bati.app og San Pellegrino - TAKK

S1E2 - "Ekki ganga yfir Vatnajökul einn" - Matti Osvald

S1E2 - "Ekki ganga yfir Vatnajökul einn" - Matti Osvald

12maí

Kæri hlustandi það er komið að fyrsta viðmælanda þessa ágæta hlaðvarps.. og fyrst ég er að vanda mig að halda taugakerfinu rólegu í endurhæfingunni þá var best að fá hann pabba minn bara með mér í fyrsta þátt. Hann er engum líkur, fagmaður í því að koma fólki í gegnum krefjandi tímabil, Matti Osvald gjöriðisvovel!

S1E1 - Lóan er komin að segja mér að vera ekki aumingi

S1E1 - Lóan er komin að segja mér að vera ekki aumingi

5maí

Fyrsti þáttur í fyrstu seríu! Þetta podcast er tilraun Evu til þess að endurramma orðræðuna um hvíld, endurhæfingu og allt sem fylgir. Hún fer yfir hvers vegna í ósköpunum henni datt í hug að henda í þetta podcast og að sjálfsögðu þurfum við að ræða þessa aumingjahræðslu okkar...  TAKK FYRIR AÐ VERA MEÐ: LYFJA, NORDAID, SAN PELLEGRINO & BATI.APP <3

Þér gæti líka líkað...