Tölvuleikjaspjallið eru vikulegir þættir með almennum umræðum um tölvuleiki og leikjastefnur, umsögnum um leiki auk frétta úr tölvuleikjaheiminum.

280. Crimson Desert
Strákarnir eru komnir aftur úr páskafríi og leikur vikunnar er CRIMSON DESERT. Leikurinn er stútfullur og fallegur - en er hann góður? Fyrstu hughrif Arnórs Steins og Gunnars í pökkuðum þætti vikunnar. Hvað fannst þér um Crimson Desert?

279. Dispatch með Snorra Frey
Að vera hetja eða ekki hetja ... Þáttur vikunnar er um DISPATCH - interactive ævintýraleik sem sló í gegn í fyrra. Arnór Steinn og Snorri Freyr ræða Dispatch bak og fyrir í stútfullum þætti. Það er alveg allur pakkinn, enda erfitt að tala um leikinn án þess að tala um söguna ... leikurinn er líka bara ... já ... saga. Hvað fannst þér um Dispatch?

278. GTA: Vice City
Er þetta mesti vibe leikur allra tíma? GTA VI kemur út í ár og verður án efa einn stærsti leikur áratugarins. Til að hita upp ætlum við að nýta árið og spila gömlu leikina. Byrjum á Vice City! Arnór Steinn og Gunnar t aka gott nostalgíuspjall um þetta goðsagnakennda verk. Bílarnir, tónlistin, karakterarnir, raddleikararnir, umhverfið og svo margt, margt fleira í stórskemmtilegum þætti! Hvar er Vice City á ykkar lista yfir bestu GTA leikina?

277. Resident Evil Requiem - með Daníel Óla
Hryllingur - spenna - one linerar ... er Resident Evil komið aftur í rótina? Requiem kom út um daginn og er búinn að fá frábærar móttökur. Arnór Steinn og Gunnar fengu Res Evil sérfræðinginn Daníel Óla (Trivíaleikarnir) í stúdíóið til að ræða leikinn. Tveir karakterar með tvær mismunandi spilanir, ein er fyrstu persónu hryllings og hinn er með gamla góða actionið sem við þekkjum og elskum. Hvað fannst þér um Resident Evil Requiem?

276. Wolverine fær útgáfudag, Sony lokar enn öðru fyrirtækinu og Xbox við dauðans dyr - fréttir mars 2026
Hvað er í helstu fréttum? Wolverine er loksins kominn með útgáfudag, nýjasti leikurinn frá Insomniac Games lítur dagsins ljós þann 15. september næstkomandi! Bluepoint Games, fyrirtækið á bak við endurgerðir á borð við Shadow of the Colossus og Demon's Souls, heyrir sögunni til. Hvað þýðir þetta fyrir Sony? Er nýji forstjóri Xbox að fara að bjarga skipinu frá brotlendingu eða er hún þarna til að leiða tölvuna til hinstu hvílu? Kingdom Come Deliverance sló í gegn sem tölvuleikur, en mun hann slá í gegn sem kvikmynd? Ræðum það og margt annað í stútfullum fréttaþætti vikunnar.

275. Control
Jæja, nú ert þú stjórinn, hvað ætlar þú að gera? Jessie Faden finnur loksins Stjórnunarmálaráðuneytið og fer þangað inn. Það sem tekur við er einn andskoti áhugaverður leikur. Arnór Steinn og Gunnar fjalla um CONTROL í þætti vikunnar. Leikur frá 2019, smíðaður af Remedy (Max Payne, Alan Wake) af alúð. Undursamlega steikt upplifun sem við mælum HIKLAUST með! Hefur þú spilað Control? Hvað fannst þér?

273. Fallout sería 2
Erum við að tala um besta tölvuleikja adaption allra tíma? Sería 2 af Fallout frá Amazon kláraðist í síðustu viku og við erum gjörsamlega kjaftstopp. Hvílíkt og annað eins sjónvarpsefni! Arnór Steinn og Gunnar ræða seríu 2 í þaula (því miður verður spoilað) og það er af nógu að taka. Hver er special stats hjá aðalkarakterunum? Hver voru okkar uppáhalds páskaegg? Gat Arnór Steinn haldið meðvitund út af öllum tilvísununum í New Vegas? Hlustið og njótið!

273. Ubisoft part 2 - vont verður verra
Hvernig gat Ubisoft orðið verra? Reka fólk fyrir að stofna stéttarfélag, kenna starfsfólki um lélegt gengi leikja, slaufa fullt af leikjum og leggja áherslu á live service leiki. Þannig gat það orðið verra. Við gerðum þátt (nr 90) þar sem við fórum yfir sögu Ubisoft og nú þarf að bæta aðeins í. Það er fullt búið að gerast síðan þá og við erum mögulega að horfa upp á stutta framtíð franska risans.

272. The Alters - of margir Janar
Hvernig væri að hafa afrit af þér til að aðstoða þig við ýmis verk? The Alters fór því miður fram hjá stórum hluta tölvuleikjasamfélagsins á síðasta ári. Þetta er stórskemmtilegur survival leikur þar sem þú spilar sem Jan Dolski og svo sem margar útgáfur af Jan Dolski. Við viljum ekki segja of mikið ... spilið leikinn. Leikurinn kom út 13.júní 2025 á PS5, Xbox X/S og Windows

271. Fréttir janúar - Gervigreind veldur usla, EA verður verra og margt fleira!
Gleðilegt ár elsku hlustendur <3 Fyrsti þáttur ársins er smá fréttayfirferð. Bæði það sem var ekki fjalla um í árslok og eitthvað nýtt. Er Gunnar búinn að breyta um skoðun með sinn GOTY? Er EA að verða verra? Hlustaðu og það kemur allt í ljós! Ef þú vilt hlusta á meira spjall um tölvuleiki, ekki hika við að smella á FOLLOW og skoða fleiri þætti. Við gefum vikulega út spjall um allt sem tengist tölvuleikjum. Njótið vel!
