<p>Fyrrum fréttakonurnar Þórhildur Þorkels og Nadine Yaghi rifja upp áhugaverð fréttamál og fjalla um þau á mannlegum nótum.</p>

Morðið á Hannesi Þór Helgasyni
Fá sakamálmál hafa haft jafn mikil áhrif á íslensku þjóðina og morðið á Hannesi Þór Helgasyni árið 2010. Morðið var einstaklega hrottafengið og þaulskipulagt auk þess sem nokkuð langan tíma tók að upplýsa það. Gunnar Rúnar Sigurþórsson játaði verknaðinn en hann var hugfanginn af kærustu Hannesar og hafði fyrir morðið sett ástarjátningu til hennar á YouTube. Patrik Atlason, systursonur Hannesar, var 16 ára þegar frændi hans var myrtur en hann fer yfir málið með okkur og lýsir þeim gríðarlega mótandi áhrifum sem það hafði á líf hans.

Rock star Supernova ævintýrið
Átta þúsund manns tóku á móti Magna Ásgeirssyni í Smáralind þegar hann snéri heim eftir þátttöku í raunveruleikaþættinum Rock Star Supernova. Þjóðin stóð á öndinni í þrjá mánuði, vaknaði á nóttunni til að kjósa og samkeppnisaðilar á markaði fóru í samstillt átak til að koma sem flestum atkvæðum í gegnum símakosningu. Magni lenti í fjórða sæti í keppninni en við heimkomu færði ráðherra honum gjöf frá ríkisstjórninni og þakkir fyrir hönd íslensku þjóðarinnar. Við förum yfir Rock Star brjálæðið í Eftirmálum og ræðum bæði við Magna sjálfan og Magnús Ragnarsson, manninn á bak við þetta ævintýri. Styrktaraðilar Eftirmála eru: -Nettó -Eldum Rétt -World Class -Collab - Alfreð - Intuens

Wok On málið / Quang Le
Quang Le, veitingamaðurinn umsvifamikli sem breytti nafni sínu í Davíð Viðarsson, er grunaður um peningaþvætti, mansal, skipulagða glæpastarfsemi og fleira. Hann var handtekinn árið 2024 en bíður enn dóms í málinu sem kennt er við veitingastaðinn Wok On þar sem hann var einn eigenda. Málið er talið vera umfangsmesta mansalsmál Íslandssögunnar, teygir anga sína í ótal áttir og tekur óvænta stefnu oftar en einu sinni. Sveinn Andri Sveinsson lögfræðingur Quang Le fer yfir málið með okkur. Styrktaraðilar Eftirmála eru: Nettó Eldum Rétt Collab Alfreð Intuens World Class

PIP brjóstapúðamálið
Yfir 400 íslenskar konur fengu grædda í sig ólöglega silikonpúða á árunum 2000-2010 frá fyrirtækinu PIP. Í brjóstapúðunum var iðnaðarsilikon í stað læknisfræðilegs silikons og voru þeir í mörgum tilvikum byrjaðir að leka. Í Eftirmálum förum við yfir þetta risastóra svikamál og ræðum við eina þeirra sem fékk púðana grædda í sig með skelfilegum afleiðingum. Málið er enn í gangi fyrir dómstólum meira en áratug eftir að það kom upp. Styrktaraðilar Eftirmála eru: Nettó Eldum Rétt Collab Alfreð Intuens World Class

Skáksambandsmálið
Sérsveitin réðist inn í húsnæði Skáksambands Íslands með látum í janúar 2018 eftir að dularfullur pakki barst þangað. Um svipað leyti féll íslensk kona fram af svölum á heimili sínu á Spáni og lamaðist. Þessi atvik og fleiri urðu hluti af Skáksambandsmálinu svokallaða, marglaga sakamáli sem líkist einna helst kvikmyndahandriti. Í þættinum förum við yfir atburðarásina með fréttamanninum Sunnu Sæmundsdóttur en stórum spurningum í málinu er enn ósvarað. Styrktaraðilar Eftirmála eru: -Nettó -NOLA snyrtivöruverslun / kóðinn EFTIRMÁL veitir 15% afslátt -Eldum Rétt -Collab -Alfreð -Intuens -World Class

Raðmorðinginn og íslenska eiginkonan
Rex Heuermann, sem grunaður er um að vera einn mesti raðmorðingi í sögu Bandaríkjanna, er giftur íslenskri konu að nafni Ása Ellerup og hefur nokkrum sinnum komið hingað til lands. Hann er talinn hafa myrt fjölda kvenna á Gilgo ströndinni í New Jersey og bíður nú réttahalda vestanhafs. Talið er að hann hafi framið einhver ódæðisverkanna á meðan Ása var í fríi með börn þeirra á Íslandi. Við förum yfir þetta umfangsmikla mál í þættinum og ræðum við skyldmenni Ásu. Styrktaraðilar Eftirmála eru: -Nettó -NOLA snyrtivöruverslun Ármúla 38 -Eldum Rétt -World Class -Collab Samsetning þáttar: Adelina Antal Klippur í þættinum: Is Rex Heuermann the serial killer behind the Gilgo Beach murders in Long Island? YouTube Gilgo Beach suspect Rex Heuermann’s estranged wife screams at reporters YouTube YouTube The Gilgo Beach Killer: House of Secrets Official Trailer Peacock Original YouTube

Hvarf Lúðvíks Péturssonar í Grindavík
Í dimmum og köldum janúarmánuði árið 2024 átti sér stað hræðilegt slys í Grindavík þegar jörðin opnaðist og Lúðvík Pétursson, verktaki sem var við gröfuvinnu á svæðinu, hvarf ofan í sprunguna. Þjóðin stóð á öndinni á meðan fordæmalaus leit fór fram í stórhættulegum aðstæðum. Í þættinum er rætt við dætur Lúðvíks sem vilja endurheimta líkamsleifar föður síns. Styrktaraðilar Eftirmála eru: -NOLA snyrtivöruverslun Ármúla 38 -Nettó -Eldum Rétt -World Class -Collab

Braggamálið
Það hefði líklega fáa grunað að uppbygging á gömlum bragga í Nauthólsvík yrði eitt stærsta fréttamál ársins 2018, en það varð raunin. Braggamálið setti samfélagið á hliðina þegar í ljós kom að kostnaður við framkvæmdina hafði farið langt fram úr öllu hófi, meðal annars vegna höfundaréttavarinna stráa sem plantað hafði verið fyrir framan braggann. Þátturinn er í boði: Nettó Duck & Rose Sjöstrand - 15% afsláttur með kóðanum EFTIRMAL

Gýgjarhólsmálið
Í mars 2018 kom upp morðmál á sveitabænum Gýgjarhóli II í uppsveitum Árnessýslu þegar maður varð bróður sínum að bana með hrottafengnum hætti. Málið lamaði samfélagið í sveitinni og fjölskylda bræðranna sat eftir í sárum. Í þættinum fara börn fórnarlambsins yfir áfallið, baráttuna fyrir dómstólum og hvernig líf þeirra breyttist þennan örlagaríka dag. Þátturinn er í boði: Nettó Duck & Rose Sjöstrand - 15% afsláttur með kóðanum EFTIRMAL

Flugslysið í Skerjafirði
Í ágúst árið 2000 hrapaði lítil flugvél í sjóinn í Skerjafirði í Reykjavík með sex manns innanborðs. Fólkið var á leið heim eftir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum þegar vélin hætti við lendingu á síðustu stundu. Flugslysið vakti strax upp stórar spurningar og varð að risastóru fréttamáli þar sem aðstandendur fórnarlambanna tóku rannsóknina í eigin hendur til að komast að sannleikanum. Friðrik Þór Guðmundsson, faðir sautján ára drengs sem lést í slysinu, fer yfir málið og lygileg eftirmál þess í þættinum. Þátturinn er í boði: Nettó Duck & Rose Sjöstrand - 15% afsláttur með kóðanum EFTIRMAL



