Hlaðvarp fyrir þá sem vilja einhverja skrítna blöndu af gríni & fitness talk með reglulegum fróðleiksmolum og góðum skammti af óþægilegri hreinskilni.

#161: Bjarni Leifs & Rökkvi Guðnason
Fyrst og fremst þekktir sem ungar vonastjörnur íslands í CrossFit senunni en líka gítarleikarar, söngvarar, málarar og fyrrum fótboltaleiks- og frjáls íþrótta iðkendur fara yfir nýlega fyrsta og annað sætið sitt á CrossFit Games Open æfingu þar sem að bandarískir miðlar kölluðu þá ljótum orðum, verðlaunaféð ekki ennþá komið og hver stefnan er á þessu ári. Rökkvi byrjaði í Crossfit aðeins 8 ára gamall og tekur sér nauðsynleg pásu 15 ára gamall áður en að hann kemur aftur en Bjarni byrjaðu um 15 ára gamall eftir að hafa verið í fótbolta. Við förum yfir páskana, fortíðina, framtíðina og margt fleira í þessum sjúka þætti af Sterakastinu. Ef að þig langar að koma þér af stað í ræktinni geturu fengið fría prufuviku af VÖÐVAR planinu hans Böðvars fyrir fólk sem að vil lyfta 1-3x í viku með því að smella á þennan hlekk: https://app.fitr.training/p/vodvar

#160: Manosphere Páskaegg
Páskaegg, the manosphere, doomscrolling og krakka skrípó - lets talk about it. Njóttu þess að hlusta á þátt 160 af Sterakastinu! VÖÐVAR er æfingaplan eftir BÖÐVAR fyrir fólk sem að vill æfa 1-4x í viku og vill auka vöðvamassan á sér, frí prufuvika: https://app.fitr.training/p/vodvar

#159: Hvaða Íslendingar svindluðu í CF open?
CF games open er komið að lokum og leaderboardið er live. Sumir taka æfingarnar í stöðvum og þurfa ekki að skila myndböndum en aðrir þurfa að gera það. Við förum yfir score-in sérstaklega karla megin og gefum okkar skoðanir á hverju og einu sæti. Ef að þig vantar plan til þess að geta æft 1-3x í viku, þá er Böðvar með æfingaplanið "Vöðvar" fyrir fólk sem að vill lyfta 1-3x í viku í líkamsrækt eða crossfit sal og hefur valkvætt hlaup 1x í viku. Tilvalið fyrir þá sem vilja fá nákvæmlega hvað þau eiga að gera í ræktini en vilja ekki eyða miklum pening í þjálfun. Fyrir FRÍA prufuviku geturu smellt hér: https://app.fitr.training/p/vodvar

#158: Ekki nógu langt gengið
Ekki nógu langt gengið eða of langt gengið? Engar hömlur í þessum þætti, sumir myndu kalla svona þátt "opið set". Erum að fara missa vinnuna okkar útaf AI, tannlæknar að nota köngulóavef, Kolbrún Kría með mikilvægt input, bandarískt podcast drullar yfir íslenska stráka í CrossFit senunni, allir að keppa í Hyrox og margt margt margt fleira.

#157: Hótaði að stinga Bödda
Einhver maður á eiturlyfjum byrjaði að áreita samstarfsfélaga Böðvars þegar að hann var á næringafræði ráðstefnu í Cambridge og það endar með því að hann er að hlaupa frá honum á meðan að hann hleypur á eftir honum með aðra hendina í vestinu sínu að hóta að ætla að stinga hann eða "slice him up". Ekki nóg með það - þegar að Bensi og Dóri eru úti að borða með vinum sínum kemur einhver snælduvitlaus maður og byrjar að sleikja gluggan á veitingastaðnum og endar á að koma inn og setjast hjá þeim. Það endar þannig að Dóri rífur í þennan mann og grípur í hálsmálið á honum. Þegar að hann segir þjóninum að það þarf að reka þennan mann út þá ... bíður þjónninn manninum upp á drykk?! Þessi atvik in detail og margt annað skemmtilegt tekið fyrir í þessum þætti af Sterakastinu. Fylgið okkur endilega á Spotify og Instagram (Sterakastid) og segið vinum ykkar frá podcastinu ef að þið peppið þetta big time svo að við fáum fleiri hlustanir og meira motive til að taka meira upp! Þessi þáttur er í boði VÖÐVAR - æfingaplanið hans Böðvars fyrir fólk sem að vill æfa 1-3x í viku í líkamsrækt eða crossfit sal með valkvæðu hlaupi 1x í viku. Frí prufuvika fæst í gegnum þennan hlekk: https://app.fitr.training/p/vodvar Eftir prufuvikuna kostar planið einungis 2.000 kr. á mánuði en þú getur vegið og metið hvort að þú viljir vera með eða ekki eftir prufuvikuna þína!

#156: Viktor Gísli Hallgrímsson
Viðtal við einn af mest elskuðu manneskjum Íslands. Best þekktur sem poster boy colgates á Íslandi og sumir þekkja hann best markmann Íslands í handbolta. Við tölum við hann um hvers konar mental illness maður þarf að vera með til þess að vilja skutla sér fyrir framan handbolta á að ferðast á 110+ km/klst, hversu mikið er þetta að læra á leikmenn, sjá boltan og giska. Er verra að fá bolta í andlitið eða punginn? Hvernig er að ferðast með einkaþotu (Viktor er low key íslenski DJ Khaled FYI). Riverside dettur út FJÓRUM SINNUM en nær samt smá klippu af Viktori að taka rage kast og það er eitt fyndið bit. Viktor talar um æfingadaginn sinn, seasonið, hvernig er að vera elskaðasti maður íslands og margt fleira. VÖÐVAR er hrædódýrt æfingaplan sem að Böðvar setur uppp fyrir fólk sem að vill æfa 1-4x í viku í líkamsrækt eða í CF sal. Punktar frá Böðvari tengdir hreyfingunni, hvernig við erum að ná árangi yfir 3 vikna tímabil, myndbönd af hreyfingunum og samfélags chat - allt innifalið á 1.990 kr/mánuði. Ef að þú vilt fría prufuviku geturu smellt á þennan hlekk: https://app.fitr.training/p/vodvar

#155: Bonnie Blue, magaflóran og Grænland.
Þessi þáttur var í boði VÖÐVAR, æfingaplanið hans B(V)ÖÐVARS fyrir fólk sem vill lyfta 1-3x í viku með einni valkvæðri hlaupaæfingu. Þrjár nýjar lyftinga æfingar og ein hlaupa æfing í HVERRI VIKU fyrir 2.000 kr. á mánuði. Fyrir fría prufuviku ferðu á hlekkinn: https://app.fitr.training/p/vodvar - Tölum aðeins um arkítektúr í RVK, Bonnie Blue píkuna, magaflóruna og misskilninga í kringum hana, pólitík og margt fleira. Njótið þess að hlusta á þennan fría þátt af Sterakastinu!

#154: Elín Birna, Ingimar Jónsson & Steinunn Anna
LAST OF THE VIKINGS WFP RECAP með öllu liðinu. Af hverju sagði Ingimar nei takk við Pat Vellner þegar að hann bauð honum bjór í eftirpartyinu? Af hverju var James Sprague svona skrítinn við Bödda í eftirpartyinu (eða öfugt)? Hvað var það erfiðasta sem að við gerum sem lið á þessu móti? Hvað er planið í framtíðinni? Er Steinunn media trained fyrir viðtöl? Hver eru leyni markmiðini hjá Elínu? Hvað gekk illa hjá liðinu? Hvað gekk vel?

#153: Haraldur Holgersson #2
Nýbúinn að VINNA fall series og mættur í Sterakastið að fara yfir mótið, hvað er á döfinni, vill hann ennþá komast á games sem einstaklingur? Hverjir eru veikleikarnir og hvernig ætlar hann að vinna í þeim? Hugarfar, gripstyrkur, upper body mass, vesen á bláæð í örðum handleggnum, Friends spurningar, æfingaplanið hans og margt margt fleira. HFIT er æfingaplan sem að Halli er með og þau bjóða upp á generic program og upp á 1:1 þjálfun.

#152: Allt um WFP með Brian Friend & Viktor Münter
Sterakastið x Ufiltreret x BfriendlyFitness með þátt þar sem að þeir ræða World Fitness Project alveg í þaula. Böddi ræðir við Brian Friend og Viktor Münter en þeir eru einir af þeim sem að vita hvað mest um senuna í CrossFit heiminum í dag og þá sérstaklega hann Brian sem að er einn vinsælasti og klárlega fróðasti fréttaskýrandi (e. commentator) í heiminum í Functional Fitness. Viktor hefur keppt 2x á games í liði en varð ósáttur út í CrossFit eftir það hvernig þeir beyttu sér þegar að Lazar dó á leikunum 2024. Ég er síðan aðeins nýrri í þessari keppnis senu þar af leiðandi erum við með þokkalega mismunandi skoðanir og sjónarhorn á þessum keppnum og hugarfarið okkar gagnvart þeim þokkalega mismunandi. Viðtalið inniheldur mikið af spurningum beint að Brian þar sem að hann getur svarað vel fyrir WFP en heilt yfir er þetta þokkalega gott jafnvægi af spurningum, spjalli, skoðunum og smá shit talk. Hvað finnst okkur og öðrum um keppnina í samanburði við CrossFit Games? Hvað hefur Brian heyrt frá íþróttamönnunum á toppnum? Er "hype" fyrir þessari keppni? Af hverju? Af hverju ekki? Njótið þess að hlusta á #151 @viktormunter @ufiltreretfitness @brianfriendfitness @bfriendlyfitness



