Athafnafólk

Sesselja Vilhjálms

Viðskipti

Athafnafólk er hlaðvarpsþáttur þar sem talað er við frumkvöðla og stjórnendur sem hafa náð eftirtektarverðum árangri í viðskiptalífinu. Umsjón með þáttunum hefur Sesselja Vilhjálmsdóttir.

81. Einar Örn Einarsson, meðstofnandi Serrano, Zócalo og Wok to Walk á Íslandi

81. Einar Örn Einarsson, meðstofnandi Serrano, Zócalo og Wok to Walk á Íslandi

2
júlí 2025

Viðmælandi þáttarins er Einar Örn Einarsson, stofnandi og forstjóri Zócalo. Zócalo er keðja af mexíkóskum skyndibitastöðum sem eru allir reknir sem sérleyfisstaðir meðal annars í London, Stokkhólmi og Kaupmannahöfn. Einar er fæddur árið 1977, gekk í Verzlunarskóla Íslands og kláraði síðar BA gráðu í hagfræði frá Northwestern University í Chicago. Eftir útskrift flutti Einar aftur til Íslands og stofnaði ásamt Emil Helga Lárussyni, veitingastaðinn, Serrano, árið 2002. Hann vann í nokkur ár sem markaðsstjóri hjá Danól áður en hann ákvað síðan að einbeita sér algjörlega að Serrano árið 2006. Árið 2008 flutti Einar síðan til Svíþjóðar til að stofna fyrsta Serrano staðinn þar en síðar breyttist Serrano í Zócalo og með árunum eru Zócalo staðirnir orðnir 22 talsins í fimm löndum. Einar hefur einnig stofnað mathöll í miðbæ Stokkhólms og pizzakeðjuna Vår Pizza í Stokkhólmi. Hann flutti síðan aftur til Íslands árið 2022 og stofnaði nýverið Wok to Walk staðina á Íslandi. Hann situr nú í stjórn Haga og í stjórn Þróttar, íþróttafélags. Þátturinn er kostaður af KPMG.

80. Ragna Sara Jónsdóttir, stofnandi FÓLK

80. Ragna Sara Jónsdóttir, stofnandi FÓLK

27
júní 2025

Viðmælandi þáttarins er Ragna Sara Jónsdóttir, stofnandi og listrænn stjórnandi FÓLK. Fyrirtækið er vaxandi íslenskt hönnunarmerki sem hannar og framleiðir vörur úr endurnýjanlegu efni. Ragna er fædd árið 1973 og lá leið hennar í Menntaskólann við Hamrahlíð og síðan lauk hún BA námi í mannfræði frá Háskóla Íslands og starfaði við blaða- og fréttamennsku um árabil. Ragna lauk því næst MSc gráðu í alþjóðaviðskiptum og tungumálum frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn (CBS). Eftir útskrift stofnaði hún ráðgjafafyrirtæki með áherslu á samfélagsábyrgð og sjálfbærni áður en hún gerðist yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar og síðar yfirmaður samfélagsábyrgðar Landsvirkjunar. Árið 2015 söðlaði hún síðan um og stofnaði hönnunarmerkið FÓLK. Ragna Sara hefur alltaf látið sig umhverfis- og mannréttindamál sig varða og er hún til að mynda fyrrum formaður stjórnar UN Women á Íslandi og varaformaður stjórnar Festu, miðstöðvar um samfélagsábyrgð. Þessi þáttur er í boði KPMG.

79. Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri ⁠Prís

79. Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri ⁠Prís

27
janúar 2025

Viðmælandi þáttarins er Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís matarverslunarinnar. Gréta er fædd árið 1980 og alin upp á Flateyri og síðar í Seljahverfinu í Reykjavík. Hún fór í Menntaskólann í Reykjavík áður en hún fór út í skiptinám til Bandaríkjanna og útskrifaðist síðan úr Menntaskólanum við Hamrahlíð. Gréta María er með BS og MS próf í verkfræði frá Háskóla Íslands. Gréta hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu og hefur starfað í ýmsum greinum en hefur vakið mesta athygli fyrir störf sín á smásölumarkaði. Eftir útskrift starfaði hún þó í fjármála- og upplýsingatæknigeiranum, m.a. sem forstöðumaður hagdeildar Arion áður en fór í smásölugeirann, þar sem hún starfaði sem fjármálastjóri Festi og framkvæmdastjóri Krónunnar. Þátturinn er í boði Arion, Sólar, Festu - miðstöðvar um sjálfbærni og KPMG.

78. Davíð Örn Símonarsson, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Smitten

78. Davíð Örn Símonarsson, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Smitten

24
janúar 2025

Viðmælandi þáttarins er Davíð Örn Símonarson, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Smitten. Smitten er vinsælasta stefnumótaforrit Íslands og stefnir að því að verða stórleikandi á markaði sem Tinder, Bumble og Hinge og önnur stefnumótaforrit hafa hafa ráðið ríkjum. Smitten býður upp á einstaka nálgun þar sem prófílar eru leikjavæddir og persónuleg tengsl eru í forgrunni. Davíð er fæddur árið 1990 og ólst upp í hlíðunum í Reykjavík. Hann gekk í Verslunarskóla Íslands og lauk síðan B.S. gráðu í iðnarðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Eftir háskólanám stofnaði hann samfélagsmiðilinn Blendin og síðar Watchbox. Davíð hefur búið í Kísildalnum í Bandaríkjunum um tíma, tryggt margar vel heppnaðar fjármagnanir fyrir fyrirtæki sín og hyggur nú á vöxt með Smitten stefnumótaforritinu. Þátturinn er í boði Festu - miðstöðvar um sjálfbærni, Arion, Sólar og KPMG.

77. Pétur Þór Halldórsson, stofnandi og forstjóri S4S

77. Pétur Þór Halldórsson, stofnandi og forstjóri S4S

16
janúar 2025

Viðmælandi þáttarins er Pétur Þór Halldórsson, forstjóri S4S. S4S rekur skóbúðirnar Steinar Waage, Kaupfélagið, Ecco, Skechers og S4S Premium Outlet, ásamt AIR verslununum og Ellingsen í Reykjavík og á Akureyri. S4S rekur einnig heildverslun og á dótturfélagið S4S Tæki sem er tækjadeild Ellingsen. Það vinna um 180 manns hjá S4S ehf. og veltir fyrirtækið um 5,5 ma kr. Pétur er fæddur árið 1964 og alinn upp í Breiðholtinu og í Vesturbænum. Hann gekk í FB og Kvennó og lauk síðan MBA prófi frá HR árið 2018. Pétur kynntist skóbransanum snemma aðeins 22 ára þegar hann byrjaði að vinna hjá Axel Ó. Hann stofnaði síðan heildsölu árið 1991, fékk Ecco umboðið árið 1997 og stofnaði Ecco búðina 2003. Síðan hefur S4S keypti Steinar Waage, Toppskóinn og Eurosko sem breytt var í Kaupfélgið í Kringlunni. Árið 2014 bættist í Nike Air búðin við og árið 2017 útivistaverslunin Ellingsen. Árið 2022 kom inn Horn framtakssjóður með það fyrir augum að skrá ætti S4S innan nokkurra ára á markað. Pétur kemur einnig að sprotafyrirtækinu Leikbreytir sem er hugbúnaðarfyrirtæki sem þróar rafrænar veskislausnir. Þessi þáttur er í boði Sólar, Arion og KPMG.

76. Guðmundur Hafsteinsson, frumkvöðull

76. Guðmundur Hafsteinsson, frumkvöðull

14
janúar 2025

Viðmælandi þáttarins er Guðmundur Hafsteinsson oftast kallaður Gummi, frumkvöðull og stjórnarformaður Icelandair. Gummi hefur starfað hjá stærstu tæknifyrirtækjum í heimi ásamt því að koma að stofnun nokkurra sprotafyrirtækja.  Gummi fæddist á Húsavík árið 1975 og er alinn upp í Breiðholtinu. Hann gekk í Menntaskólann í Reykjavík og kláraði BS próf í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands og síðar MBA frá MIT í Boston í Bandaríkjunum. Eftir útskrift úr verkfræðinni stofnaði Gummi sitt fyrsta sprotafyrirtæki ásamt félögum sínum sem hét Dímon og þróaði lausnir fyrir fyrstu nettengdu farsímana upp úr aldamótum.  Gummi hefur starfað sem vörustjóri hjá Google og vann þar m.a. að fyrstu farsímaútgáfunni af Google Maps og Google Voice Search sem var fyrsta raddgreiningin sem komst í almenna notkun. Hann hefur einnig starfað sem yfirvörustjóri (VP of Product) hjá fyrirtækinu Siri sem var síðan selt til Apple og er nú hluti af iPhone símunum. Árið 2012 stofnaði Gummi sprotafyrirtækið Emu sem þróaði gervigreindarþjón sem veitti notendum aðstoð í spjallþráðum. Fyrirtækið var síðan selt til Google og þróaðist að lokum í Google Assistant, sem Gummi stýrði þróun á frá upphafi. Árið 2019 flutti Gummi aftur til Íslands og starfar nú sem stjórnarformaður Icelandair og kannar heim gervigreindar þess á milli. Nú fyrir jólin 2024 kom út bókin Gummi sem fjallar um endurminningar Gumma á þessu ferðalagi um Kísildalinn. Þar má finna sýn inn í heim tækninnar síðustu áratugi og skemmtilegar sögur af því hvernig hlutirnir gerast á bak við tjöldin hjá nokkrum af stærstu og áhrifamestu fyrirtækjum heimsins. Þátturinn er kostar af Sólar, Arion og KPMG.

75. Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku

75. Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku

29
nóvember 2024

Viðmælandi þáttarins er Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku sem er þriðji stærsti raforkuframleiðandi á Íslandi og byggir á grunni Hitaveitu Suðurnesja sem var stofnuð í árslok 1974. HS Orka á og rekur fjórar virkjanir, tvær jarðvarmavirkjanir og tvær vatnsaflsvirkjanir. Það starfa um 90 manns hjá fyrirtækinu og veltir fyrirtækið um 16 ma. kr. Tómas er fæddur árið 1968 og alinn upp á Seltjarnarnesi. Hann gekk í MR og kláraði BS próf í umhverfis- og byggingaverkfræði frá Háskóla Íslands og síðar meistaragráðu í skipulagsverkfræði frá Cornell University í Bandaríkjunum.  Tómas starfaði um átta ára skeið sem framkvæmdastjóri hjá Norðuráli. En í ársbyrjun 2004 flutti hann sig til Alcoa þar sem hann starfað um sextán ára skeið, fyrst sem forstjóri Alcoa á Íslandi, svo sem forstjóri í Evrópu og Miðausturlöndum og loks aðstoðarforstjóri Alcoa á heimsvísu. Hann tók við starfi forstjóra HS Orku í ársbyrjun 2020. Tómas Már hefur einnig setið í stjórn ýmissa fyrirtækja og samtaka, m.a. sem formaður Viðskiptaráðs Íslands 2009-2012, stjórnarmaður í Samtökum iðnaðarins 2005-2011, stjórn Íslandsbanka, Cargow Thorship, DTE og Genís. Einnig var hann stjórnarmaður í samtökum evrópskra álframleiðenda og í stjórn Business Europe. Þátturinn er kostaður af Sólar, Arion og KPMG.

74. Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir, meðeigandi Lindex og Gina Tricot á Íslandi

74. Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir, meðeigandi Lindex og Gina Tricot á Íslandi

27
nóvember 2024

Viðmælandi þáttarins er Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir, stofnandi og meðeigandi Lindex og Gina Tricot á Íslandi. Lindex er sænsk verslunarkeðja sem selur kven- og barnaföt og Gina Tricot er sænsk tískukeðja sem selur kvenmannsföt. Lóa er fædd árið 1979 og alin upp í Flóanum og á Selfossi. Hún gekk í Menntaskólann í Kópavogi og lauk síðan BS prófi í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Eftir útskrift vann hún sem verkefnastjóri um tíma hjá Innovit, sem hélt m.a. utan um viðskiptaáætlanakeppnina Gulleggið. Lóa flutti síðan til Svíþjóðar ásamt manni sínum Alberti Þór og tveimur sonum og stofnaði verslunina Emil og Línu við eldhúsborðið sem seldi sænskar vörur á Íslandi. Þau fengu svo hugmyndina að fá sérleyfi fyrir Lindex á Íslandi og eru verslanirnar nú um tíu talsins. Seinna fengu þau svo um sérleyfi fyrir Gina Tricot og eru verslanirnar nú um fjórar talsins. Þau hafa nú nýverið tekið við rekstri barnafataverslunarinnar Dimmalimm á Laugavegi og samhliða því tryggt sér sérleyfi fyrir spænska barnafatamerkið Mayoral og vinnur Lóa þessa dagana í að vekja upp Lína og Emil vörumerkið og koma upp eigin framleiðslu á barnafötum.  Þessi þáttur er í boði Arion, Sólar og KPMG.

73. Benedikt Skúlason, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Lauf

73. Benedikt Skúlason, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Lauf

11
nóvember 2024

Viðmælandi þáttarins er Benedikt Skúlason, stofnandi og framkvæmdastjóri Lauf. Lauf er þekktast fyrir framúrstefnulega hjólagaffla sína, en framleiðir nú og selur malar-, götu- og fjallahjól um allan heim. Benedikt er fæddur árið 1984 og alinn upp í Grafarvoginum. Hann gekk í Menntaskólann í Reykjavík og lauk síðan BS prófi í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands og MS prófi í iðnaðarverkfræði frá Columbia háskóla í New York. Benedikt starfaði í eitt ár hjá Össuri við hönnun gervifóta, þar sem hann fékk hugmyndina að Lauf-gafflinum og stofnaði Lauf ásamt æskuvininum Guðbergi Björnssyni. Fyrirtækið veltir nú um 1.5 milljörðum íslenskra króna og starfa um 25 manns hjá fyrirtækinu. Lauf er þessa dagana að útvíkka vörulínu sína og stefnir þannig að því að tífalda umsvif sín á næstu árum. Þessi þáttur kostaður af Sólar og KPMG.

72. Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, forstjóri Nóa Síríus

72. Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, forstjóri Nóa Síríus

7
nóvember 2024

Viðmælandi þáttarins er Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, forstjóri sælgætisgerðarinnar Nóa Siríus. Sælgætisgerðin var stofnað árið 1920 og framleiðir og selur súkkulaði og sælgæti en árið 2021 var fyrirtækið selt til norska matvæla samsteypunnar Orkla.  Sigríður Hrefna er fædd árið 1977 og ólst upp í Breiðholtinu í Reykjavík. Hún gekk í Menntaskólann við Reykjavík og lauk síðan embættisprófi í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands og MBA gráðu frá Copenhagen Business School í Danmörku. Sigríður hefur gengt ýmsum störfum í atvinnulífinu, m.a. var hún framkvæmdastjóri einstaklingssviðs Íslandsbanka þar sem vann m.a. við að byggja upp stafræna vegerð bankans. Áður var hún framkvæmdastjóri smásölusviðs Olís, forstöðumaður hjá Arion, framkvæmdastjóri hjá Straumi og hjá SPV sparisjóði og þar áður framkvæmdastjóri Atlas Ejendomme. Sigríður Hrefna hefur setið í stjórn ýmissa fyrirtæki t.d. hjá Reginn, Áltaki, Next, Ígló og Indó, Whistle, Landsbréfum og formaður stjórnar Emessís, SMI ehf, Sjónlags hf., Björg investment fund, Billetlugen, Creatrix og í fjárfestingaráði Arev N1 og Thule vísissjóðs. Þátturinn er kostaður af KPMG og Sólar.

Þér gæti líka líkað...