Skýjaborgir

RÚV

Skemmtun

Að vanda er nóg að gera hjá meðlimum Kriðpleirs, á fjörur þeirra rekur áhugavert verkefni sem gæti breytt öllu fyrir þá og fjölskyldur þeirra. Ragnar og Árni eru til í þetta en Friðgeir er hins vegar á leiðinni til Tene þar sem hann ætlar að freista þess að klára bók fyrir jólin. Leikarar: Árni Vilhjálmsson, Friðgeir Einarsson, Ragnar Ísleifur Bragason, Ragnheiður Maísól Sturludóttir, Sigrún Hlín Sigurðardóttir, Halldóra Geirharðsdóttir, Ylfa Ösp Áskelsdóttir, Hákon Jóhannesson, Hjörtur Jóhann Jónsson, Benedikt Nikulás Annes Ketilsson og Jón Kalman Stefánsson. Hugmynd, handrit og leikstjórn: Bjarni Jónsson, Friðgeir Einarsson, Árni Vilhjálmsson og Ragnar Ísleifur Bragason. Tónlist: Benni Hemm Hemm. Hljóðvinnsla: Gísli Kjaran Kristjánsson.

4. þáttur

4. þáttur

2
apríl

Ragnar og Ragnheiður bregða á það ráð að bjóða Rúnu pípara og Orra sponsor í sánagusu í þeirri von um að hugmyndin um byggð að þeirra skapi hljóti brautargengi.

3. þáttur

3. þáttur

2
apríl

Haldið er af stað í vettvangsferð til Hveragerðis með fargufu í farteskinu.

2. þáttur

2. þáttur

2
apríl

Ragnar og Árni sjá mikla möguleika varðandi byggingarlandið í Hveragerðagerði, möguleika sem myndu þjóna hagsmunum þeirra og draumum. Friðgeir er hins vegar mættur til Tene til að skrifa.

1. þáttur

1. þáttur

2
apríl

Rúna pípari kemur að máli við Ragnar og gerir honum tilboð sem er erfitt að hafna. Hann viðrar hugmyndina við aðra meðlimi Kriðpleirs.

Þér gæti líka líkað...