Seinni níu
Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson
Hlaðvarp um golf þar sem rætt er við skemmtilega kylfinga. Í þættinum er einblínt á léttleika. Þáttastjórnendur eru Logi Bergmann & Jón Júlíus Karlsson

#116 - Aron Snær fékk áttu á par3 holu en vann samt mótið
Við fengum tvöfaldan Íslandsmeistara, Aron Snæ Júlíusson, í heimsókn til okkar í Seinni níu. Þessi tæplega þrítugi kylfingur varð Íslandsmeistari 2021 á Akureyri og svo aftur 2024 á Hólmsvelli í Leiru á mótsmeti eða 16 höggum undir pari. Hann hefur verið sjóðheitur að undanförnu og unnið fyrstu þrjú mótin á GSÍ-mótaröðinni. Aron verður hins vegar ekki með á Íslandsmótinu í holukeppni um næstu helgi en hann er að fara sem áhorfandi á Opna bandaríska meistaramótið þar sem félagi hans úr GKG, Gunnlaugur Árni Sveinsson, mun fyrstur Íslendinga taka þátt í mótinu. Opna bandaríska fær gott pláss í þættinum en við förum um víðan völl í spjalli okkar við Aron. Hann segir okkur aðeins frá því hvernig hann byrjaði í golfi. Við tökum stöðuna á ferli Arons sem atvinnumaður og svo segir Aron okkur frá því hvernig honum tókst að leika nokkuð stutta par3 braut á 8 höggum en standa samt uppi sem sigurvegari. Mjög áhugaverður og skemmtilegur þáttur með einum besta kylfingi Íslands.

#115 - Fannar þrífst á skömmum á golfvellinum
Við fengum körfuboltamanninn fyrrverandi, Fannar Ólafsson, í heimsókn í Seinni níu. Fannar var liðsfélagi Loga í Ion golfmótinu sem við stóðum að núna á dögunum og gekk á ýmsu hjá þeim félögum. Það var svo sannarlega glatt á hjalla. Fannar er með 26 í forgjöf. Hann er kraftagolfari og slær yfirleitt betur þegar hann fær að heyra það frá meðspilurum sínum. Við fáum stórskemmtilega kraftröðun hjá Fannari og draumahollið er á sínum stað. Við komum víða við í þættinum og ræðum meðal annars aðkomu Fannars að Körfboltakvöldi sem lyfti umfjöllun á íslenskum körfuknattleik til mikilla muna. Í þættinum greinir Fannar líka frá sex vikna sjúkralegu sinni eftir að hafa fengið sýkingu í annan fótlegg eftir slys í hesthúsi. Frábær þáttur á sérstaklega léttum nótum.

#114 - Baddý og öll fjölskyldan hefur farið holu í höggi á sama golfvell
Við fengum til okkar frábæran gest í vikunni því Bjarney Sonja Ólafsdóttir kom í heimsókn til okkar í Seinni níu. Hún gengur alla jafna undir nafninu Baddý og er búsett í Frankfurt, Þýskalandi þar sem hún rekur hugbúnaðar fyrirtækið 1xInternet. Baddý var skikkuð í golf sem barn en hún kemur úr mikilli golffjöldskyldu. Hún stundaði íþróttina fyrstu árin frekar af skyldurækni en af mikilli gleði enda var hún öflug í handbolta sem átti betur við hana á unglingsárum. Baddý fékk hins var golfdelluna á nýjan leik fyrir sex árum og er í dag með um 16 í forgjöf. Baddý segir okkur frá því þegar hún fór holu í höggi á 18. holu Öndverðarnesvallar en svo kom í ljós að öll fjölskylda hennar hefur tekist að fara holu í höggi á þeim velli. Það er í raun alveg magnað. Við fáum líka að heyra hvernig golfið er í Þýskalandi en fjölmargir frábærir golfvellir eru í næsta nágrenni við Frankfurt. Frábær þáttur sem kemur á óvart!

#113 - Sindri Snær fór handarbrotinn í golfferð
Við fengum til okkar athafnamanninn Sindra Snæ Jensson til okkar í Seinni níu. Hann er í fjölþættum fyrirtækjarekstri alltfrá pizzastaðnum Flatey og yfir í næturklúbbinn Auto. Sindri hóf að leika golf fyrir sex árum þegar knattspyrnuferlinum lauk og hefur náð fínum tökum á íþróttinni. Hann varð algjörlega sjúkur í golf fyrstu árin og er í dag með ca. 13 í forgjöf. Í þættinum er aðeins farið yfir ferð Sindra ásamt góðum mönnum til Írlands þar sem leiknir voru margir af bestu völlunum á Dublin svæðinu. Sindri kom með frábært draumaholl og fór einnig yfir þá kylfinga sem honum þykir vera svalastir í atvinnumannagolfinu. Einnig ræðum við aðeins íslenska golffatamerkið Brutta en þar er Sindri stór hluthafi. Frábær þáttur á léttum nótum eins og alltaf.

#112 - Saklaus lygi kom Ólafi Hand í vandræði á Myrtle Beach
Við fengum til okkar frábæran gest í Seinni níu þegar Ólafur William Hand kom í heimsókn til okkar. Hann hefur lengi verið viðloðandi golfíþróttina og setið í stjórn Golfklúbbs Reykjavíkur síðastliðin tíu ár. Í þættinum er komið víða við. Ólafur segir okkur aðeins frá golfinu sínu en hann hefur verið mjög víðförull og spilað á marga heimsþekkta golfvelli. Má þar einna helst nefna Pebble Beach, en einnig sagði hann okkur frá ótrúlegum golfvelli í Skotlandi sem toppar allt. Við fórum einnig aðeins yfir þær metnaðarfullu breytingar sem eru að eiga sér stað í Grafarholti og munu bæta völlinn til muna. Draumahollið er á sínum stað og svo fáum við kraftröðun yfir fimm bestu golfbækurnar sem Óli hefur lesið. Svo fengum við að heyra frábæra sögu þar sem saklaus lygasaga fór aðeins úr böndunum í Myrtle Beach. Frábær þáttur á léttum nótum að venju!

#111 - Bjarni beygir sig þúsund sinnum á dag
Við fengum afar fróðan gest til okkar í Seinni níu þessa vikuna því Bjarni Hannesson, vallarstjóri hjá Golfklúbbnum í Mosfellsbæ, fór yfir stöðu mála á golfvöllum landsins í skemmtilegu spjalli. Bjarni var mjög efnilegur kylfingur á yngri árum en slök frammistaða hans með pútternum varð honum oft að falli. Hann heillaðist snemma af því að starfa við golfvallaumhirðu og sótti sér menntun í Skotlandi í þeim fræðum. Í þættinum fer Bjarni yfir þessi fólknu fræði sem grasvallaumhirða er í raun. Hann segir okkur frá því hvað fer mest í taugarnar á golfvallarstarfsmönnum þegar kemur að framgöngu kylfinga á golfvellinum. Bjarni valdi einnig stórmerkilegt draumaholl þar sem nokkrir af helstu frumkvöðlum golfsins koma við sögu. Einn lengsti þátturinn í sögu Seinni níu en á fræðilegum og léttum nótum.

#110 - Liðleika Lilja þolir ekki óumbeðin ráð frá eiginmanninum
Við fengum frábæran gest til okkar í Seinni níu þessa vikuna. Lilja Sigurgeirsdóttir sem er þekkt sem Liðleikja Lilja kom til okkar. Hún hefur um nokkurra ára skeið sérhæft sig í að þjálfa fólk sem vill auka liðleika og bæta hreyfigetu sína. Lilja byrjaði sjálf í golfi fyrir tveimur árum og féll gjörsamlega fyrir golfíþróttinni. Hún er í dag í Golfklúbbi Mosfellsbæjar og nær að koma golfi að í flest sín samtöl. Þó hún hjálpi meðal annars afrekskylfingum við að auka liðleika þá skilur hún ekki hversu langan tíma það tekur að verða góð í golfi. Í þættinum velur Lilja sitt draumaholl og kemur með kraftröðun yfir þau fimm atriði sem fara mest í taugarnar á henni. Frábær þáttur og mjög fróðlegur. Lilja fer meðal annars yfir þær teygjur sem kylfingar ættu stunda til að bæta liðleika og leysa úr læðingi aukinn kraft úr golfsveiflunni. Frábær þáttur og á léttum nótum að venju!

#109 - Hrafnhildur elskar að spila golf á nóttunni
Við fengum góðan gest í Seinni níu þessa vikuna. Hrafnhildur Skúladóttir, fyrrverandi landsliðsfyrirliði í handbolta, þjálfari og nú ökukennari kom í heimsókn til okkar. Hrafnhildur er búsett í Vestmannaeyjum og er fjórar mínútur á golfvöllinn frá heimili sínu. Við ræðum aðeins golfið í Eyjum og það frelsi sem fylgir því að komast nær alltaf í golf. Hrafnhildur segir okkur frá uppáhalds golfholunum sínum í Eyjum, hún kemur með skemmtilegt draumaholl og einnig mjög áhugaverða kraftröðun yfir þau golfsvæði sem hún væri til í að heimsækja í golfferðum á næstu árum. Stórskemmtilegur þáttur!

#108 - Jón Halldórsson vill langa golfhringi
Við fengum frábæran gest í Seinni níu því formaður HSÍ, Jón Halldórsson, heiðraði okkur með nærveru sinni. Jón er að snúa aftur á golfvöllinn eftir að hafa undirgengist hnjáliðaskipti og nú á að taka golfið með trompi í sumar. Jón segir okkur aðeins frá því hvernig hann endaði sem formaður HSÍ og því verkefni sem er framundan þar. Við ræddum þó aðallega um golf og þar kom í ljós Jón er með um 18 í forgjöf og byrjaði í golfi eftir veðmál við kunnan handboltaþjálfara. Við fórum að sjálfsögðu yfir draumahollið sem var mjög óvænt að þessu sinni. Jón kom einnig með kraftröðun á þeim landsliðsmönnum í handbolta sem hann telur líklegt að séu bestir í golfi í landsliðshópi karla. Frábær þáttur á mjög léttum nótum að venju.

#107 - Sigmundur gerði jafntefli við Rory árið 2005
Við gerðum upp Masters með frábærum gesti því Sigmundur Einar Másson kom í heimsókn til okkar. Hann er fyrrverandi Íslandsmeistari í golfi og mikill tölfræðigrúskari. Rory McIlroy fagnaði sigri á Masters annað árið í röð og Sigmundur sagði okkur frá því þegar hann mætti honum í Evrópumóti landsliða árið 2005. Keppni þeirra á milli endaði með jafntefli og við fórum aðeins yfir það afrek. Simmi er mikill tölfræðipælari og því var þátturinn á frekar tæknilegum nótum að þessu sinni. Hann kom með stórskemmtilega kraftröðun yfir erfiðstu par-3 holur landsins miðað við tölfræði PGA-leikmanna. Draumahollið á sínum stað og ýmislegt stórskemmtilegt!