Fram og til baka

RÚV

Menning & listir

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.

Sumardagurinn fyrsti - hátíð barnanna

Sumardagurinn fyrsti - hátíð barnanna

23
apríl

Felix fór fram og til baka með hlustendum að morgni sumardagsins fyrsta, spilaði sumartóna, talaði um það sem hægt væri að njóta á deginum og fékk góða gesti í morgunkaffi. Skátarnir Inga Auðbjörg og Sædís Ósk voru fyrsta, svo kom Kristjana Stefánsdóttir tónlistarmaður og síðan hljómsveitin Tab en hana skipa þau Tinna Kristinsdóttir, Arna Rún Ómarsdóttir og Bjartmar Þórðarson. Að lokum hringdi Felix í Sigyn Blöndal hjá Unicef.

Eyþór Jóvinsson bóksali á Flateyri

Eyþór Jóvinsson bóksali á Flateyri

18
apríl

Gestur dagsins í Fram og til baka er Flateyringurinn Eyþór Jóvinsson sem hefur sannarlega komið víða við. Hanna er bóksali og verslunarmaður, sagnfræðinörd, arkitekt, ljósmyndari og kvikmyndagerðarmaður, rithöfundur, fyrrum knattspyrnukappi og margt margt fleira. Við heyrum af fimm bókum (nema hvað) sem hafa haft áhrif á líf hans. Í síðari hluta þáttarins er fjallað um það sem gerðist á deginum.

Hannes Óli Ágústsson leikari

Hannes Óli Ágústsson leikari

11
apríl

Hannes Óli Ágústsson hefur komið víða við í listinni og vakið athygli fyrir mikla hæfileika, bæði í gamanleik og drama. Hannes Óli kemur í Fimmu og segir af fimm lögum sem hafa sterk tilfinningatengsl við hann. Verður Ja Ja Ding Dong þar á meðal? Í síðari hluta þáttarins verður Leifur Geir Hafsteinsson viðmælandi en hann stendur fyrir stóru verkefni með Vestmannaeyingum í hópnum Vinir og vandamenn en þar eru fjölskyldumeðlimir Oddgeirs Kristjánssonar og Ása í Bæ að syngja þekkt og óþekkt eyjalög. Leifur Geir segir okkur allt um verkefnið, tónleikana og plötuna Hve dátt er hér…, sem sameinar sjaldheyrðar perlur og nýtt efni úr ríkri tónlistarhefð Vestmannaeyja.

Fram og til baka í Taiwan

Fram og til baka í Taiwan

4
apríl

Fram og til baka er víðförull þáttur og í þessari sérstöku páskaútgáfu tyllum við niður fæti í höfuðborg Tævan, Taipei. Felix Bergsson segir okkur af upplifun sinni af þessari mögnuðu eyju og fólkinu sem þar býr. Gestur þáttarins, Þorsteinn Kristinsson stjórnmálafræðingur, býr einmitt í Taipei ásamt eiginkonu og nýfæddum syni. Þorsteinn, eða Stenni eins og hann er yfirleitt kallaður, segir okkur af sjálfum sér, uppvextinum í Hafnarfirði og lífinu í Taiwan en víkur einnig að áhugaverðri sögu landsins, sambandinu við Kína og stjórnmálunum. Komið með þegar við flökkum í orðsins fyllstu merkingu fram og til baka

Þóra Sigríður Ingólfs forstöðumaður Kvikmyndasafns Íslands

Þóra Sigríður Ingólfs forstöðumaður Kvikmyndasafns Íslands

28
mars

Kvikmyndasafn Íslands hefur verið í umræðunni undanfarið vegna fyrirhugaðrar sameiningar safnsins við Landsbókasafn. Það hefur vakið gagnrýni og undrun innan kvikmyndageirans. En Kvikmyndasafnið hefur líka verið í fréttum vegna samvinnu við RÚV í vinsælum þáttum eins og Stjörnubíó og Perlur Kvikmyndasafnsins. Þóra Sigríður Ingólfsdóttir er forstöðumaður safnsins og hún mætir í fimmu og talar um fimm götur í lífi sínu. Leikurinn berst frá Frakklandi í Hafnarfjörð með viðkomu í miðborg Reykjavíkur, á Grensásvegi og Kópavogslauginni. Tónlist dagsins er svo tengd deginum, 28. mars.

Hildur Ragnars sneri við blaðinu

Hildur Ragnars sneri við blaðinu

21
mars

Þjóðskrá hefur verið að koma mjög vel út úr könnunum á ánægju starfsfólks og verið meðal stofnana ársins undanfarin ár. Forstjórinn Hildur Ragnars kom í Fimmu, ræddi starfið og einnig fimm upplifanir sem breyttu lífi hennar. Hún var starfandi lyfjafræðingur en ákvað að söðla um og tók við Þjóðskrá með þessum fína árangri. Svo kíkjum við á tónlist sem tengist deginum

Hrafnkell Pálmason vildi vera Kelly Palmer

Hrafnkell Pálmason vildi vera Kelly Palmer

14
mars

Hrafnkell Pálmarsson eða Keli, fasteignasali og gítarleikari í hljómsveitunum Í svörtum fötum og Nýju fötin keisarans er gestur dagsins í Fimmunni. Keli talar um fimm störf og þar kemur ýmislegt skemmtilega á óvart, t.d tími hans í Þjóðleikhúsinu sem barnastjarna og hlutverkið í Hvíta víkingnum. Við heyrum líka tónlist sem tengist Kela. Í síðari hluta þáttarins heyrum við hvað gerðist á deginum

Móa og bækurnar fimm sem breyttu öllu

Móa og bækurnar fimm sem breyttu öllu

7
mars

Gestur dagsins er söngkonan, guðfræðingurinn og kennarinn Móeiður Júníusdóttir eða Móa. Hún talar um fimm bækur sem breyttu lífi hennar og gerðu hana að þeirri manneskju sem hún er. Móa var poppstjarna á tíunda áratugnum en venti kvæði í kross í orðsins fyllstu og lærði guðfræði. Hún gerðist svo kennari og er enn. Hún er enn að gera tónlist og við heyrum nýjasta lagið hennar í þættinum. Í siðari hlutanum heyrum við tónlist sem tengja má við atburði sem gerðust á deginum, 7. mars.

Álfrún Gísladóttir og fimm dauðsföll

Álfrún Gísladóttir og fimm dauðsföll

28
febrúar

Álfrún Gísladóttir eða Alfie er íslensk leikkona sem hefur vakið athygli bæði hér heima og í Bretlandi. Hún er að leika eigin sýningu sem heitir Dead Air og fjallar þar um konu í sorg sem reynir að ná sambandi við látinn föður sinn í gegnum gervigreindina. Álfrún kom í fimmu og talaði um fimm dauðsföll sem hafa haft áhrif á líf hennar og þar kenndi aldeilis margra grasa. Í seinni hlutanum litum við á það sem gerðist á deginum og lékum tengda tónlist

Kristín R Vilhjálmsdóttir og tungumálin

Kristín R Vilhjálmsdóttir og tungumálin

21
febrúar

í dag er alþjóðlegur dagur móðurmálsins og þvi var tilvalið að fá Kristínu R Vilhjálmsdóttur kennara og menningarmiðlara í fimmu sem varð auðvitað fimm tungumál. Kristín fluttist 6 ára til Danmerkur þar sem hún hefur búið síðan. Hún tapaði íslenskunni og lærði ekki aftur fyrr en á fullorðinsaldri. Kristín sagði okkur sögu sína og talaði um fjársjóðinn sem felst í tungumálum. Svo litum við á það sem gerðist á deginum, heyrðum nýja tónlist og minntumst Haraldar Sigurðssonar eða Halla sem féll frá 18. febrúar

Þér gæti líka líkað...