X26 Sveitarstjórnarkosningar
Ritstjórn Morgunblaðsins
Umfjöllun ritstjórnar Morgunblaðsins fyrir Sveitastjórnarkosningar 2026.

X26 - Listakosning í Árneshreppi í fyrsta sinn í nær sjö áratugi
Árneshreppur á Ströndum stendur frammi fyrir tímamótum þegar gengið verður til sveitarstjórnarkosninga í vor. Í fyrsta sinn síðan árið 1958 verður kosið milli framboðslista í þessu nyrsta sveitarfélagi Strandasýslu, þar sem íbúarnir eru aðeins 63 talsins. Tveir listar eru í framboði, Á-listi Framtíðar Árneshrepps og S-listi Sólstaða, og virðist ljóst að ólík sjónarmið um sameiningu sveitarfélaga hafi orðið til þess að kosningarnar taka á sig skýrari pólitíska mynd en áður.Arinbjörn Bernharðsson, oddviti S-lista Sólstaða, segir að þrátt fyrir fámennið sé sveitarfélagið bæði landmikið og söguríkt. Þar hafi á fyrri öldum átt sér stað stórir atburðir, allt frá galdrabrennum á 17. öld til Flóabardaga árið 1244. Þá hafi sildarárin á fyrri hluta 20. aldar markað djúp spor, þegar umsvifin í Djúpavík og Ingólfsfirði voru slík að í hreppnum bjuggu um 500 manns.

X26 - Hólmarar hugsa um skuldastöðu, uppbyggingu og sjávarútveg
Sveitarstjórnarkosningarnar í Stykkishólmi snúast að verulegu leyti um jafnvægið milli áframhaldandi uppbyggingar og aðhalds í rekstri. Það kom fram í viðtali við oddvita H-lista framfarasinnaðra Hólmara, Björn Ásgeir Sumarliðason, og oddvita Í-lista Íbúalistans, Sigurð Grétar Jónasson, þar sem farið var yfir stöðu bæjarins, helstu áskoranir og áherslur fyrir komandi kjörtímabil. Stykkishólmur, sem varð til í núverandi mynd við sameiningu Stykkishólms og Helgafellssveitar árið 2022, er lítið en öflugt sveitarfélag með um 1.350 íbúa. Atvinnulíf byggist einkum á opinberri þjónustu, ferðaþjónustu, landbúnaði og matvælaframleiðslu. Í síðustu kosningum fékk H-listinn fjóra fulltrúa gegn þremur fulltrúum Íbúalistans og hefur farið með stjórn sveitarfélagsins síðustu átta árin.

X26 - Vesturbyggð á krossgötum
Vesturbyggð stendur á tímamótum í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Sveitarfélagið, sem varð formlega til í núverandi mynd 1. júní 2024 við sameiningu við Tálknafjarðarhrepp, hefur á síðustu árum tekið miklum breytingum. Atvinnulíf hefur styrkst, ekki síst með uppbyggingu fiskeldis, en um leið glímir sveitarfélagið við skuldastöðu, brothætta innviði, húsnæðisskort og ágreining um hvernig tryggja eigi framtíðarsókn í orkumálum.Tvö framboð takast á í kosningunum. Annars vegar N-listi Nýrrar sýnar undir forystu Þórkötlu Soffíu Ólafsdóttur og hins vegar nýr V-listi Sterkari Vesturbyggðar, leiddur af Hlyni Ársælssyni. D-listi Sjálfstæðisflokks og óháðra, sem fékk þrjá fulltrúa í aukakosningunum fyrir tveimur árum, býður ekki fram að þessu sinni.

X26 - Ólík sjónarmið í Hvalfjarðarsveit
Tekjustofnar, Grundartangi og samfélagið í forgrunni í Hvalfjarðarsveit Kosningabaráttan í Hvalfjarðarsveit mótast af stórum spurningum um sjálfstæði sveitarfélagsins, tekjustofna þess, atvinnuuppbyggingu og hvernig íbúar komi að ákvörðunum um framtíðarskipan svæðisins. Það kom skýrt fram í viðtali við oddvita A-lista Samhentrar sveitar, Harald Benediktsson, og oddvita Íbúahreyfingarinnar, Þóru Margréti Júlíusdóttur, þar sem einnig bar á ágreiningi um orðræðu og samskipti í aðdraganda kosninga.Hvalfjarðarsveit varð til árið 2006 við sameiningu fjögurra hreppa og telur nú ríflega 800 íbúa. Sveitarfélagið er víðlent, með öflugan landbúnað, vaxandi íbúabyggð og eitt mikilvægasta atvinnusvæði landsins á Grundartanga, þar sem um 1.100 manns starfa. Þar hefur byggst upp fjárhagslegur styrkur sveitarfélagsins, en um leið orðið til álitamál um framtíðina.

X26 - Tekist á um uppbyggingu og framtíðarsýn í Ölfusi
Kosningabaráttan í Ölfusi mótast mjög af örum vexti sveitarfélagsins, mikilli uppbyggingu og ágreiningi um það hvernig best sé að stýra samfélagi sem er að taka stakkaskiptum. Það kom skýrt fram í samtali við oddvita tveggja framboða sem nú bjóða fram í sveitarfélaginu, þá Grétar Inga Erlendsson fyrir D-lista Sjálfstæðisflokksins og Gunnstein R. Ómarsson fyrir lista Samfylkingarinnar og óháðra.Ölfus hefur stækkað hratt á undanförnum árum. Í sveitarfélaginu búa nú 3.062 íbúar og hefur þeim fjölgað um ríflega 500 á yfirstandandi kjörtímabili. Gangi spár eftir gæti íbúafjöldinn farið í 4.500 á næsta kjörtímabili. Fram undan eru því stór verkefni, bæði í innviðauppbyggingu, skipulagi og þjónustu.

X26 - Tvísýnt slagverk í Rangárþingi ytra
Rangárþing ytra gengur til sveitarstjórnarkosninga í vor með stór verkefni í farangrinum, traustan rekstur að mati meirihlutans og skýran áherslumun milli framboðanna um forgangsröðun næstu ára. Sveitarfélagið, sem varð til 9. júní 2002 við sameiningu Rangárvallahrepps, Holta- og Landssveitar og Djúpárhrepps, er eitt af tíu stærstu sveitarfélögum landsins að flatarmáli, en íbúar eru þó aðeins ríflega tvö þúsund. Kosningarnar lofa spennu, enda munaði aðeins ellefu atkvæðum á listunum tveimur árið 2022. Á-listinn fékk þá 493 atkvæði og fjóra fulltrúa, en D-listi Sjálfstæðisflokksins 482 atkvæði og þrjá fulltrúa. Sömu oddvitar leiða listana nú, þeir Eggert Valur Guðmundsson fyrir Á-lista og Ingvar Pétur Guðbjörnsson fyrir D-lista.

X26 - Tímamót í Rangárþingi eystra
Rangárþing eystra stendur á miklum tímamótum. Sveitarfélagið vex hratt, ferðaþjónustan sækir fram af krafti og fjárfestingar eru miklar, en um leið kalla vöxturinn og breytingarnar á nýjar áherslur í skipulagi, innviðauppbyggingu og rekstri. Þetta kemur skýrt fram í samtali við sveitarstjórnarmenn í Rangárþingi eystra, þar sem rætt er um stöðu mála og verkefnin fram undan í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna.Sveitarfélagið verður til árið 2002 við sameiningu sex hreppa og nær frá Eystri-Rangá í vestri að Jökulsá á Sólheimasandi í austri. Íbúar eru nú tæplega 2.300 og hefur þeim fjölgað um 20% á kjörtímabilinu, einkum vegna fjölgunar erlendra íbúa sem tengjast uppgangi í ferðaþjónustu. Um helmingur íbúanna býr á Hvolsvelli en hinn helmingurinn í dreifbýli, sem skapar sérstakar áskoranir í þjónustu, skólaakstri og sorphirðu.

X26 - Vestmannaeyjar: Samgöngur og vatnsöryggi stóru hitamálin
Samgöngumál, vatnsöryggi, skipulag og þjónusta við íbúa voru meðal helstu umræðuefna á borgarafundi Morgunblaðsins og mbl.is sem haldinn var í Vestmannaeyjum í gærkvöld í aðdraganda komandi sveitarstjórnarkosninga. Þar tókust á Sæunn Magnúsdóttir fyrir Miðflokkinn, Eyþór Harðarson fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Arndís María Kjartansdóttir fyrir Eyjalistann og kynntu áherslur sínar í líflegum umræðum fyrir fullum sal af fólki.

X26 - Lágar álögur, leikskólamál og vöxtur í Hrunamannahreppi
Sveitarstjórnarkosningarnar í Hrunamannahreppi 16. maí fara fram í sveitarfélagi sem hefur vaxið hratt á síðustu árum og stendur nú frammi fyrir nýjum verkefnum í takt við aukna íbúafjölgun og breyttar þarfir samfélagsins. Þetta kom skýrt fram í samtali við oddvita framboðanna tveggja í hreppnum, þá Jón Bjarnason, bónda og oddvita D-lista Sjálfstæðisflokksins, og Daða Geir Samúelsson, verkfræðing og oddvita L-listans.Hrunamannahreppur er eitt elsta sveitarfélag landsins, víðfeðmur og fornfrægur hreppur í Árnessýslu sem nær frá miðjum Hofsjökli til suðvesturs milli Hvítár og Stórulaxár. Íbúar eru þó innan við eitt þúsund og þéttbýliskjarninn á Flúðum gegnir lykilhlutverki í þjónustu og uppbyggingu sveitarfélagsins.

X26 - Sérstaða sveitarfélagsins í forgrunni í Bláskógabyggð
Sveitarstjórnarmál í Bláskógabyggð einkennast um þessar mundir af örum vexti, auknum kröfum til innviða og umræðu um hvernig sveitarfélagið geti haldið í sérstöðu sína á sama tíma og því vex fiskur um hrygg. Þetta kom skýrt fram í samtali við oddvita T-lista og Þ-lista, þau Helga Kjartansson og Önnu Grétu Ólafsdóttur, þar sem farið var yfir stöðu sveitarfélagsins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Bláskógabyggð varð til árið 2002 við sameiningu Þingvallahrepps, Laugardalshrepps og Biskupstungnahrepps. Um árabil hafa tvö framboð, T-listi og Þ-listi, tekist þar á um völdin. Í kosningunum 2022 hlaut T-listinn 391 atkvæði og fimm fulltrúa, en Þ-listinn 166 atkvæði. T-listinn hefur farið með meirihluta síðustu þrjú kjörtímabil, en Þ-listinn var við stjórnvölinn frá stofnun sveitarfélagsins og fram til ársins 2010.