Hlaðvarp Iðunnar

Iðan fræðsluetur

Bókmenntir

Hlaðvarp Iðunnar er fyrir fagfólk í iðnaði og þá sem hafa áhuga á að auka þekkingu sína á sviði iðngreina. Tekin eru viðtöl við sérfræðinga, kennara og fólk úr atvinnulífinu sem miðla þekkingu sinni og vekja áhuga á möguleikum starfsmenntunar og framþróunar innan iðnaðarins.

Lilja Diljá Ómarsdóttir - nýsveinn í vélvirkjun

Lilja Diljá Ómarsdóttir - nýsveinn í vélvirkjun

12feb

Lilja Diljá Ómarsdóttir er nýsveinn í vélvirkjun og nýkomin úr krefjandi en skemmtilegu starfsnámi í Essen í Þýskalandi. Hún segir frá ævintýrum sínum í nýjasta hlaðvarpi Ævintýra í Evrópu.

Hlaðvarp Iðunnar - Serious Play Þitt sanna sjálf

Hlaðvarp Iðunnar - Serious Play Þitt sanna sjálf

17des2025

Á nýju ári leiðum við oft hugann að því sem við getum bætt í eigin fari. Þríeykið Patricia Anna Þormar, Silja Lind Haraldsdóttir og Valý Ágústa Þórsteinsdóttir standa að fyrirtækinu Serious Play Iceland og verða með námskeið hjá Iðunni sem kallast Vegvísir að árangri. Á þessu námskeiði fær fólk tækifæri til vaxtar og breytinga en markmið þess er að þátttakendur öðlist djúpan skilning á eigin færni og styrkleikum og hvernig megi nýta þá til fulls í lífi og starfi.  Patricia sem er vanalega kölluð Patsí, Silja og Valý eru viðmælendur Kristjönu Guðbrandsdóttur í nýjasta þætti Augnabliks í iðnaði. Þær segja söguna á bak við fyrirtækið og lýsa þeim miklu breytingum sem þær sjá á fólki og teymum á vinnustöðum eftir vinnu með aðferðafræði Seroius Play Legó.

Luiz Lobo og Helen Gray ræddum um tækifæri fyrirtækja sem taka þátt í alþjóðlegu samstarfi.

Luiz Lobo og Helen Gray ræddum um tækifæri fyrirtækja sem taka þátt í alþjóðlegu samstarfi.

17des2025

Luiz Lobo, margverðlaunaður fréttamaður er gestur Helen Gray í nýjasta þætti hlaðvarpsins Mobility Without Borders.

Öflugur verkstjóri gerir góðan vinnustað enn betri

Öflugur verkstjóri gerir góðan vinnustað enn betri

2okt2025
Hlaðvarp Iðunnar - Stefnumót um símenntun

Hlaðvarp Iðunnar - Stefnumót um símenntun

7maí2025

Velkomin í þennan sérstaka hlaðvarpsþátt sem var tekinn upp í Reykjavík í tengslum við undirbúningsheimsókn Nordplus. Að þessu sinni fengum við til liðs við okkur Bo Erik Strömback, Josefin Born Nilson, Martin Nielsen og Jytte Eikenes til að ræða framtíð símenntunar á Norðurlöndum. Við veltum fyrir okkur nýjustu straumum og tækifærum í starfsþróun, áhrifum stafrænnar umbreytingar, hlutverki örviðurkenninga og leiðum til að efla norrænt samstarf á þessu sviði.

Hlaðvarp Iðunnar – Ævintýri í Evrópu með Erasmus+

Hlaðvarp Iðunnar – Ævintýri í Evrópu með Erasmus+

7maí2025

Ólöf Ólafsdóttir, konditor, og Andrea Ylfa Guðrúnardóttir, matreiðslunemi og framreiðslumeistari, spjalla um ástríðuna sína fyrir eftirréttum og hvernig Erasmus+ námsmannaskipti hafa hjálpað þeim að elta draumana.

Prentást - Best að þróa vörur og þjónustu með viðskiptavininum

Prentást - Best að þróa vörur og þjónustu með viðskiptavininum

29jan2025

Best að þróa vörur og þjónustu með viðskiptavininum  „Að þróa og búa til vöru og þjónustu í samstarfi við viðskiptavininn er áhrifamesta markaðsstarf sem hægt er að vinna,“ segir Abel Sanchéz sérfræðingur hjá HP í spjalli við Kristjönu Guðbrandsdóttur leiðtoga prent- og miðlunarsviðs í nýjasta hlaðvarpi Iðunnar. Abel er þrautreyndur sérfræðingu og með rúmlega 15 ára reynslu af fjárfestingum í  hönnun og  þróun vörumerkja.  Abel hélt fyrirlestur fyrir fullu húsi í Iðunni fræðslusetri um miðjan janúar í samstarfi prent- og miðlunarsviðs og PMT.  Fagfólk frá auglýsingastofum og prentsmiðjum sótti fyrirlesturinn sem fjallaði um nýjar leiðir í prentun til uppbyggingar á vörumerkjum og til að auka arðsemi markaðsherferða. Í þessu hlaðvarpi fer hann yfir það helsta sem hann fræddi gesti fyrirlestursins um.

Bókaást - Fólk segist ekki nenna að eiga bækur á heimilinu

Bókaást - Fólk segist ekki nenna að eiga bækur á heimilinu

22jan2025

Bóksala er alltaf að dragast saman, forsendan fyrir því að bókamenning þrífist er að fólk kaupi bækur,“ segir Ragnheiður Jónsdóttir rithöfundur sem skaust fram á sjónarsviðið 2023 með frumraun sína Blóðmjólk og hlaut fyrir hana glæpasöguverðlaunin Svartfuglinn.  Fyrir jól gaf hún út sína aðra bók; Svikaslóð sem hlaut afar góðar viðtökur. Ragnheiður kom í spjall til Kristjönu Guðbrandsdóttur í hlaðvarp Iðunnar, Bókaást og lýsti því vel hvernig er að vera nýgræðingur í stétt rithöfunda og því hvernig henni gekk að halda sér á floti í jólabókaflóðinu. „Ég heyri svo oft að fólk nenni ekki að kaupa sér bækur. Heimilið fyllist af bókum. Ég er að hvetja fólk til að endurhugsa þetta,“ segir hún. „Við kaupum okkur ekki buxur sem við ætlum að eiga út ævina,“ tekur hún sem dæmi og segist hvetja fólk til að styðja við íslenskar bókmenntir með því að kaupa bækur og gefa þær hreinlega áfram ef það vill ekki eiga þær lengi.

Bókaást - Bókabúðin er líka félagsmiðstöð og bar

Bókaást - Bókabúðin er líka félagsmiðstöð og bar

11des2024

Dögg Hjaltalín og Anna Lea Friðriksdóttir, eigendur Sölku útgáfu og bókabúðar á Hverfisgötu, áttu lausar örfáar mínútur til að spjalla við Kristjönu Guðbrandsdóttur í hlaðvarpinu Bókaást á milli þess sem þær vöktuðu skipasiglingar með jólabækur í símanum. „Líf bóksala er ekki á línulegum tíma,“ útskýrir Anna Lea. Þær Dögg og Anna Lea eru líkega með uppteknari bóksölum landsins. Þær ritstýra bókum og skrifa bækur, þýða bækur og halda myndlistarsýningar og námskeið í bókabúðinni. „Já og svo er bókabúðin líka bar!“ Segja þær og segja frá ævintýrum sínum og hvers vegna það eru engar líkur á því að bókabúðir hætti að vera til.

Bókaást - Eru grafískir skandalar í jólabókaflóðinu? (Hlaðvarp)

Bókaást - Eru grafískir skandalar í jólabókaflóðinu? (Hlaðvarp)

6des2024

Ólafur Stolzenwald sölu- og markaðsstjóri prentsmiðjunnar Litróf og Eyjólfur Jónsson umbrotsmaður skoða bækur jólabókaflóðsins með Kristjönu Guðbrandsdóttur með augum fagmanna í nýjasta þætti hlaðvarps Iðunnar- Bókaást. Hvaða bókakápur skara fram úr og af hverju? Hvaða tískustrauma er hægt að greina og hvaða reglur eru hönnuðir að leika sér að því að brjóta? Kiljur, saurblöð, vandað umbrot og stafræn prentun jólabóka koma til tals. Og síðast en ekki síst þarf að útkljá um það hvort einhverjir grafískir skandalar séu í jólabókaflóðinu í ár.

Þér gæti líka líkað...