Undirmannaðar

Undirmannaðar

SamfélagiðSkemmtunForeldrarKrakkar

Þrjár tvíburamæður með munnræpu. Deilum reynslu okkar á tvíburum ásamt því að fá til okkar frábæra viðmælendur sem allir eiga það sameiginlegt að vera foreldrar.

140. Undirmannaðar - Ágústa Rós

140. Undirmannaðar - Ágústa Rós

22
apríl

Viðmælandi vikunnar er Ágústa Rós, þriggja barna móðir og fellow tvíburamamma. Í þættinum ræðum við uppvaxtarárin, meðgöngurnar og fæðingarnar og hvernig lífið er í dag með þrjá orkumikla stráka. Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💙 Sjóvá 🔑 Félag lykilmanna 💚 Lyfjaval 🏦Landsbankinn 🧡 Serrano 💦Happy Hydrate 🍕Flatey

139. Undirmannaðar - Hlín Magnúsdóttir

139. Undirmannaðar - Hlín Magnúsdóttir

16
apríl

Viðmælandi vikunnar er Hlín Magnúsdóttir, þriggja barna móðir frá Hvolsvelli. Hlín hefur magnaða og krefjandi sögu að segja, hún og hennar fjölskylda gengu í gegnum stórt áfall þegar barnsfaðir hennar varð fyrir heilaskaða. Við fórum líka á léttu nóturnar, ræddum fæðingarnar, lífið í sveitinni og allt þar á milli. Ef einhver þarna úti er eða hefur verið í svipuðum sporum og langar að spjalla við einhvern sem skilur, þá má senda á Hlín hér á instagram eða senda henni tölvupóst hlinm92@gmail.com Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💙 Sjóvá 🔑 Félag lykilmanna 💚 Lyfjaval 🏦Landsbankinn 🧡 Serrano 💦Happy Hydrate 🍕Flatey

138. Undirmannaðar - Sara Mildred

138. Undirmannaðar - Sara Mildred

9
apríl

Viðmælandi vikunnar er Sara Mildred, tveggja barna móðir og verkefnastjóri. Sara byrjar á að segja okkur frá mjög skemmtilegum ferðalögum sem hún á undir beltinu og þeim ævintýrum sem hún hefur farið í ásamt að ræða fæðingar, fæðingarorlofið. Við fórum einnig inn á mjög mikilvæga umræðu varðandi það að mæta aftur til vinnu / á vinnumarkað eftir barneignir og hvað atvinnurekendur mættu gera betur. Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💙 Sjóvá 🔑 Félag lykilmanna 💚 Lyfjaval 🏦Landsbankinn 🧡 Serrano 💦Happy Hydrate 🍕Flatey

137. Undirmannaðar - Melkorka Mist

137. Undirmannaðar - Melkorka Mist

2
apríl

Viðmælandi vikunnar er Melkorka Mist, tveggja barna móðir, hundamamma, sérfræðingur í próteintækni og formaður UAK svo eitthvað sé nefnt! Melkorka er heldur betur orkumikil og var mjög gaman að spjalla við hana um lífið og tilveruna. Melkorka varð ung mamma og ræðir hvað það getur verið einmanalegt og krefjandi og hvernig fæðingarorlofin urðu því mjög mismunandi. En við fórum heldur betur um víðan völl, fengum gæsahúðarsögu og innblástur fyrir því að ryðja veginn sem konur í atvinnulífinu. Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💙 Sjóvá 🔑 Félag lykilmanna 💚 Lyfjaval 🏦Landsbankinn 🧡 Serrano 💦Happy Hydrate 🍕Flatey

136. Undirmannaðar - Stefanía Rafnsdóttir

136. Undirmannaðar - Stefanía Rafnsdóttir

26
mars

Viðmælandi vikunnar er Stefanía Rafnsdóttir, þriggja barna móðir. Stefanía og Brynjar byrjuðu ung saman og eignuðust sitt fyrsta barn stuttu síðar. Lífið tók óvænta stefnu og stóðu þau frammi fyrir stóru verkefni þegar Brynjar greindist með krabbamein og börðust þau saman fram á síðasta dag. Hún ræddi við okkur á einlægan hátt um baráttuna, barneignir, sorgina, að finna ástina aftur og lífinu í dag ❤️ Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💙 Sjóvá 🏦Landsbankinn 🧡 Serrano 🍦Ísbúð Huppu 💦Happy Hydrate 🍫Smash! 💥Fulltingi 🍕Flatey

135. Undirmannaðar - Tanja Tómasdóttir

135. Undirmannaðar - Tanja Tómasdóttir

19
mars

Viðmælandi vikunnar er Tanja Tómasdóttir, þriggja barna móðir og framkvæmdastjóri Breiðabliks. Í þættinum ræðir Tanja um uppvaxtarárin í Vestmannaeyjum, hvernig hún kynntist Magnúsi, manninum sínum, meðgöngurnar og fæðingarnar ásamt því hvernig hún varð framkvæmdastjóri Breiðabliks! Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💙 Sjóvá 🏦Landsbankinn 🧡 Serrano 🍦Ísbúð Huppu 💦Happy Hydrate 🍫Smash! 💥Fulltingi 🍕Flatey

134. Undirmannaðar - Hafdís Rós

134. Undirmannaðar - Hafdís Rós

13
mars

Viðmælandi vikunnar er Hafdís Rós, móðir og sjúkraliði. Hafdís gekk í gegnum ýmsilegt á meðgöngunni sinni og deilir því með okkur þar sem ekki er mikið rætt um þennan meðgöngu kvilla, hyperemesis gravidarum. Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💙 Sjóvá 🏦Landsbankinn 🧡 Serrano 🍦Ísbúð Huppu 💦Happy Hydrate 🍫Smash! 💥Fulltingi 🍕Flatey

133. Undirmannaðar - Andrea & Jónas Már

133. Undirmannaðar - Andrea & Jónas Már

5
mars

Viðmælendur vikunnar eru þriggja barna foreldrarnir, Andrea Gestsdóttir, læknir og Jónas Már Torfason, lögfræðingur. Jónas og Andrea eiga þrjár dætur. Í þættinum ræddum við fæðingu hjá tvíburunum Ölmu og Vigdísi, sem komu fyrir tímann og dvöldu á vökudeildinni í um 6 vikur. Fæðingu yngri dóttur þeirra, Svövu, sem fæddist í Kaupmannahöfn ásamt því að ræða lífið úti án baklands og þeirra ævintýri. Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💙 Sjóvá 🏦Landsbankinn 🧡 Serrano 🍦Ísbúð Huppu 💦Happy Hydrate 🍫Smash! 💥Fulltingi 🍕Flatey

132. Undirmannaðar - Guðrún & Oddur

132. Undirmannaðar - Guðrún & Oddur

26
febrúar

Viðmælendur vikunnar eru þau Guðrún og Oddur, fellow tvíbura foreldrar. Guðrún og Oddur eiga 3 stráka á 2 og hálfu ári. Þau segja okkur frá lífinu og tilverunni á skemmtilegan hátt, mikið um grín og glens ásamt því að fara yfir ólíkar meðgöngur og fæðingar. Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💙 Sjóvá 🏦Landsbankinn 🧡 Serrano 🍦Ísbúð Huppu 💦Happy Hydrate 🍫Smash! 💥Fulltingi 🍕Flatey

131. Undirmannaðar - Hulda Viktorsdóttir

131. Undirmannaðar - Hulda Viktorsdóttir

19
febrúar

Viðmælandi vikunnar er Hulda Viktorsdóttir, tveggja barna móðir og ljósmóðir. Hulda segir okkur frá uppvaxtarárunum, meðgöngum og ólíkum fæðingum með strákana sína. Við ræddum hjúkrunar- og ljósmæðranámið og hvernig það er að starfa sem ljósmóðir. Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💙 Sjóvá 🏦Landsbankinn 🧡 Serrano 🍦Ísbúð Huppu 💦Happy Hydrate 🍫Smash! 💥Fulltingi 🍕Flatey

Þér gæti líka líkað...