Glælogn – hlaðvarp um norræn fræði

Árnastofnun

MenningBókmenntirSaga

Fyrir alla sem þyrstir í fróðleik um bókmenntir, sögu og menningu Norðurlandanna. Fræðimennirnir Hjalti Snær Ægisson og Teresa Dröfn Njarðvík veita innsýn í menningarheim miðalda og spjalla um nýleg, fræðileg skrif. Handritagrúskarar af ýmsu tagi segja frá rannsóknum sínum. Hlaðvarpið er á vegum Árnastofnunar. Tónlist: TSS: „Drums of Congo“.

Hverju reiddust goðin?

Hverju reiddust goðin?

27maí

Bókin sem rætt er um í þættinum:  Olof Sundquist. The Demise of Norse Religion: Dismantling and Defending the Old Order in Viking Age Scandinavia (De Gruyter, 2024).

Heimur í orðum – Íslendingar í Svíþjóð

Heimur í orðum – Íslendingar í Svíþjóð

20maí

Síðari hluti sautjándu aldarinnar er stórveldistími í sögu Svíþjóðar. Pólitísk og hernaðarleg ítök sænska konungsríkisins voru gríðarleg umhverfis Eystrasaltið, en slíku valdi fylgir sterk þörf fyrir skilning og hagfelldar túlkanir á eigin fortíð.    Í þessum þætti er rætt við Margréti Eggertsdóttur, rannsóknarprófessor á Árnastofnun, um íslenska handritasafnara í Svíþjóð.

Ég minnist þín Gvendur

Ég minnist þín Gvendur

13maí

Bókin sem rætt er um í þættinum:  Margaret Clunies Ross: Skaldic Poetry as Christian Progaganda (Boydell & Brewer, 2026).

Heimur í orðum – Handritin, tilfinningar og hugurinn á miðöldum

Heimur í orðum – Handritin, tilfinningar og hugurinn á miðöldum

6maí

Manneskjur höfðu sömu tilfinningar á miðöldum og þær hafa í nútímanum, en sá orðaforði sem við notum til að lýsa tilfinningum hefur tekið miklum breytingum í aldanna rás. Í þætti dagsins er rætt við Sif Ríkharðsdóttur bókmenntafræðing um tilfinningar í miðaldabókmenntum.

Úti alla nóttina

Úti alla nóttina

29apr

Greinar sem rætt er um í þættinum: John McKinnell, “Useless Knowledge? The Paradox of Alvíssmál,” Saga-Book 41/2017, 79–96. Frog, “Preserving Blunders in Eddic Poems: Formula Variations in Numbered Inventories of Vafþrúðnismál and Grímnismál,” Scripta Islandica 72/2021, 43–91.

Finnbogi kemur rammur inn

Finnbogi kemur rammur inn

22apr

Greinar sem rætt er um í þættinum:  Martina Ceolin: “Endeavouring to Grasp the Elusive: A New Study of Finnboga saga ramma,” Gripla 2024, 279–307. Basil Arnould Price: “Queer Indigenous Relationality in Finnboga saga ramma,” Speculum 2024:2, 381–408.

Heimur í orðum – Meyjar og völd

Heimur í orðum – Meyjar og völd

15apr

Konungsdóttirin Mábil sterka frá Vallandi er öllum fremri í riddaralistum. Hún drýgir miklar hetjudáðir í bardögum og beitir óhefðbundnum aðferðum við að klekkja á helsta óvini sínum, Medeu drottningu í Grikklandi. Sömuleiðis ver hún Móbil systur sína frækilega gegn ásókn karla sem vilja kvænast henni og heimta þannig krúnuna. Í hlaðvarpsþætti dagsins segir Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir okkur frá Mábilar rímum en hún hlaut nýlega viðurkenningu Hagþenkis fyrir bók sína Meyjar og völd. Rímur og saga af Mábil sterku.

Söngur, galdur, kveðandi

Söngur, galdur, kveðandi

8apr

Greinar sem rætt er um í þættinum: Brian McMahon, „Old Norse Poetry in Performance: Perils, Pitfalls and Possibilities,” Old Norse Poetry in Performance (Routledge, 2022). Pétur Húni Björnsson, „‚ıð Beſta eꝛ quæðeð fm̄ flutt': Kveðnar Drápur og kveðnar rímur‘,“ „Old Norse Poetry in Performance: Perils, Pitfalls and Possibilities,” Old Norse Poetry in Performance (Routledge, 2022).

Heimur í orðum – Einu sinni voru handrit ekki helgir gripir

Heimur í orðum – Einu sinni voru handrit ekki helgir gripir

1apr

Í dag umgöngumst við íslensku handritin af mikilli varkárni, nánast eins og um helga gripi væri að ræða. En það gerðu fyrrum eigendur þeirra ekki endilega. Þeir hikuðu ekki við að bæta við texta handrita, taka bækur í sundur og jafnvel breyta myndskreytingum eftir eigin smekk. Í þessum þætti segir Beeke Stegmann, rannsóknardósent við Árnastofnun, okkur frá Skarðsbók Jónsbókar og hvernig viðhorf miðalda til handritanna voru frábrugðin varðveislustefnu nútímans.

Fjöllin skjálfa

Fjöllin skjálfa

25mar

Greinar sem rætt er um í þættinum: Declan Taggart, „All the Mountains Shake: Seismic and Volcanic Imagery in the Old Norse Literature of Þórr,“ Scripta Islandica 68/2017, 99–122. Mathias Nordvig og Felix Riede, „Are There Echoes of the AD 536 Event in the Viking Ragnarok Myth? A Critical Appraisal,“ Environment and History 24/3:2018, 303–324.

Þér gæti líka líkað...