Við stjórnum og rekum flutningskerfi raforku á Íslandi. Fylgstu með hlaðvarpinu okkar þar sem við fjöllum reglulega um málefni líðandi stundar í raforkukerfinu.

Jónas Bjarnason & lífið í stjórnstöðinni
Stundum leiðir tilviljun okkur á staði sem móta heila starfsævi. Í þessum þætti Landsnetshlaðvarpsins, sem tekinn var um áramótin, hittum við Jónas Bjarnason sem hefur starfað í stjórnstöð Landsnets og Landsvirkjunar í 31 ár. Hann segir frá vegferð sem var bæði krefjandi og skemmtileg, deilir minningum, sögum og innsýn í lífið í stjórnstöðinni. Jónas er nú á leið í nýjan kafla í lífinu og þetta er frábært tækifæri til að hlusta áður en hann kveður stjórnstöðvarsviði.

Með vindinn í fangið
Velkomin í spjallhlaðvarp um orku, framtíð og samtalið þar á milli. Í þessum þætti fengu þeir Gnýr Guðmundsson og Magni Þór Pálsson Karen Maríu Jensdóttur, verkefnastjóra í þróun vindorku hjá Qair Íslandi, í heimsókn í Landsnetshlaðvarpið. Þau ræða vindorku á Íslandi, þróunina fram undan og hvað þarf til að ná góðum meðbyr – með vindinn inn í fangið gjörið þið svo vel. #orkuskiptaskólinn

Leggjum línurnar til framtíðar
Í þætti dagsins ætlum við að skyggnast bak við tjöldin í undirbúningi stórra framkvæmda hjá Landsneti og fengum Hlín Benediktsdóttur, yfirmann undirbúnings framkvæmda, að hljóðnemanum þar sem hún leiðir okkur í gegnum ferlið, áskoranirnar, fólkið og framtíðina.

Kerfisjöfnuður, afhendingaröryggi og orkunýting
Hvernig þróast framboð og eftirspurn raforku næstu fimm árin? Hvaða áskoranir eru fram undan í flutningskerfinu - og hvernig bregðumst við við þeim? Í þessum þætti rýnum við í Kerfisjöfnuðarskýrslu Landsnets, árlega greiningarskýrslu sem gefur innsýn í orkukerfið og þær sviðsmyndir sem geta blasað við á næstu árum. Skýrslan er lykilverkfæri við ákvarðanatöku um afhendingaröryggi, orkunýtingu og orkuskipti. Gestur þáttarins er Árni Baldur Möller sérfræðingur í kerfisgreiningum en hann og Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi spá hér í spilin, ræða stærstu áherslurnar og varpa ljósi á þær sviðsmyndir sem gætu mótað framtíð raforkukerfisins

Úr frystihúsi í friðargæslu og nú verkefnastjóri kerfisáætlunar
Hvað eiga kerfisáætlun, friðargæsla, stjórnmálafræði og frystihús í Þorlákshöfn sameiginlegt? Jú – Herdís Sigurgrímsdóttir. Hún er manneskjan sem stýrði frábærum hópi sem vann nýjustu kerfisáætlunina okkar – sem hún segir svera hryggjastykkið í starfsemi Landsnets. Í þætti dagsins spjöllum við við Herdísi um hvernig hún sér kerfisáætlun fyrst og fremst sem samfélagsþróun en líka um framtíðarorkugjafa, lífið og reynsluna sem hún kom með með til Landsnet.

Er vefsíðan úrelt eða hefur hún bara skipt um hlutverk?
Í þessum þætti rýna þau Steinunn, Hallur og Einar í stafræna landslagið, hvernig hefur vefurinn þróast, hvaða hlutverk gegna heimasíður í dag og hvernig hafa samfélagsmiðlar breytt leiknum? Er vefsíðan úrelt eða hefur hún bara skipt um hlutverk? Þau ræða þróunina, staðreyndirnar, möguleikana og jafnvel heimspekina. Hvort sem þú ert forritari, markaðsmaður eða einfaldlega forvitin um hvað gerist á bak við skjáinn, þá er þetta þátturinn fyrir þig.

" Á endanum snýst þetta bara um fólk " Hólmgrímur Elís
Í þessum þætti fáum við Hólmgrím Elís Bragason að hljóðnemanum í Landsnetshlaðvarpinu. Elli, eins og hann er alltaf kallaður, er sérfræðingur á mannauðssviðinu okkar hjá Landsneti. Hann settist niður með Steinunni Þorsteinsdóttur og ræddi áherslur í mannauðsmálum, mikilvægi samskipta og hvernig menning innan fyrirtækja hefur áhrif á fólkið – og árangurinn. ...já, og líka hvort lífið sé blómabeð. Áhugavert, hreinskilið og fullt af hugvekjum – smelltu á play og hlustaðu.

Í stígvélum á vaktinni - Spói og lífið hjá Landsneti
Sigurður Pétur Ólafsson – Spói – lagði nýverið stígvélin á hilluna eftir heil 45 ár í geiranum, þar af 20 í stjórnstöð Landsnets — eða allt frá stofnun. Hann settist niður með Margréti Evu Þórðardóttur og Steinunni Þorsteinsdóttur og sagði þeim sögur af tímanum í Sigöldu og Hrauneyjum, ræddi vatn og virkjanir — og flugið og flugvélasmíði, sem hafa verið honum hugleikin frá unga aldri.

Draumar, Döðlur og rafmagn
Guðrún Ýr Guðmundsdóttir eða Gugga er nýjasti viðmælandi Landsnetshlaðvarpsins. Hún er sumarstarfsmaður hjá okkut, klár verkfræðingur og tónlistarkona í hljómsveitinni Dóra og Döðlurnar. Í þessum þætti segir hún frá því hvernig hún eltir bæði draumana sína í tækni og tónlist, af hverju það er ekki nauðsynlegt að velja bara eitt og auðvitað hvernig lífið hjá Landsneti er að birtast henni. Þetta er þáttur um hugrekki, fjölbreytileika og leiðina til Landsnets - ekki missa af Guggu.

Samtal við samfélagið
Samtalið skiptir okkur hjá Landsneti miklu máli – og í nýjasta þætti Landsnetshlaðvarpsins ræða Steinunn, Einar, Hlín og Valgerður um mikilvægi góðs samtals við fólkið í nærsamfélagi raflínanna okkar. Hvernig ætlum við að hlusta, miðla og byggja traust? Hvaða lærdóma höfum við dregið – og hvert stefnum við



